Morgunblaðið - 15.11.1992, Blaðsíða 40
MORGVNBLADID, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJA VÍK
SÍMI 691100. SlMBRÉF 601181, PÓSTHÓLF I5SS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆ/TI 85
SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Davíð Oddsson forsætisráðherra um viðræður aðila vinnumarkaðarins
Ríkisstjórnin gerir tillög-
ur verði ekki samkomulag
Samband sveitarfélaga vill formleg’ar viðræður um aðstöðugjald
Islendingar
eru langlíf-
astir Norð-
urlandabúa
LÍFSLÍKUR íslendinga eru mest-
ar af Norðurlandaþjóðunum og á
það bæði við um konur og karla.
Samkvæmt nýútkomnum Heil-
brigðisskýrslum Norðurlanda,
sem þó ná aðeins fram til ársins
1990, segir tölfræðin að líkur séu
á að nýfætt íslenskt meybarn lifi
í 80,3 ár en nýfætt sveinbarn í
75,7 ár. Lífslíkur allra aldurhópa
hafa aukist talsvert á Norðurlönd-
unum síðustu tvo áratugi, þó mest
á íslandi.
Þessar háu lífslíkur skýrast að
nokkru af því hve ungbarnadauði er
fátíður hér og er raunar sá lægsti á
Norðurlöndunum. Hins vegar kemur
einnig fram í heilbrigðisskýrslunum,
að áttræðir íslenskir karlmenn geta
búist við að lifa 7,4 ár til viðbótar
og áttræðar konur 9 ár til viðbótar
og það er um ári lengur en jafnaldr-
ar þeirra á hinum Norðurlöndunum
geta vænst að lifa.
Hafi íslensk kona náð 15 ára aldri
benda líkur til að hún lifi 65,9 ár til
viðbótar en 15 ára karl getur búist
við að lifa 61,4 ár. íslensk kona sem
hefur náð 45 ára aldri gæti vænst
þess að lifa 36,7 ár til viðbótar en
jafnaldri hennar af karlkyni 33 ár.
I heilbrigðisskýrslum Norðurlanda
kemur einnig fram, að þótt hjarta-
og æðasjúkdómar séu algengasta
dánarorsök miðalda fólks á Norður-
löndum eru hlutfallslega fæst dauðs-
föll á íslandi af völdum þessara sjúk-
dóma. Er það þakkað góðu forvam-
arstarfi og betri læknismeðferð hér
á landi en gerist meðal hinna Norður-
landaþjóðanna.
Sjá einnig bls. 6.
-----♦ ♦ ♦
Tengivagn
með vikri valt
TENGIVAGN vörubíls valt út af
veginum við Árnes i Gnúpverja-
hreppi um kl. 9 i gærmorgun.
Okumanninum tókst að halda
vörubílnum á réttum kili og sak-
aði manninn ekki.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
var mikil hálka þar í sveit í gærmorg-
un; glæra á öllum vegum. Vörubíllinn
með tengivagninum var að flytja vik-
ur, en tengivagninn rann til í hálk-
unni, slengdist út fyrir veg og valt.
Vörubíllinn 'hélst á réttum kili og
skemmdist ekki, né heldur sakaði
ökumanninn.
Nefnd sem utanríkisráðherra skip-
aði um öryggis- og varnarmál átti
viðræður við fulltrúa bandarískra
stjómvalda í haust. Nefndin segir frá
viðræðunum í áfangaskýrslu sem
utanríkisráðherra hefur nú kynnt
alþingismönnum.
Meðal þess sem fram kom í við-
ræðunum er að Bandaríkjamenn telja
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-
herra segir að verði ekki sam-
staða meðal aðila vinnumarkað-
arins um tillögur í atvinnumál-
um, geti svo farið að ríkissljórn-
in leggi fyrir Alþingi tillögur,
sem að hluta til verði byggðar
á þeirri vinnu, sem fram hefur
farið í atvinnumálanefnd. Hann
segir að tillögurnar muni líta
dagsins ljós innan nokkurra
daga. Fundahöld verða áfram
að hið fyrsta þurfi að komast að
samkomulagi um „réttláta og sann-
gjama“ skiptingu kostnaðar vegna
reksturs Keflavíkurflugvallar. Benda
þeir á að allt að 43% af umferð þar
sé borgaralegt flug og að Keflavíkur-
stöðin sé dýrasta herstöð Bandaríkja-
manna á Atlantshafssvæðinu.
íslenska viðræðunefndin sagði að
um helgina um þær hiigmyndir,
sem verið hafa á lofti um að
lækka kostnað atvinnufyr-
irtækja og leggja aukin gjöld á
einstaklinga. A fundi miðstjóm-
ar og formanna landssambanda
Alþýðusambandsins í dag ræðst
væntanlega hvaða afstöðu ASÍ
í heild mun taka til fram kom-
inna hugmynda, en andstaða við
þær hefur vaxið innan sam-
bandsins síðustu daga.
íslendingar væru reiðubúnir til sam-
vinnu um spamað í rekstri. Banda-
ríkjamenn töldu hins vegar að kostn-
aðarþátttaka bandalagsþjóða kynni
að verða ofarlega á baugi í banda-
ríska þinginu. Tóku þeir fram að það
ætti einungis við um rekstur flugvall-
arins en ekki kostnað við vamir,
framlag íslendinga til varnanna væri
þegar skilgreint í vamarsamningnum
og fælist í því að þeir legðu til land.
Sjá frétt á bls. 6.
Davíð Oddsson sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, laugardag,
að ef svo færi að aðilar vinnumark-
aðarins kæmu sér ekki saman,
myndu tillögur stjórnarinnar að-
eins byggja að hluta til á þeim
hugmyndum, sem verið hafa uppi
í atvinnumálanefndinni. „Þær yrðu
með hliðsjón af þessum tillögum,
en á móti kæmi að frekari áherzla
yrði á þætti í anda stjómarstefn-
unnar og þess, sem flokkarnir
standa fyrir. Ef aðilar hafa ekki
áhrif á það, sem gerist, hlýtur
þetta að gerast," sagði hann. Að-
spurður hvort hann setti aðilum
vinnumarkaðarins einhver tíma-
mörk í þessu sambandi, sagðist
Davíð hafa talað um miðjan mán-
uðinn í því sambandi og menn
hefðu nú þijá til fjóra daga til að
ná dæminu saman. Unnið væri á
mörgum vígstöðvum og viðræður
héldu áfram.
„Ef það kemur á daginn eftir
einn eða tvo daga að Alþýðusam-
bandið ætlar ekki að vera með í
að móta þessar tillögur til loka,
er komin upp ný staða og menn
taka þá á henni. Það getur tekið
okkur einhveija daga,“ sagði Dav-
íð. „Ég talaði um miðjan mánuðinn
og ég tel að allt frá tíunda til tut-
tugasta sé innan þess ramma.“
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður Samtaka íslenzkra sveit-
arfélaga, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að ef menn
vildu blanda niðurfellingu aðstöðu-
gjalds inn í þær hugmyndir, sem
verið væri að ræða, yrðu að fara
fram formlegar viðræður milli rík-
isins og sveitarfélaga. „Það helzt
í hendur við nýundirritaða yfirlýs-
ingu stjómar Sambands sveitarfé-
laga og ríkisins, um að engar
breytingar verði gerðar á tekju-
stofnun sveitarfélaga, nema að
höfðu nánu formlegu samráði. For-
sætisráðherra hefur lýst því yfir í
mín eyru nýlega að þetta ákvæði
verði að sjálfsögðu að fullu virt,“
sagði Vilhjálmur. Davíð Oddsson
sagðist hafa átt óformlegar við-
ræður við forystumenn sveitarfé-
laga um þessi mál, og aðilar vinnu-
markaðarins hefðu einnig átt slíka
fundi. „Ég legg minna upp úr
formlegum fundum en óformleg-
um, en þeir formlegu þurfa líka
að vera,“ sagði Davíð.
Forsætisráðherra hitti Ögmund
Jónasson, formann Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja, á fundi
í gærmorgun, en BSRB hefur fram
til þessa ekki tekið þátt í mótun
þeirra hugmynda, sem hafa verið
á lofti. Atvinnumálanefnd aðila
vinnumarkaðarins og ríkisins hitt-
ist á fundi í gær og var fyrirhugað
að halda áfram vinnu í nefndinni
um helgina.
Atlantshafssvæðið
Keflavíkurstöðin dýrasta
herstöð Bandaríkjamanna
KEFLAVÍKURSTÖÐIN er dýrasta herstöð Bandaríkjamanna á Atl-
antshafssvæðinu, að því er fulltrúar bandarískra stjórnvalda sögðu
íslenskri nefnd um varnar- og öryggismál. Bandaríkjamennirnir ræddu
um þátttöku íslendinga í kostnaði við rekstur flugvallarins