Morgunblaðið - 13.11.1992, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992
5
Bílastæðahús
Breytingar
á gjöldum
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
nokkrar breytingar á mánaðar-
gjöldum í bílastæðahús borgar-
innar. I fjórum þeirra hækkar
gjaldið um 500 krónur en lækkar
um 2.000 krónur í einu. Taka
breytingarnar gildi frá og með
1. janúar 1993.
Mánaðargjald á Bakkastæði, í
Kolaporti og á þaki Tollstöðvarinn-
ar verður 2.500 krónur, hækkar um
500 krónur. Á Bergstöðum verður
mánaðargjald 3.500 krónur, lækkar
um 2.000 krónur. Mánaðargjald á
Vesturgötu 7, verður óbreytt 5.500
krónur og einnig á Alþingisreit og
í Ráðhúsinu en þar er gjaldið 6.000
krónur á mánuði fyrir bílinn. Þá var
samþykkt að mánaðargjald í nýja
bílastæðahúsinu við Hverfisgötu 20
verði 3.500 krónur.
Lýsi hf.
Starfsfólk
tekur á sig
launalækkun
ALLT starfsfólk Lýsis hf. hefur
tekið á sig launalækkun sem gildi
tekur 1. febrúar næstkomandi, og
að sögn Ágústs Einarssonar for-
stjóra Lýsis mun það ásamt öðrum
aðgerðum tryggja viðunandi af-
komu fyrirtækisins á næsta ári.
Hann vildi ekki greina frá því um
hve mikla launalækkun væri að
ræða.
Ágúst sagði í samtali við Morg-
unblaðið að launalækkun starfs-
fólksins væri endapunkturinn á því
að komast út úr þeim erfiðleikum
sem Lýsi hf. hefði verið komið í
vegna verðlækkunar á þorskalýsi
sem átti sér stað á síðasta ári. Sú
verðlækkun hefði fyrst og fremst
orðið vegna opinberra ríkisuppbóta
á lifur í Noregi.
„Þetta ásamt öðrum aðgerðum
sem við höfum gripið til í hagræðing-
arskyni á að tryggja reksturinn og
viðunandi afkomu á næsta ári, en
um þetta var alveg friður og fullur
trúnaður milli mín og starfsfólksins
varðandi þessar ráðstafanir," sagði
Ágúst.
----» » » --
Lyfjaversl-
un ríkisins
breyttí
hlutafélag
Morgunblaðið/Júlíus
125 kg af smygluðu
nautakjöti í Perlunni
TOLLGÆSLAN hefur lagt hald
á 125 kg af smygluðu nauta-
kjöti í eldhúsi veitingahússins
Perlunnar í Reykjavík. Maður
sem rekur eldhúsið hefur geng-
Smygluðu nautalundirnar sem
lagt var hald á í,Perlunni fylla
eina frystikistu í geymslum
tollgæslúnnar og hér hugar
Jónas Hall tollvörður að góss-
inu, sem senn verður brennt í
sorpeyðingarstöðinni á Suður-
nesjum.
íst við að hafa keypt kjötið, sem
er lundir, vitandi að það væri
smyglað. Hins vegar liggur ekki
fyrir af hveijum hann keypti
kjötið né hvaðan það var komið.
Brynjólfur Karlsson, skrifstofu-
stjóri Tollgæslunnar í Reykjavík,
vildi ekki upplýsa hvert kaupverðið
hefði verið. Áðspurður hvernig toll-
gæslan hefði komist á snoðir um
mál þetta sagði Brynjólfur að toll-
verðir færu annað slagið í eftirlits-
ferðir til að grennslast fyrir um
mál af þessu tagi og við eina slíka
hefði mál þetta komið upp.
Þú veist, að kalk er gott fyrir beinin.
En vissi. þú líka,
að það er einnig gott fyrir tennurnar?
INNAN tíðar er að vænta frum-
varps um breytingu á lögum um
Lyfjaverslun ríkisins. Meginefni
frumvarpsins er að Lyfjaverslun-
inni verði breytt í hlutafélag í
eigu ríkisins, og verður það fyrsti
liður í einkavæðingu fyrirtækis-
ins.
Hreinn Loftsson, formaður einka-
væðingamefndar ríkisstjórnarinnar,
sagði að verðbréfafyrirtækið Kaup-
þing hefði unnið að tillögum um
hvernig best yrði staðið að einka-
væðingu fyrirtækisins. Kaupþing
hefði skilað viðamikilli úttekt um
málið og væntanlegt væri lagafrum-
varp um þetta efni. Frumvarpið
færi fyrst fyrir ríkisstjórn og stjórn-
arflokka, en gera mætti ráð fyrir
því að það yrði lagt fram á Alþingi
innan tíðar.
Síðar er gert ráð fyrir að tekm
verði afstaða til þess með hvaða
hætti hlutabréf ríkisins í fyrirtækinu
yrðu seld. I úttekt Kaupþings er
ekki tekin afstaða til þess hvort verð-
bréfin verði seld á almennum mark-
aði eða einhveijum tilteknum aðil-
um.
Auk flúor inniheldur Colgate Karies Kontrol nú
einnig kalk.
Það er ástæðan fyrir því að tannkremið er orðið hvítt.
Kalk eykur einnig virkni flúorsins gegn „karies“,
það er að segja tannskemmdum.
Þess vegna hjálpar Colgate-blandan af flúor og kalki
þér til að halda tönnunum sterkum og óskemmdum.
Góða gamalkunna bragðið er samt óbreytt.
Við getum þakkað færum tannlæknum, hollu fæði,
daglegri munnhirðu með tannburstanum og Colgate
Karies Kontrol að enn getur öll fjölskyldan sagt:
„Engin hola“.
Hvort þetta kemur til með að eiga við um næstu
kynslóð, er undir þér komið.
KARIES KONTROL - í STAÐ TANNSKEMMDA.