Morgunblaðið - 13.11.1992, Page 35
MORGUNBLAÐTÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992
35
Basar hjá heimilisfólk-
inu í Asi í Hveragerði
Hveragerði.
DVALARHEIMILIÐ Ás - Ás-
byrgi, verður með sinn árlega
jólabasar í Frumskógum 6b,
föndurhúsinu, dagana 14. og 15.
nóvember frá kl. 13 til 18 báða
dagana.
Á basarnum verður margt góðra
muna sem allir eru unnir af heimilis-
fólkinu. Þessi vinna er fólkinu mjög
mikils virði og gefur lífinu aukið
gildi því um leið og þau skapa góða
og gagnlega hluti geta þau unnið
sér inn vasapeninga og rennur and-
virði munanna óskipt til þeirra sem
vinna þá.
Kennarar í föndrinu eru þær
Kristín Sigurþórsdóttir og Sigurdís
Sveinsdóttir og að þeirra sögn er
þátttakan að aukast í föndrinu.
Á basarnum má gera góð kaup
til dæmis ájólagjöfum s.s. jóladúka,
púða, mottur, margskonar pijóna-
föt og nú síðast eru þau komin með
trévörur.
Að lokum má benda á að einnig
er hægt að kaupa vörur heimilis-
fólksins alla virka daga í Ásskála
frá kl. 13 til 16.
- Sigrún.
____________Brids_______________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
íslandsmót kvenna og yngri
spilara verður um helgina
íslandsmót kvenna og yngri spilara
í tvímenningi .1992 verður haldið í
Sigtúni 9 helgina 14.-15. nóvember.
Metþátttaka er í kvennaflokki og eru
nú skráð 32 pör, mest munar þar um
þátttöku kvenna af landsbyggðinni,
sem er mjög ánægjulegt.
Síðasta ár var metár í yngri spilara
flokknum, 30 pör, en nú eru 18 pör
skráð en hafa verður í huga að aldurs-
takmörkunum var breytt til samræmis
við Evrópusambandið og miðað við
aldur á spilaárinu en ekki áramót eins
og var áður.
Mótið hefst kl. 12 laugardaginn 14.
nóvember í báðum flokkum og verða
spiluð þrjú spil milli para í kvenna-
flokki en fimm spil í yngri spilara
flokknum. Áætlaður spilatími er frá
kl. 12 á laugardag til kl. 19.20 með
hálftíma hléi kl. 15.30-16. Spila-
mennska byijar aftur kl. 10 á sunnu-
dagsmorgni og spilað til kl. 16.50 með
35 mínútna hléi kl. 12.55-13.30.
Keppnisgjald er 4.000 kr. á parið
og greiðist við upphaf keppni. Keppn-
isstjóri og reiknimeistari verður Krist-
ján Hauksson.
Núverandi Islandsmeistarar kvenna
eru Valgerður Kristjónsdóttir og Esth-
er Jakobsdóttir og Islandsmeistarár
yngri spilara Kjartan Ásmundsson og
Karl O. Garðarsson. Þessi pör eru
bæði skráð í keppnina og munu örugg-
lega beijast hart til að veija íslands-
meistaratitlana sína.
Allir spilaáhugamenn eru hvattir til
að líta við í Sigtúni 9 um helgina og
fylgjast með spennandi mótum.
Bridsfélag Hornafjarðar
Jón G. Gunnarsson og Jón Sveinsson
sigruðu í Blöndutvímenningnum sem
var eins kvölds tvímenningur spilaður
var um síðustu helgi. Tólf pör spiluðu
og voru einstakingar dregnir saman í
pör. Jónamir fengu 132 stig en meðal-
skor var 110. Gestur Halldórsson og
Árni Stefánsson urðu í öðru sæti með
125 stig og Öm Þorbjömsson og
Ragnar Björnsson (yngri) þriðju með
116 stig.
Vestrarmitchell BSÍ
Föstudaginn 6. nóvember var spil-
aður Vetrarmitchell að venju, 31 par
var með þennan föstudag og urðu
úrslit eftirfarandi:
Norður/suður-riðill:
Þórður Sigfússon - Höskuldur Gunnarsson 487
Ámi H. Friðriksson - Gottskáik Guðjónsson 480
Hrafnhildur Skúladóttir - Jörundur Þórðarson 470
EinarPétursson-KolbrúnThomas 461
Austur/vestur-riðill:
Baldur Bjartmarsson - Guðmundur Þórðarson 518
PállÞórBergsson-ÁrsællVignisson 511
LárusPétursson-GunnlaugurSævarsson 483
FriðrikJónsson-RúnarHauksson 482
Spilaður er eins kvölds tvímenning-
ur á hveiju fóstudagskvöldi i Sigtúni
9. Spilamennska hefst kl. 19.00, húsið
er opnað kl. 18.30 og skráning er á
staðnum þar til spilamennska hefst.
“ ”1 FI ,BAR
frR Lh
4
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 67 48 44
Opiðvirkadagafrákl. 10-18og laugard.frá kl. 10-14
SVANNI
Stangarhyl 5
Pósthólf 10210 130 Reykjavik
Simi 91-67 37 18 Telefax 67 37 32
Morgunblaðið/Sigrún Sigfúsdóttir
Munir unnir af heimiiisfólkinu í Ási og Ásbyrgi.
Bridsfélag Hreyfils
Lokið er fjórum umferðum í sveita-
keppninni og er staða efstu sveita
þessi:
Birgir Sigurðsson 85
Daníel Halldórsson 84
Ólafur Jakobsson 77
Sigurður Ólafsson 77
Bridsklúbbur Félags eldri
borgara, Kópavogi
Þriðjudaginn 10. nóvember var spil-
aður tvímenningur og mættu 18 pör
til leiks, spilað var í tveim riðlum, 10
og 8 para, og urðu úrslit þessi:
A-riðill:
ÞorleifurÞórarinsson-ÞórarinnÁmason 143
Ingiríður Jónsd. - Helga Helgadóttir 126
Bergsveinn BreiðQörð — Halla Ólafsdóttir 122
Ásta Sigurðardóttir — Margrét Jónsdóttir 113
Meðalskor 110 stig.
B-riðill:
HannesAlfonsson-BjamiGuðmundsson 96
Eyvindur Valdimarsson - Sigriður Pálsdóttir 93
StefánBjömsson-HeiðurGestsdóttir 93
Meðalskor 84 stig.
Næst verður spilað fóstudaginn 13.
nóvember kl. 13 og þriðjudaginn 17.
nóvember kl. 19 á Digranesvegi 12.
Philip Morris lands- og
Evróputvímenningurinn
Föstudagskvöldið 20. nóvember
verður spilaður Philip Morris lands-
og Evróputvímenningurinn. Það verð-
ur spilað á 20 stöðum hér á íslandi
en mun fleiri félög eru með því mörg
félögin taka sig saman um þetta spila-
kvöld þar sem ekki er of langt á milli
staða. Bridsspilarar um allt land eru
því hvattir til að athuga hvar verður
spilað nærri þeim og Bridssamband
Islands hvetur sem flesta til að vera
með. Þetta er skemmtileg keppni og
í lok spilamennskunnar fá allir þátt-
takendur bækling með spilunum og
athugasemdum um þau. Þátttakendur
eru að taka þátt í tveim keppnum
samtímis því það er reiknað út yfir
allt landið og síðan yfir alla Evrópu.
Fyrir landstvímenninginn eru gefin
tvöföld bronsstig í félögunum og gull-
stig fyrir heildina. í Reykjavík verður
spilað í Sigtúni 9, skráning er á skrif-
stofu Bridssambands íslands í síma
91-689360.
m
kartöflu
mus
Frá
áKötlu, 100g. M’IöQ gottverð.
Staögreiðsluatsláttur.
Greiðsíukortaþiónusta.
ÆBT A
mmamm æí
ÆmBmw
AIIKUG4REXJR
VIÐ SUND
Snjéþotur með bremsum (minni).
Litir Rautt, blátt, svart og appelsfnugult.
kr. 998,- stgr.
Snjóþotur með bremsum (stærri).
Litir Rautt, blátt, svart og appelsfnugult.
kr. 1.198,- stgr.
Sleðar með bremsum.
Litin Svart og lilla. Kr. 1.998,- stgr.
Sleðar með stýri og bremsum.
Litir Svart og rautt. Kr. 3.996,- stgr.
Sleðar með stýri og skéflubremsu.
Litir Svart og rautt. Kr. 4.415,- stgr.
TURBO sleðar með sirenu og blikkljési.
Kr. 6.S87,- stgr.
CLASSIC: Blár/svartur. kr. 8.400,- stgr.
GT. Svartur, með flöðrum á framskiði og
sjálfinndregna snúru á kr. 9.140.- stgr.
Mesta úrval
landsins af sleðum
og snjóþotum
_ PÓSTSENDUM (JE
OPIÐ LAUGARDAGA 10-13
ÖRNINNÞ'
SKEIFUNNI I f
VERSLUN SÍMI 679890