Morgunblaðið - 13.11.1992, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 13.11.1992, Blaðsíða 50
JO MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTBR FÖSTUDAGUR 1,3. NÓVEMBER 1992 HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNI BIKARHAFA Sveinn Sigfinnsson skorar hér gegn Barcelona í Evrópuleik sl. keppnistímabil. Hann tók þá stöðu Jakobs Sigurðs- sonar, sem var þá einnig frá vegna meiðsla. Yrði mikið áfall að komast ekki áfram - sagði Geir Sveinsson fyrirliði Valsmanna sem mætir Maistas Klaipeda frá Litháen í Laugardalshöll í kvöld ■ GENNADI Touretsky frá Rúss- landi, einn fremsti sundþjálfari heims, hefur verið ráðinn sem aðal- þiálfari ástralska sundlandsliðsins. ■ FIMM keppendur undir stjórn Touretskys unnu til gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Barcelona. Hann gerði tveggja ára samning við Astr- ala og byijar í næsta mánuði. ■ ÁSTRALSKA sundsambandið bauð einnig Rússanum Alexander Popov, sem sigraði í 50 og 100 m ^jjkriðsundi á ÓL, að æfa með landslið- inu í óákveðinn tíma og er gert ráð fyrir að vera Rússanna verði mikil lyftistöng fyrir íþróttina í landinu. ■ MIKE Keenun sagði stöðu sinni sem framkvæmdastjóri Chicago Blackhawks í NHL-deildinni lausri um helgina. Síðustu tvö ár var hann bæði framkvæmdastjóri og þjálfari liðsins og undir stjóm hans komst liðið í úrslit um Stanley-bikarinn á síðasta tímabili. ■ DARRYL Sutter tók við þjálf- arastöðunni í júní s.l. og Keenan fannst völd sín ekki vera nógu mik- il. Því sagði hann upp fimm ára samningi, sem var undirritaður fyrir tæpum mánuði. ■ ÞRÍR knattspymumenn frá íran vom úrskurðaðir í árs bann af Knatt- spymusambandi Asíu vegna rudda- legrar framkomu gagnvart dómara í leik íran og Japan í keppni um Asíubikarinn. Bannið gildir jafnt inn- anlands sem utan. ■ TAKUYA Takagi tryggði Jap- an 1:0 sigur gegn Saudi-Arabíu í úrslitaleik keppninnar í Tókíó á sunnudag. Saudi-Arabía átti titil að veija — hafði reyndar sigrað í keppn- inni tvö ár í röð. ■ HOLLENDINGURINN Hans ^Ooft, þjálfari Japan, sagði að sig- urinn væri mikilvægt skref fyrir heimsmeistarakeppnina í Bandaríkj- unum^ 1994. ■ KÍNA vann Sameinuðu arab- ísku furstadæmin 4:3 eftir víta- keppni í leik um 3. sætið. ■ JAPAN, sem hefur sótt um að halda HM 2002, hafði ekki áður leik- ið til úrslita um Asíubikarinn. „Lið- ið hefur tekið miklum framförum," sagði Ooft, sem tók við stjóminni fyrir sjö mánuðum. ■ FU Yubin, markvörður Kína, varði tvær vítaspymur og innsiglaði síðan sigurinn — tók síðasta víti Kína og skoraði, en fyrir vítakeppn- ina var staðan 1:1. VALSMENN leika gegn Maist- as Klaipeda frá Litháen í 16-liða úrslitum í Evrópukeppni bikar- hafa í Laugardalshöil um helg- ina. Fyrri leikurinn verður í kvöid og sá síðari á sunnu- dagskvöld og hefjast báðir kl. 20.30. „Þó við þekkjum ekki mikið til mótherjanna þá yrði það mikið áfall fyrir okkur ef við kæmumst ekki áfram í átta liða úrslit," sagði Geir Sveins- son, fyrirliði Vals. Litháiska liðið vann fínnska liðið, Vanta frá Helsinki, í 1. umferð keppninnar. Fyrri leikurinn sem fram fór í Litháen endaði 34:18 en liðið tapaði síðan seinni leiknum í Helsinki með fjögurra marka mun, 29:25. Valsmenn vita ekki mikið um þetta lið en hafa fengið upplýs- ingar um liðið frá þjálfara fínnska liðsins. Þorbjörn Jensson, þjálfari Vals, sagði að þetta væri reynslumikið lið sem leikur sterkan vamarleik og agaðan sóknarleik. „Liðið lék í sovésku fyrstu deildinni en náði aldrei á meðal þeirra allra bestu. Einn landsliðsmaður er í liðinu, Raimondas Valuauskas, sem er vinstrihandar skytta. Hann var i sovéska landsliðinu til 1988 eða þar til Alexander Tutschkin tók við hlutverki hans í landsliðinu. Finnski þjálfarinn sagði mér að það væru þrír öflugir leikmenn í liðinu sem þyrfti að hafa sérstakar gætur á. Þeir eru Valuauskas, Malakauskas sem er leikstjómandi og línumaður- inn Gudziunas," sagði Þorbjörn. Valdimar Grímsson, sem hefur leikið um 350 meistaraflokksleiki með Val og 26 Evrópuleiki, var bjartsýnn fyrir leikinn. „Við rennum nokkuð blint í sjóinn með þetta lið. BRODDI Kristjánsson og Birna Petersen mæta heimsmeistur- unum Thomas Lund og Parnille Dupont frá Danmörku ítvennd- arleik á Norðurlandamótinu í badminton, sem verður í Malmö í Svíþjóð um helgina. Mike Brown, landsliðsþjálfari íslands, valdi fimm keppendur til að leika fyrir hönd íslands á mótinu. Birna Petersen, Elsa Nielsen, Broddi Kristjánsson og Jón Pétur Zimsen úr TBR fóru héðan og einnig keppir Ása Pálsdóttir, sem býr og æfir í Danmörku í vetur, á mótinu. Jón Pétur og Elsa leika einnig gegn sterkum mótheijum í tvenndarleik - Dönunum Henrik Svarrer og M. Thomsen. í tvenndarleik leika Broddi og Jón Pétur gegn Svíunum J.E. Ant- onsson og Stellan Osterberg, sem er par nr. tvö í Svíþjóð og Elsa og Ása fá einnig sænskt par, M. En íslenskur handknattleikur á að vera betri en sá litháíski. Það er engin launung að við ætlum okkur áfram. Við vonumst því til að áhorf- endur komi og styðji vel við bakið á okkur.“ Jakob Sigurðsson, hornamaður, verður illa fjarri góðu gamni þar sem hann er meiddur í hné. Það kann að veikja liðið en Þorbjörn sagði að Sveinn Sigfínnsson hefði sýnt að hann gæti leyst þetta hlut- verk vel „og ég treysti honum til þess,“ sagði Þorbjöm. Litháiska liðið kom til landsins á miðvikudag. Valsmenn greiða allan kostnað liðsins; flug, gistingu og uppihald. Fyrri leikurinn í kvöld telst úti- leikur Vals og hefst hann kl. 20.30 í Laugardalshöll. Dómararnir eru sænskir og heita Berndtsson og Hansson. Bengtsson og M. Borg. Ekki er enn ljóst hvaða mótheijar íslensku keppendurnir fá í einliðaleik. ■ KARL Valtýsson, blakmaður, hefur skipt úr ÍS í Þrótt Reykjavík og verður löglegur með nýja félaginu í byijun janúar. Hann er sjötti leik- maðurinn, sem hefur farið frá liði íslandsmeistaranna í haust. ■ BLÍ átti 20 ára afmæli sl. mið- vikudag og ætla blakmenn að minn- ast tímamótanna með því að gefa út afmælisblað á næstunni. ■ FRAMKVÆMDARAÐILAR Ólympíuleikanna í Atlanta 1996 hafa óskað eftir að golf verði sýning- argrein á leikunum og verði óskin tekin til greina fer keppnin fram á Augusta-vellinum. ■ SAMKVÆMT reglum goíf- klúbbsins geta hvorki blökkumenn né konur verið meðlimir í klúbbnum og fá því ekki að leika á vellinum (reyndar er einn meðlimur blökku- maður), en Alþjóða ólympíunefndin, IOC, segir að reglur klúbbsins komi sér ekki við og hafí ekkert með Ólympíuleikana að gera. Verði golf á leikunum sitji allir við sama borð. ■ IOC fundaði um helgina og var deilt um hvernig hægt væri að við- halda þátttöku fámennari þjóða, sem ættu ekki íþróttamenn í fremstu röð. Samaranch, forseti IOC, sagði að unnið yrði að málinu, „en mikilvæg- ast er að keppendur verði ekki fleiri en 10.000 og verði fulltrúar allra þjóða." ■ SAMARANCH sagði að koma yrði í veg fyrir að keppendur væru á Ólympíuleikum til þess eins að njóta lífsins. „Allar þjóðir eiga rétt á að senda keppendur, en þeir verða líka að standa undir nafni. Það þýðir ekki að senda sundmann, sem kann ekki að synda.“ ■ SAMARANCH sagði að einum „skíðamanni" hefði verið meinuð þátttaka á Vetrarleikunum í Albert- ville, þegar í ljós hefði komið að við- komandi hafði aldrei stigið á skíði. „Okkur var sagt að hann myndi læra á skíðum síðustu tvær vikumar fyrir leikana." ■ „MAGIC" Johnson var á dög- unum ákærður fyrir að hafa sam- rekkt fyrrum eiginkonu þjálfara nokkurs í NBA-deildinni. Konan seg- ir „Magic“ hafa smitað sig af HIV- veirunni. Hann viðurkennir hið fyrr- nefnda en segir óljóst hvort hafi smitað hvort. ■ BLÖÐ og tímarit í Michigan í Bandaríkjununm fóru á dögunum í mál við saksóknaraembættið, þar sem saksóknari vildi ekki gefa upp nafn konunnar. Dómur féll um helg- ina á þá leið að nafnið skuli ekki gert opinbert. FELAGSLIF Herrakvöld Gróttu Grótta heldur árlegt herrakvöld sitt í kvöld i Félagsheimili Seltjarnaness. Húsið verður opnað kl. 20. Ræðumaður kvöldsins er Júlíus Sólnes. Aðalfundur hjá UBK Aðalfundur knattspyrnudeildar Breiðabliks verður haldinn laugardaginn 14. nóvember kl. 14 í félagsheimili Kópavogs. Venjuleg aðalfundarstörf. Minnt er á aðalfund Stuð- blika er heldinn verður um kvöldið í sal Sjálfstæðisflokksins í Hamraborg. PUMA DISK SKOR TILBOÐ: VERÐ AÐEINS KR. 6.900,- mmuTiuFFmm GLÆSIBÆ - SÍMI 812922 GETRAUNASPA MORGUNBLAÐSINS 46- Ellefu fyrstu leikirnir á seðlinum eru úr ensku víka —/A*— 1 X 2 Bristol R. - Derby 1 2 1. deildinni og tveir þeir síðustu úr bikarkeppninni. Giskað er á 144 raða opin seðil, sem kostar 1.440 krónur. Tveir Cambridge - Bamsley 1 Charlton - Newcastle X 2 Grimsby - Bristol C. 1 Millwall - West Ham 1 X 2 Notts County - Wolves X leikir eru þrítryggðir, Oxford - Luton X fjórir tvítryggðir og sjö þar af leiðandi fastir - með einu merki. Frí er í úrvalsdeildinni um Sunderland - Leicester 1 2 Swindon - Southend 1 Tranmere - Brentford 1 helgina vegna leiks Watford - Portsmouth 1 2 Englands og Tyrklands Reading - Birmingham 2 f undankeppni HM á York - Stockport 1 X 2 miðvikudaginn. BADMINTON / NM-MOTIÐ Broddi og Bima mæta heims- meistumnum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.