Morgunblaðið - 13.11.1992, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUÐAGUR 13. NÓVEMBER 1992
19
Fjárfesting í nýsköpun
eftir Pál Hannesson
Frá iðnaðarráðuneytinu hefi ég
fengið heimsent nýstárlegan og for-
vitnilegan bækling: Nýsköpun er
nauðsyn, upplýsingar um liðsinni við
frumkvöðla í atvinnulífi og leiðbein-
ingar fyrir hugvitsmenn. Framtakið
snjallræði, og bæklingur Upplýsinga-
þjónustu Háskóla íslands um tæki-
færasköpun sem góðkunningi minn
Jón Erlendsson stendur að, er allt
saman sama málefnið, sem lesendum
Morgunblaðsins hefur þegar verið
kynnt. Ég mun því aðallega fjalla
um þátttöku rithöfunda í framan-
greiðndum verkefnum, svo og alls
almennings í landinu og þá einkan-
lega fagmenn, sem gætu t.d. stundað
vemdaða sköpunariðju sína í bílskúr-
um heima hjá sér, eins og Danir
gera með góðum árangri í stað
bruggunar áfengis í þessum húsa-
kynnum, í óþökk við lög landsins.
Hvað snertir rithöfunda, þá hafa
þeir yfirleitt ailan heiminn í kollinum
í skrifum sínum, og fijótt ímyndunar-
afl til úrlausnar og sköpunar nýrra
hugmynda og verkefna, í nýjum og
breyttum heimi. Þeir eru vanir hvers-
konar bókmenntagrúski, og gætu
bætt við sig viðskiptagrúski, eins og
hinni fagurfræðilegu hlið málsins.
Allir standa nú, á þessum breytinga-
tímum, jafnt að vígi, þeir sem byija
í dag að fást við þessa hluti, eins
og þeir hinir „rótgrónu" einstakling-
ar og/eða fyrirtæki, og það þarf
enga peninga í upphafi, heldur er
það hugmyndin sem allt veltur á.
Og ef hún er talin raunhæf af viðeig-
andi sérfræðilegum matsmönnum,
þá fást lán og fyrirgreiðslur og styrk-
ir fyrir frumkvæðið og útfærslu hug-
mynda sinna; fyrir einstaklinga jafnt
sem stofnanir og fyrirtæki. Já, það
stendur skýrum stöfum í bæklingi
iðnaðarráðuneytisins, að jafnvel hug-
myndin ein og tillögur, og rétt út-
fyllt eyðublað — sé peninga virði.
Það að vera frumkvöðull, er eiginlga
svipað og að_ semja bók. Ég þekki
það sjálfur. íslenska þjóðin verður
að söðla um, hætta að einblína á
innflutning á kaffi og dömubindum,
svo eitthvað sé nefnt; ellegar það að
menntamenn leggi fyrir sig smygl-
innflutning á hassi í málningardós-
um, eða starfrækslu spilavíta. Svo
hugmyndasnauðir getum við ekki
verið, íslendingar. Títt er líka um
ýmiskonar og oft á tíðum einkenni-
Prentsmiða-
þing hefst
á mánudag
PRENTSMIÐAÞING verður hald-
ið mánudaginn 16. nóvember á
Hótel Sögu og hefst kiukkan 8.30.
Það er haldið á vegum Prent-
tæknistofnunar. Námsþingið fjall-
ar um tækni og framtíð í þeim
þáttum prent- og útgáfuiðnaðar
sem lúta að prentsmíð, vinnslu-
þáttum fyrir prentun, sem eru t.d.
hönnun og umbrot, myndvinnsla,
leturstýring, útskot og plötugerð.
Fjöldi fyrirlestrá verður á prent-
smiðaþingi. Þar má nefna að Zsolt
Somogyi og Ton Frederiks frá Adobe
§alla um hugbúnað frá Adobe, um
Carousel-tæknina, sem gerir kleift
að flytja gögn milli forrita og stýri-
kerfa og PostScript Level 2. Þá flyt-
ur Steve Musselman frá Ulitmate
Technographics um útskot PostS-
cript síðna með Impostrip forritinu
og Gunnar Jóhannsson hjá Jóhanni
Ólafssyni hf. fjallar um tækni sem
gerir keift að senda efni beint á plötu
frá umbroti og gæðastýringu. Hákon
Pálsson frá H. Pálssyni hf. Qallar
um litmyndavinnslu og staðla og
Andrés Magnússon á Pressunni fjall-
ar um Multiple Mater fontatækni.
Loks fjallar Guðbrandur Magnússon
frá Prenttæknistofnun um niðyrstöð-
ur ráðstefnunnar og framtíðarsýn.
Þá ber að geta þess að nokkur
umboðs- og þjónustufyrirtæki í
prentiðnaði munu kynna vörur sínar
og þjónustu í tengslum við þingið.
legar uppákomur hjá hópum og ein-
stalingum, sem er einskonar farald-
ur; framleitt oftast af sjónvarpinu,
með stuðningi ýmiss konar fyrir-
tækja. Það virðist sem fólk vanti
verðugan tilgang í lífinu. Þá er að
nefna málþing allskonar þar sem
fólk mætir uppábúið til að masa og
deila og hefðbundið þras um keisar-
ans skegg(?), sem engan vanda leys-
ir, í stað þess að ráða dugmikla fram-
kvæmdastjóra til þess að _sjá um
vandamálin og vandræðin. Ég spyr
því: Er nokkuð eftir af hinni vinn-
andi hönd í vinnugalla?
Það má líka gjarnan líta á hina
efnuðu stétt með velvilja, ef þeir vilja
semja réttlátlega við alþýðu þessa
lands og af sanngimi, og það er jafn-
vel hægt fyrir ríka manninn að verða
„Það að vera frumkvöð-
ull er eiginlega svipað
og að semja bók. Ég-
þekki það sjálfur. Is-
lenska þjóðin verður að
söðla um, hætta að ein-
blína á innflutning á
kaffi og dömubindum,
svo eitthvað sé nefnt;
ellegar það að mennta-
menn leggi fyrir sig
smyglinnflutning á hassi
í málningardósum, eða
starfrækslu spilavíta.“
Páll Hannesson
vinur alþýðunnar og fátæka manns-
ins rétt eins og Héðinn Valdimarsson
sem var í olíunni og byggði upp Al-
þýðubústaðina á kreppuárunum. Auk
þess er auðsætt mál þegar fram í
sækir, að alþýðan eignist eignarhlut
í fyrirtækjum þeim sem upp kunna
að spretta af tilkomu tækifærissköp-
unar, sem nefnd hafa verið hér að
framan. Það er sjálfsagt að bera í
bijósti ágóðavon. Aðalatriðið er sem-
sagt að verða vel bjargálna og virkur
og hafa jákvætt hugarfar til tækifæ-
rasköpunar. Og ég á von á því, að
þeir hópar sem ég hefi nefnt fái sinn
hlut, án þess að leggja fram íjár-
magn, svo sem í formi arðvænlegra
hlutabréfa, fyrir viðleitni sína. Og
þetta er spennandi frítíma verkefni,
þessi hugmyndasmíð, og gefur marg-
þætta möguleika ef vel til tekst. Það
þekki ég af eigin reynslu.
Höfundur er fyrrverandi
tollfulltrúi.
\
BESTU
SJONVARPS-
TÆKIN
FRÁ PHILIPS
Þau allra bestu frá PHILIPS eru nýju 100 riða
MATCHLINE tækin.
• Hljómgæði eins og þau eru best í hágæða
geislaspilara!
• Að sjálfsögðu er textavarp með íslenskum
stöfum!
• Línuflökt heyrir sögunni til. Skipting á
milli ramma í mynd er jafnari!
• Mattur, svartur myndlampi sem gefur
30% meiri skerpu á mynd!
• Þið fylgist betur með: Tvær stöðvar á
skjánum í einu!
Komið og sjáið með eigin augum.
Gerið samanburð og veljið það besta!
U
MATCHMHUNE
///
PHILIPS
þegar skerpan skiptir málil
PHIUPS
Heimilistæki
SÆTÚNI 8 • SÍMI: 69 15 15 • KRINGLUNNI • SÍMI: 68 15 20
ÖRKfN 1020-t