Morgunblaðið - 13.11.1992, Side 30
Póstur og sími
opna nýja deild
Póstafgreiðsla opnuð í Glerárhverfi
NY SOLUDEILD var opnuð hjá Pósti og síma í gær, en hún er
staðsett á fystu hæð Póst- og símstöðvarinnar í Hafnarstræti 102.
£á mun á þriðjudag í næstu viku verða opnuð bráðabirgðapóst-
æFgreiðsla við Fjölnisgötu 3b.
Með hinu nýja fyrirkomulagi
geta viðskiptavinir Pósts og síma
sótt um nýja síma, flutning og
sérþjónustu í stafræna símkerfinu
í söludeildinni, en þar verða einnig
seld símtæki, símsvarar, farsímar,
boðtæki og fleira. Eftir að af-
greiðslukerfi Pósts og síma var
tölvuvætt losnaði húsnæði sem
áður var notað fyrir ýmis tæki.
Söludeildin hefur fram til þessa
ekki verið áberandi, en með flutn-
ingi hennar á aðalhæð afgreiðsl-
unnar er stefnt að því að efla
hana. „Þessi flutningur á deildinni
verður líka til þess að viðskiptavin-
ir okkar eiga auðveldan aðgang
að henni og við væntum nokkurs
af því,“ sagði Ársæll Magnússon,
umdæmisstjóri Pósts og síma.
Söludeildin verður opin frá kl. 9
til 18 virka daga og frá 10 til 15
á laugardögum.
Póstur og sími á Akureyri færir
út kvíamar á fleiri stöðum, því á
þriðjudag verður opnuð póstaf-
greiðsla í Glerárhverfi, en hún
verður til bráðabirgða í húsnæði
fyrirtækisins við Fjölnisgötu 3b.
Þar verður opið frá kl. 9 til 16.30,
en opnunartíminn verður lengdur
er líður að jólum. Gísli Eyland
stöðvarstjóri sagði að tilgangurinn
væri m.a. að gera póstþjónustuna
fljótvirkari og auka þjónustu við
íbúa hverfisins.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fyrsti jólasveinninn kominn!
Þó að nokkuð sé til jóla hefur fyrsta jólasveininum verið stillt út í
glugga á Akureyri, en það eru þeir hjá Pósti og síma sem fyrstir eru
til að minna bæjarbúa á að jólin eru í nánd.
Bjarni Kr. Grímsson fráfarandi bæjarstjóri í Ólafsfirði
Til greina kom að slíta meiri-
Mutanum til að leysa vandann
EIN þeirra leiða sem til greina komu við lausn ágreiningsmála
er uppi hafa verið í bæjarstjórn Olafsfjarðar var að slita meirihlut-
anum, en Sjálfstæðisflokkurinn hefur fjóra menn í bæjarstjórn
Ólafsfjarðar og Vinstri menn og óháðir þijá. Þetta kom fram í
viðtali við Bjarna Kr. Grímsson fráfarandi bæjarstjóra í Ólafs-
firði, en sem kunnugt er var honum vikið frá störfum síðastliðinn
laugardag og kveðst Bjami afar ósáttur við að sú leið hafi verið
valin. Samstarfsörðugleikar hafa síðustu misseri verið milli Bjama
og Sigurðar Björnssonar formanns bæjarráðs og urðu lyktir máls-
ins þær að „manni er fómað beggja vegna borðsins", eins og
oddviti minnihlutans orðaði það á bæjarstjómar fundi í vikunni,
en Sigurður hefur gefið út þá yfirlýsingu að hann muni hætta
iíörfum í bæjarstjóra Ólafsfjarðar í næst mánuði.
Bjami segist ekki hafa fengið
í hendumar bréf þar sem tilkynnt
sé um uppsögn sína, né heldur
hafí verið rætt formlega um með
hvað hætti starfslok hans hjá
bænum verða. Hann bendir á að
gerður hafi verið við hann samn-
ingur er hann hóf störf á miðju
síðasta kjörtímabili, en sá samn-
ingur hafí mnnið út í lok þess
kjörtímabils. Eftir síðustu kosn-
ingar hafi forseta bæjarstjómar
verið falið að ganga frá nýjum
samningi við bæjarstjóra, hann
hafi tvisvar verið ræddur í bæjar-
.jffii en aldrei verið formlega tekin
fyrir í bæjarstjóm. „Það hefur
aldrei staðið til af minni hálfu að
fá meiri peninga en mér ber sam-
kvæmt þessum samningi, sem ég
tel lögmætan,“ segir Bjami. Sam-
kvæmt þeim samningi er hann
vísar til er gert ráð fyrir 6 mán-
aða uppsagnafresti og 6 mánaða
biðlaunum.
Bjami segir að á meðan Sigurð-
ur Bjömsson bæjarfulltrúi hafi lít-
ið komið nálægt bæjarmálunum
hafí gengið vel. „Hann hafði lítil
i«fekipti af bæjarmálunum, utan
að hann þurfti að koma sínum
málum í gegn, erindum hans þurfti
að sinna athugasemdalaust og af-
greiða þau strax,“ segir Bjami,
en þar á hann m.a. við erindi um
bæjarábyrgð vegna lána sem
Fiskmar hf., sem Sigurður var
framkvæmdastjóri fyrir sótti um.
A3 mati Bjama leiðir ábyrgðar-
málið vegna Fiskmars til þess að
trúnaðarbrestur verður í milli hans
og Sigurðar. *
„f mínum huga lá ljóst fyrir að
bænum hafði verið lofað fyrsta
veðrétti í vélum Fiskmars, en það
virðist vera sem Sparisjóði Ólafs-
íjarðar hafí einnig verið lofað
fyrsta veðrétti og varð niðurstaðan
sú að sjóðurinn fékk hann, en
bærinn annan veðrétt. Bæjar-
ábyrgðimar voru samþykktar á
löglegum fundum og það er ekk-
ert athugavert við afgreiðslu
þeirra innan bæjarstjómar. Málið
snýst um frágang tryggingabréfs
fyrir þessum ábyrgðum. í mínum
huga lá ljóst fyrir að bænum hafði
verið lofað fyrsta veðrétti í vélum
Fiskmars, en það virðist vera sem
Sparisjóði Ólafsjarðar hefi einnig
verið lofað fyrsta veðrétti og varð
niðurstaðan sú að sjóðurinn fékk
hann, en bærinn annan verðrétt.
Á engan hátt var í þessu máli um
refsivert athæfí að ræða, megin-
málið er það viðskiptasiðferði sem
viðhaft var, bæjarfulltrúinn sat
beggja vegna borðsins og tók þátt
í afgreiðslu á eigin máli,“ segir
Bjami. Síðar varð fyrirtækið gjald-
þrota og ábyrgðin féll á bæinn.
„Þetta mál gerði það að verkum
að ég átti erfítt með að starfa
með Sigurði."
„Mér varð ljóst strax í desem-
ber 1990 þegar Fiskmar varð
gjaldþrota að ábyrgðin myndi
lenda á bænum og hafði samband
við forseta bæjarstjómar og bað
hann að taka þetta mál upp í
meirihlutanum til að mér yrði ekki
láð það til lasts að hafa tekið það
upp á óheppilegum tíma, eins og
raun varð á. Einhverra hluta
vegna var málið ekki rætt í meiri-
hlutanum, þó svo ég færi ítrekað
fram á það við forseta bæjarstjórn-
ar. Loks var ekki hægt að draga
lengur að taka málið fyrir, það var
ljóst að ábyrgðin var fallin og
ekki var hægt að loka ársreikning-
um bæjarins fyrr en búið yrði að
ganga frá málinu. Það var svo
rætt í bæjarráði og einhverju síðar
hafði blaðamaður Dags samband
við mig vegna þessa máls og hálf-
um mánuði fyrir kosningar var
frétt um þetta blásin upp á forsíðu
blaðsins. Sigurður og fleiri töldu
að ég hefði lekið fréttinni til að
klekkja á honum, en ég vísa öllum
slíkum ásökunum á bug, ég hafði
enga ástæðu til að gera slíkt, enda
sköðuðu umræðumar sem um
málið urðu alveg eins Sjálfstæðis-
flokkinn í kjördæminu, eins og
Sigurð, sem var í fjórða sæti, en
þama varð á ný ákveðinn trúnað-
arbrestur milli okkar,“ segir
Bjami.
Hann segir að í kjölfarið hafí
þrír bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins snúist gegn sér og síðar
hafi þeir tekið sér leyfí frá störfum
í bæjarstjóm eftir að tillaga þeirra
um starfslok bæjarstjóra hafí verið
felld. Þremenningarnir hafí síðan
komið til starfa aftur um síðustu
áramót, en í byijun desember hafi
ékkert verið farið að ræða um með
hvaða hætti mál yrðu leyst. í árs-
byijun hafí mikið verið reynt til
að finna lausn, „Ég var ósáttur
við þá lausn, þ.e. að þremenning-
arnir kæmu aftur inn í bæjar-
stjóm, ég taldi að það myndi ekki
leysa þetta mál. Ég lét til leiðast,
ákvað að gera tilraun en það kom
í ljós að samningar voru þver-
brotnir, ekki af minni hálfu heldur
þeirra. Síðan hefur markvisst ver-
Bjami Kr. Grímsson
ið unnið að því að halda mér frá
málum, gera starf bæjarstjóra að
papjpírsafgreiðslustarfi.“
Á síðustu mánuðum hafa menn
leitað leiða til lausna og segir
Bjami að ein þeirra leiða sem til
greina kom hafí verið að meirihlut-
anum yrði slitið og eins hafí verið
rætt um útskipti á mönnum, en
það hefði alfarið verið í höndum
forseta bæjarstjóra að taka
ákvörðun um hvaða leið yrði farin.
Hann kveðst ósáttur við þá lausn
sem valin var, þau mísklíðarefni
sem uppi hefðu verið milli manna
hefðu ekki gefíð tilefni til svo
harkalegra viðbragða. Leysa hefði
mátt mál með öðrum og skynsam-
legri hætti, það væri ekki hagur
bæjarins að segja bæjarstjóra upp
fyrirvaralaust, fram hefði komið
hjá forseta bæjarstjórnar að engar
ávirðingar væru á störf hans.
„Þetta varð niðurstaðan, en ég er
mjög ósáttur við þá aðferð sem
notuð var.“
Félög heilbrigð-
isstéttanna
Lokun Krist-
ness er hót-
un við bráða-
deild FSA
LÆKNAFÉLAG Akureyrar og
Norðurlandsdeild eystri innan
Hjúkrunarfélags íslands hafa
sent frá sér ályktanir þar sem
hugmyndum um að skerða þjón-
usfy Kristnesspítala er mótmælt.
í ályktun frá Læknafélagi Akur-
eyrar er mótmælt harðlega hug-
myndum um að skerða þá þjónustu
á sviði endurhæfíngar og öldrunar-
hjúkrunar sem veitt er á starfs-
svæði félagsins. „Fundurinn telur
að efling öldrunarlækninga og end-
urhæfingar í Kristnesi sé vænleg-
asta leiðin til hagkvæms reksturs
fyrrgreindrar þjónustu í héraðinu.
Með hliðsjón af núverandi þörf yrði
lokun Kristnesspítala alvarleg hót-
un við starfsemi bráðadeilda FSA
og heimahjúkrunar heilsugæslunn-
ar og myndi þýða afturhvarf til
fortíðar í læknisfræðilegu tilliti,“
segir í ályktun Læknafélags Akur-
eyrar.
Norðurlandsdeild eystri innan
Hjúkrunarfélags íslands mótmælir
einnig þeim áformun að draga úr
fjárveitingum til Kristnesspítala svo
hann verði ófær um að gegna hlut-
verki sínum. Hjúkrunarfræðingum
á svæðinu sé ljós þörfín fyrir þá
þjónustu spítalans sem veitt hefur
verið á undanförnum árum og hafí
þeir vænst áframhaldandi uppbygg-
ingar endurhæfíngardeildar. Þeir
sem notið hafí þjónustu deildarinnar
séu ánægðir með árangurinn.
Þá hafí hjúkrunardeild leyst
bráðan vanda margra á síðustu
árum. „Ekki verður séð hvað getur
komið í stað Kristnesspítala til þess
að veita sjúklingum á Norðurlandi
sambærilega þjónustu,“ segir í
ályktun deildarinnar og einnig að
hjúkrunarfræðingar geti að
óbreyttu ekki sætt sig við að spítal-
inn verði lagður niður. Skora þeir
á heilbrigðisráðherra að endurskoða
afstöðu sína. „Uppbygging er hafín
á Kristnesi, við sættum okkur ekki
við að það góða starf, sem þar hef-
ur verið unnið, verði gert að engu,“
segir í lok ályktunarinnar.
♦ ♦ ♦----
Leikfélag Akureyrar
Afimmta
þúsund
sjá Línu
NÚ FYRIR helgi voru skráðir á
fimmta þúsund gestir á sýningar
Leikfélags Akureyrar á Línu
Langsokk, en í raun em þeir
fleiri þar sem yngstu sýningar-
gestimir kjósa fremur að sitja í
kjöltu foreldranna, en að fá sér-
stakt sæti.
Sýnt hefur verið fimm sinnum í
viku, en eftir þessa helgi verður
aðeins sýnt um helgar. Þijár sýn-
ingar verða um helgina, á laugar-
dag kl. 14 og sunnudag kl. 14 og
17.30. Ekki verður unnt að sýna
lengur en út nóvember og eru síð-
ustu sýningar um helgina 28. og
29. nóvember næstkomandi.
Skólanemar hafa flykkst á sýn-
ingamar og sumir hafa átt langan
veg að fara, en lengst að komnir
vora nemendur úr Flensborgarskóla
í Hafnarfírði.