Morgunblaðið - 13.11.1992, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 13.11.1992, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992 31 Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra Ekkí óeðlilegt að gefa lögnm um stjóm fiskveiða lengri reynslutíma ÞAÐ ER stefna ríkistjórnarinnar að marka heildstæða sjávarút- vegsstefnu og var svonefndri ..tveggja formanna nefnd“ eða „tvíhöfða nefnd“ ætlað að endur- skoða lög um sljórn fiskveiða. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra segir að ágreiningur milli stjórnarflokkanna hafi tafið starf nefndarinnar. Ráðherrann segir íhugunarefni hvort núver- andi kerfi þurfi ekki lengri reynslutíma. Sjávarútvegsráðherra sagðist enn gera sér vonir um að menn gætu innan ekki langs tíma lokið þessu nefndastarfi. Og í framhaldi af því gætu umræður hafist við hagsmuna- aðila og sjávarútvegsnefnd Alþingis. Ræðumaður benti á að í þessum málum væru ýmis tæknileg efni sem þyrfti að hyggja að, s.s. tvöföldun línuveiða og reglur um krókaveiðar smábáta. Þessu næst sagði sjávarút- vegsráðherra: „Hitt er svo sérstakt athugunar- og íhugunarefni hvort í raun þarf ekki mun lengri reynslu- tíma til að meta árangur af núver- andi kerfi. í reynd höfum við ekki í höndum upplýsingar nema frá einu og hálfu ári sem þetta núverandi kerfi hefur staðið, þannig að ýmis- legt mælir auðvitað með því að menn taki lengri tíma til þess að meta raunverulega reynslu og árangur af stjórnkerfinu." Jóhann Arsælsson sagði það nú gerast sem menn hefðu óttast í upp- hafi. Það væri verið að draga þessi mál; þau væru að komast í eindaga og nú væri hugmyndinni varpað fram; lengri reynslutíma. Einmitt þetta hefðu menn óttast; að teygt yrði á þessum málum eins lengi og mögulegt væri; þangað til þau væru komin í eindaga og að menn myndu halda svo áfram með sama kerfi án breytinga. Sjávarútvegsráðherra ætlaði sér að framlengja kerfið án þess á því yrðu grundvallarbreyting- ar. Það væri gjörsamlega óviðunandi að svona væri staðið að málinu. Stuttar þingfréttir Lög frá Alþingi Fjögur frumvörp í fyrradag voru samþykkt sem lög frá Al- þingi: krumvarp til laga um inn- flutning, frumvarp til laga um gjaldeyrismál, frumvarp til laga um Fiskistofu og frumvarp til laga um meðferð og eftirlit sjávarafurða. Jóhann Ársælsson (Ab-vl) gerði í gær fyrirspurn til sjávarútvegsráð- herra um hvernig miðaði athugun á mismunandi kostum við stjórn fisk- veiða eins og mælt væri fyrir um í lögum um stjórn fiskveiða, nr. 38, 15. maí 1990 og hvenær mætti vænta þess að málið yrði lagt fyrir Alþingi. Jóhann sagði að endurskoð- un laganna væri miðuð við næstu áramót. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra rifjaði upp að það hefði verið samkomulag stjórnarflokk- anna að þeir hefðu báðir jafna hlut- deild varðandi endurskoðun laganna um stjórn fískveiða. Eins og þing- mönnum væri kunnugt hefði málum verið svo skipað, tveir menn voru valdir til að hafa forystu fyrir þeirri nefnd sem sem hefði verið falið að fjalla um þetta mál. Sjávarútvegsráðherra dró enga dul á þá skoðun sína að óheppilegt væri að slíta í sundur stjórnskipulega ábyrgð með þessum hætti og hefði vissulega haft nokkur áhrif á störf nefndarinnar. En hitt væri þó mikil- vægast að þeir tveir menn sem völd- ust til forystu, Magnús Gunnarsson og Þröstur Ólafsson, hefðu haft góð persónuleg tengsl. Nefndin hefði unnið mjög örugglega að þeim meg- inviðfangsefnum sem henni hefði verið ætlað. Sjávarútvegsráðherra sagði kjarna málsins kunnan þingmönn- um; að á milli stjórnarflokkanna hefði verið ágreiningur varðandi skattheimtu eða gjaldtöku af sjávar- útveginum. Og sá ágreiningur hefði tafið nefndarstarfið að undanförnu. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð- herra vildi benda á að innan allra flokka væru skiptar. skoðanir um skipan þessara mála. Stofnlánadeild landbúnaðarins og Ríkisábyrgðarsjóður gefí eftir skuldir Samkomulag um aðstoð til loðdýrabænda HALLDÓR Blöndal landbúnaðarráðherra tilkynnti í gær um tillögur sem samkomulag er um í ríkisstjórn og milli stjórnarflokkanna til lausnar á vanda loðdýrabænda. M.a. er gert ráð fyrir að Stofnlána- deild landbúnaðarins felli niður verulegan hluta af lánum til loðdýra- ræktar, getur sú niðurfelling numið allt að helmingi af heildarskuld- bindingum. Ríkissjóður mun leggja fram fé til greiðsiu á lánum með ríkisábyrgð. í fyrirspurnatíma í gær innti Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (Sk-Vf) landbúnaðarráðherra eftir því hvort nefnd sú sem skipuð hefði verið til að skoða stöðu loðdýrabænda hefði lokið störfum og hveijar tillögur væru til lausnar á vanda loðdýra- bænda. Halldór Blöndal landbúnaðar- ráðherra sagði að tilgreind nefnd hefði lokið störfum. Landbúnaðar- ráðherra taldi sér rétt og skylt að greina fyrirspyijanda og öðrum þingmönnum frá tillögum sem sam- komulag væri um í ríkisstjórn og milli stjórnarflokkanna. Lagt væri til að öllum aðilum sem heimild hefðu til reksturs loðdýrabúa og og fengið hefðu lán til þeirra hjá Stofnlánadeild landbúnaðarins yrði gefinn kostur á að sækja um fyrir- greiðslu stjórnvalda. Lagt væri til að stjórnvöld beittu sér fyrir almennum aðgerðum til aðstoðar starfandi loðdýrabændum og þeim loðdýrabændum sem hætt hefðu starfsemi. Annars vegar yrði leitað eftir því við Stofnlánadeild landbúnaðarins og aflað nauðsyn- legra heimilda til að deildin gæti fellt niður verulegan hluta af lánum til loðdýraræktar. Yrðu þessar ráð- stafanir liður í heildarsamningum um skuldauppgjör loðdýrabænda. Miðað væri við að fyrrgreind niður- felling gæti numið allt að helmingi af heildarskuldbindingum, sem til hefði yerið stofnað vegna loðdýra- ræktar. Hins vegar legði ríkissjóður fram fé til greiðslu á lánum með ríkisábyrgð. Yrði það framlag veitt árlega og svari til greiðslu afborgana og vaxta af þeim lánum. Lagt væri til að jöfnunargjald á loðdýrafóður yrði fellt niður frá og með 1. janúar. 1994. Lagt væri til að beina þeim tilmæl- um til sveitarfélaga um að gefa eft- ir eða lækka kröfur sínar vegna fast- eignaskatts og aðstöðugjalds sem væri í vanskilum hjá loðdýrabænd- um. Lagt væri til að um frekari að- gerðir yrði ekki að ræða að hálfu Hvalveiðar ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra hafnar þeim sjónarmiðum að Bandaríkin eða bandarísk sljórnvöld geti einhliða tekið ákvarðanir um verslun með sjávarafurðir út frá duttlungum sínum um verndun einstakra tegunda í hafinu. Það sé fráleitt að við beygjum okkur undir „alþjóðlegt lögregluvald Bandaríkjanna". í fyrirspurnatíma í gærmorgun var Ingibjörg Pálmadóttir (F-Vl) þess mjög hvetjandi að Islendingar hæfu hvalveiðar hið fyrsta og spurði eftir því hvenær ríkisstjórnin hygðist heimila hvalveiðar að nýju? En Ing- björg var einnig knúin í ræðu sinni til að benda á að hvalfriðunarsinnum yxi stöðugt fiskur um hrygg og þeim hefði orðið mjög ágengt á erlendum mörkuðum með einhliða áróðri gegn hvalveiðum og skemmt fyrir sölu á íslenskum fiski. Það væri augljóst að áður en hvalveiðar hæfust að nýju þyrftum við íslendingar að skýra okkar málstað og áætlanir. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra var fyrirspyijanda fyllilega sammála um að við yrðum að kynna okkar málstað í þessu máli. Hann greindi líka frá því að samstarf væri hafið við helstu útflutningsfyr- irtæki til þess að afla sem bestra upplýsinga um viðhorf seljenda á erlendum mörkuðum og stöðu okkar þar. Það var skoðun sjávarútvegsráð- herra að æskilegt væri að hefja veið- ar á næsta ári. En eins og sakir nú stæðu treysti ráðherrann sér ekki til að fullyrða að það tækist. Guðjón Guðmundsson (S-Vl) tók undir herhvöt Ingibjargar um að he§a hvalveiðar. Ef hótanir og við- skiptaþvinganir fylgdu „væri það slagur sem við yrðum að taka“. Alþjóðleg sjónarmið Kristín Ástgeirsdóttir (SK-Rv) kvaðst vera á þveröfugri skoðun við fyrra ræðumann. Við yrðum að fara afar varlega og okkar heildarhags- munir hlytu að ráða. Hún benti á að fyrir örfáum dögum hefðu borist af því fréttir að í Bandaríkjunum væri nú rætt um að setja bann á norskan eldisfisk vegna óverulegra hvalveiða Norðmanna. Þetta væri stjórnvalda. Landbúnaðarráðherra sagði að þau veð sem Ríkisábyrgðarsjóður hefði vegna lána sem hann hefði veitt loðdýrabændum væru í flestum tilvikum einskis virði og ríkisstjómin mæti það svo að það væri eðlilegast og hreinskilnast að Ríkisábyrgðar- sjóður tæki þessi lán á sig. Guðni Ágústsson (F-Sl), stjórn- arformaður Stofnlánadeildar land- búnaðarins, þótti landbúnaðarráð- herra færa þingmönnum nokkrar fréttir af vettvangi ríkisstjórnarinn- ar. Hann honum var það efni undr- unar og harms að ráðherra hefði ekki hafa leitað eftir samráðsfundi með stjórn Stofnlánadeildarinnar. Hér væri gerð tillaga um „flatan niðurskurð á skuldum". Hann vildi einnig benda á að jöfnunargjöld eða niðurgreiðslur ríkissjóðs til fóður- stöðvanna næmu 35 milljónum króna og þegar þær féllu niður færu fóðurstöðvarnar á hausinn og bænd- umir með. Jóna Valgerður Krisljánsdóttir taldi þessar tillögur vera til mikilla bóta þótt bankalán stæðu eftir. Hún vonaði og vænti þess að gott sam- starf gæti tekist milli ríkisstjórnar og Stofnlánadeildarinnar. Duttlungar bandarískra stjómvalda eiga ekki að ráða miklu stærra mál en eitthvert smá- stríð okkar við umhverfisverndar- menn. Þetta væru ákveðin sjónarmið sem væru ríkjandi og næðu inn í stjórnkerfi margra landa. Aðrir þingmenn voru á öndverðum meiði og vildu hefja hvalveiðar, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (Sk- Vf), Matthías Bjarnason (S-Vf), Sturla Böðvarsson (S-Vl). Auk þess að hvetja til hvalveiða var ræðumað- ur knúinn til að vekja athygli við- staddra á að Kvennalistinn væri klofinn í afstöðu sinni. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra furðaði sig á ræðu Kristín- ar Ástgeirsdóttur. Sjávarútvegsráð- herra sagðist hafa haldið að ekki þyrfti að ræða það á Alþingi „að við eigum að taka tillit til þeirra sjónar- miða að Bandaríkin og bandarísk stjórnvöld geti einhliða tekið ákvarð- anir varðandi viðskipti með sjávaraf- urðir, út frá eigin duttlungum um hvernig eigi að standa að verndun einstakra tegunda í sjónum.“ Þor- steinn Pálsson sjávarútvegsráðherra sagði það fráleitt að við færum að beygja okkur undir „alþjóðlegt lög- regluvald Bandaríkjanna." Nú er lag lyrir jólabakstunnn. Verðið hvergi iægra! /HIKLIG4RDUR VIÐ SUND

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.