Morgunblaðið - 13.11.1992, Page 21
21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992
-------------------------------r—--r---------------------------------------------------—r
V erkfræðinga-
félag Islands
Ráðstefna
um útflutn-
ing á raf-
mag’iii um
sæstreng
Rafmagnsverkfræðideild*
Verkfræðingafélags Islands
gengst fyrir ráðstefnu um út-
flutning á orku með rafstreng
þann 13. nóvember næstkom-
andi. Ráðstefnan en haldin í til-
efni af 80 ára afmæli Verkfræð-
ingafélagsins. Fjallað verður
um möguleika íslendinga til að
hefja útflutning á orku um raf-
streng með tilliti til þróunar
orkumála í Evrópu. Ráðstefnan
verður haldin á Holiday-Inn og
hefst klukkan 13.
Talið er að með tilliti til um-
hverfissjónarmiða sé unnt að
framleiða um 50 TWh af raforku
á ári á íslandi. Þar af er virkjan-
leg vatnsorka um 30 TWh en jarð-
varmi um 20 TWh á ári. Þegar
er búið að virkja rúmlega 5 TWh
til raforkuframleiðslu, eða um 10%
af því sem mögulegt er, segir
meðal annars í frétt frá félaginu.
Fram kemur að útflutningur á
orku með rafstreng er einn sá
möguleiki sem til greina kemur
og ber að skoða gaumgæfulega.
Um kostnaðarsama framkvæmd
er að ræða og áhættusama sem
verður að undirbúa vandlega.
„Umræður og undirbúningur eru
aðeins á frumstigi og vitað er að
hér er verið að teygja sig lengra
og dýpra með særafstreng en áður
hefur verið gert. Samt sem áður
er það mat strengjaframleiðanda
og framleiðanda á jafnstraumsraf-
búnaði að unnt sé að sigrast á
þeim tæknilegu vandamálum sem
við er að etja.“
Frummælendur á ráðstefntttini
verða Dr. Geir A. Gunnlaugsson,
stjórnarformaður Markaðsskrif-
stofu iðnaðarráðuneytisins og
Landsvirkjunar, Jón Ingimarsson,
skrifstofustjóri iðnaðarráðuneytis-
ins, Kristján Jónsson, rafmagns-
veitustjóri Rafmagnsveitna ríkis-
ins, Halldór Jónatansson, forstjóri
Landsvirkjunar, Jóhann Már Mar-
íusson, aðstoðarforstjóri Lands-
virkjunar, Egill Skúli Ingibergs-
son, ráðgjafarverkfræðingur hjá
Rafteikningu hf., dr. Friðrik Már
Baldursson, stærðfræðingur Þjóð-
hagsstofnunar og Egill B. Hreins-
son prófessor.
----♦ ♦ ♦----
Athugasemd
SKÚLI Jónsson, forstjóri Stál-
smiðjunnar, hafði samband við
Morgunblaðið og sagði, að í fram-
haldi af frétt blaðsins í gær hefði
verið farið nánar út í útreikninga
vegna aukakostnaðar við viðgerð
flutningaskipsins Búrfells. í ljós
hefði komið að eins og málin standi
sé um óverulega aukningu á verk-
inu í heild sinni að ræða.
DDPFF/Reprogruppen®
100
70
40
GB
Cterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
IMI55AIM
ISSAIXI TERRAIMO
Fjögurra dyra
• Ein aflmesta díselvél sem fáanleg er.
• Hlaðinn aukahlutum, rafdrifnum rúðum, samlæsingum sóllúgu ofl.
• Fjögurra dyra og mikið rými.
• 75% læsing á afturdrifi.
• Siaglöng fjöðrun að aftan og framan. .
• Einn vinsælasti jeppinn í Ameríku og Evrópu
• Eigum einnig nokkra IMissan Terrano Dísel Turbo, árgerð 1902, á sérstöku verði
• Komið og leyfiö sölumönnum okkar aö koma ykkur á óvart
Storkostleg opnunarhelgi að Skeiði 5, ísafirOi
laugardag og sunnudag kl. 14 - 18.0D
• Kvöldsýningar alla næstu viku til kl. 22.00
• Mikið úrval Nissan og Subaru 4WD bíla.
• Minnum sérstaklega á örfáa bíla af '92 árgerð á tilboðsverði.
• Gerið frábær kaup i notuðum bílum sem verða á opnunarafslætti.
• Bílasýning á Akureyri á bifreiðaverkstæði Siguröar Valdimarssonar
laugardag og sunnudag kl. 14 - 17.00
• Bílasýning að Sævarhöfða 2 laugardag og sunnudag kl. 14 - 17.00
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöföa 2
síma 91-674000
NÚ QNNIG MEÐ 2.7 DÍSB. TURBO