Morgunblaðið - 13.11.1992, Qupperneq 38
l:(MOHGI3WBLÁÐiÐ.;:FÖSTUI>ÆQU:R!l!3;íMÓVEMBEH((íð92
es8
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGMUNDUR KRISTJÁN GUÐMUNDSSON
frá Gelti, Súgandafirði,
Ásbúð 82,
Garðabæ,
andaðist á Sólvangi, Hafnarfirði, miðvikudaginn
11. nóvember.
Ragnheiður Elíasdóttir,
Sigurlaug Árnadóttir,
Hafsteinn Sigmundsson, Kristjana Friðbertsdóttir,
Guðmundur H. Sigmundsson, Ragnhildur Bender,
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar,
GUNNAR JÚLÍUS JÓNSSON
frá Reynisstað,
Sandgerði,
verður jarðsunginn frá Hvalsneskirkju laugardaginn 14. nóvember
kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Lilja Gunnarsdóttir,
Jóna Gunnarsdóttir,
Óskar Gunnarsson.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og ahnma,
GUÐRÚN Á. S. INGVARSDÓTTIR,
Hamraborg 14, Kópavogi,
áðurtil heimilis í Holtagerði 6,
sem lést 2. nóvember, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju
mánudaginn 16. nóvember kl. 15.00.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Auðunn Snorrason,
Jón S. Snorrason, Helga Árnadóttir,
Jónína M. Snorradóttir, Einar Guðlaugsson,
Ásbjörn S. Snorrason, Kristín Jónsdóttir,
Svala Snorradóttir, Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
og barnabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
KRISTÍN JÓNSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Landakirkju iaugardaginn 14. nóvember
kl. 14.00.
Adolf Óskarsson,
Jóna Óskarsdóttir,
Aðalheiður Óskarsdóttir,
Eygló Óskarsdóttir,
Kristín Ósk Óskarsdóttir,
Albína Elisa Óskarsdóttir,-
Hrefna Óskarsdóttir,
ÖrnÓskarsson,
Guðrún Óskarsdóttir,
og barnabörn.
Ásta Vigfúsdóttir,
Þorleifur Sigurlásson,
Svavar Steingrímsson,
Friðbjörn Kristjánsson,
Huginn Sveinbjörnsson,
Kristján Ingólfsson,
Hulda Kærnested,
Almar Hjarðar
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við fráfall föður okkar,
tengdaföður og afa,
ÓLAFS H. JÓHANNESSONAR,
Vogatungu 109,
Kópavogi.
Sigrún Ólafsdóttir,
Oddný Ólafsdóttir,
Frfða Ólafsdóttir,
Jóhanna Ólafsdóttir,
Hrafnhildur H. Ólafsdóttir,
Anna K. Ólafsdóttir
Bjarni Gunnarsson,
Aðalgeir T. Stefánsson,
Gunnar R. Jónsson,
Leifur Ólafsson,
Ásgeir Jónsson,
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langa-
langömmu,
SIGRÍÐAR STEINUNNAR TRAUSTADÓTTUR
frá Breiðavfk,
Túngötu 15,
Patreksfirði.
Arnbjörg Guðlaugsdóttir,
Trausti Aðalsteinsson, Laufey Böðvarsdóttir,
Guðmundur B. Aðalsteinsson, Brynhildur Bjarnadóttir,
Egilina Guðmundsdóttir, Eggert Haraldsson,
Hrönn Helgadóttir, Pétur Njarðvík,
Sigurgeir A. Aðalsteinsson, Rósa Bachmann,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
Guðbjörg Einars-
dóttír - Minning
Fædd 17. apríl 1919
Dáin 6. nóvember 1992
Nú á haustnóttum, þegar vetur
er að ganga í garð, berst mér sú
dimma fregn, að æskuvinkona mín,
Guðbjörg Einarsdóttir, sé látin.
Óvænt var sú fregn, því við höfðum
ræðst við fyrir nokkrum dögum, og
þá var hún hress og vongóð um
bata. Sú von brást þó fyrr en nokk-
urn varði, og þrátt fyrir það að hún
hafði um nokkurt skeið átt við erf-
ið veikindi að stríða, kom þetta öll-
um aðstandendum hennar og vinum
á óvænt — en svo mun jafnan um
brottförina héðan, sjaldnast erum
við tilbúin.
Við Guðbjörg voru vinkonur og
nágrannar frá æsku, og margar
yndislegar og æskubjartar minning-
ar eru tengdar þessari glöðu og
hláturmildu leiksystur minni. Góðar
og glaðar minningar, gulli betri.
Minningin um góðan vin er lífsins
besta gjöf.
Þannig minnist ég vinkonu
minnar, Guðbjargar, þannig var
hún til hinsta dags — og þannig
verður hún í huga mér og hjarta.
Með söknuði kveð ég vinkonu
mína og þakka henni langa og góða
samfylgd. Óska henni góðrar ferðar
og Guðs friðar.
Oddgeiri, bömum og barnabörn-
um votta ég innilega samúð mína.
Elín Maríusdóttir.
Að morgni 6. nóvember lést í
Landspítalanum kær vinkona okk-
ar, Guðbjörg Einarsdóttir.
Þrátt fyrir erfíð veikindi síðustu
árin kom andlát hennar okkur mjög
á óvart. Eitt síðdegi aðeins viku
fyrr höfðum við þijár átt rólega
samverustund. Fjarri var að þá
kæmi okkur í hug að þetta yrðu
okkar síðustu samfundir.
En enginn veit um stund né stað
þá stefna dauðans kemur að.
(V. Briem)
Vinátta okkar stóð frá ungaáldri.
Við eigum því margar og dýrmætar
minningar, allt frá skólaámnum í
'Gagnfræðaskólanum í Reykjavík,
en þar lukum við námi vorið 1936.
Ekki brustu vinaböndin eftir það,
og vinna hófst, heldur styrktust
fremur, reynt var að njóta þess alls
saman, sem kostur var á í þann
tíð, bíóferðir, í leikhús, á tónleika,
í sumarferðalög og margt fleira —
allt varð að ævintýrum.
Síðan tók við meiri alvara. Guð-
björg og ungur maður, Oddgeir
Ólafsson, nú verkfærastjóri hjá
Reykjavíkurborg, felldu hugi saman
og gengu í hjónaband 15. nóvember
1947 og stofnuðu heimili hér í borg.
Þeim varð þriggja barna auðið.
Elstur er Einar Þór, símvirki, f.
1949, og árið 1953 fæddust tví-
burasysturnar Oddgerður, íþrótta-
kennari, og Ólöf, hjúkrunarfræð-
ingur, sem nú stundar nám í Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands. Þau
hafa öll stofnað heimili og eignast
böm. Barnaböm Guðbjargar og
Oddgeirs em sex, miklir gleðigjafar
afa og ömmu.
Guðbjörg fæddist á Eyrarbakka
17 apríl 1919. Foreldrar hennar og
þriggja bræðra, þeirra Kristins,
skipatæknifræðings, sem er látinn,
Bjarna, húsgagnasmiðs, og Guð-
mundar Gunnars, málarameistara,
vom hjónin Þórann Bjarnadóttir og
Einar Eiríksson, eldsmiður, bæði
ættuð úr Rangárvallasýslu, mikið
hagleiksfólk fram í ættir, og fór
Guðbjörg ekki varhluta af þeim
arfí. Hún var sérstaklega velvirk
og vandvirk við öll sín störf og ber
hin vandaða handavinna hennar
þess sannarlega merki.
Guðbjörg var mæt kona, bókelsk
og vel greind. Hún hugsaði vel um
heimili sitt og börn sín meðan þau
vom að vaxa úr grasi.
Hin síðari ár vann hún úti hálfan
daginn, hóf störf á göngudeild
augndeildar Landakotsspítala í
október 1972, þar sem hún undi
hag sínum vel hjá góðu fólki, og
sjálf einstaklega vel látin, róleg og
yfirveguð. Hún lét þar af störfum
árið 1990 aldurs vegna.
Guðbjörgu þökkum við löng og
góð kynni og heila vináttu í ára-
tugi, og kveðjum hana með trega.
Að lifa er gott, ef Guð það líður,
- ei gröfina þó hræðumst vér.
Að deyja er gott, er Drottinn býður,
en dauðans neinn ei óski sér.
Guð látum ráða um líf og hel,
en lifum bæði og deyjum vel.
(V. Briem)
Blessuð sé minning Guðbjargar
Einarsdóttur.
Eiginmanni hennar og fjölskyldu
allri sendum við innilegar samúðar-
kveðjur.
Þórunn og Bergljót.
Styðja EES-samningiim
FJÖLMENNUR fundur íslend-
inga í Berlín, Þýskalandi, sam-
þykkti einróma að lýsa yfir
stuðningi við aðild íslands að
hinu Evrópska efnahagssvæði
(EES). „Við teljum að þátttaka
Islands í samvinnu Evrópuríkja,
bæði sem hlutdeild í sameiginleg-
um innri markaði og samstarfs-
verkefnum af ýmsu tagi, geti
bætt hag Islendinga heima og
erlendis,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá íslendingum í Berlín.
„Samstarfíð mun styrkja at-
vinnulíf, efla rannsóknir í raun- og
hugvísindum og auðga mannlíf og
menningu á íslandi. Við viljum sér-
staklega benda á vægi þess og gildi
fyrir eylandið ísland að íslendingar
geti áfram sótt menntun og starfs-
reynslu til meginlandsins. Einangr-
un er nokkuð sem íslendingar mega
síst við í heimi þar sem múrar eru
að falla. Við teljum það happa-
drýgra fyrir ísland að nálgast meg-
inland Evrópu heldur en að vera
utan samvinnunnar eins og Norður-
póllinn.
Hvað varðar ótta um framsal á
fullveldi, sjálfstæði eða löggjafar-
valdi er vert að benda á, að í þess-
um milliríkjasamningi mun ísland
taka þátt í mótun sameiginlegra
laga auk þess sem endanleg stað-
festing þeirra er undir Alþingi ís-
lendinga komin. Mörg vandamál
samtímans (t.d. umhverfisvernd)
krefjast sameiginlegra lausna.“
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför sambýlismanns míns,
PÉTURS ÁGÚSTSSONAR
múrara,
Torfufelli 10.
Erna Guðrún Sigurjónsdóttir,
börn og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinsemd við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
HARALDAR
AÐALSTEINSSONAR,
Mýrum 13,
Patreksfirði.
Arnbjörg Guðlaugsdottir,
Ingibjörg Haraldsdóttir, Pétur Ólafsson,
Guðlaug J. Haraldsdóttir,
Erlíngur S. Haraldsson,
Helga Haraldsdóttir,
Aðalsteinn U. Haraldsson,
Rannveig Haraldsdóttir,
Skúli Th. Haraldsson,
Þröstur Haraldsson,
Þórey A. Haraldsdóttir,
Brynja Haraldsdóttir,
Ólafur Felix Haraldsson,
Regína Haraldsdóttir,
Sigrfður Kristjánsdóttir,
Georg Guðmundsson,
Ýr H. Einarsdóttir,
Ásgeir H. Ingólfsson,
Magnus J. Áskelsson,
Bjarnveig Guðbjartsdóttir,
barnabörn og langafabarn.
ERFIDRYKKJUR
frá kr. 850-
iími 620200
Sérfræðiiigar
í blóniaskrpytin^um
>ió öll tipkilæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstadastrætis,
sími 19090
P E R L A N