Morgunblaðið - 22.11.1992, Page 6
6 FRETTIR/JNNLENT
- - - MöÁGtrÍillBLAí)í& SONNÓDÁGUIÍ Ú. NtívElwÍÉEÍt Í992 -
Póstur og sími kaupir Hótel Vík
Skrifstofur verða í hús-
inu en það rifið síðar
PÓSTUR og sími hefur keypt Vallarstræti 4, Hótel Vík, af Björns-
bakaríi fyrir 23 milljónir kr. Ólafur G. Tómasson póst- og síma-
málastjóri segir að stofnunin hafi fest kaup á húsinu með framtíðar-
hagsmuni í huga. Sennilegt sé að húsið verði rifið eftir nokkur ár
en frá næsta hausti og þangað til verði þar skrifstofur og hluti
af afgreiðslu símaskrár.
Hólar hf. var áður
Einar Guðfinnsson hf.
Bolungarvík.
FYRIRTÆKIÐ Hólar hf. í Bolungarvik, sem synjað var um áfram-
haldandi greiðslustöðvun í Héraðsdómi Vestfjarða á fimmtudag,
var stofnað 1. janúar 1991 í kjölfar mikillar endurskipulagningar
sem átti sér stað þegar rekstrarerfiðleikar höfðu hrjáð útgerðar-
fyrirtæki Einars Guðfinnssonar í nokkur ár.
Bakaríið hefur húsið á leigu þar
til í september á næsta ári. Heildar-
gólfflötur þess er 232 fermetrar
en lóðin er 239 fermetrar. Ólafur
segir að með kaupunum hafi fer-
hymingi húsa Pósts- og síma verið
Iokað. Þessi lóð sé í beinu fram-
haldi af gömlu Sigtúnslóðinni, en
til séu teikningar af nýju húsi þar.
Hugsanlegt er að sögn Ólafs að
byggja nýtt hús í tenglsum við það
á Víkurlóðinni, eða selja hana og
hafa þá hönd í bagga með nýjum
eigendum um hvað rísi þar.
Fyrir þann tíma annaðist Einar
Guðfinnsson rekstur íshúsfélags
Bolungarvíkur, útgerðarfyri$ækj-
anna Baldurs og Völusteins, auk
þess átti og rak fyrirtækið fiski-
mjölsverksmiðju, saltfískverkun og
umfangsmikinn verslunarrekstur.
Við endurskipulagninguna voru
íshúsfélagið, Baldur og Völusteinn
sett saman í eitt fyrirtæki og nefnt
Einar Guðfinnsson hf. Fyrirtækið
Verslun E. Guðfínnssonar hf. var
stofnað um verslunarreksturinn.
Fyrirtækið Hólar hf. var stofnað
um rekstur og eignir fískimjöls-
verksmiðju og saltfískverkun, en
einnig eru eignir Hóla verslunar-
húsnæðið á Vitastíg 1 til 3, skrif-
stofuhúsnæði í Aðalstræti 21 auk
húsnæðis á Hafnargötu 56 til 8.
Hólar er því í raun gamla fyrirtæk-
ið Einar Guðfínnsson hf.
í dag eru Hólar hf. nánast ekki
annað en eignarhaldsfélag því Ein-
ar Guðfínnsson hf. leigir og rekur
fiskimjölsverksmiðjuna, auk þess
að leigja skrifstofuhúsnæðið á
Aðalstræti 21. Verslun E. Guð-
finnssonar hf. leigir verslunarhús-
næðið á Vitastíg 1 til 3, saltfísk-
verkun hefur verið aflögð og aðrar
fasteignir félagsins eru í leigu.
Bókfært eigið fé Hóla hf. var á
síðasta ársreikningi neikvætt um
140 milljónir sem lætur nærri að
vera í dag um 180 milljónir. Kröf-
ur lánardrottna í félagið nema
500-600 milljónum. Stærstu
kröfuhafar er Ríkissjóður og Fisk-
veiðasjóður. Talsverðar eignir
standa augljóslega bak við þetta
52 ÁRA kona var í fyrradag
sýknuð í héraðsdómi Reykjaness
af ákæru um að hafa orðið eigin-
manni sínum að bana með hníf-
stungu á heimili þeirra í Kópa-
vogi í maí sl.
Maðurinn fannst í strætisvagna-
skýli í Kópavogi í maímánuði í vor
aðframkominn af blóðmissi eftir
hnífstungu í bijóst og lést hann á
sjúkrahúsi skömmu síðar. Kona
mannsins var handtekin samdæg-
urs, grunuð um verknaðinn og
hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan
og þar til henni var sleppt úr haldi
félag, til að mynda er vátrygginga-
verðmæti fískimjölsverksmiðjunn-
ar 912 milljónir og er ljóst að komi
til uppboðs á þessum eignum Hóla
hf. fæst eingöngu lítið upp í kröfur
þar sem fasteignaverð á lánds-
byggðinni hefur lækkað niður úr
öllu valdi.
Það er því mikið og vandasamt
verk sem bíður stjómenda fyrir-
tækisins nú í kjölfar synjunar um
greiðslustöðvun. — Gunnar.
eftir að dómur var upp kveðinn í
fyrrakvöld.
í niðurstöðum dómsins segir að
ljóst sé að rétt fyrir andlát sitt
hafi maðurinn sagt sjúkraflutn-
ingsmönnum að stungusárið væri
af völdum konunnar en hann hafí
ekki nánar lýst hvemig það hafi
atvikast. Leggja verði til grund-
vallar framburð konunnar og rann-
sóknargögn þar sem engum vitn-
um sé til að dreifa.
Þá segir að leiddar hafi verið
að því líkur í málinu að til stimp-
inga hafí komið með fólkinu eftir
deilur um eignaskipti en þau vom
að skilja að skiptum og hafí maður-
inn þá verið með hníf í hendi. I
ryskingum þeirra á milli hafi konan
fallið og tekið manninn með sér í
fallinu og hafí hnífurinn þá rekist
í kvið hans. Ekki sé útilokað að
bæði hafí haldið um hnífínn í fall-
inu.
Konan var því sýknuð af ákæru
um manndráp af ásetningi og vara-
kröfu um líkamsárás þar sem beitt
er hættulegri aðferð eða hættulegu
tæki og leiðir til dauða.
í dómi Guðmundar L. Jóhannes-
sonar héraðsdómara kemur einnig
fram að allur sakarkostnaður, þar
á meðal laun veijanda konunnar,
Amar Clausens, skuli greiðast úr
ríkissjóði.
------» ♦ ♦-----
Borgarstjórn
Ráðstefna
um félags-
legt húsnæði
TILLÖGU Kristínar Ólafsdótt-
ur, Alþýðubandalagi, uin að
borgarstjórn samþykkti að boða
til ráðstefnu um húsnæðismál,
var vísað til nánari umfjöllunar
í félagsmálaráði og húsnæðis-
nefnd á fundi borgarsljórnar í
fyrrakvöld. Á ráðstefnunni yrði
fjallað um þörf fyrir félagslegt
húsnæði í Reykjavík, þar með
talið húsnæði ætlað öldruðum
og leiðir til að mæta þörfinni.
Kristín sagði að markmið ráð-
stefnunnar ættu að vera að fá
heildarsýn yfir húsnæðisþörf sem
leysa þyrfti á félagslegum grunni,
að stuðla að frekari samvinnu
borgaryfírvalda og annarra aðila
sem vinna að félagslegum hús-
næðislausnum og að endurmeta
þá leið sem farin hefur verið í
uppbyggingu húsnæðis fyrir aldr-
aða.
Árni Sigfússon sagði að tillagan
væri áhugaverð og lagði til að hún
yrði send félagsmálaráði og hús-
næðisnefnd til nánari umfjöllunar.
Pétur Sveinsson rannsóknarlögreglumaður
Er í þessu starfi af áhuga
LÖGREGLAN í Breiðholti hefur verið mikið í fréttum undanfar-
ið og leikið stórt hlutverk í að upplýsa hvert bruggmálið á
fætur öðru. Alls eru bruggmálin sem Breiðholtslögreglan hefur
leitt til lykta farin að nálgast tuttugu. Lögreglustöðin í Breið-
holti er líka sérstæð á allt annan og skemmtilegri hátt, þvi sam-
skiptin milli lögreglumannanna þriggja sem þar starfa og íbú-
anna í hverfinu eru með miklum ágætum og á margan hátt
sérstök. Á föstudagskvöldum koma unglingar í hverfinu í heim-
sókn í spjall og kaffisopa, eða taka lagið við gítarundirleik, og
ávarpa lögreglumennina kumpánlega með nafni. Pétur Sveins-
son rannsóknarlögreglumaður veitir stöðinni forstöðu og sagði
hann í spjalli við Morgunblaðið að hann væri í þessu starfi af
áhuga.
Pétur er fæddur í Svefneyjum
í Breiðafirði og alinn upp í Hval-
látrum til átta ára aldurs. Hann
fór til sjós þegar hann var fimmt-
án ára og sótti sjóinn frá 1956
til 1974. Þá réði hann sig sem
lögreglumann á Patreksfjörð og
starfaði þar í tíu ár. 1984 gerðist
hann lögreglumaður í Reykjavík
og hefur starfað í fíkniefnadeild
og rannsóknadeild.
„Starfíð á Patreksfírði var ekki
ósvipað því sem það er hérna hjá
okkur. Við kynnumst fólkinu
náið. Það þekkjast allir héma,
sumum fínnst betra að tala við
þennan lögreglumann heldur en
hinn, en samskiptin eru öll mjög
góð. Við erum hér þrír og við
vinnum þetta allt saman og þó
ég eigi að heita yfírmaður þá
byggist starfíð alfarið á sam-
vinnu. Við erum meira en vinnu-
félagar, því við erum líka vinir.
Við hittumst af og til og fáum
okkur kannski eins og einn bjór
saman,“ sagði Pétur. Auk Péturs
eru á lögreglustöðinni í Breið-
holti Einar Ásbjömsson og Am-
þór H. Bjarnason.
Lögreglustöð var sett á lag-
gimar í Breiðholti í ágústmánuði
1989 og á lögreglan gott sam-
starf við unglingadeild félags-
málastofnunar í Breiðholti, skól-
ana og æskulýðsmiðstöðina
Fellahelli. Pétur segir að ekki séu
meiri vandamál í Breiðholti en
annars staðar. „Við verðum að
gera okkur grein fyrir því að hér
býr þriðjungur borgarbúa og hér
em margir unglingar. Ég held
að tölfræðilega séu hér ekki
meiri vándamál en annars staðar
í borginni. Við fáum unglingana
í lið með okkur og þeir sitja hér
í kaffí hjá okkur og spjalla. Ungl-
ingamir koma hingað með sínar
námsbækur og læra fyrir skól-
ann. Hér er fullt út úr dyrum á
kvöldin. Við stjómum ekki
unglingunum en við getum
kannski aðeins stýrt þeim,“ sagði
Pétur.
Hann sagði að umræðan um
Breiðholtið hefði breyst að
undanfömu. Neikvæð umræða
hér áður fyrr hefði e.t.v. stafað
af þekkingarleysi þeirra sem um
málefni hverfísins fjölluðu, þekk-
ingarleysi á því hvemig að upp-
byggingu hverfísins hefði • verið
staðið. „Hér býr gott fólk, en það
eru alls staðar vandamál í öllum
bæjarhlutum."
Uppi á vegg í lögreglustöðinni
Morgunblaðið/Júlíus
Breiðholtslögreglan við skyldustörf. Frá vinstri Arnþór H.
Bjarnason, Pétur Sveinsson og Einar Ásbjörnsson.
er viðurkenningarskjöldur frá
yfírlögregluþjóni í tilefni af því
að lögreglustöðin í Breiðholti
hafði upplýst 13 bmggmál um
mitt þetta ár. Pétur sagði að
þeir fylgdust með því hvort mikið
áfengi væri í gangi á meðal ungl-
inga í hverfinu og þeir reyndu
að stöðva það flæði. Út frá því
bærust miklar upplýsingar frá
íbúum sem þeir ynnu úr. Af þess-
um sökum hefur lögreglan í
Breiðholti oft verið viðriðin mál
sem em í öðmm umdæmum. Hún
tók m.a. þátt í aðgerðum vegna
bmggunar áfengis á Hvolsvelli
fyrr á þessu ári og sömuleiðis á
Vatnsleysuströnd. Síðast gerðu
lögreglumenn af Breiðholtsstöð
upptækt mikið magn af braggi
oig tækjum á Laugavegi.
„Mín von er sú að það verði
svona lögreglustöð í öllum hverf-
um borgarinnar. Ég held að þessi
stöð hafí sannað sig,“ sagði Pét-
ur.
Héraðsdómur Reykjaness
Sýknuð af ákæru
um manndráp