Morgunblaðið - 21.11.1992, Side 20
20 MORGÚNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1992
Djúpstæður kerfisvandi
ýtti sænsku krónunni á flot
CARL Bildt forsætisráðherra Svíþjóðar var í viðtali við bandaríska
dagblaðið Wall Street Journal í septembermánuði spurður hver
væri hin sögulega reynsla af gengisfellingum. Hann svaraði: „Gengis-
fellingar hafa alltaf jákvæð áhrif í skamman tíma. En þær eru hin
auðvelda leið út úr vandanum. Þetta er eins og að vinna bug á áfeng-
issýki. Daginn eftir að alkinn hættir að drekka líður honum illa.
Ef hann fær sér smásopa líður honurn betur, en honum tekst þá
ekki að komast út úr þessum vana.“ Klukkan hálfþijú að staðartíma
á fimmtudag gafst sænski seðlabankinn upp við að reyna að verja
krónuna. Tveggja mánaða hetjulegri baráttu var lokið. Sænska krón-
an var látin fljóta á alþjóðlegum gjaldeyrismörkuðum og gengi henn-
ar lækkaði á örskömmum tima um tiu prósent.
Gengisfelling hafði áður legið
tvisvar í loftinu í septembermánuði.
Þá brást sænski seðiabankinn
harkalega við og keyrði millibanka-
vexti, þ.e. þá vexti sem bankar
greiða af skammtímalánum frá
seðlabankanum, upp úr öllu valdi.
Fyrst í 25%, svo í 75% og loks í
hina ótrúlegu tölu 500%. Þessir
himinháu vextir áttu að gera það
of dýrt að stunda spákaupmennsku
með krónuna. Þeir gátu þó einung-
is haldið aftur af gengisfellingu í
mjög skamman tima. I fyrsta lagi
vegna þess að ekkert efnahagskerfi
getur staðið undir slíkum vöxtum
nema í örskamman tíma og í öðru
lagi vegna þess að orsök vandans
var miklu djúpstæðari. Hún fólst í
hinni hrikalegu stöðu sænsks efna-
hagslífs sem átti við mikinn kostn-
aðarvanda að stríða. Og ekki síst
átti vandinn rætur sínar að rekja
til stöðunnar í ríkisfjármálum. Ára-
tugum saman höfðu ríkisútgjöld
þanist út og fyrirséð var að sú
myndi áfram verða raunin á næstu
áratugum. Þessi „innbyggði" fjár-
lagahalli byggist á hinu rándýra
millifærslukerfi Svíþjóðar og ekki
síst lífeyrisskuldbindingum.
Til að reyna að vinna bug á þessu
tókst stjóm og stjómarandstöðu í
tvígang að ná saman um víðtækar
neyðaraðgerðir, sem annars vegar
fólust í því að lækka kostnað at-
vinnulífsins með svokallaðri „innri
gengisfellingu", þ.e. kostnaðarhlið
fyrirtækja var lækkuð með því að
draga úr sköttum í stað þess að
auka tekjuhliðina með gengisfell-
ingu. Þá náðist samstaða um fjöl-
margar aðgerðir sem áttu að taka
á hinum innbyggða ijárlagahalla
með niðurskurði á félagslegu hlið-
inni. Þetta róaði gjaldeyrismarkað-
ina og svo virtist sem tekist hefði
að byggja upp traust krónunnar að
nýju.
Þrýstíngur á krónunna eykst á
ný
Um miðja sfðustu viku jókst hins
vegar þrýstingurinn á krónuna að
nýju. Fyrsta teikn um að ekki væri
allt með felldu var orðrómur um
að peningaskortur væri á sænska
peningamarkaðinum. Þessi skortur
sást best á vandræðum sænska rík-
isins við að afla lánsfjár til að fjár-
magna ríkissjóðshallann. Fjárfestar
höfðu frá því í september ekki keypt
ríkisbréf í þeim mæli sem vonir
höfðu staðið til. Þegar svo ný út-
gáfa ríkisvíxla, á fimmtudag í síð-
ustu viku, mistókst hrapallega,
hækkuðu vextir snarlega. Markað-
urinn túlkaði þetta sem alvarlegt
viðvörunarmerki og mönnum varð
ljóst að ný gengiskreppa var hugs-
anlega í uppsiglingu. Gjaldeyrisút-
streymið var ótrúlegt og er talið
að 158 milljarðar sænskra króna
hafi streymt út úr landinu undan-
fama viku. Þegar ástandið var sem
alvarlegast í september streymdu
mest út 59 milljarðar á einni viku.
Ekki er alveg ljóst hver kom
þessu útstreymi af stað. Fjármála-
stjórar sænskra stórfyrirtækja, sem
viðskiptablað Svenska dagbladet
talaði við á fimmtudag vildu meina
að það væru aðallega útlensk fjár-
málafyrirtæki, fyrst og fremst
bandarískir bankar og fyrirtæki. Á
gjaldeyrismörkuðum sögðu menn
hins vegar að það hefðu verið ein-
staka sænsk stórfyrirtæki sem byij-
uðu að losa sig við krónur. Þrýsting-
ur að utan hefði komið síðar í kjöl-
far vaxtahækkana.
Á miðvikudag náði þrýstingurinn
á krónuna hámarki en þá streymdu
25 milljarðar frá Svíþjóð þrátt fyrir
að sænski seðlabankinn keypti
grimmt til að veija stöðu krónunnar
gagnvart evrópsku mynteiningunni
ECU, sem sænsk stjómvöld höfðu
einhliða tengt gengi krónunnar við.
Seint á miðvikudagskvöld og að-
faranótt fimmtudagsins var staðan
orðin slík að enginn vildi lengur
taka við sænskum krónum á gjald-
eyrismörkuðum í Bandaríkjunum
og Asíu og sala á þeim var stöðvuð.
Þetta var staðan á fimmtudags-
morgni er sænska ríkisstjómin
kynnti neyðaraðgerðir sem hún
hafði samþykkt um nóttina. Mark-
mið þeirra var mjög svipað og að-
gerðanna í september. Að lækka
kostnað atvinnulífsins enn frekar
(með 7% skattalækkun á fyrirtæki
þann 1. apríl 1993) og draga úr
fjárlagahallanum til lengri tíma
(með ýmsum niðurskurðaraðgerð-
um sem áttu að koma til fram-
kvæmda 1995). Þetta nægði hins
vegar ekki til að slá á óróleikann á
gjaideyrismörkuðum, ekki síst
vegna þess að jafnaðarmenn
ákváðu að standa ekki á bak við
þessar nýju neyðaraðgerðir. Klukk-
an tuttugu mínútur yfir tvö hringir
Bengt Dennis seðlabankastjóri í
Bildt og Ann Wibble fjármálaráð-
herra og skýrir þeim frá því að
seðlabankinn geti ekki lengur varið
krónuna. Sænski gjaldeyrisvara-
sjóðurinn er tómur. Tilkynning um
að krónan fljóti er skömmu síðar
send út af seðlabankanum. Á blaða-
mannafundi skömmu síðar viður-
kenna þau Bildt og Wibble að
stjóminni hafi mistekist. Bildt full-
vissar hins vegar menn um að
stjórnin hyggist sitja áfram.
Hver er skýringin?
Þegar skýringa er leitað á því
hvers vegna svona fór verður að
gera greinarmun annars vegar á
yfirborðsástæðum, hins vegar efna-
hagslegum aðstæðum og loks
grundvallarástæðum. Yfírborðsá-
stæðunum má skipta í þrennt og
allar eru þær að hluta til réttar. I
fyrsta lagi flokkspólitískar ástæður.
Borgaralegu flokkamir munu halda
því fram að jafnaðarmenn hafi koll-
varpað efnahagsstefnunni með því
að styðja ekki neyðaraðgerðimar.
Jafnaðarmenn munu hins vegar
kenna efnahagsstefnu stjómarinn-
ar um. Þá munu margir skella
skuldinni á spákaupmenn en á há-
tæknivæddum gjaldeyrismörkuðum
dagsins í dag er velt ótrúlegum
upphæðum á örskömmum tíma og
því mikið rými til spákaupmennsku.
Loks munu margir segja að gengi
krónunnar hafí einfaldlega verið of
hátt skráð þegar hún var tengd við
ECU á sínum tíma.
Þá hafa efnahagslegar aðstæður,
ytri jafnt sem innri, lagt sitt af
mörkum. Allan síðasta áratug var
útlánastreymi úr bönkunum óhóf-
lega mikið og verðbólga há. Þetta
leiddi til mikillar þenslu á fasteigna-
markaði ekki síst vegna þess að
slíkar fjárfestingar voru á þeim
tíma skattalega hagstæðar. Þegar
svo aðstæður breyttust, verðbólga
lækkaði og vextir hækkuðu, sprakk
blaðran og bankamir fengu harðan
skell. Er nú jafnvel talið að enginn
þeirra geti lifað af án þess að opin-
ber stuðningur í einhveiju formi
komi til. Hið háa vaxtastig í Svíþjóð
á sér fyrst og fremst skýringar
utan landsins, nánar tiltekið í
Þýskalandi. Verðbólga þar er um
fjögur prósent og raunvextir um
fímm prósent. í Svíþjóð hefur til
Stefnir í allsheijar-
verkfall í Finnlandi
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgiinblaðsins.
STÆRSTU launþegasamtök Finna, SAK (samsvarandi ASÍ), hefur
fellt tillögu ríkisstjórnar um þjóðarsátt til að draga úr félagslegum
útgjöldum ríkissjóðs. Ef ekki tekst að ná sáttum fyrir næstkomandi
fimmtudag hóta aðildarfélög SAK með allsheijarverkfalli. Onnur
launþegasamtök eru ennþá tvístígandi.
Verkfallshótun SAK er af mjög
óvenjulegum toga, því í þessu tilviki
er verkfalli ekki beitt til þess að
knýja fram hærri laun hjá vinnu-
veitendum. Allsheijarverkfallið yrði
Enginn vildi
verk Hitlers
Trieste. Reuter.
ENGIN tilboð bárust í 20 vatns-
litamyndir sem Adolf Hitler mál-
aði á listmunauppboði í Trieste
á Ítalíu í gær.
Myndimar voru málaðar í byijun
aldarinnar og vom af kirkjum og
byggingum í Vínarborg og
MUnchen. „Það vora fleiri ljósmynd-
arar og blaðamenn viðstaddir en
kaupendur," sagði eigandi uppboðs-
fyrirtækisins sem sá um söluna.
einungis pólitískt í eðli sínu og telst
þetta til undantekninga á finnska
vinnumarkaðinum.
Vinnuveitendur hafa orðið að
gerast áhorfendur í einvígi ríkis-
stjómar og launþegasamtakanna.
Formenn launþega hafa aðeins litið
við hjá vinnuveitendum á leið sinni
af fundi með Esko Aho forsætisráð-
herra og Iiro Viinanen Qármálaráð-
herra. Ef viðræður ríkisins og laun-
þegasamtaka bera ekki árangur
verða líklega engar kjarasamninga-
viðræður milli launþega og vinnu-
veitenda í náinni framtíð.
Eftir 30 klukkutíma samninga-
lotu sem lauk á föstudaginn lýsti
Esko Aho forsætisráðherra (Miðfl.)
yfir því að nú hefðu náðst sáttir í
málefnum varðandi útgjöld til at-
vinnuleysingja og þátt launþega í
að fjármagna atvinnuleysisbætum-
ar. Talið er að munað hafi um 500
Innilegarþakkir sendi égðl/um þeim, erglöddu
mig á 90 ára afmœli minu þann 27. sepíember
sl. og gerðu mér daginn óg/eymanlegan með
nœrveru sinni, gjöfum, skeytum og símtölum.
Einnig þakka ég öllum, sem hjálpuðu mér á
þessum degi viö undirbúning og fleira.
GuÖ blessi ykkur öll.
Guölaug Guðjónsdóttir,
Stóru-Mörk, •
V-Eyjafjöllum.
milljónum fínnskra marka þegar
upp úr slitnaði. Væntanlegt tap
finnskra atvinnufyrirtækja í kom-
andi allsheijarverkfalli er hins veg-
ar talið verða um 1 milljarður finn-
skra marka á dag.
Útgjöld til atvinnuleysingja hafa
hækkað ört undanfarið en síðustu
tölur sýna að rúmlega 16% vinnu-
færra manna í Finnlandi séu án
atvinnu. Hingað til hafa atvinnu-
lausir fengið bætur eftir 5 daga bið
og getað fengið útborgað dagpen-
ing sem hefur miðast við fyrri tekj-
ur í allt að 500 daga. Nú ætlar ríkis-
stjómin að spara, meðal annars
með því að láta atvinnulausa bíða
9 daga og lækka útborganir fullra
bóta úr 500 í 400 daga.
Það hefur hins vegar verið kapps-
mál launþegasamtaka að láta ekki
kjör atvinnuleysingja rýrna þrátt
fyrir fjárskort ríkissjóðs.
Reuter
Kókaín finnst í klæðnaði
34 ára maður frá Perú var handtekinn á Schönefeld-flugvelli í Berlín
í gær þegar hann reyndi að smygla kókaíni til Þýskalands. Maðurinn
kom frá Santiago í Chile með viðkomu í Moskvu og fíkniefnið var falið
í klæðnaði í farangri hans. Á myndinni sýnir þýskur rannsóknarlög-
reglumaður fatnaðinn.
Spænska þingið og opinberar stofnanir
Utlendingahatur fordæmt
Madrid. Reuter.
SPÆNSKA þingið og ýmsar opinberar stofnanir á Spáni mótmæltu
á fimmtudag morði á konu frá Dóminíska lýðveldinu með mínútu
þögn og fordæmdu ofbeldi gegn innfiytjendum.
Konan var 33 ára og varð fyrir
skoti manns sem huldi andlit sitt
með hettu. Þetta er talið fyrsta
kynþáttahatursmorðið á Spáni í
áratugi og kom af stað mótmæla-
öldu stjómmálaflokka og ýmissa
félaga út um allt land.
Þingmenn neðri deildar spænska
þingsins mótmæltu morðinu með
mínútu þögn fyrir framan þinghús-
ið í Madrid á hádegi á fimmtudag.
Embættismenn Madrid-borgar mót-
mæltu á sama hátt í ráðhúsinu og
spænska ríkisútvarpið hætti út-
sendingu í mínútu. „Með þessu vilj-
um við hvetja fólk til að hafna út-
lendingahatri og kynþáttafordóm-
um,“ sagði Jose Maria Alvarez de
Manzano, borgarstjóri Madrid.
Hægriöfgamenn minntust þess í
gær að 17 ár era liðin frá dauða
Franciscos Francos, fyrrverandi
einræðisherra, með messu í graf-
hýsi skammt frá Madrid þar sem
hann hvílir. Þeir era vanir að efna
til mótmæla á torgi við konungs-
höllina í Madrid tveimur dögum
eftir ártíð fasistaleiðtogans en búist
er við að mun fleiri gangi um götur
borgarinnar til að mótmæla útlend-
ingahatri. Lögreglan verður með
mikinn viðbúnað til að koma í veg
fyrir átök.