Morgunblaðið - 22.11.1992, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 22.11.1992, Blaðsíða 13
mmmm SI13 Anita Blake og Þórður Stefánsson hótelstjóri í Bláa lóninu. Heilun við Bláa lónið Grindavík. Malasía - Austurlönd í hnotskum Á NÆSTUNNI geta þeir sem gista í hótelinu við Bláa lónið notið handa Anitu Blake, breskr- ar konu sem leggur stund á heil- un. Anita Blake kom nýlega til lands- ins í boði Þórðar Stefánssonar hót- elstjórá við Bláa lónið sem kvaðst hafa kynnst henni á ráðstefnu um heilsumál í London fyrr á þessu ári. Hann sagðist sjálfur hafa notið umönnunar hennar og liðið vel á eftir. Þórður sagði að hún myndi dvelja á hótelinu fram í desember og gestum gæfist kostur á að láta hana beita læknisaðferð sem á ís- lensku hefur verið kölluð heilun, sem er þýðing á orðinu „spiritual healing", Anita Blake leggur hendur yfír sjúklinga sína og lætur þær líða eftir líkamanum án þess að snerta þá og með því segir hún að þreyta, sem er samfarandi streitu, líði úr líkamanum. Hún sagði í samtali við Morgunblaðið að umhverfið við Bláa lónið hentaði vel fyrir hana því það væri rólegt og kyrrlátt og sjúklingar slökuðu vel á, sem væri mikið atriði. Anita Blake sagðist fá styrk sinn frá guði en tók fram að fólk þyrfti ekki að vera trúað til þess að þiggja lækningu frá henni því aðeins þyrfti að vera jákvæður. Hún sagði einnig að læknar hefðu sent sjúklinga til hennar sem þjáðust af streitu og ráðlegðu þeir sjúklingum að leita til hennar. Eins og fyrr segir dvelur Blake í hótelinu við Bláa lónið fram í des- ember og boðið verður upp á ódýra Neskaupstaður Lífeyris- sjóður gefur spilagjafara Neskaupstað. VIÐ setningu Austurlandsmóts- ins í tvímenningi í brids sem nýlega var haldið í Egilsbúð afhenti Gísli Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Austurlands, Bridssambandi Austurlands peningagjöf frá Lifeyrissjóðnum til kaupa á spi- lagjafara og spilum. Það var Ina Gísladóttir, forseti BSA, sem tók á móti gjöfinni. Það kom fram í máli Inu við afhend- ingu gjafanna að bridsspilarar á Austurlandi gerðu sér jafnvel ekki grein fyrir því hve mikil lyftistöng það yrði fyrir félögin að hafa slík tæki í fjórðungnum. Þess má geta að þetta er í fyrsta skipti sem Austurlandsmót í brids er haldið á Neskaupstað. - Ágúst. -----» ♦ ♦---- Jólakort Hrings- ins komið út Hringurinn hefur gefið út jólakort sitt í ár og fer ágóðinn af sölunni sem áður til styrktar Bamaspítala- sjóði Hringsins. Kortin eru hönnuð af glerlistakonunni Höllu Haralds- dóttur og eru seld 10 í pakka, sem kosta 600 krónur. gistingu í tilefni dvalar hennar hér, að sögn Þórðar hótelstjóra. - FÓ MORGUNBLAÐINU hefur bor- ist eftirfarandi frá Heimsklúbbi Ingólfs: Senn líður að ferðalokum í heimsreisu um Malasíu, sem stað: ið hefur í tæpar þtjár vikur. í gærkvöldi var mikil veisla haldin að austurlenskum sið í glæsilega skreyttum veislusal Mutiara hót- elsins á Penang eyju en þar dvelst hópurinn í viku til hvíldar og hressingar og skemmtunar fýrir heimferð. Sú dvöl hefur verið undur og ævintýri eins og ferðin öll og er það mál manna að hvergi hafí þeir áður á ferðum sínum um heiminn notið slíkrar þjónustu. Þátttakendur í ferðinni em margs vísari um mannlíf og þjóð- hætti í þessum heimshluta eftir að hafa dvalist í höfuðborginni Kuala Lumpur, heimsótt nýlend- urborgina Malacca, Austur-Mal- asíuríkið Sabah á eynni Borneo, með elstu frumskóga heimsins, og einstaka töfra náttúrunnar, síðan dvalist í heimskaupstaðnum Singapore og nú í lokin á besta hótelinu á Penangeyju sem kölluð er „Perla Austurlanda". Malasía hefur sannarlega komið fólki á óvart ekki síst háþróaðir atvinnu- hættir, kraftur og samheldni þjóð- arinnar sem í raun og vera eru þó íjórar ólíkar þjóðir með fjöl- þætta menningu og siði svo að kalla má Malasíu „Austurlönd í hnotskurn". Veðurfar hefur verið hið ákjós- anlegasta í allri ferðinni, samstill- ing farþega með eindæmum góð, einróma gleði og ánægja ríkjandi, og hefur engan skugga borið á. Eftir margar heimsreisur komast margir svo að orði að þessari hefði þeir síst viljað sleppa. En nú er önnur Malasíuferð afráðin á næsta ári, auk nokkurra annarra, s.s. Tæland í febrúar, Suður- Ameríka um næstu páska, undur Kína og ferð kringum hnöttinn næsta haust. Allir eru við góða heilsu, og glaðvær og hressilegur hópur 83 heimsreisufara sendir bestu kveðjur heim. UEffiMST ®>ÉR ÞINGSJÁ? ...EKKI í PHILIPS SJÓNVARPSTÆKI! í Philips sjónvarpstækjum opnast þér nýjar víddir og allar línur verða skýrari. Skerpan er það sem skiptir máli og þegar þú hefur valið sjónvarpið frá Philips, þá sérðu líka hinar hliðarnar á málunum. Það eru jú fleiri en ein hlið á hverju máli! • BLACK LINE S myndlampi eykur skerp- una um 30%. • NICAM STEREO búnaður er í öllum Matchline sjónvörpum. • íslenskt textavarp er sjálfsagður útbún- aður í öllum gæðatækjum frá Philips. Komdu og sjáðu með eigin augum. Gerðu samanburð og veldu það besta! PHILIPS þegar skerpan skiptir mdlil Heimilistæki SÆTÚNI 8 • SÍMI: 69 15 15 • KRINGLUNNI • SÍIÖII: 69 15 20

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.