Morgunblaðið - 13.11.1992, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 13.11.1992, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992 Ulf Sundquist, leiðtogi finnskra jafnaöarmanna, um vanda bankanna Sagan mun dæma stjórnmála- mennina o g seðlabankann hart Jafnaðarmenn í Finnlandi unnu óvæntan sigur í bæjar- og sveitar- stjórnarkosningum fyrir skömmu. Líkurnar á því að jafnaðarmenn taki óbeinu boði samsteypustjórnar borgaraflokkanna undir forsæti Eskos Ahos um stjórnarsamstarf eru taldar hafa aukist mjög. Stjórn- arflokkunum hélst reyndar betur á fylgi sínu en margir höfðu búist við og sögðu sumir stjórnmálaskýrendur að almenningur væri far- inn að skilja að harkalegar ráðstafanir í efnahagsmálum væru óhjá- kvæmilegar. Blaðamaður Morgunblaðsins hitti Ulf Sundquist, leið- toga jafnaðarmanna, að máli í Helsinki og spurði fyrst hvort hægt væri að benda á aðrar og þægilegri lausnir á efnahagsvandanum en aðhald og harkalegan sparnað í ríkisrekstrinum sem stjórnin boðar. „Við bjóðum kjósendum nokkuð sem við feljum vera raunsæja og ígrundaða heildarstefnu í lands: málum,“ svaraði Sundquist. „í fyrsta lagi, að fjárlög verði látin ná yfir þijú ár, í öðru lagi að samn- ingar um kaup og kjör verði gerðir til tveggja eða jafnvel þriggja ára og loks að teknar verði strax ákvarðanir varðandi fjárlög og nið- urskurð útgjalda, skuldastaða rík- isins er farin að verða ískyggileg. Jafnframt þessu teljum við að verði áfram fylgt þeirri stefnu að skera niður útgjöld og herða almennt tökin án þess að grípa til annarra ráðstafana samtímis muni það að- eins hafa í för með sér enn verri skuldastöðu. Við þurfum markviss afskipti af hálfu ríkisvaldsins á sviði fjárfestinga, til að vinna gegn atvinnuleysinu, en einnig þarf að móta stefnu þar sem horft er fram til betri tíma, reynt að stýra þróun- inni í átt til aukins hagvaxtar, strax og það verður kleift. Þetta sögðum við þegar óróleik- inn á aiþjóðagjaldeyrismörkuðum olli gengisfalli á fínnska markinu. Stjórnin svaraði með því að kalla þetta gamlan og hefðbundinn Key- nes-isma, sagði að Finnar hefðu ekki ráð á eyðslustefnu. Stjórnin lagði síðan fram fyrstu fjárlagatil- lögur sínar í júní, í ágúst komu nýjar spamaðartillögur og fyrir nokkram dögum komu svo enn aðrar spamaðartillögur. Þannig sögðum við að þetta myndi fara. Astandið er nú þannig að annars vegar höfum við þá staðreynd að trúverðugleiki stjórnarinnar er að fara forgörðum, hins vegar að nið- urskurðurinn veldur því að grand- völlurinn fyrir skatttekjur ríkisins verður æ lélegri, kaupmáttur minnkar, atvinnuleysið vex. Þetta verður vítahringur þar sem ríkið svarar minnkandi tekjum með frek- ari niðurskurði á útgjöldum. Svona er þetta búið að vera í fjóra mán- uði. Okkur tókst ekki að ná neinu samband við ríkisstjómína, þeir vildu ekki ræða samstarf. Ríkið grípi inn Tveim vikum fyrir kosningamar vöknuðu þeir og vildu ræða málin en nú sögðum við nei. Svíar vora þá nýbúnir að ná sögulegu sam- komulagi og ég var húðskammaður fyrir ábyrgðarleysi, fyrir að vilja ekki gera slíkt hið sama, mér var bent á að taka Ingvar Carlsson mér til fyrirmyndar. Menn gleymdu því að aðstöðumunurinn var mikill. I Svíþjóð varð stjómin að semja við stjórnarandstöðuna, hún hafði ekki meirihluta. Hér hefur sam- steypustjómin meirihluta. Stjóm Ahos ákvað að sýna rétt fyrir kosn- ingamar að hún væri þrátt fyrir allt röggsöm, að hún hefði ríka ábyrgðartilfinningu og þess vegna varpaði hún fram þessum tillögum sínum og samstarfstilboðum. Þetta bar ekki árangur hjá þeim í sveitar- stjórnarkosningunum. En kosning- amar vora gagnlegar. I kosningabaráttunni kom nefni- lega skýrt í ljós hvaða kostir standa kjósendum til boða. Okkar stefna eða stefna stjómarinnar sem er sú að láta atvinnuleysið bara hafa sinn gang og skapa þannig enn verri vanda. Eg tel að við verðum að fá auknar fjárfestingar og við verðum að koma vöxtunum niður til að hleypa lífí í atvinnureksturinn, og við verðum að efla menntun til að standa klárir að breyttum aðstæð- um í framtíðinni. Það er svo sann- arlega til önnur leið en nú er þrædd og mér finnst kosningaúrslitin gefa til kynna að kjósendur séu á sama máli. En meðan þessi stjóm hefur Setið höfum við því miður eytt allt of miklum tíma til einskis. Við höfum einnig glatað trausti erlend- is og við þurfum að endurheimta þetta traust, fyrst með breytingum á fjárlagatillögum stjórnarinnar". - Stefna jafnaðarmenn þrátt fyrir allt að stjórnarþátttöku? „Spumingin er ekki á dagskrá núna, fyrst verður að leggja fram endanlegt fjárlagaframvarp og ræða það á þingi. Annað sem þarf að ljúka eru samningar um kaup og kjör. Allt bendir til þess að fjár- Iögin verði aðeins látin gilda í eitt ár og hið sama verði uppi á teningn- um í kjarasamningunum. En þegar þessu tvennu er lokið verðum við að hefja mjög víðtækar og gagn- gerar viðræður um lausn er bygg- ist á þátttöku margra flokka. Eg er ekki að tala um uppstokkun á ríkisstjórninni heldur lausn á breið- um grundvelli. Verði hins vegar nauðsynlegt að við tökum þátt í stjómarsamstarfinu til að ná þessu markmiði stendur ekki á okkur og það sögðum við í kosningabarátt- unni. En við föram ekki inn til þess eins að styrkja stjórnina því að við krefjumst breyttrar stefnu. Við förum eingöngu í stjórn ef hún heitir að framfylgja kraftmeiri stefnu en nú er reyndin. Það er að vísu rétt að fínnsk fyrirtæki hafa stórbætt samkeppnisaðstöðu sína á erlendum mörkuðum undan- fama mánuði en það er ekki þróun sem stjórnin getur þakkað sér. Það eina sem hún hefur gert er að hætta að halda gengi marksins hærra en nokkur grundvöllur var fyrir“. Loforð og efndir - Finnst ykkur jafnaðar- mönnum að stjómvöld eigi að ákveða vexti með handafli? „Slíkra aðgerða má eingöngu grípa til ef áður er búið að marka trúverðuga stefnu til langs tíma í efnahagsmálunum. Þær verða þá eðlilegt framhald slíkra aðgerða". — Jafnaðarmenn segjast hafa betri lausnir en borgaraflokkamir. Ertu ekkert smeykur um að þið séuð að lofa almenningi meira en þið getið staðið við, stundið yfírboð og getið því valdið sáram vonbrigð- um ef illa tekst til? „Þetta er að sjálfsögðu alltaf nokkur hætta. En ég vil fullyrða að við höfum verið afskaplega raunsæir í stjómarandstöðu, mér fínnst að við höfum alls ekki fallið í þá gryfju að nota lýðskram til að ná í fylgi. Flokkssystkin mín hafa fremur gagnrýnt mig fyrir að vera of varkár. Það segir sig sjálft að við verðum að gæta okkar afar vel í þessum efnum, stefnan verður að vera nothæf jafnt í stjórn sem stjórnarandstöðu. Þegar ég segi að hægt sé að fara aðra leið bendi ég gjaman á Svíþjóð, samkomulagið þar. Þar er reynt að koma á stöðugleika, mikl- um spamaði á vissum sviðum til að vinna bug á fjárlagahallanum, lögð áhersla á auknar fjárfestingar Þinghúsið í Helsinki er ein þekktasta bygging borgarinnar. Finnar eru víðfrægir fyrir afrek í byggingarlist. Morgunblaðið/Kristján Jónsson Ulf Sundquist, leiðtogi finnska Jafnaðarmannaflokksins. og jafnvægi í vaxtamálum. Einnig leggja þeir áherslu á að treysta grundvöll framtíðarinnar, menntun og slík mál. Það er engin spuming að það er í þessa átt sem Finnar verða að stefna. Það eru ýmis já- kvæð teikn á lofti hjá okkur, út- flutningsfyrirtækin sækja fram vegna gengisfellingarinnar en það sem við þurfum að leysa era ýmis innri vandamál, meðal annars fjár- lagahalli sem verður enn erfíðari vegna þess að vandi sumra einka- fyrirtækja verður nú hluti af vanda ríkisins og þar á ég við bankana". - Hve illa standa bankarnir, verða þeir þjóðnýttir? „Gjaldeyris- og vaxtaóróleikinn á þessu ári hafa aukið vanda bank- anna mjög og hann er illviðráðan- legur. Bankakerfi landsins má að sjálfsögðu ekki hrynja, því verður að bjarga. í fyrstu verður að grípa til ýmissa stuðningsráðstafana af hálfu ríkisvaldsins. En jafnframt verður að vera heilsteypt og mark- viss stefna að baki, það má ekki bara koma í veg fyrir gjaldþrot heldur sjá til þess að bankarnir styrkist til langframa". Bruðl en hver á sökina? - Nú er oft talað um bruðl- stefnu á níunda áratugnum sem sé að koma í bakið á stjórnendum lánastofnana, þeir hafi gleymt allri varkárni í útlánum. Hver er orsök- in, er einhver einn sökudólgur í augsýn? „Orsakirnar era auðvitað marg- ar en ein er þó öllum ljós. Það var aukið mjög frelsi i sambandi við rekstur lánastofnana án þess að jafnframt væru settar nægilega strangar reglur um peningamagn í umferð og lausafjárstöðu bank- anna. Það eru ýmsar þversagnir í þessu máli en hér, í Svíþjóð, Noregi og víðar var losað um hömlur í gjald- eyrismálum. Útflutningsfyrirtækin gátu nú farið út á alþjóðlegan lána- markað og þá losnaði um fjármagn á innlendum markaði. Þetta gerðist samtímis því sem uppsveifla var í efnahagsmálunum, kaupmáttur var mikill. Aðhaldið í útlánum varð skyndilega miklu minna, allt of lít- ið, og það var fjárfest miklu meira en áður. Til að hamla þessu var síðan gripið til þess að draga mjög úr peningamagni í umferð, til að beijast gegn verðbólgu var vöxtum haldið háum og afleiðingin varð samdráttur í eftirspurn. Það hefur verið fylgt mjög ólíkri stefnu varðandi frelsi í bankamál- um á Vesturlöndum, eins og rakið var í tímaritinu The Economist nýlega. Annars vegar er aukið fijálsræði í enskumælandi löndum og á Norðurlöndunum. Hins vegar er bent á Þýskaland og Sviss þar sem reglur eru strangar og kröfur um lausafjárstöðu einnig þröngar. Við erum fórnarlömb innrætingar monetarista, Thatcher-sinna og annarra, stefnu sem stóðst ekki dóm reynslunnar. Reyndar má ekki gleyma að í Finnlandi stöndum við frammi fyrir sérstökum vanda sem er hran viðskiptanna við austurb- lokkina, þegar mest var seldum við þangað meira en fjórðung alls út- flutningsins. Þarna var um að ræða fjölda smáfyrirtækja sem vora beint eða óbeint háð þessum við- skiptum. Þetta vora tiltölulega ör- ugg viðskipti sem ekki þurfti að hafa mikið fyrir og þau veittu fjöl- mörgum vinnu. Það er ljóst, ef þú vilt endilega að ég ræði um sökudólga, að stjórn- ir bankanna gerðu afdrifarík mis- tök, • hér í Finnlandi en einnig í Svíþjóð, Noregi og nokkru áður í Danmörku“. - í upphafí níunda áratugar- ins lentu bandarískir bankar og reyndar stórbankar víðar á Vestur- löndum í hremmingum vegna óhóf- legra lánveitinga til ríkja í Róm- önsku Ameríku sem gátu svo alls ekki staðið í skilum. Lærðu menn ekkert af þessari óvarkámi? Hvern- ig fara bankarnir að því að öðlast traust almennings á ný? „Þetta er að sjálfsögðu mikilvæg spurning. Fjöldi fólks spyr nú með réttu, hveijum sé hægt að treysta. Eg starfaði lengi í bankaheiminum en reyndar Jjallaði ég lítið sem ekkert um alþjóðlega lánastarfsemi eða þær hættur sem þar leyndust, allt þetta fjárhættuspil. Mitt starf var fyrst og fremst á sviði lána til bygginga- og húsnæðismála og auðvitað tek ég á mig hluta af ábyrgðinni á þeim mistökum sem þar voru gerð. En þegar sagan endanlega kveður upp sinn dóm tel ég að hún muni fyrst og fremst leita að orsökinni hjá þeim sem mörkuðu stefnuna í fjármálum og peningamálum, hjá ríkisstjórnum og forystumönnum seðlabankans og dæma þá hart. Það er þegar búið að dæma stjómendur bankanna seka, að minnsta kosti í hugum almennings. En þeir sem ég nefndi áður hafa enn sloppið. Ég tel að þeir hafi verið allt of lengi að átta sig á því hvert stefndi, þeir hikuðu allt of lengi við að ákveða að nota þau meðul sem þeir réðu yfir“. - Finnar eru á leið inn á Evrópska efnahagssvæðið og vilja inn í Evrópubandalagið. Er líklegt að stórbankar á borð við Deutsche Bank grípi tækifærið þegar fjár- festingafrelsið kemst á og kaupi meirihlutann í fínnskum bönkum meðan þeir standa svona illa? Þetta era nánast smáaurar fyrir þessa risa ... „Finnland þarf á erlendri fjár- festingu að halda og þegar við er- um búnir að koma á meiri reglu í sambandi við lánaviðskipti sé ég ekki að það sé nein hætta fólgin í því að fá aukið fé inn með því að erlend fyrirtæki fjárfesti í bönkun- um. Öðra nær, ég held að það gæti verið bæði athyglisverður og nauðsynlegur kostur. Það er svo annað mál hvaða áhrif þetta hefði á tök einstakra aðila í atvinnulífínu að öðra leyti. Setja yrði einhveijar skorður í þeim efnum af hálfu stjórnvalda, fínna eitthvert jafn- vægi milli þjóðarhagsmuna og við- skiptafrelsis. Það verður líka að koma í veg fyrir einokun af hvaða tagi sem hún er. Ég er jafnaðar- maður en sé ekki að það sé eftir- sóknarvert að ríkisvaldið reki allt bankakerfið, ekki fremur en ég mæli með einokun einkaaðila. Sam- keppni verður að ríkja“. Jafnaðarstefnan enn nothæf - Út í aðra sálma. Hvað er enn eftir af efnahagskenningum sósíalismans, er eitthvað nothæft eftir? „Ég er jafnaðarmaður og er ekk- ert að hverfa frá þeim skoðunum. Ég held meira að segja að þær hugmyndir séu að verða enn not- hæfari, við eigum eftir að fjalla enn meira í framtíðinni um lífsöryggi venjulegs fólks, réttlæti, velferð og atvinnuöryggi. í þessum efnum dugar ekki að gera eins og stjórnar- flokkarnir, benda eingöngu á markaðsöflin, það gengur alls ekki. Við ráðleggjum aðrar leiðir til að vinna bug á félagslegum meinum eins og atvinnuleysinu. Samfélag sem nær árangri á okkar tímum er samfélag markaðsbúskapar en þá má ekki rústa grandvöllinn sem markaðsbúskapurinn byggist á. Mikilvægasta kenning okkar er sú að markaðsbúskapurinn skapi grandvöllinn að velferð en það verði að hafa stjórn á búskapnum. Það verða að vera hömlur til að koma í veg fyrir einokun og manngildið sjálft verður að vera með í dæm- inu“. -Hve mikið eiga stjórnmála- menn að stjórna hlutunum, á seðla- bankinn t.d. að vera algerlega sjálf- stæður? „Það var mikið um þetta deilt fyrir nokkram áram en nú eram við fremur með hugann við að leysa bráðasta vandann í efnahagslífinu. Ég hygg að sjálfstæði seðlabank- ans gagnvart stjórn og þingi sé nú öllu minna en það var fyrir ári en framtíðin er óljós í þessum efnum, verði Maastricht-samningurinn að veruleika er sameiginlegur gjaldm- iðill EB orðinn markmiðið. Þegar búið er að útkljá þessi mál verður hægt að velta fyrir sér stöðu seðla- banka. En ég hlýt að segja að trú mín á algerlega sjálfstæða pen- ingastefnu og sjálfstæðan seðla- banka er brostin, óróleikinn og kreppan í heimsviðskiptum era slík að ég tel útilokað að ákveða þessa hluti án þess að taka fullt tillit til raunveraleikans, annarra þátta eins og stefnu í fjármálum, iðnaði og svo framvegis. Ég tel að þetta sjónarmið verði ofan á í Evrópu". Texti: Kristján Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.