Morgunblaðið - 13.11.1992, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 13.11.1992, Qupperneq 16
i MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992 Réttarbætur á skattkerfínu eftir Össur Skarphéðinsson í september hnekkti Hæstirétt- ur dómi undirréttar sem hafði úr- skurðað í deilu fyrirtækis við toll- stjóraenibættið um greiðslu á sölu- skatti. Undirréttur dæmdi fyrir- tækinu í óhag, en Hæstiréttur ógilti síðan dóminn. Niðurstaða Hæstaréttar byggðist ekki síst á því að ein og sama ríkisstofnun hafði í senn á hendi rannsókn málsins og í kjölfarið úrskurð á grundvelli eigin rannsóknar. En óskýr lög hafa valdið því, að í dag sinnir embætti ríkisskattstjóra bæði rannsókn skattamála og kveður jafnframt upp úrskurð í sömu málum. Þetta er andstætt þeirri meginreglu vestræns lýð- ræðis, að skýr greinarmunur sé gerður á rannsóknaraðila og úr- skurðaraðila. Hér á landi hefur þessi skipan mála sætt gagnrýni og niðurstaða Hæstaréttar tekur af tvímæli um að sú gagnrýni er réttmæt. í framhaldinu er því nauðsyn- legt að breyta skattalögum til að greina afdráttarlaust á milli ann- ars vegar embættis skattrann- sóknarstjóra sem rannsóknaraðila og hins vegar embættis ríkisskatt- stjóra sem úrskurðaraðila. Aðskilnaður dóms- og framkvæmdavalds Allt frá dögum frönsku' stjórnarbyltingarinnar hefur rétt- arkerfi lýðræðisríkjanna þróast í þá veru, að skýr afmörkun sé gerð í öllum tilvikum milli rannsókna- raðila og úrskurðaraðila. Sömu meginreglu er fylgt hér á landi, og á síðustu árum hefur markvisst verið unnið að því að treysta hana með því að koma á ótvíræðum aðskilnaði framkvæmdavalds og dómsvalds. Kveikjan að þeim breytingum var ekki síst niður- staða Mannréttindadómstóls Evr- ópu, sem hnekkti dómi um meint umferðarlagabrot í frægu máli Jóns Kristinssonar, á þeim grund- velli að sami aðili hefði rannsakað og úrskurðað í málinu. í kjölfarið hóf þáverandi dómsmálaráðherra, Jón Sigurðsson, undirbúning að umfangsmiklum lagabreytingum, sem eftirmaður hans, Þorsteinn Pálsson, hélt áfram og Alþingi samþykkti á síðasta vetri. Svipuð réttarbót hefur hins veg- ar ekki enn verið gerð á skatta- lögunum. Eins og niðurstaða Hæstaréttar bendir til á enn eftir að greina með ótvíræðum hætti á milli þeirra embætta sem hafa með höndum rannsókn, og úrskurð, í ágreiningsmálum sem varða álagningu skatta. Þær breytingar verða að taka af allan vafa um, að skattrannsóknarstjóri sé ekki með nokkrum hætti háður skipun- arvaldi aðilans, sem síðar kveður upp úrskurð í ágreiningsmálum. Þetta þýðir í raun, að það verð- ur að skilja með afgerandi hætti á milli embætta skattrannsóknar- stjóra og ríkisskattstjóra. Ríkisskattstjóri og skattrannsóknarstjóri í dag er hlutverk þessara emb- ætta raunar vel aðgreint í lögun- um. Ríkisskattstjóri er æðsta yfír- vald í álagningarkerfínu, og þó hann hafí ekki beint skipunarvald yfir skattstjórunum sjálfum verða þeir að hlíta fyrirmælum hans um framkvæmd skattálagningar. Hann getur jafnframt af sjálfsdáð- um kannað framtöl og allt það sem lýtur að framkvæmd laganna. Skattrannsóknarstjóri á hins Össur Skarphéðinsson „Eins og Iögin eru fram- kvæmd í dag er skatt- rannsóknarstjóri talinn hluti af embætti ríkis- skattstjóra, og erfitt að líta á hann sem sjálfstæð- an rannsóknaraðila. Hinn almenni borgari, sem á mál að verja gagnvart ríkisskattstjóra, getur því alls ekki treyst því, að hann njóti rannsóknar, sem er óháð úrskurðar- aðilanum.“ vegar að hafa með höndum skatt- eftirlit og rannsóknir, leiðbeina skattstjórunum níu um eftirlit og fylgjast með hvemig þeir haga því. í lögunum er skýr rammi sett- ur um starfsvið hans, og það fer ekki á milli mála að löggjafinn hefur ætlað honum að vera sjálf- stæður rantisóknaraðili. Hann get- ur að eigin frumkvæði hafíð rann- sókn á öllu því sem varðar skatta án þess að fyrir liggi grunur um svik. Hins vegar er líka tekið fram að ríkisskattstjóri getur vísað til hans málum til rannsóknar. Hið sama geta skattstjórar, leiki grun- ur á verulegum skattsvikum. Jafn- framt er alfarið í höndum skatt- rannsóknarstjóra að meta hvort mál sé þannig vaxið, að krefjast beri refsingar, og hann sendir þá málið annaðhvort til sektarmeð- ferðar hjá yfirskattanefnd eða til opinberrar rannsóknar hjá Rann- sóknarlögreglu ríkisins. Óskýr ákvæði Þrátt fyrir að það sé ótvíræður ásetningur laganna að aðgreina vel embætti ríkisskattstjóra og skattrannsóknarstjóra orka sum ákvæði eigi að síður verulega tví- mælis. Þannig segir í einni grein laganna: „Við embætti ríkisskatt- stjóra skal starfa rannsóknardeild er hafí með höndum eftirlit og rannsóknir samkvæmt lögum þessum. Skattrannsóknarstjóri stýrir starfsemi deildarinnar." Þetta ákvæði er því miður þess eðlis, að í einu vetfangi heggur það að rótum þeirrar afmörkunum milli embættanna, sem lögin mæla að öðru leyti fyrir um. í greininni felast boð, sem ganga þvert á anda laganna um aðgreiningu rannsóknarvalds og úrskurðarvalds. Hún segir afdrátt- arlaust, að rannsóknardeildin eigi að lúta skattrannsóknarstjóra, en vistar hana eigi að síður hjá emb-’ ætti ríkisskattstjóra. Þar með eru mörkin á milli embættanna tveggja gerð afar óljós. Afleiðingin verður sú, að sjálfstæði skattrann- sóknarstjóra sem óháðs rann- sóknaraðila er ekki lengur tryggt, því lagaákvæðið vistar hann hjá embætti ríkisskattstjóra, — að minnsta kosti að hluta. I síðustu ársskýrslu ríkisskatt- stjóra kemur Ijóslega fram, að embættið túlkar lögin þannig, að skattrannsóknarstjóri sé hluti af embætti ríkisskattstjóra. Það birt- ist með ýmsum hætti, ekki síst því að skattrannsóknarstjóri er nefndur í hópi fjögurra deildar- stjóra, sem eiga aðild að yfirstjórn embættis ríkisskattstjóra. í því ljósi er illkleift að mæla gegn því að eins og lögin eru framkvæmd er skattrannsóknarstjóri hluti af embætti ríkisskattstjóra, og erfitt að líta á hann sem sjálfstæðan rannsóknaraðila. Hinn almenni borgari, sem á mál að veija gagn- vart ríkisskattstjóra, getur því alls ekki treyst því, að hann njóti rann- sóknar, sem er óháð úrskurðaraði- lanum. Þetta er í fullkominni andstöðu við þá grundvallarreglu vestrænna lýðræðisríkja, að skýr afmörkun sé til staðar milli rannsóknaraðila og úrskurðaraðila. Þess má geta að í ársskýrslunni er lögð áhersla á óhlutdrægni í störfum og að réttaröryggi al- mennings og fyrirtækja sé tryggt. Nú efast að sjálfsögðu enginn um góðan vilja og vönduð vinnubrögð beggja embættanna, en meðan skattrannsóknarstjóri er einskonar botnlangi á embætti ríkisskatt- stjóra er réttaröryggi þeirra, sem eiga mál sín undir báðum embætt- unum, alls ekki tryggt. Það er því brýnt að breyta lögum til að greina algerlega á milli embættanna. Fyrr er ekki hægt að segja, að fullkomins réttaröryggis sé gætt í skattkerfínu. Höfundur er formnður þingflokks Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks íslands. L

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.