Morgunblaðið - 22.11.1992, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1992
19
að hún frjósi ekki í hel. Á þessu eru
margar hliðar, en kjarni málsins er
þessi: Það er blömleg milliríkjaversl-
un sem leggur grunninn að góðri
afkomu íbúa einstakra landa. Það
er því óskandi að okkur beri gæfa
til að utanríkisverslun hér megi
blómgast í framtíðinni."
Annað sjónarmið
í Ferðabæ ræður Birgir Sumarliða-
son ríkjum. Hann tekur undir orð
Kjartans, en segir að á meðan unn-
ið sé við slíkar kringumstæður sem
þessar verði að berjast um á hæl
og hnakka. Lykillinn sé að sverma
fyrir þeim ferðamönnum sem eiga
peninga og kaupa af íslendingum
þjónustu. Hann telur markaðssetn-
ingu hafa að einhveiju leyti brugð-
ist, ef marka mætti mikinn fjölda
ferðamanna sem litlar eða engar
tekjur væri hafandi af. „Hvergi
nokkurs staðar er það leyfílegt að
tjalda bara í vegarkantinum, eins
og algengt er hér á landi. Það er
greinilegt að markaðassetning hér-
lendrar ferðaþjónustu hefur að
miklu leyti náð best til þeirra sem
eyða litlu,“ segir Birgir. Og hann
teflir fram tveimur þáttum sem
hann telur að taka verði á og geti
orðið til bóta.
í fyrsta lagi vill Birgir markaðs-
setja ísland með nýjum hætti. Hann
er í þann mund a.ð senda frá sér
blað sem kynnir ísland sem land
Við verðum að
leggja áherslu á
að nýta betur
það gistirými,
þau flugvéla- og
rútusæti, þá
veitingastaði og
fleira, sem til er
ævintýranna. Það hefur svo sem
heyrst áður. En lögð er áhersla á
að skipulagðar verði sérferðir fyrir
einstaklinga eða litla hópa í lax- og
silungsveiði, hvers konar skytterí
sem hérlendis er að hafa, jeppa- og
vélsleðamennsku, dorgveiði á vetr-
um inni á öræfum, hestaferðir, sjó-
stangaveiði, að ekki sé minnst á
heilsuparadísina ísland. Flest hefur
þetta verið hér og þar og í smáum
stíl innan um hefðbundnari mark-
aðssetningu. En Birgir -setur þetta
á oddinn og er markhópurinn auð-
ugir einstaklingar og hópar beggja
vegna Atlantsála. Hann segir okkur
frá hinum þættinum:
„Eins og staðan er tel ég að það
geti orðið mjög farsælt ef þeir sem
flytja út vöru og þeir sem flytja inn
ferðamenn geta náð saman. Þess
vegna er ég byijaður að skipuleggja
tvær hátíðir sem ég ætla að geti
orðið árleg og skemmtileg fyrirbæri
og markaðssetning þeirra er hafin
erlendis. Fyrst er að nefna það sem
við getum kallað til bráðabirgða
„fjallalambshátíðina", sem við ætl-
um að halda næsta haust. Ætlunin
er að gera réttarstemmninguna eft-
irsóknarverða og athyglisverða.
Þetta verður þriggja daga matar-
og skemmtihátíð sem fer að miklu
leyti fram í gamla miðbænum, en
einnig utanbæjar j tengslum við
göngur og réttir. í kjölfarið er í
undirbúningi hátíð sem við getum
kennt við tóna hafsins. í grundvall-
aratriðum svipað fyrirbæri og
lambahátíðin nema að í þessu tilviki
snýst allt saman um sjávarfang. í
báðum tilvikum verða innlendir og
erlendir stórkokkar að störfum og
skemmtiatriði af mörgum toga, auk
þess sem þátttakendum mun standa
til boða að upplifa öflun hráefnis-
ins,“ segir Birgir. Og hann leggur
enn á það áherslu að undirbúningur
sé allur kominn af stað, hann sé
aldrei í rónni nema hann láti reyna
á hugmyndir sínar.
Cterkarog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
ÞEGAR VEUA'1
í ÞAÐ BESTA
^ Borgarkringlunni - Simi 67/820 j
gervihnattadiskur
og móttökutæki
SR-500
1,2 m
sporöskjulaga
aiskur, stereo
móttakari m/þráöl.
fjarstýringu,
pólfesting,
pólskiptir og
lágsuosmagnari
(LNB 0,8 dB)
M: 66.810,-
Stgr.ver&: 59.790,-
25% útborgun:
16.703,-kr.ogaöeins
kr. á mán. í
18 mán. m/Munaláni
Yfir 30 stöbvar meb fjölbreyttu
efni á ýmsum tungumálum
V
Skíða- og vetrarfatnaður
í sérflokki. Hlýr, vatnsheldur
og þægilegur.
HHS útilJf: Hfflm
Glæsibæ, sími 812922.
i
Lausu
SÆTIN
TIL
DUBLIN
ERU 29. NÓVEMBER OG 4. DESEMBER!
VERÐ FRA
22. 515 KR.
Síðasta tækifærið til að skreppa til Dublin á þessu ári.
Borgin er núna í jólaskrúða.
Fjögurra nátta ferðir á frábæru verði - frá 22. 515 kr.
Samviiwulerðir-Laiiilsýii _
Rsykjavfk: Austurstræti 12 • S. 91 - 69 10 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70 • Slmbréf 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241
Hótel Sögu vlð HagatorQ • S. 91 - 62 22 77 • Slmbréf 91 - 62 24 60 Akureyri: Ráðhustorgl 1 • S. 96 - 27 200 • Slmbréf 96 -1 10 35
Ksflavfk: HafnargÖtu 35 • S. 92 -13 400 • Símbréf 92 - 1 34 90