Morgunblaðið - 13.11.1992, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.11.1992, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992 Ráðstefna um jafnrétti kynjanna Menntaðar konur eru láglaunahópur SAMSTARFSHÓPUR kvenna í ungliðahreyfingum stjórnmála- flokkanna gengst fyrir ráðstefnu um jafnrétti kynjanna á morg- un, laugardaginn 14. nóvember, kl. 13 í Tjarnarsal Ráðhúss Reykja- víkur. Samstarfshópurinn var stofnaður í mars síðastliðnum, og eru konurnar í þessum hópi allar úr forystusveit sinna hreyfinga. Markmið hópsins er að beijast fyrir jafnrétti kyiyanna, en hópur- inn telur að í því efni halli á konur. Samstarfshópur kvenna í ung- liðahreyfíngum stjómmálaflokk- anna telur að því fari fjarri að aukin menntun íslenskra kvenna hafí fært þeim hærri tekjur eða stórkostleg áhrif í íslensku at- hafnalífí, og með sanni megi segja að vel menntaðar konur séu lág- launastétt á íslandi. Þær benda á að í umræðunni um dagvistarmál sé sýknt og heilagt látið í það skína að viðunandi dagvist fyrir böm sé eir.kamál mæðra þeirra, og sjálf- sögð mannréttindi feðra, svo sem fæðingarorlof, séu ekki álitin raun- hæfur kostur og meðhöndluð sem um stórhættulega hugmynd sé að ræða. Þá vegni konum ekki heldur vel á framboðslistum gömlu stjórn- málaflokkanna, en þær hafí löng- um prýtt uppfýllingarsætin fremur en þau sem þykja ávísun á þing- mennsku eða setu í bæjar- og sveit- arstjórnum. Segist samstarfshóp- urinn ekki una því að konur sitji lengnr á varamannabekk íslenskra stjómmála. Á ráðstefnunni sem ber yfír- skriftina „Konur á barmi jafnrétt- is“ verða flutt erindi um menntun og atvinnulíf, jafnréttislög í sýnd og reynd, og stjómmál og konur, en fyrirspumum úr sal verður svar- að að loknum flutningi erinda í hveijum málaflokki. Með ráðstefn- unni vonast samstarfshópurinn til þess að vekja sem flesta til um- hugsunar og góðra verka í þágu íslenskrar jafnréttisbaráttu. Samstarfshópur kvenna í ungliðahreyfingum stjórnmálaflokkanna, sem gengst fyrir ráðstefnu um jafn- rétti kynjanna í Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun. Fjármálaráðherrar Norðurlanda Fé renni til innri uppbygg- ingar fremur en millifærslu Árósum. Frá Ólafi Þ. Stephensen, blaðamanni Morgunblaðsins. Fjármálaráðherrar Norðurlandanna eru sammála um að samsetn- ing útgjalda ríkisins verði að miða að því að auka hagvöxt og at- vinnu. I því skyni verði að beina ríkisútgjöldum til fjárfestinga í innri uppbyggingu, svo sem samgöngukerfi, orkukerfi og menntun. Hins vegar beri að draga hlutfallslega úr millifærslum, svo sem niður- greiðslum, tryggingabótum og styrkjum. Ráðherrarnir hvetja til þess að á næsta ári verði haldinn ráðherrafundur EFTA og EB, sem hafi það verkefni að ræða leiðir til að auka hagvöxt og atvinnu. Þetta eru meðal annars niðurstöður fundar ráðherranna, sem hald- inn var í Árósum á mánudag í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Er fjármálaráðherramir kynntu niðurstöðu fundar síns á blaða- mannafundi skýrðu þeir frá því að SKIÐAPAKKAR FYRIR BÖRN lookIr bindingar tiÖRDKA skór Skíði, bindingar, sknr og stafir 70- 90 cm skíðapakki 100-130 cm skíðapakki 140-160 cm skíðapakki 165-175 cm skíðapakki kr. 12.429,-stgr. kr. 14.103,-stgr. kr. 14.931 ,-stgr. kr. 15.318,-stgr. m gúra/Fígffl Glæsibæ, sími 812922. efnahagsástandið á Norðurlöndum hefði verið verra en að meðaltali í Vestur-Evrópu síðan um miðjan síð- asta áratug. Efnahagsstarfsemi dróst "saman um meira en 1% á Norðurlöndunum öllum í fyrra og ekki er útlit fyrir neinn bata í ár. Á næsta ári sjá ráðherramir þó fram á örlítinn hagvöxt, en búizt er Við að atvinnuleysi verði áfram mikið. í yfirlýsingu, sem gefin var út í fundarlok, fögnuðu ráðherrarnir fmmkvæði norsku stjórnarinnar um að hvetja til sameiginlegs fundar fjármálaráðherra Evrópubanda- lagsins og EFTA-ríkjanna á næsta . ári, sem á að ræða leiðir til að auka hagvöxt og atvinnu. Danir taka brátt við formennsku í EB og Norð- menn í EFTA. Norðurlöndin geta því gegnt lykilhlutverki í skipulagn- ■ ingu ráðherrafundarins. Ráðherr- amir lýstu yfír að þeir myndu í sameiningu vinna að því á ýmsum alþjóðlegum vettvangi að fylgt yrði efnahagsstefnu, sem leiddi til lægri vaxta, og að samsetning ríkisút- gjalda iegði grunn að hagvexti í Morgunblaðið/Björn Blöndal Sonja ísafold ásamt börnum sínum, frá vinstri til hægri eru: Jóhann Valur Jóhannsson, Sonja ísafold, Jónína Jóhannsdóttir, Silja Björg Jóhannsdóttir, Sólveig Ásta Jóhannsdóttir og Anna Kristjana Jó- hannsdóttir. Arfur - samsýning í Risinu í Keflavík Móðir og fimm börn saman á listsýningu Keflavík. Um síðustu helgi var opnuð samsýning 6 listamanna í Risinu við Tjarnargötu 12 í Keflavík. Að sýningunni, sem nefnist Arfur, standa Sonja ísafold, sem búsett er í Keflavík, og fimm börn hennar og verður sýningin opin um þessa helgi og einnig þá næstu. Sonja sagði í samtali við Morgun- blaðið að hún hefði lengi átt þann draum að geta haldið samsýningu með bömum sínum en það hefði verð erfitt í farmkvæmd þar sem þau væm búsett bæði úti á landi og erlendis. „Ein dóttir mín er bú- sett í Danmörku þar sem hún vinn- ur sem listamaður og þegar hún ákvað að koma í heimsókn var ákveðið að nota tækifærið til að þessi draumur gæti ræst,“ sagði Sonja. Sonja ísafold er fædd í Dan- mörku en búsett í Keflavík og sýn- ir hún skúlptúra úr málmi og text- fl, Anna Kristjana Jóhannsdóttir sýnir keramikskúlptúr o.fl., Jónína Jóhannsdóttir sýnir málverk sem hún hefur málað með ýmislegri tækni, Jóhann Valur Jóhannsson sýnir hluti úr málmi, Sólveig Ásta Jóhannsdóttir sýnir blýantsteikn- ingar og Silja Björg Jóhannsdóttir leggur sýningunni til ljóð. Sýningin verður opin frá kl. 14-18 um þessa og næstu helgi, frá föstudegi til sunnudags. - BB framtíðinni. Ráðherrarnir telja lága vexti forsendu fyrir auknum fjár- festingum og þar með meiri hag- vexti og atvinnu. Ráðherrarnir telja brýnt að grípa til aðgerða í ríkisfjármálum Norður- landanna. Þeir telja að ekki megi hrófla við þeirri efnahagsstefnu, sem miðar að lágri verðbólgu og öruggum hagvexti. í yfirlýsingu sinni hvetja þeir til að ríkisútgjöldin verði samsett með þeim hætti að stuðli að aukinni atvinnu og hag- vexti, með öðrum orðum að féð renni til fjárfestingar í innri upp- byggingu, en ýtrasta aðhalds verði gætt í félagslegum millifærslum og samneyzlu. Sigbjöm Johansen, fjármálaráð- herra Noregs, sagði á blaðamanna- fundinum að það yrði afar erfitt pólitískt verkefni að draga úr milli- færslunum, þar sem þær væru oft af toga félagslegrar aðstoðar, en það væri verkefni sem takast yrði á við. Friðrik Sophusson fjármála- ráðherra tók í sama streng og sagði að markmiðið væri ekki að auka heildarútgjöld hins opinbera, heldur að endurskipuleggja ríkisfjármálin og setja meira fé í varanlegar fjár- festingar. Ann Wibble, Qármálaráð- herra Svíþjóðar, lagði á það áherzlu að fjárfestingar í t.d. samgöngu- kerfí skiluðu sér í því að erlend fyrirtæki teldu fýsilegra að fjárfesta á Norðurlöndum í framtíðinni og þannig væri búið í haginn fyrir hagvöxt á næstu árum. Fjármálaráðherrarnir sögðu að hætta væri á að fjárfestingar í innri uppbyggingu drægjust mjög sam- an, þegar efnahagsástand væri erf- itt. Það bæri að forðast, því að sam- dráttur í fjárfestingum hefði áhrif til hins verra. Ráðherrarnir ræddu á fundi sínum ýmis fjárfestingar- verkefni, sem til greina kæmu, en vildu ekki skýra frá einstökum við- fangsefnum. Þeir ræddu meðal ann- ars möguleika á að Norræni fjár- festingarbankinn tæki í auknum mæli þátt í fjármögnun slíkra verk- efn. Friðrik Sophusson sagði í sam- tali við Morgunblaðið eftir fund ráðherranna að tillögur um ráð- herrafund Evrópubandalagsins og EFTA til að sporna gegn atvinnu- leysi ættu sér meðal annar rætur í því að menn óttuðust að það mikla atvinnuleysi, sem væri innan Evr- ópubandalagsins, yrði viðvarandi þegar Norðurlönd gengju í banda- lagið. Hann sagði að tillögur um aukna áherzlu á varanlegar fjár- festingar væru í anda stefnu ís- lenzku ríkisstjórnarinnar, sem hefði ákveðið að leggja aukið fé í vega- og byggingarframkvæmdir á veg- um hins opinbera en skera niður sjálfvirkar millifærslur í velferðar- kerfinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.