Morgunblaðið - 22.11.1992, Page 12

Morgunblaðið - 22.11.1992, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1992 500Z. 'P'J . Qg Gt'ff öfetí SVkS _—udart\ega. ----- „ oa eerjast ®',Uarf\ega. na be»r sar^" °9st slá\wr ,^arf\ega- i\6an 9an.9® "oar °9 öa'daf6\st b* a' ,d,arf\a9a menn '' utS'3 séfÆr °ar6.'St, a\\d)arf'e9a uorna ****'' t &yy!\ t)ar6'sÍ ai\d\arf'e®a “S^íS^Sk s® »«sgg§^ HV^nortJ^s^l v,!n\ia eir'um'_„ he\r 6spe'e" a\\d)arf'e9ata.2043 pórö 62,6''® EVrb 2,2062 porSH 2'95& Grett 11;2039 pórö 4-,957 Grerf 15;'\''36 Gu"P 42;''"'^ a"dter'9'ey;. SS«S. :SÍSÍ eftir Urði Gunnarsdóttur. Mynd: Kristinn Ingvarsson SPURNIN GUNNI um hvort Snorri Sturluson sé höfundur Egils sögu verður líklega ósvarað enn um sinn en það er hins vegar ljóst að „og“ er algengasta orð fornsagnannaog- ,,„að“ og „að vera“ koma næst á eftir. Þessar upplýsingar er að finna í Orðstöðulykli sem unnið hefur verið að undanfarin fjögur ár. Þrjár megintegundir texta fornaldar, ís- lendingasögurnar, Sturlunga og Heimskringla eru uppistaða Orð- stöðulykilsins og nú þegar hefur sitthvað forvitnilegt komið í ljós. Afjórða ár er síðan vinnan við Orðstöðulykilinn hófst en hún hefur ekki verið óslitin. Þau Eiríkur Rögnvaldsson mál- fræðingur og bókmenntafræð- ingarnir Örnólfur Thorsson, Bergljót Kristjánsdóttir og Guðrún Ingólfsdóttir hafa unnið að verkinu fyrir styrk úr Vísindasjóði en þau hafa fengið vinnuaðstöðu í Háskóla íslands og Kennaraháskóia íslands. Unnið er með nýjar útgáfur Svarts á hvítu á Islendingasögunum og Sturlungu auk út- gáfu Máls og menningar á Heimskringlu. Þau sem unnu að Orðstöðulykli voru jafnframt í hópi þeirra sem unnu að útgáfu fomritanna og höfðu því aðgang að textanum. Þar sem hann var þegar lyklaður inn, var þegar hægt að vinna með hann í erlendu forriti. Hvert einasta orð var skráð, hvar og hvernig það kom fyrir í textanum og að lokum sýndir um það bil 40 stafir fyrir framan og aftan orðið til að samhengi fengist. „í mörgum tilfellum var þetta einföld skráning, hvað varðar þau orð sem ekki beygjast, svo sem forsetningar og atviksorð. Hins vegar vandaðist málið með beygjanleg orð, tölvan greinir ekki hvort um er að ræða t.d. nafnorð eða sagnorð. Dæmi um þetta er beygingarmyndin „þakið“ sem getur verið nafnorð með greini, sagnorð eða lýsingarorð. Dæmi um orð geta skipt þúsundum, svo að einnig varð að raða í stafrófsröð innan hvers orðs, eftir því hvaða orð kom á eftir. Með því móti kom í ljós tíðni ýmissa orðasam- banda og orðaruna. Síðasta stigið er síðan unnið handvirkt, ef svo má segja, en þá steyp- mr X Unnið hefur verið að Orðstöðulyklinum í einu af höfuðvígjum íslenskra fræða, Árnagarði. F.v.: Guðrún Ingólfsdóttir, Ornólfur Thorsson, Eiríkur Rögnvalds- son og Bergljót Kristjánsdóttir. r Orðstöðulykill Islendingasagna, um við saman mismunandi beygingarmynd- um orða. Það er geysileg vinna,“ segir Eirík- ur Rögnvaldsson, einn fjórmenningana. Þegar orðum er raðað upp eftir því hvaða orð fylgja í kjölfarið, kemur oft ýmislegt í ljós, sem litlar líkur eru á að tekið væri eftir við lestur textans í heild. „Við komumst t.d. að því að orðið alldjarflega er nær alltaf í samhenginu það að beijast en alldrengilega STURtUNCU 06 HEIMSKRINGLU gefur vísbendingar um höfunda fomritanna og merkingarblæbrigði í íslensku máli aftur á móti tengist því að veijast.“ Eiríkur segir það athyglisvert hversu lítill orðaforði Islendingasagnanna sé í raun og veru. „Ég er þó alls ekki að segja að íslend- ingasögurnar séu vondur texti enda fer ekki endilega saman magn og gæði. Góður texti þarf ekki að vera orðmargur. Njála sarnan- stendur t.d. aðeins af 3.200 orðum og í íslend- ingasögunum eru 12.400 uppflettiorð. Flest koma oftar en einu sinni fyrir og sé talið frá orði til orðs, eru þau hátt í 900.000. Þegar Orðstöðulykillinn hefur verið prentaður eru skilgreind 100 orð á síðu og síðurnar eru því um 9.000. Hvert skyldi svo vera algengasta orðið í fornsögunum? Engan þarf að undra að það er samtengingin „og“. Sögnin að „vera“ og smáorðið „að“ eru einnig ofarlega á vinsælda- listanum. Algengasta nafnorðið er „maður“, algengasta lýsingarorðið „mikill" og algeng- asta forsetning/atviksorðið er „í“. Þrátt fyrir að skráð hafi verið tíðni orða í nokkrum nútímatextum, segir Eiríkur að hafa verði fyrirvara á samanburði við fommálið þar sem tíðni orða sé háð umfjöllunarefninu hveiju sinni. Þetta eigi sérstaklega við um nafnorð. Orðstöðulykillinn er þegar kominn í notk- un, í tölvu og útprentaður. Þá segir Eiríkur það ósk margra að orðstöðulykillinn verði gefinn út á geisladiski enda sé það eina skyn- samlega útgáfuformið. Upphaflega hug- myndin var hins vegar að gefa út valinn orðaforða á bók. „Við töldum það vonda lausn er frá leið. Við hefðum þurft að sleppa algeng- ustu orðunum en töldum þau ekki síður at- hygliSverð en hin sjaldgæfu. Nú er hugmynd- in að hafa aðgengileg eintök af orðstöðujykl- inum á nokkrum stöðum, t.d. Stofnun Áma Magnússonar, Orðabók Háskólans og Málvís- indastofnun." Að sögn Eiríks eru þeir orðnir ijölmargir sem vita af vinnunni við Orðstöðulykilinn. „Við fáum fyrirspurnir bæði frá lærðum og leikum. Orðstöðulykillinn gagnast á ýmsum sviðum, svo sem í samfélagsfræði, félags- fræði, mannfræði, lögfræði og svo að sjálf- sögðu sagnfræði, málfræði og bókmennta- fræði. Meðal þess sem athugað hefur verið með aðstoð Orðstöðulykilsins er hvaða vís- bendingar orðanotkun í íslendingasögunum gefur um stöðu kvenna, orðasamstæður í Islendingasögunum og hvaða orð og orðatil- tæki voru til um glímu.“ En hvers vegna var Orðstöðulykillinn gerð- ur? „Við töldum að hann myndi auðvelda ýmis konar rannsóknir, eins og raunin hefur orðið. Orðstöðulykillinn getur þó ekki veitt okkur tæmandi svör við öllum þeim spurning- um sem óneitanlega koma upp í hugann. Það er t.d. ekki hægt að nota hann til að skil- greina höfunda fornritanna svo að öruggt sé.“ Spurningunni um hvort Snorri Sturluson hafi skrifað Egils sögu er sem sagt áfram ósvarað? „Já, við höfum reyndar kannað hana litillega með Orðstöðulyklinum en get- um ekki gefið nein óyggjandi svör. Orðstöðu- lykillinn gefur okkur þó vissulega vísbending- ar, t.d. um tengsl einstakra sagna. Meðal þess sem við getum velt fyrir okkur er hvort höfundur einnar sögu hefur heyrt eða lesið aðra, hvaðan af landinu hann hafi verið, o.s.frv. Það verður að hafa í huga að fornsög- urnar lýsa mikið til sömu hlutunum, þær gerast á svipuðum tíma og lýsa svipuðum athöfnum. Beri maður saman Islendingasög- unar 40 og 40 nútímaskáldsögur, kemur í ljós geysilegur munur á orðafjölda enda efn- ið miklu fjölbreyttara nú. Eiríkur segir erfitt um vik að kanna aldur orða með Orðstöðulyklinum en mun auðveld- ara sé að sjá breytilega þýðingu orða en ella, merkingarblæbrigði o.fl. með tilkomu Orð- stöðulykilsins. Þá hafi það komið höfundum hans á óvart hversu mikið er hægt að sjá um orðarunur, hvemig þær koma fyrir o.s.frv. Vinnunni við Orðstöðulykil Islendinga- sagna verður senn lokið, Orðstöðulyklar Heimskringlu og Sturlungu eru skemmra á veg komnir. Þau sem að verkinu hafa unnið munu sleppa af því hondinni en munu að sjálfsögðu notfæra sér Orðstöðulykilinn rétt eins og aðrir. Og niðurstöðurnar verða án efa forvitnilegar, jafnvel þótt hulunni verði ekki svipt af höfundi Egils sögu enn um sinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.