Morgunblaðið - 13.11.1992, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992
11
Morgunblaðið/Þorkell.
Bernharður Wilkinson sljórnar Mótettukór Hallgrímskirkju á tónleikum á morgun, klukkan 17.
legt sé þá voru ekki nema örfáar
kirkjur í Englandi sem höfðu fasta
kóra á síðustu öld, þannig að á 20.
öldinni hefur mikið endurreisnarstarf
átt sér stað í tónlist innan ensku
kirkjunnar."
Guliöld enskrar kirkjutónlistar
id[
„Gullöld kirkjutónlistar í Englandi
stóð frá því um 1550 til 1680, hún
hófst með Whyte og lauk með Purc-
ell,“ segir Bernharður. „Megnið af
þeirri tónlist sem sungið er í enskum
kirkjum í dag er frá þessum tíma. A
þessari öld hafa tónskáld samið
kirkjulega tónlist sem oftar en ekki
byggir á þessum klassíska grunni.“
I skrá að væntanlegum tónleikum
eru fróðlegar upplýsingar um sögu
enskrar kirkjutónlistar og þar segir
m.a: Með Almennu bænabókinni
ensku frá 1549 á stjórnarárum Ját-
varðs VI komst á ein leyfíleg útgáfa
af öllu helgihaldi og frá því að Elísa-
bet I kom til valda árið 1558 hafa
fáar breytingar orðið þar á. Reglur
um tónlistina breyttust og í bréfi
Cranmers erkibiskups til konungs
stendur: „Söngurinn skal ekki vera
fuliur af nótum, heldur sem næst því
aðeins nóta á hvert atkvæði orðs, svo
syngja megi blátt áfram og af guð-
hræðsluUpp úr þessu þróaðist síð-
an sléttsöngur (Plain song) við ensk-
an texta, sem síðar hefur fengið
nafnið enskur söngur (Anglican
Chant). Elísabet I sá þó til þess að
notkun latínu hélst að einhveiju leyti
áfram, sérstaklega í ýmsum háskól-
akapellum og á öðrum stöðum þar
sem reikna mætti með að söfnuður-
inn skildi tungumálið.
Það segir sína sögu um hversu
mikilvægt tímabil gullöldin er í enskri
kirkjutónlist að af tíu tónskáldum
sem kynnt verða á tónleikum Mót-
ettukórsins eru sjö frá þeim tíma.
Um mikilvægi hvers einstaks þeirra
skal ekki Ijölyrt hér, en hvert og
eitt þeirra átti stóran þátt í að hefja
enska kirkjutónlist til þeirrar virðing-
ar sem hún naut á 16. og 17. öld-
inni. Tónskáldin sjö eru Robert
Whyte, William Byrd, Peter Philips,
Thomas Weelkes, Orlando Gibbons,
John Blow og Henry Purcell. „Það
er eiginlega mjög merkilegt hversu
gjörsamlega tónsköpun á Englandi
datt niður og varð að engu á 18. og
19. öldinni," segir Bernharður. „Og
þá er ég ekki bará að tala um kirkju-
tónlist heldur alla tónlist."
frá láti Purcells og fram yfir miðja
19. öld var mikil lægð í enskri kirkju-
tónlist. Tónlistin var undir miklum
áhrifum frá tónstíl og formhugmynd-
um Hándels. Tónlist hans virtist aI-
veg fullnægja þörfum hlustenda og
kom um leið í veg fyrir frumkvæði
Englendinga á þessu sviði. Síðan
komu Haydn ogMendelsohn oghéldu
við áhrifum meginlandsins. A þess-
um tíma var konungshirðin mjög
þýsksinnuð og með fáeinum udan-
tekningum gerðist í raun og veru
ekkert markvert í enskri kirkjutónl-
ist. Einu ríkisreknu tónlistarstofnan-
irnar voru Konungskapellan og lúð-
rasveit ■ enska hersins. Háskólarnir
buðu upp á tónlistarkennslu en frum-
kvæðið kom frá meginlandinu. Sú
skoðun var líka ríkjandi að „sannir
herramenn" fengjust ekki við tónlist-
ariðkun. Eftir miðja 19. öldina fóru
að koma fram menn eins og Sulli-
van, Parry, Stanford og Elgar.
Endurreisnar- og nútímamenn
Þau þrjú tónskáld sem Bernharður
hefur valið að kynna eru Samuel
Sebastian Wesley, einn af helstu
umbótamönnum í tónlist ensku kirkj-
unnar á 19. öldinni, er ruddi brautina
fyrir eftirkomendur. Charles Willier
Stanford var mikilvirkt tónskáld í lok
19. aldarinnar og leiðandi í „endur-
reisn" breskrar tónlistar á síðari
hluta aldarinnar. William H. Harris
er þeirra yngstur (d. 1973) en nem-
andi Stanfords og mikilsvirtur organ-
isti og tónskáld.
Bernharður segir að þegar komið
hafi til tals að hann stjórnaði Mót-
ettukórnum og vangaveltur um efn-
isskrá hafi byijað, hafi sér fundist
liggja nokkuð beint við að beina at-
hyglinni að enskri kirkjutónlist.
„Ástæðurnar eru aðallega tvær, ann-
ars vegar er þetta sú tónlist sem ég
er kunnugastur og hins vegar hefur
kórinn aðallega sungið kirkju- og
trúartónlist frá meginlandinu, þýska,
franska og ítalska. Það var því kjör-
ið tækifæri til að stækka efnisskrá
kórsins og fást um leið við tónlist
sem ég er kunnugur."
— Ætlarðu að snúa þér meira að
kór- og hljómsvéitarstjórn í framtíð-
inni?
„Það er ómögulégt að segja. Eg
hef gaman af að stjórna tónlist sem
höfðar til mín, en ég er einnig önnum
kafinn við leik í Sinfóníuhljómsveit-
inni, við kennslu og að leika með
Blásarakvintett Reykjavíkur og mér
líkar þetta allt saman ágætlega eins
og það er,“ segir Bernharður Wilk-
insson flautuleikari, stjórnandi og
forðum kórdrengur.
Grindavík
M-hátíð lýk-
ur á Suður-
nesjum
Grindavík.
M-HÁTÍÐ lýkur formlega í
Grindavík nk. laugardag með
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
íslands og samkórs af Suðurnesj-
um.
Tónleikarnir verða haldnir í
íþróttahúsinu í Grindavík og hefjast
kl. 14. Sinfóníuhljómsveitin leikur
verk eftir Ludwig van Beethoven,
Max Bruch, Giuseppi Verdi undir
stjórn Gumundar Ola Gunnarsson-
ar. Einleikari á fiðlu verður Zheng-
Rong Wang.
Kórinn sem kemur fram með
Sinfóníunni er skipaður söngfólki
úr öllum kórum af Suðurnesjum og
hafa allir organistar og söngstjórar
unnið að undirbúningi og hafa þeir
ásamt söngfólki unnið af kappi
ásamt söngfólki frá því í byrjun
október. Siguróli Geirsson hefur séð
um að æfa kórinn og Frank Herluf-
sen annast undirleik.
M-hátíð, sem nú lýkur, hefur
staðið yfir frá 29. mars. Á aðal-
fundi Sambands sveitarfélagá á
Suðurnesjum á dögunum var ákveð-
ið að leggja menningarnefnd SSS
niður í því formi sem hún hefur
verið og þess í stað stofna menning-
arnefndir í hveiju sveitarfélagi fyrir
sig og formenn hverrar nefndar
skipi menningarnefnd SSS.
Suðurnesjamenn telja fulla þörf
á því að standa vörð um það sem
áunnist hefur á tímabilinu í menn-
ingarmálum og standa enn frekar
saman að eflingu menningarlífs hér
á Suðurnesjum, segir í greinargerð
með tillögunni sem kom fram á
þinginu.
- FÓ
MODERNA
GLÆSILEGUR OG VANDAÐUR 3JA SÆTA STAKUR SÓFÍ. VERÐ KR. 119.970,- STGR.
SJÁ EINNIG MYND Á BLS. 36-37 I MYNDALISTANUM FRÁ HABITAT. EINNIG ER í BOÐI
LAUGAVEGI 13 - SÍMI (91) 625870
MIKIÐ ÚRVAL
AF BÓLSTRUÐUM
HÚSGÖGNUM
ATHUGIÐ: GLÆSILEGUR MYNDALISTI FÆST
í VERSLUN OKKAR Á KR. 200,-.
MÁNUDAGA - FÖSTUDAGA KL. 10.00 - 18.00
Á LAUGARDÖGUM KL. 10.00 - 16.00
STÓRGLÆSILEGT TILBOÐ í NÓVEMBER!
HEREFORD-BORÐ
MEÐ MARMARAPLÖTU
kr. 29.500,- stgr.
Áðurkr. 39.900,- stgr.
COVENT-GARDEN
RÚM M/SPRINGDÝNU
kr. 23.900,- stgr.
Áðurkr. 27.300,- stgr.
to
Q
SOFINN
MIKIÐ ÚRVAL AF STÖKUM SÓFUM. SEM DÆMI RHODES-TÁGASÓFI Á KR. 39.500,-.
J