Morgunblaðið - 22.11.1992, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1992
29
Lausar stöður
Skagafjörður skín við sólu, þar er fögur fjalla-
sýn og samgöngur góðar til allar átta.
Á Sauðárkróki blómstrar fagurt mannlíf í
vaxandi bæjarfélagi.
Þar er Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra.
Nemendur eru á fimmta hundrað og þar
starfar samhentur hópur 36 kennara, sem
býður góða félaga velkomna til starfa.
Nýtt og glæsilegt bóknámshús verður tekið
í notkun haustið 1994.
Við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á
Sauðárkróki eru lausar til umsóknar eftirtald-
ar stöður:
1. Starf kennara í jarðfræði og landafræði.
2. Starf kennara í stærðfræði og eðlisfræði.
3. Starf kennara í sérgreinum tréiðna, aug-
lýst vegna ákvæða laga um lögverndun á
starfsheiti og starfsréttindum framhalds-
skólakennara.
Umsóknarfrestur er til 19. desember 1992.
Ráðningartími er frá 1. janúar nk.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
skólans í síma 95-36400.
Verksmiðjustjóri
í framleiðsluiðnaði
íslenska saltfélagið hf. á Reykjanesi óskar
nú þegar að ráða verksmiðjustjóra til þess
að annast daglega stjórnun og sjá til þess
með frumkvæði sínu að skipulag og rekstur
verksmiðjunnar gangi vel. Verksmiðjustjórinn
er yfirmaður fyrirtækisins hér á landi.
Verksmiðjan framleiðir matarsalt og nýþró-
að heilsusalt með eimingu á jarðsjó. Fram-
leiðslan er samfelld, 24 klst. á sólarhring 7
daga vikunnar í tærandi umhverfi, sem gerir
miklar kröfur um áreiðanlegt fyrirbyggjandi
viðhald.
Verksmiðjan, sem er ný, samanstendur af
rörum, tönkum, eimingarkerfum, dælum, lok-
um og stýribúnaði, skilvindum og þurrkurum
auk búnaðar til þurrvinnslu á salti. Fram-
leiðslan er hafin og unnið er að endanlegri
skipulagningu framleiðslunnar og að ná stöð-
ugleika í rekstrinum.
Starfsmenn eru 20 þar á meðal bæði efna-
fræðingur á tilraunastofu og viðhaldsdeild.
Viðhaldsdeildin er nýlega tekin til starfa og
vinna skal að uppbyggingu á fyrirbyggjandi
viðhaldskerfi fyrir verksmiðjuna.
Markaðssetning og fjármálastjórnun er unn-
in í öðrum fyrirtækjasamsteypum erlendis.
Starfið krefst tæknimenntunar á sviði fram-
leiðslustjórnunar og a.m.k. 5 ára starfs-
reynslu við tilsvarandi störf. Þekking á mat-
vælaframleiðslu er æskileg, enskukunnátta
nauðsynleg.
Við bjóðum sjálfstætt ábyrgðarstarf í ungu
og kraftmiklu fyrirtæki sem hefur umtals-
verða vaxtarmöguleika.
íslenska saltfélagið er dótturfyrirtæki
danska fyrirtækisins Saga Food Ingredients
A/S, sem er vel skipulagt fjárhagslega sterkt
fyrirtæki, eigendur eru danskir lífeyrissjóðir
og dönsk og íslensk fyrirtæki.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Farið verður með allar umsóknir og fyrir-
spurnir sem trúnaðarmál.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir á
dönsku eða ensku til Ráðningarþjónustu
Hagvangs hL, merktar „Verksmiðjustjóri
381“ fyrir 1. desember nk.
Hagva ngurhf
Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
RÍKISSPÍTALAR
Reyklaus vinnustaður
LUNGNADEILD
VÍFILSSTAÐASPÍTALA
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
Hjúkrunarfræðingar óskast til afleysinga í
lungnadeild Vífilsstaðaspítala, nú þegar eða
eftir samkomulagi. Á deildinni eru 37 rúm
fyrir lungnasjúklinga, aðallega bráða lungna-
sjúkdóma, einnig fara fram rannsóknir og
meðferð á sjúklingum með kæfisvefn.
Á lungnadeildinni er mjög góður starfsandi
og samvinna í fyrirrúmi. Góð aðlögun, sveigj-
anlegur vinnutími, starfshlutfall eftir sam-
komulagi.
Upplýsingar gefur Bjarney Tryggvadóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 602828.
RÍKISSPÍTALAR
Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á íslandi meö starfsemi
um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sér fyrir markvissri
meðferð sjúkra, fræðslu heilbrigðisstótta og fjölbreyttri rannsóknastarf-
semi. Okkur er annt um velferð allra þeirra, sem við störfum fyrir og með,
og leggjum megináherslu á þekkingu og virðingu fyrir einstaklingnum.
Starfsemi Ríkisspítala er helguð þjónustu við almenning og við höfum
ávallt gæöi þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni að leiöarljósi.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa við
Sjúkrahúsið á Hvammstanga frá miðjum
janúar ’93 eða eftir samkomulagi.
Um er að ræða 80-100% stöðu á morgun-
og kvöldvöktum. Frí aðra hverja helgi.
Gott húsnæði.
Upplýsingar hjá hjúkrunarforstjóra
í símum 95-12329 og 95-12920.
Tæknimaður/
verkstjóri
Byggingafyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu
óskar að ráða tæknimenntaðan mann til
starfa sem verkstjóra á byggingarstað. Þarf
að geta hafið störf strax eða mjög fljótlega.
Áhugasamir leggi inn nafn og stutta lýsingu
á fyrri störfum á auglýsingadeild Mbl. merkta:
„Tæknimaður - 10118" fyrir 25. nóvember.
Farið verður með allar umsóknir sem
trúnaðarmál.
NUD er stofnun sem heyrir undir Norræna ráðherraráð-
ið. Helstu verkefni NUD eru að mennta starfsfólk, þekk-
ingarmiðlun, þróunarstarf og alþjóðleg samvinna. NUD
er með aðsetur í Dronninglund Slot á Norður-Jótlandi
í Danmörku og eru starfsmenn sjö talsins. Stofnunin
hefur árlega 6 milljónir DKK til ráðstöfunar.
Æskileg reynsla: Miklar og margþættar kröfur verða
gerðar til nýja forstöðumannsins hvað varðar stjórnun-
ar- og samstarfshæfileika.
Þar sem NUD starfar að menntun starfsfólks eru auk
viðkomandi fræðilegrar þekkingar gerðar kröfur um víð-
tæka samfélagslega þekkingu sem og reynslu á sviði
starfsþróunar og eftirmenntunar.
Þar sem NUD er miðstöð er nauðsyn á reynslu á sviði
verkefnastjórnunar/verkefnasamhæfingar og upplýs-
ingamiðlunar, auk einhverja reynslu af tölvunotkun.
Þar sem NUD er norræn stofnun er reynsla af nor-
rænni samvinnu nauðsynleg. Viðkomandi verður einnig
að geta tjáð sig á skilmerkilegan hátt, jafnt munnlega
sem skriflega á einhverju hinna þriggja tungumála nor-
rænu ríkisstjórnasamvinnunnar, en þau eru danska,
norska og sænska.
Ritari
Ritari óskast til sjálfstæðra og krefjandi
starfa hjá þekktu fyrirtæki.
Starfið er fjölbreytt og felst m.a. í sjálfstæð-
um ritarastörfum, samskiptum við viðskipta-
vini, eftirliti með áætlunum, kostnaði o.fl.
Við ieitum að þjónustuliprum og skipulögð-
um aðila, með góða tölvuþekkingu, sem hef-
ur áhuga á að starfa með hressum hóp í lif-
andi umhverfi.
Reynsla af sjálfstæðum ritarastörfum
nauðsynleg.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs á eyðublöðum er þar liggja frammi
fyrir 8. nóvember nk. merktar: „Ritari 93“.
RÁÐGARÐURHE
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 68 66 88
Styrktarfélag vangefinna
Styrktarfélag vangefinnar óskar að ráða
starfsfólk í eftirtaldar stöður við heimili og
hæfingarstöð félagsins:
Forstöðumann
sambýlis, Blesugróf 29
Um er að ræða fullt starf. Krafist er menntun-
ar og reynslu í störfum með fötluðum.
Forstöðumann
skammtímavistunar, Þykkvabæ 1.
Um er að ræða fullt starf. Krafist er menntun-
ar og reynslu í störfum með fötluðum.
Umsóknarfrestur um ofangreindar stöður er
til 1. desember nk.
Upplýsingar gefur Kristján Sigurmundsson,
þroskaþjálfi, í síma 15622.
Bjarkarás,
hæfingarstöð, Stjörnugróf 7.
Deildarþroskaþjálfa í fullt starf nú þegar eða
um áramót á saumastofu stofnunarinnar.
Starfið felst í þjálfun við saumaskap (á
saumavélar). Möguleikar á leikskólaplássi
fyrir hendi.
Upplýsingargefurforstöðukona, Gréta Bach-
mann, í síma 685330 næstu daga milli kl.
10 og 15.
Þar sem NUD starfar fyrir daufblinda er mikil þekking
á starfsemi fatlaðra nauðsynleg, gjarnan með höfuðá-
herslu á þarfir daufblindra eða annarra mjög fatlaðra.
Þar sem NUD hefur mikil alþjóðleg samskipti er góð
enskukunnátta nauðsynleg.
Ráðningarskilyrði: Ráðningin er tímabundin með samn-
ingi til fjögurra ára og er mögulegt að framlengja hana
um fjögur ár til viðbótar. Ríkisstarfsmenn eiga rétt á
starfsleyfi meðan á ráðningartímanum stendur. Störf
ber að hefja samkvæmt samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Marjaana Suosalmi,
menntunarstjóri, í síma 90 45 98 84 34 99.
Umsókn ásamt vottuðu yfirliti yfir reynslu og menntun
ber að senda ekki síðar en 18. desember 1992 til:
Nordisk Uddannelsescenter
for Dovblindepersonale,
Slotsgade 8,
DK-9330 Dronninglund,
Danmörk.
Forstöðumaður
óskast að
Nordisk Uddannelsescenter for Dovblindepersonale
(NUD)