Morgunblaðið - 22.11.1992, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 22.11.1992, Blaðsíða 28
Jfte rgtittfrlafrfö ATVINNU/RAÐ- OG SMÁAUGLÝSINGAR Sjálfboðaliðar óskast Blindrafélagið hefur áhuga á að komast í samband við fólk, sem getur hugsað sér að aðstoða blinda og sjónskerta við ýmsar er- indagjörðir, s.s. innkaup, útréttingar o.fl. Um er að ræða ákveðinn stundafjölda í máriuði eftir nánara samkomulagi. Þeir, sem hafa áhuga og óska eftir frekari upplýsingum, vinsamlega hafi samband við skrifstofu Blindrafélagsins í síma 687333 næstu daga. Staða aðstoðar- landlæknis Staða aðstoðarlandlæknis er laus til umsóknar. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu skal aðstoðarlandlæknir vera landlækni til aðstoðar og staðgengill hans. Hann skal vera sérmenntaður embættislæknir eða hafa jafngilda menntun til starfsins. Umsóknir, með upplýsingum um menntun og fyrri störf, skal senda landlækni á þar til gerðum eyðublöðum, sem fást hjá landlækni og í heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytinu. Umsóknarfrestur er til 21. desember. Nánari upplýsingar um starfið gefur landlaaknir. Reykjavík, 16. nóvember 1992. Landlæknir. Hugbúnaðar- fyrirtæki Símavarsla Okkur vantar hressan og jákvæðan starfs- mann í símavörslu og til að sinna tilfallandi störfum. Umsækjendur leggi inn umsókn á auglýs- ingadeild Mbl. merkta: „H - 4989“ fyrir 27. nóvember. Þjónustumaður Við leitum að starfsmanni með viðskipta- fræðimenntun og eða góða reynslu á þessu sviði til að þjónusta TOK notendur. Viðkom- andi þarf að hafa góða tölvuþekkingu, hann þarf að vera fljótur að tileinka sér nýjungar og geta unnið sjálfstætt. Umsækjendur leggi inn umsókn á auglýs- ingadeild Mbl. merkta: „H - 2990“ fyrir 27. nóvember. Um er að ræða framtíðarstörf á reyklausum vinnustað. Ekki verða veittar upplýsingar í síma. IiL_______________________________ föLVUVINNSlA 0G KERFISHÖNNUN HF fWuCKWJ m mix nu is IMRCYIUWK latAM) Sölumenn óskast Vantar vana sölumenn í heils- og hálfsdags- störf. Mikil vinna. Góð laun. Einnig vantar okkur símasölufólk á kvöldin. Góð verkefni. Vinsamlegast sendið inn umsóknir á auglýs- ingadeild Mbl. fyrir þriðjudagskvöld 24/11, merktar: „I - 10368“. Málmiðnaðarmaður Málmiðnaðarmaður óskast til afgreiðslu- starfa. Starfið felst í afgreiðslu og þjónustu við við- skiptavini. Við leitum aðfagmanni með góða þekkingu á rafsuðu og logsuðuvörum, sem hefur áhuga á að veita fyrsta flokks þjónustu. Æskilegur aldur 30-45 ára. Reyklaus vinnustaður. í boði er framtíðarstarf hjá traustu fyrirtæki. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs á eyðublöðum er þar liggja frammi merktar: „Málmiðnaðarmaður" fyrir 28. nóvember nk. RÁÐGARÐURHE STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF NÓATÚN 17 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 68 66 88 Hótel - ferðaþjónusta 24 ára maður sem lokið hefur 3ja ára námi í hótelstjórnun við skóla í Sviss óskar eftir starfi við hótel- eða veitingarekstur eða í ferðaþjónustu. Upplýsingar í síma 31233. Starf smannastjóri Starf starfsmannastjóra, sem hefur umsjón og eftirlit með fjármálum og starfsmannahaldi embættisins, er laust til umsóknar. Umsækjandi þarf að vera háskólamenntaður, eiga auðvelt með mannleg samskipti og hafa reynslu á sviði fjármálastjórnunar og starfs- mannahalds. Tölvukunnátta er æskileg. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun, fyrri störf, meðmælendur og annað sem umsækjandi vill taka fram, þurfa að berast fyrir 30. nóvember nk. Skrifstofustjóri stjórnunarskrifstofu embætt- isins veitir nánari upplýsingar um starfið og tekur á móti umsóknum. 22. nóvember 1992. Skattstjórinn íReykjavík, Tryggvagötu 19, sími 603600. Yfirsálfræðingur Geðdeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri óskar eftir að ráða sérfræðing í klínískri sálar- fræði í stöðu yfirsálfræðings. Um er að ræða afleysingastöðu til eins árs frá 1. janúar 1993. Viðfangsefni deildarinnar eru fjölbreytt. Áhersla er lögð á samstarf fagmenntaðs starfsfólks að greiningu, meðferð og endur- hæfingu vegna geðtruflana af ýmsum toga. Sérkennsla er veitt sjúklingum á deildinni. Umsóknir um starfið, með upplýsingum um menntun og fyrri störf, óskast sendar Sig- mundi Sigfússyni, yfirlækni geðdeildar F.S.A. Nánari upplýsingar veitir yfirlæknir í síma 96-22100. Yfiriðjuþjálfi Geðdeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri óskar eftir að ráða iðjuþjálfa. Um er að ræða afleysingu í leyfi yfiriðjuþjálfa deildarinnar til 1. september 1993. Iðjuþjálfun er mikilvægur hluti af greiningu og meðferð sjúklinga deildarinnar, og fer hún að mestu fram í sérstöku húsi á Skólastíg 7 á Akureyri. Hjúkrunarstarfsfólk deildarinnar aðstoðar við iðjuþjálfun sjúklinga. Umsóknir um starfið, með upplýsingum um menntun og fyrri störf, óskast sendar Sig- mundi Sigfússyni, yfirlækni geðdeildar F.S.A., sem veitir nánari upplýsingar í síma 96-22100. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ A AKUREYBI Lausar stöður við HEILSUGÆSLUNA í REYKJAVÍK (Heilsugæslustöðvarnar og Heilsuverndar- stöð Reykjavíkur). Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður við heilsugæsluna í Reykjavík. 1. Hjúkrunardeildarstjóri við mæðradeild Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur. Staðan veitist frá 1. febrúar 1993. Gerð er krafa um hjúkrunar- og Ijósmóður- menntun. 2. Hjúkrunardeildarstjóri við Heilsugæslu- stöð Miðbæjar, Vesturgötu 7 (hálf staða). Staðan veitist frá 1. janúar 1993. Gerð er krafa um hjúkrunar- og Ijósmóður- menntun. 3. Staða læknaritara við Heilsugæslustöð Miðbæjar, Vesturgötu 7, (allt að 75% starf). Staðan er laus nú þegar. Umsóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og störf, sendist starfsmanna- stjóra, Heilsuverndarstöð Reykjavíkur, Bar- ónsstíg 47, 101 Reykjavík, á sérstökum umsóknareyðublöðum, sem þar fást fyrir 18. desember nk. Nánari upplýsingar um stöður hjúkrunardeildarstjóra gefa viðkomandi hjúkrunarforstjórar, í síma 22400 varðandi Heilsuverndarstöð Reykjavíkur og í síma 625070 varðandi Miðbæjarstöð. Heilsugæslan í Reykjavík, stjórnsýsla. 19. nóvemher 1992.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.