Morgunblaðið - 13.11.1992, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992
Halim A1 úrskurðað forræði dætra sinna og Sophiu Hansen
Sophia áfrýjar
til hæstaréttar
Istanbúl í Tyrklandi. Frá Öntiu G. Ólafsdóttur, blaðamanni Morgunblaðsins.
DÓMARI í forræðismáli Sophiu Hansen og Halims AIs fyrrum eigin-
manns hennar úrskurðaði Halim forræði dætra þeirra í undirrétti í
Istanbúl í gær. Gunnar Guðmundsson lögfræðingur Sophiu segir að
þegar hafi verið ákveðið að áfrýja málinu til hæstaréttar í Ankara.
Góð löggæsla var við dómshúsið í Istanbúl, en þingmaður öfgasinnaðra
múslima var viðstaddur réttarhöldin ásamt nokkrum öryggisvörðum
og voru þeir allir vopnaðir. Dómari úrskurðaði Sophiu umgengnisrétt
allan júlímánuð ár hvert.
Nokkur hópur fólks hafði safnast
saman við dómshúsið þegar blaða-
maður Morgunblaðsins kom þangað
um tíuleytið í gærmorgun. Fólkið var
vinsamlegt en virtist órólegt. Sumir
höfðu nælt myndir af dætrum Sop-
hiu og Halims framan á sig. Meðal
þeirra var Tyrkinn Saim Karama-
hmutóplu. Hann sagðist vera við
dómshúsið því samkvæmt isiam væru
stúlkurnar systur hans. Hann sagði
að Tyrkir vildu að málið leystist á
þann hátt að Sophia tæki upp tyrk-
nesk trúarbrögð og giftist Halim Al.
Rétt fyrir kl. 11 kom Sophia í
fylgd systkina sinna og lögfræðings
til réttarins. Hópurinn varð ekki fyr-
ir aðkasti á leið upp á efstu hæð
dómshússins, enda var hans vel gætt
af vopnuðum grænklæddum öryggis-
vörðum. Þegar komið var að dyrum
herbergis dómarans varð þó mikill
troðningur á þröngum ganginum
sem endaði með því að rýma varð
ganginn. Þá tók við nokkur bið þar
til málsaðilum var fylgt inn í herberg-
ið. Þar fluttu lögfræðingar beggja
aðila mál sitt og dómari sagði nokk-
ur orð.
Herbergið sem er um 15 fermetrar
að stærð var fullt af fólki. Þar voru
meðal annars lögfræðingar Halims
Al, Ökkes Sendiller, þingmaður öfga-
sinnaðra múslíma og öryggisverðir
hans. Eftir um það bil 15 mínútur
gerði dómarinn 5 mínútna hlé á rétt-
arhaldinu. Þá stóðu um 250 manns
fyrir utan dómshúsið og sungu sálma
múslíma.
Eftir réttarhléð kvað dómarinn
upp úrskurð um að Halim fengi for-
ræði barnanna. Halim fagnaði ákaft
þegar hann gekk út úr húsinu með
stuðningsmönnum sínum. Hann
stillti sér sfðan upp fyrir framan
dómshúsið ásamt vinum sínum og
fólkið hyllti hann ákaft.
Reuter
Halim A1 veifar tyi’kneska fánanum og fagnar úrskurði dómarans
í forræðismálinu fyrir framan dómshúsið í Istanbul í gær.
Gæti hafst á nokkrum mánuðum
- segir Gunnar Guðmundsson lögfræðingur Sophiu
GUNNAR Guðmundsson lög-
fræðingur Sophiu Hansen segir
rétt að ef niðurstaða hæstaréttar
í Ankara í forræðismálinu verði
önnur en undirréttar I Istanbúl
fari málið aftur til undirréttar.
Það sé ekki rétt að málið verði
heilt ár á hvorum stað, því miklu
Útilokað að
reka málið
við þessar
aðstæður
- segir Ingvi S. Ingvas-
son sendiherra
INGVI S. Ingvasson, sendiherra
í Danmörku, afhendir forseta
Tyrklands trúnaðarbréf sitt sem
sendiherra íslands í Tyrklandi
næstkomandi þriðjudag. Athöfn-
in fer fram í Ankara, höfuðborg
Tyrklands. Ingvi sagðist í sam-
tali við Morgunblaðið í gær ekki
hafa ákveðið hvort hann ræddi
tyrkneska forræðismálið við for-
setann en hann myndi áreiðan-
lega ræða það við utanríkisráð-
herrann og ráðherra mannrétt-
indamála.
Ingvi sagðist ætla að beita sér í
forræðismálinu í heimsókn sinni í
Tyrkiandi en minnti jafnframt á
hvað viðkvæmt málið væri. Ingvi
sagði útilokað að reka málið við þær
aðstæður sem voru í dómshúsinu í
gær, meðal annars vegna þess að
vopnaður þingmaður hafi verið við-
staddur. Hann kvaðst hins vegar
bjartsýnni á niðurstöðu hæstarétt-
arins í Ankara.
Ingvi sagði forkastanlegt að
Sophia fengi ekki umgengnisrétt
dætra sinna fyrr en í júlí. Taldi
hann að það bryti í bága við lög
ogreglur.
Islenski sendiherrann átti fund
með Sophiu Hansen og lögmönnum
hennar í gær.
máli skipti hvort ýtt sé á eftir
málum i dómskerfinu hér í Tyrk-
landi eða ekki. Ef þeim sé fylgt
fast eftir sé hægt að koma þeim
í gegn á nokkrum mánuðum.
í máli Gunnars kemur fram varð-
andi forræðismálið að öll áhersla
verði lögð á að flýta því í gegnum
dómskerfíð. Það gæti þýtt að málið
yrði í meðferð tvo mánuði fyrir
hvorum rétti og hugsanlega ef eng-
in ljón stæðu í veginum yrði hægt
að fá niðurstöðu fyrir dæmdan
umgengnisrétt Sophiu í júlí á næsta
ári.
„Það er alrangt að erlent foreldri
hafi aldrei unnið forræðismál gegn
tyrknesku hér í landi,“ segir Gunn-
ar. „Norsk kona vann slíkt mál
gegn tyrkneskum eiginmanni sínum
árið 1989. Ég hef haft samband
við bæði norska og tyrkneska lög-
manninn sem unnu að því máli.
Raunar skrifaði sá norski bók um
það mál.“
Gunnar segir að þessi áfangi,
dómur í undirrétti, gerði það að
verkum að þrýstingur frá öfgatrú-
armönnum minnkaði og vonandi
gleymist Halim A1 vegna einhvers
annars máls. Þannig verði hægt að
taka á málinu á eðlilegan hátt í
stað þess að þola sífelldar ógnanir
og moldviðri.
Gunnar sagðist hafa verið viðbú-
inn öllu miðað við reynslu sína af
tyrknésku dómskerfí í undirrétti.
Einn af ljósu punktunum í málinu
til þessa væri í raun sá að þessi
tiltekni dómari myndi ekki fjalla
um málið aftur. „Það sem er já-
kvætt við dómsniðurstöðuna nú er
umgengnisrétturinn sem Sophiu var
veittur í einn mánuð á ári. Það
gefur henni ákveðna samingsstöðu
í framtíðinni," segir Gunnar.
Að lokum vék Gunnar máli sínu
að Ökkes Sendiller þingmanni öfga-
trúaðra múslima sem var ásamt
öryggisvörðum sinum vopnaður í
réttinum. Gunnar segir að Sendiller
sé nýkominn úr 4-5 ára fangelsi
fyrir hryðjuverk en flokkur hans
átti þátt í að lífláta alls um 200
félaga í tyrkneska sósíalistaflokkn-
um á árunum 1980-85. Nú kynni
þessi þingmaður sig sem formann
mannrétttindanefndar tyrkneska
þingsins.
Fékkekki
tíma tíl að
halda uppi
vömum
- segir tyrkneskur
lögfræðingnr Sophiu
HASÍP Kaplan, lögmaður Sophiu
Hansen, gagnrýndi úrskurðinn í
tyrkneska forræðismálinu harð-
lega á blaðamannafundi með
Sophiu, systkinum hennar og ís-
lenskum lögfræðingi, eftir að
ákvörðun dómarans lá fyrir i
gær. Hann sagði að dómarinn
hefði til dæmis látið undir höfuð
leggjast víkja að ástandi telpn-
anna og meðal annars vegna
þess hefði verið farið fram á að
dómarinn viki sæti. Dómarinn
sjálfur hefði hins vegar hafnað
þvi.
Á blaðamannafundinum byijaði
Hasíp á því að vísa til þess hversu
ömurleg reynsla það væri að upp-
lifa hróp og læti fjöldans fyrir utan.
Fólkið væri að gera einfalt forræðis-
mál að stjórnmálalegu baráttumáli.
Hann gagnrýndi nærveru vopnaðs
þingmanns öfgasinnaðra múslima í
réttinum og það að hann skyldi
hafa kynnt sig sem fulltrúa mann-
réttindasamtaka í borginni. Hasíp
gagnrýndi dómarann og sagði að
hann hefði ekki sinnt skyldu sinni
með því að neita að láta ástand
bamanna koma fram. Hann sagðist
ekki geta sætt sig við slíkan dóm-
ara og hefði því farið fram á að
hann viki sæti. Sjálfur hefði dómar-
inn hins vegar ákveðið að gera það
ekki. Hann gagnrýndi hversu
ákvörðun dómarans kæmi fljótt og
sagði að hann hefði ekki haft tíma
til að halda uppi vörnum. Hasíp
sagði að báðir aðilar hefðu beðið
um lengra réttarhlé til að fara yfir
gögn en ekki hafi verið farið að
þeirri beiðni.
Hasíp minnti íslenska og tyrk-
neska fjölmiðla á að fjalla hlutlaust
um málið og trúa ekki öllu sem að
þeim væri rétt. Þessu til stuðnings
benti hann á að í tyrkneskum blöð-
um hefði verið sagt að Sophia líkti
Tyrkjum við hunda en það væri
ekki rétt. Þetta atriði og fleiri upp-
lýsingar um málið eru í blaði sem
dreift var til blaðamanna á fundin-
um.
„Ég er móðir og hef hjarta
sem þú hefur kramið í dag“
- sagði Sophia Hansen við tyrkneska dómarann eftir úrskurð hans
Frá Önnu G. Ólafsdóttur blaðamanni Morgunblaðsins í Istanbúl.
EFTIR að tyrkneski dómarinn hafði kveðið upp úrskurð sinn
í forræðismálinu í Istanbúl í gærdag átti hann orðastað við
Sophiu Hansen. Hann vildi fá viðbrögð hennar við úrskurðinum
sem mun óvenjulegt. Sophia svaraði honum til að hann hefði
kramið hjarta hennar í dag.
Eftir að dómsúrskurður hafði
fallið í máli Sophiu Hansen kall-
aði dómarinn hana inn í dyr dóm-
araherbergis síns og spurði hana
hvort hún tæki niðurstöðuna
nærri sér. Hún segir að hún hafí
sagt honum að auðvitað tæki hún
þetta nærri sér. „Ég er móðir
og hef hjarta sem þú hefur kram-
ið í dag,“ sagði Sophia við dómar-
ann. Hann mun þá hafa svarað:
„En ég leyfði þér að vera með
þær í heilan mánuð.“ Hún svar-
aði um hæl: „Þú veist eins vel
og ég að hann leyfír mér aldrei
að sjá þær aftur hvað þá hafa
þær í heilan mánuð.“
Dómarinn minnti Sophiu þá á
að hún færi með málið fyrir
hæstarétt í Ankara og sagði síð-
an með glott á vör: „Þar finnur
þú kannski hreinan dómara sem
hjálpar þér.“
Sophia segir að þegar hér var
komið sögu hafí tyrkneski túlk-
urinn hennar kveðið dómarann í
Sophia Hansen
kútinn og viðstaddir hafi hlegið.
Lögfræðingar sem hlustuðu á
þessi orðaskipti sögðu að þeir
hefðu aldrei vitað til þess að
dómari tjáði sig um niðurstöðu
dóms með þessum hætti.
Aðspurð hvernig henni hafi
liðið er dómurinn var kveðinn upp
segir Sophia að hún hafi alltaf
átt von á því að Halim A1 yrðu
dæmdar dætur sínar en ekki að
hún fengi ekki að sjá þær fyrr
en eftir sex til sjö mánuði. Slíkt
myndi aldrei vera látið viðgang-
ast ef um tvo Tyrki væri að ræða.
„Ég held áfram af enn meiri
krafti og gefst ekki upp meðan
ég held andlegri og jíkamlegri
heilsu en það þarf mikla náð til
að halda henni undir þessum
kringumstæðum,“ segir Sophia.