Morgunblaðið - 13.11.1992, Síða 44

Morgunblaðið - 13.11.1992, Síða 44
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992 44 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríi) ff* Láttu ekki vandamál í vinn- unni letja þig. Taktu málið taki og einbeittu þér að því að fínna hentuga lausn. Naut (20. apríl - 20. maí) iFélagslífíð er einum of blómlegt hjá 'þér. Reyndu að draga úr ferðinni í dag Böm geta verið óstýrilát í dag. Tvíburar (21. maí - 20. júní) í mörgu er að snúast heima í dag og þú sérð varla fram úr því. Þú vilt hafa nóg að gera, en allt er bezt í hófí. Krabbi (21. júní - 22. júlí) HIjB Óvæntar breytingar setja fyrirætlanir þínar úr skorð- um. Þú þarft að gefa þér góðan tíma til að fínna réttu lausnina. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þú hefur tilhneigingu til að eyða of miklu. Þú ert auðtrúa og þér hættir til að kaupa hluti sem þú hef- ur engin not fyrir. Meyja '(23. ágúst - 22. septemberl <Sí-t Eitthvað óvænt getur ruglað þig í ríminu. Þú vilt hafa allt í röð og reglu, en þróun mála krefst sveigj- anleika. (23. sept. - 22. október) Of mörg mál eru að vefjast fyrir þér. Ef þú afgreiðir þau eitt í einu kemur árangurinn fljótlega í ljós. Sporódreki (23. okt. - 21. nóvember) Samkvæmislífíð gerir mikl- -ar kröfur til þín og er lítið spennandi ef þú þarft að vera síbrosandi þótt þér leiðist. Hvíldu þig í kvöld. Bogmaður (22. nóv. — 21. desember) Of mörg. jám í eldinum dreifa huganum um of. Hægðu á ferðinni og ein- beittu þér að því að ná góðum árangri. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Ráð þín eru vel þegin og því hætt við að þú flækist !um of í vandamál annarra. Það gæti verið hentugra að hafa sig minna í frammi. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) dk Það getur verið erfítt að koma mikilvægu máli í höfn. Margt er enn laust í reipunum og þú þarft að finna réttu leiðina. Fiskar j(19. febrúar - 20. mars) Þú leggur mikið á þig til að þóknast öðrum, og ekki víst að það sé þess virði. Mundu að sinna einnig eig- in hagsmunum. Stjórnuspána á að lesa sem dœgradvöl. Sþár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra staðreynda. GRETTIR ■ i/*e.ú£>... ? \Me*sr hvað :::::::: i ió^ka LJUOIVn þÉQ. þA£> FERDINAND SMAFOLK 5H0U) AN EXAMPLE OF THE SUBJUNCTlVE IN ‘IF' CLAU5E5 F0R CONPITION5 C0NTRART TOFACT" „Sýnið dæmi um viðtengingarhátt með „ef“ orðasambandi í mótsetn- ingu við staðreyndir. 50RRV, MAAM.il F0R6OT T0 FA5TEN MY 5EAT BELT,. Afsakaðu, kennari ... en ég gleymdi að festa sætisólina ... BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Annar eigenda TGR-klúbbs- ins í London heitir Howard Coh- en, stórtækur fasteignakaup- maður og áhugasamur bridsspil- ari. Hann var í suður í þessu spili, sem kom upp í rúbertubrids í TGR nýlega: Austur gefur; NS á hættu. Norður ♦ G854 V 1082 ♦ K765 ♦ 84 Suður VÁKD9 ♦ ÁG108432 ♦ 53 Vestur Norður Austur Suður - - 2 lauf * 2 tíglar 2 hjörtu 3 tíglar 3 spaðar 6 tíglar! Pass Pass Dobl III * alkrafa Utspi: spaðaþristur. Cohen trompaði spaðakóng austurs í fyrsta slag, lagði niður tígulás (tígullinn var 1-1) og spilaði . . . . (hverju?) Norður ♦ G854 ¥1082 ♦ K765 ♦ 84 Vestur Austur ♦ D92 ♦ ÁK10763 ¥ G7654 ♦ 9 ♦ D *D976 ♦ ÁKG102 Suður ♦ - ¥ ÁKD9 ♦ ÁG108432 ♦ 53 .. . hjartaníu! Vestur hugsaði sig um í dágóða stund, en lét loks lítið af ótta við að makker ætti KD tvíspil, eða annað í þeim dúr. Cohen gat þá hent laufi niður hjartahámann og gaf því aðeins einn slag á lauf. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á unglingameistaramóti ís- lands 20 ára og yngri í Kópavogi um síðustu helgi kom þessi staða upp í viðureign þeirra Héðins Steingrímssonar (2.455), sem hafði hvítt og átti leik, og Magn- úsar Arnar Ulfarssonar (2.045). Hvítur er manni yfir, en svartur lék síðast 20. — Bf8-c5 sem virð- ist vinna hvítu drottninguna á a7. Héðinn hafði séð þetta fyrir og undirbúið öflugt svar: 21. Dxc5! - Dxc5, 22. RfG+ — Kf8,23. Rd7+ og svartur gafst upp, þvf hann tapar drottningunni til baka og hvítur verður heilum manni yfir í endatafli. Héðinn og Hannes Hlífar Stefánsson urðu jafnir og efstir á mótinu og tefla nú einvígi um unglingameistara- titilinn. Fyrri skákinni á mánu- dagskvöldið lauk með sigri Hann- esar sem hafði hvítt. í gærkvöldi, fimmtudagskvöld, hafði Héðinn hvítt. Nái hann að jafna verður að framlengja einvígið og verður þá sá meistari, sem fyrr vinnur skák.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.