Morgunblaðið - 13.11.1992, Page 41
41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992
CASABLANCA
Upprisa skemmtistaðar
Gestir Casablanca dansa af miklum móð.
Birna Einarsdóttir og Rut Ró-
bertsdóttir gáfu sér tíma til að
tala saman.
Skemmtistaðir eru háðir duttl-
ungum þeirra sem þá sækja,
aðsóknin eykst og dregst saman
með næsta reglulegu millibili. Vil-
hjálmur H. Vilhjálmsson tók nýlega
við sem skemmtanastjóri á Casa-
blanca, einu af vel þekktari dans-
húsum yngri kynslóðarinnar. Ætlun
Vilhjálms er að rífa upp aðsóknina
og stemmninguna á staðnum og
ekki verður annað sagt en að það
Sívinsælt er að gera framhald
þeirra kvikmynda sem falla
áhorfendum vel í geð og er ekki
að efa að myndin Blúsbræðurværi
fyrir lifandi löngu orðin að fram-
haldsmyndaflokki ef annar aðal-
leikarinn, John Belushi, hefði ekki
látist tveimur árum eftir að mynd-
in var gerð. Nú er hins vegar uppi
sú hugmynd að gera framhald,
Blúsbræður 2 eða ættum við frem-
ur að segja Blúsbróðirinn þar sem,
félagi Belushis, Dan Akroyd, mun
einn bera myndina uppi.
Biúsbræður segir frá bræðrum
sem endurvekja hljómsveit sem
hafi lánast vel, ef marka má að-
sóknina síðustu helgar. Nýjum
mönnum fylgja nýjar áherslur og
Vilhjálmur segist leggja mest upp
úr tónlistinni á staðnum og því að
fólk skemmti sér sjálft. „Eg held
að fólk sé búið að fá nóg af alls
kyns uppákomum á skemmtistöð-
um. Við leggjum aðaláherslu á tón-
listina sem er blanda eldri og nýrri
tónlistar en við höfum ekki leikið
þeir voru eitt sinn í. Það gengur
hins vegar heldur brösuglega og
aðdáendur þeirra Jake og Elwood,
eins og þeir Akroyd og Belushi
hétu í myndinni, skildu síðast við
þá félaga þar sem þeir voru í fang-
elsi. Nú vinna þeir John Landis
leikstjóri og Akroyd að framhaldi,
sem hefst á því að Elwood (Akro-
yd) er látinn laus úr fangelsi og
kemst að því að bróðir hans, sem
var haldið í öðru fangelsi, er lát-
inn. Hefst Elwood því þegar handa
við stofnun nýrrar hljómsveitar,
nema hvað.
svokallaða „hard-core“-tónlist. Sá
hópur sem við höfðum fyrst og
fremst til, er fólk á aldrinum 20-27
ára.“
Ljósmyndirnar sem hér fylgja
voru teknar um síðustu helgi og
verður ekki annað séð en að gestir
staðarins hafi kunnað vel að meta
það sem upp á var boðið.
John heitinn Belushi og Dan
Akroyd í Biúsbræðrum.
KVIKMYNDIR
Aleinn blúsbróðir
SKEMMTANIR
Adamski í Tungl-
inu 1 kvöld
T7él þekktur breskur tón-
» listarmaður, Adamski,
verður á sviðinu í skemmti-
staðnum Tunglinu í kvöld
sem ber upp á föstudag
þrettánda mánaðar. í föru-
neyti þessa manns verða
m.a. Mr. Monday, D.J.Rad
Rice og Sean McClusky sem
er forkólfur enska nætur-
klúbbsins „Love Ranch“ sem
útleggst Búgarður ástarinn-
ar. „Adamski þykir mjög
djarfur og framúrstefnuleg-
ur á sviði og nær upp villtri
dans- stemmingu hvar sem
hann kemur fram,“ segir
Leifur Dagfinsson skemmt-
anastjóri Tunglsins, en mað-
urinn á bak við heimsóknina
er fyrrgreindur McClusky,
sem er aðaleigandi umrædds
ástarbúgarðs.
Leifur segir að Adamski
flytji tónlist sína í samvinnu við
herra Monday og hafi þeir verið
á ferð og flugi víða um Evrópu
að undanförnu. „Tónlistin þeirra
endurspeglar allt það nýjasta
sem um er að vera á danshúsum
stórborganna,“ segir Leifur.
Adamski þessi hefur og unnið
með ýmsum þekktum tónlistar-
mönnum, eins og til dæmis El-
ton John, en saman hafa þeir
endurútgefið nokkuð af lögum
hans. Nú síðast gaf Adamski
út lag með þýsku poppnorninni
Ninu Hagen, „Get Your Body“
heitir það, en þekktasta lag
Adamski er þó „Killer“ sem var
fjórar vikur í efsta sæti breska
vinsældarlistans og náði auk
þess toppsætinu á Islandi á sín-
um tíma.
Næturklúbburinn „Love
Ranch“ er mjög vinsæll um
þessar mundir og er það fullyrt
í breskum blöðum sem fjalla um
þessi mál, að fjöldi fólks sé þess
albúinn að standa utandyra upp
á von og óvon svo klukkustund-
um skiptir. Fyrir marga er það
óvon, því eigendur og dyraverð-
ir draga gesti í dilka. Þeir velja
mannskapinn utandyra í þijár
biðraðir. í eina röð fara frægir
kappar og kappynjur úr bresku
næturlífi. Sú röð tæmist fyrst.
í annarri röð eru óþekktir
næturklúbbahrafnar af báðum
kynjum sem annað hvort eru
módel eða popparar, eða líta út
fyrir að vera það. Flestir úr
þessari röð komast inn þótt síð-
ar verði. Þriðja röðin er sögð
afar fjölmenn, sérstaklega ef
miðað sé við hverfandi mögu-
leika á að komast inn um- hlið
Paradísar. Eigendur klúbbsins
segja flesta í þriðju röð eiga við
hugarfarslegan vanda að stríða
og því fái þeir ekki aðgang.
„Margir eru þó á mörkunum og
hafa lagt nokkra vinnu í holling-
una. Þeir komast oft inn næst
þegar þeir mæta á vettvang,“
segir eigandinn McClusky.
1 tilefni þess að í dag opnum við verslun okkar í Skipholti
með glœsilegum ítölskum fatnaði frct benetton, veitum við
9/o OÍSlott nœstu 4 daga bœði í Skipholti og Kringlunni.
Opíð mán.-fös. frá kl. 10.30-18