Morgunblaðið - 22.11.1992, Side 38

Morgunblaðið - 22.11.1992, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1992 HANDKNATTLE1KUR SEGJA má að eldingu hafi slegið niður á Selfossi rétt fyrir mið- nætti 15. júlí 1991 — eldingu semátti eftir aðtendra mikinn eld, sem blossaði upp f óstöðvandi áhuga á handknattleik á Suður- landi. Þetta kvöld ákvað vinsælasti handknattleiksmaður landsins, vinstrihandarskyttan Sigurður Sveinsson, að ganga til liðs við hið unga lið Selfyssinga, en hann hafði þá leikið með Atletico Madrid á Spáni. Þessa ákvörðun tók Sigurður nokkrum mínútum áður en lokað var fyrir félagaskipti leikmanna, en hann var þá orðaður við Akureyrarfélagið KA. Morgunblaðið sagði frá þessari ákvörðun Sigurðar og síðan barst fréttin eins og eldur í sinu um Selfoss og nágrenni. Uppskrift að sigurliði 1. deild 1990 Einar Guðmundsson Gústaf Bjarnason Einar G. Sigurðsson Sverrir Einarsson 1990-1991 Léku í 2.deild 1989-1990 __________* • Stefán Haldórsson (farinn til Víkings) Gísli Felix Bjarnason (KR)* Sigurjón Bjarnason (Stjörnunni) Er Selyssingur, bróðir Gústafs 1991-1992 Einar Þorvarðarson (Val) • Jón Þórir Jónsson (Breiðabliki)# Sigurður Sveinsson (A. Madrid) • 1992-1993 Hermundur Sigurmundsson (Noregi)» Páll Gíslason (Þór Ak.) • Oliver Pálmason (Val) • Davíð Ketilsson (Breiðabliki) • • Nýir Mér líst ágætlega á þetta. Þetta gæti verið spennandi dæmi — enda erum við með góðan og stór- an þjálfara,“ sagði skrifar átti við Einar Þor- varðarson, félaga sinn í landsliðinu, sem var ráðinn þjálfari til Selfoss stuttu áður. „Við bindum miklar vonir við Sigga og teljum að hann eigi eftir að breyta miklu hjá okkur,“ sagði Einar Þor- varðarson. Þessir tveir gamalkunnu refir áttu síðan eftir að gera krafta- verk á Selfossi — aðeins sextán árum eftir að handknattleikur var fyrst keppnisíþrótt þar í bæ eignuðust Selfyssingar eitt skemmtilegasta og besta lið landsins, sem lék til úrslita um íslandsmeistaratitilinn við FH, liðið úr handknattleiksbænum Hafnarfirði. Einar náði að byggja upp mjög heilsteypt lið, sem hefur hugmyndaríka einstaklinga í her- búðum sínum. Leikmenn sem gengu í gegnum mikla reynslu á stuttum tíma. Selfyssingar eru með tvo snjalla hornamenn sem eru þeir Sig- utjón Bjarnason og Jón Þórir Jóns- son. Þá er línumaður þeirra, Gústaf Bjarnason, góður og út á vellinum eru tvær öflugustu skyttur landsins — Sigurður Sveinsson og Einar Gunnar Sigurðsson. Leikstjórnandi og lykilmaður liðsins er Einar Guð- mundsson, sem hefur hefur ótrúlega næmt auga fyrir að stjórna sóknar- leik liðsins. Gísli Felix Bjarnason hefur leikið vel í markinu og Einar Þorvarðarson er tilbúinn ef með þarf. „Tók við góðu búi“ Einar Þorvarðarson tók við Sel- fossliðinu eftir að hann varð íslands- meistari með Val 1991, en þá hafði hann verið aðstoðarlandsliðsþjálfari eitt keppnistímabil. „Ég hafði gælt við að draga mig í hlé sem leikmað- .ur og snúa mér alfarið að þjálfun og eftir að mér bauðst starf með landsliðinu kom hitt í kjölfarið. Sel- fyssingar höfðu samband við mig og eftir tveggja vikna umhugsun ákvað ég að slá til. Selfossliðið hafði þá leikið eitt keppnistímabil í 1. deild undir stjórn Björgvins Björgvinsson- ar og í liðinu voru margir ungir og efnilegir leikmenn. Verkefnið var spennandi og ég tók víð góðu búi frá Björgvini. Ég vissi að til að ná betri árangri með liðið yrði að stýrkja það og fékk ég Jón Þóri Jónsson, sem hafði verið frá vegna meiðsla, til liðs við mig. Ég hafði leikið gegn Jóni Þóri er hann lék með Breiða- bliki og vissi að hann var góður leik- maður. Það var mikið happdrætti fyrir mig þegar Sigurður Sveinsson ákvað að ganga til liðs við okkur. Við Sigurður vorum góðir félagar og höfðum leikið saman með landsl- iðinu og Val. Sigurður var maðurinn sem okkur vantaði — öflug vinstri- handarskytta og jafnframt einn vin- sælasti handknattleiksmaður lands- ins. Fyrir voru Einar Gunnar Sig- urðsson, sem átti eftir að bæta sig, Gústaf Bjamason, Siguijón Bjama- son, Einar Guðmundsson og Gísli Felix Bjarnason. Sigurður féll vel inn í þennan hóp leikmanna — það má segja að hann hafi orðið ungur í annað sinn. Við náðum að skipu- leggja leik okkar og sprungum út þegar á leið.“ „Hrífnastur af frjálsum hand- knattleik" Selfyssingar vöktu strax athygli fyrir íjölbreyttan og skemmtilegan sóknarleik. Leikur liðsins var ekki eingöngu bundinn við ákveðin leik- kerfi, enda kannski eðlilegt — Sig- urður Sveinsson, sem er frægur fyr- ir að fara éigin leiðir sem listamaður og skemmtikraftur, hefði ekki feng- ið að njóta sín. „Ég er hrifnastur af því að leyfa leikmönnum að njóta sín í sóknarleik. Það er gott að blanda leikkerfum og leikfléttum saman við fijálsan handknattleik. Það er staðreynd að við emm með tvær af bestu skyttum landsins í herbúðum okkar og leikstjórnanda sem er ólíkur öðrum miðjumönnum. Einar Guðmundsson er mjög útsjón- arsamur. Hann getur skotið að marki á ýmsan hátt, leikið aðra úti- spilara fría og bmgðið sér inn á lín- una þegar við á. Hann er mjög mikil- vægur fyrir liðið. Þó svo að við séum með tvær af bestu skyttum landsins em allir leikmennimir sex sem taka þátt í sóknarleiknum mjög mikilvæg- ir hver fyrir annan og þeir vita það sjálfir manna best.“ - Hvað með varnarleikinn. Ertu ánægður með hann? „Við höfum átt í ákveðnum vand- ræðum með vamarleikinn og það er ekki hægt að segja að við séum sterkt vamarlið á pappímum. Við höfum þó náð að bæta varnarleikinn mikið fá síðasta keppnistímabili, en eigum eftir að styrkja hann enn betur.“ „Náöum betri árangri en reikn- að var með“ Selfyssingar náðu mjög góðum árangri á síðasta kejipnistímabili og léku til úrslita um Islandsmeistara- liðið frá Selfossi Spútnik Morgunblaðið/Kristinn Hvað eru þið að hugsa, strákar? Einar Þorvarðar- son hrópar til sinna manna í leik gegn Fram á miðvikudaginn. Morgunblaðið/Sigurður Jónsspn Landsliðsmenn Selfoss ásamt Einari Þorvarðarsyni. Siguijón, Gústaf, Sigurður, Einar Þ. og Einar Gunnar. Ekki árennilegur hópur. titilinn gegn FH, sem frægt varð. Strákarnir skutust upp á stjömuhim- ininn og spurningar vöknuðu um hvort Selfossliðið væri komið til að vera eða aðeins flugeldur sem kæmi fljótt niður. Steig velgengni liðsins leikmönnunum til höfuðs? „Við náðum miklu betri árangri en reiknað var með og komum Sel- fossi á landakortið sem handknatt- leiksbæ. Það kostaði mikla baráttu og nú vitum við að það er borin virð- ing fyrir okkur sem mótheijum. Það er ljóst að við erum ekki lengur spútnikar heldur mjög góð liðsheild sem myndar sterkt lið. Strákarnir hafa ekki ofmetnast því að þeir vita fullkomlega að allir verða að gefa allt sem þeir eiga til að við höldum okkar striki. Því hugsum við aðeins um einn leik í einu, enda er annað ekki hægt. Deildarkeppnin er mjög jöfn og við fengum ákveðið bakslag á dögunum og töpuðum þremur stig- um á heimavelli í leikjum gegn HK og ÍBV, en eftir það hefur liðið ver- ið á uppleið. Auðvitað skilaði úrslita- keppnin síðastliðið keppnistímabil okkur mikilli reynslu og leikmenn- imir fengu meirá sjálfstraust. Það er mitt verkefni að leikmennirnir missi ekki einbeitinguna, því ef við sofnum á verðinum bjóðum við hætt- unni heim.“ „Meiri breidd“ Margir vilja halda því fram að Selfyssingar hafí tapað meistaratitl- inum til FH sl. keppnistímabil á því að FH-ingar tóku Sigurð Sveinsson úr umferð í öllum úrslitaleikjunum. Er Einar á sama máli? „Já, ég hef oft hugsað um þetta. Það er alltaf sárt þegar klippt er á eins góða leikmenn og Sigurður er og ef til vill hafa FH-ingar tryggt sér meistaratitilinn á þessari leikað- ferð. Með Sigurð á fullri ferð vomm við betri aðilinn. Okkur var ljóst að okkur skorti breidd í leikmannahóp- inn til að svara þessu herbragði mótheijanna. Til að auka breidd okkar í sóknarleiknum fékk ég Oliv- er Pálmarsson til liðs við okkur, en hann var búinn að vera í ársfríi frá handknattleik eftir að hafa leikið með Val. Olíver er að ná sér á strik og styrkir sóknarleik okkar.“ - Ér ekki erfitt að vera búsettur í Reykjavík og starfa sem þjálfari ,1. deildarliðs á Selfossi? „Jú, svo sannarlega. Maður er einangraður frá mannskapnum og því mjög erfítt að nálgast leikmenn ef ég þarf að fara yfir eitthvað með Sigurður einsog gott rauðvín Verður betri og betri með árunum „Sigurður Sveinsson lék stór- kostlega með Selfossliðinu síðastliðið keppnistímabil og nú bætir hann sig með hveij- um leik. Sigurður hefur verið að leika eins og hann gerði best í Þýskalandi og var þá í hópi bestu manna þar. Hann er eins og gott rauðvín — verður betri og betri með ár- unum.“ Jóhann Ingi Gunnarsson sem var þjálfari hjá Kiel og Ess- en þegar Sigurður Sveinsson lék með Nettelstedt og Lemgo um Sigurð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.