Morgunblaðið - 22.11.1992, Side 39

Morgunblaðið - 22.11.1992, Side 39
MokGUNBLAÐBD IÞROTTIR ! Wf' 39 þeim til að bæta, eða kalla leikmenn á séræfmgar. Ég hef stundum farið austur fyrir fjall tvisvar á dag — til að vera með séræfingar fyrir leik- menn í hádeginu og allt liðið síðan á æfingu um kvöldið. Þetta væri allt auðveldara ef maður væri á staðnum." - Er ekki þreytandi að vera einn- ig aðstoðarlandsliðsþjálfari? „Það tekur sinn toll og ég hef fengið lítið frí frá handknattleiknum undanfarin ár. Maður er bundinn handknattleik allt árið. Ég náði að taka mér frí í tvær vikur í maí, en síðan kom undirbúningurinn fyrir Ólympíuleikana. Ég get ekki neitað því að ég kom þreyttur heim frá Barcelona, en það var litla hvíld að fá eftir keppnina þar, því að ég fór strax á fulla ferð að undirbúa Sel- fossliðið fyrir keppnistímabilið. Jú, það er ipjög erfitt að vera bæði með félagslið og landslið og það kemur að því að maður verður að skoða hug sinn.“ Hörð keppni framundan Nýja fyrirkomulagið í baráttunni um Islandsmeistaratitilinn heppn- aðist mjög vel sl. keppnistímabil og þá sérstaklega úrslitaleikir FH og Selfoss, en húsfyllir var á leikjum liðanna. Einar Þorvarðarson sagði að fyrirkomulagið hafi verið mikil lyftistöng fyrir handknattleikinn á Islandi. Það eru margir leikmenn sem vildu standa í sömu sporum og við og FH-ingar. Keppnin í 1. deild- inni í ár er jafnari en sl. keppnistíma- bil, sem segir að úrslitakeppnin á eftir að verða geysilega tvísýn og spennandi." - Þið ætlið ykkur að sjálfsögðu alla leið eins og sl. keppnistímabil? „Það var mikill sigur fyrir okkur að leika til úrslita síðast og strákam- ir eru ákveðnir að leggja hart að sér til að endurtaka leikinn. Við höfum fengið frábæran stuðning á Selfossi — frá áhorfendum og bæjarbúum. Það hjálpar til.“ - Verður þú með í úrslitakeppn- inni? „Það er erfitt að segja. Ég hef alltaf ætlað mér að einbeita mér ein- göngu að þjálfun. Það er mjög erfitt fyrir þjálfara að vera markvörður, því að maður getur misst einbeiting- una í hita leiksins. Það er langt síð- an ég lék síðast, en því er ekki hægt að neita að ég er enn á leik- skýrslu í leikjum okkar," sagði Einar Þorvarðarson, sem er greinilega til- búinn í slaginn ef með þarf. Einar Gunnar minnir mig á Frank Wahl „Einar Gunnar Sigurðsson er orðinn geysilega öflugur — hreint „náttúru- tröll." Hann er mjög skotfastur og er greinilega ákveðinn í að gefa Sigurði Sveinssyni ekkert eftir. Einar Gunnar getur skotið knettinum með 130 kíló- metra hraða og í leik gegn FH á dögun- um átti besti markvörður landsins, Bergsveinn Bergsveinsson, ekki mögu- leika að veija skot hans. Éinar Gunnar minnir mig óneitanlega á Þjóðveijann Frank Wahl, sem var einn skotfastasti leikmaður heims.“ Einar Guðmundsson, leikstjómandi, á fullri ferð að vamarvegg Framara ■ ar Sveinssonar. Markviss og ógnandi hreyfing og snögg sending til hliðar. Morgunblaðið/Kristinn og sendir knöttinn eldsnöggt til Sigurð- I A Mli auisMiMa Einar Þorvarðarson Sigurður Sveinsson Gísli Felix Bjarnason Jón Þórir Jónsson Sigurjón Bjarnason Oliver Pálmason Einar Guðmundsson er ieikstjóm- andi Selfossliðsins og hefur hann skilað því hlutverki mjög vel. Það em ekki mörg ár síðan að Ein- ar var aðalskytta liðsins og marka- kóngur ár eftir ár, en nú leikur hann á milli stórskyttanna Einars Gunnars Sigurðssonar og Sigurðar Sveinssonar. Em það ekki von- brigði fyrir hann að vera ekki leng- ur í stórskyttuhlutverjdnu? „Nei, ekki get ég sagt það. Ég hef fengið nýtt hlutverk og. það er skemmtilegt að leika Einar Gunnar og Sigurð uppi, en þeir vilja skjóta mikið og fast. Maður verður einnig að dempa þá niður til að knötturinn fái að ganga.“ LAUGAnVATN Hermundur Sigurmunds. Páll Gíslason Einar Guðmundsson Davíð Ketilsson Leikmenn á fullrí ferð Einar, sem hefur mjög næmt auga fyrir leikfléttum, er lykilmað- ur í Selfossliðinu þó að hann hafi oft viljað falla í skugga Einars Gunnars og Sigurðar. Það vakti mikla athygli í úrslitabaráttunni gegn FH að hann var jafnvígur á báðar hendur og skoraði mörk utan af velli bæði með hægri og vinstri. Æfði hann og þjálfaði vinstrihand- arskot sérstaklega fyrir úrslita- keppnina? „Nei, ég hafði skorað mörg mörk með vinstri hendinni áður, en það tók bara enginn eftir því. Ég fór að æfa vinstrihandarskot þegar ég lék með BK Söder í Svíþjóð 1988, þar sem ég lærði mikið. Strákamir í liðinu æfðu mikið ýmsar brellur, eins og að skjóta með vinstri hendi og gera ýmsa boltasnúninga." Selfyssingar hafa sýnt mikla bar- áttu í leikjum sínum. Þolið þið elcki að tapa? „Það sættir sig enginn við tap. Við emm ákveðnir að gera betur en síðastliðið keppnistímabil og tryggja okkur Evrópusæti. Það er bijálað keppnisskap í liðinu, eins og kom fram í leiknum gegn FH á dögunum þegar við náðum að tryggja okkur sigur undir lokin. Það var erfiður leikur, en æfingar hjá okkur em oft miklu erfiðari. Leik- menn leggja mikið á sig og þegar skipt er í tvö lið á æfingum er tek- ið hraustlega á. Það þolir enginn að tapa og er þjálfarinn Einar Þor- varðarson þar fremstur í flokki. Eftir þannig æfingar er maður hreinlega búinn og að niðurlotum kominn. Þessi hamagangur á æf- ingum hefur skilað sér í leikjum," sagði Einar Guðmundsson. Fimm hafa leikið í útlöndum Þó svo Selfossliðið sé ungt hafa nokkrir leikmenn liðsins reynslu af því að leika með erlendum félagsliðum. Sig- urður Sveinsson, aldursforset- inn, lék með Olympia í Sví- þjóð, þýsku liðunum Nett- elstedt og Lemgo og spánska liðinu Atletico Madrid. Einar Þorvarðarsson, þjálfari, lék með Tres de Mayo á Spáni, Gísli Felix Bjamason með Ribe í Danmörku, Einar Guð- mundsson með BK Söder í Svíþjóð og Hermundur Sig- mundsson með félagsliðum í Noregi. Setfyssingar leika nátlúrubolta Selfoss er spútniklið sem hefur skotist fram í sviðsljósið á tveimur ámm. Árangurinn er vegna markvissrar uppbyggingar Selfyssinga, en sú uppbygging byijaði með sterkum árgangi ungra leikmanna og síðan hefur sá hópur styrkts jafnt og þétt. Stóra skrefið var svo stigið þegar Selfyssingar fengu Sigurð Sveins- son til iiðs við sig. Hann er leik- maður sem lyftir hvaða félagsliði sem er um tvö til fjögur sæti eins og hann leikur og leikurinn þró- ast í kringum hann,“ sagði Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari Hauka og fyrrnrn landsliðsþjálfari, þegar hann var beðinn að segja álit sitt á liði Selfyssinga. „Margir töldu það tilviljun að Selfoss lék til úrslita gegn FH um íslandsmeistaratitilinn síðastliðið keppnistímabil, en nú hefur komið í ljós að svo var ekki. Selfyssing- ar hafa eignast eitt besta félagsl- ið landsins; lið sem lagði meistar- alið FH að velli í Hafnarfirði á dögunum og tók stig af Valsliðinu að Hlíðarenda. Leikmenn liðsins hafa i vetur komið reynslunni rik- ari frá úrslitaviðureigninni við FH og ljóst er að þeir hafa þroskast og styrkst. Ekki hefur það skemmt fyrir að yngri leikmenn liðsins hafa verið kallaðir í landsl- iðshópinn þar sem þeir hafa feng- ið reynslu og kynnst alþjóðlegum handknattleik. Selfossliðið hefur á að skipa mjög góðum einstaklingum, sem leika fjölbreyttan handknattleik — hraðan, sem byggist upp á því að ná þvf besta út úr leikmönnum sem einstaklingum. Þetta er svo- kallaður „náttúrubolti" þar sem leikmenn leika ekki eftir fastmót- uðum leikkerfum, heldur „með lijartanu“. Sem betur fer hefur þessi þróun aukist í íslenskum handknattleik, að leikmenn bijót- ist út úr kerfisboltanum og fái að njóta sín sem einstaklingar. Selfoss er fyrst og fremst sókn- arlið, en til að styrkja liðið enn meira mætti vamarleikurinn vera sterkari. Það hefur oft loðað við íslenskan handknattleik að þau lið sem leika góðan sóknarleik hafa ekki leikið nægilega góðan vam- arleik. Mesta púðrið fer i sókna- raðgerðir. Það er stórkostlegt að sjá hvemig Sigurður Sveinsson hefur náð að aðlagast liðinu og liðið Sigurði. Það er hreint ótrúlegt að sjá hvernig Sigurður getur komið sér í æfingu með leikjum — leik- gleði hans virðist verða meiri og meiri með hveijum leik. Ég tel á ekkert lið hallað þegar ég segi að Selfossliðið sé besta félagslið íslands ( dag og það lið sem skemmtir áhorfendum best með leik sínum. Selfyssingar leika handknattleik sem áhorfendur kunna að meta. Leikmenn liðsins eru óhræddir við það sem þeir eru að fást við hveiju sinni og það er styrkur. Fyrir utan liðið sjálft er öll umgjörðin kringum það til fyrir- myndar og sú umgjörð hefur orð- ið til að styrkja liðið. Selfyssingar hafa eignast sterkan heimavöll. Þegar er rætt um árangur Sel- fossliðsins má ekki gleyma þætti Einars Þorvarðarsonar, þjálfara liðsins. Einar hefur gefið liðinu góðan stimpil með reynslu sinni og ekki 8kemmir það að hann starfar með landsliðinu sem að- stoðarþjálfari Þorbergs Aðal- steinssonar, landsliðsþjálfara,“ sagði Jóhann Ingi Gunnarsson. ■ STUÐNINGSMENN Selfoss- liðsins eru geysilega öflugir. Þegar Selfoss og FH léku til úrslita um meistaratitilinn sl. keppnistímabil komu stuðningsmenn liðsins saman tveimur tímum fyrir leik til að æfa söng undir stjórn rakarans Ævars Österby. ■ ÞEGAR Selfossliðið leikur á útivöllum koma tólf trommuleikarar með liðinu frá Selfossi — til að gefa taktinn. ■ MIKIL spennaer á áhorfenda- pöllunum þegar Selfoss leikur á heimavelli og bergmálar hávaðinn frá íþróttahúsinu út í bæ. ■ GÁRUNGARNIR á Selfossi segja að það eigi að setja’ stórt skilti utan á íþróttahúsið þegar leikir fara þar fram, sem á stendur; Háspenna, lífahaattnl ■ SELFYSSINGAR eru einnig í sviðsljósinu í norskum handknatt- leik, þar sem bræðurnir Þórir og Grímur Hergeirssynir eru í her- búðum 1. deildarliðsins Elverun. Þórir er þjálfari og Grímur leik- maður. Þórir þjálfaði marga leik- menn Selfoss í yngri flokkunum áður en hann hélt til Noregs. ■ FYRIR utan Sigurð Sveinsson hafa þrír ungir leikmenn Selfoss- liðsins leikið með landsliðinu und- anfarin ár. Bræðurnir Gústaf og Sigurjón Bjamasynir og Einar Gunnar Sigurðsson, sem eiga það allir sameiginlegt að hafa byijað landsleikjaferil sinn í sigurleik. ■ EINAR Gunnar 1990 gegn Tékkóslóvakíu, Gústaf 1991 gegn Litháen og Sigurjón gegn Egypta- landi á dögunum. ■ EINN landsliðsmaður frá Ak- ureyri, sem er leikmaður með Þór, fær að æfa með Seifyssingum. Það er Sigurpáll Ami Aðalsteinsson, sem stundar nám við íþróttakennar- skólann að Laugarvatni. Hann byij- aði að æfa með liðinu strax eftir að Selfoss hafði leikið gegn Þór á Akureyri. ■ SIGURPÁLL Árni varð fyrir því óhappi á fyrstu æfingu sinni á Selfossi, að hann fór af henni á sjúkrahús — fékk högg á munninn. H SELFYSSINGAR eru ánægðir með að nemendur við íþróttakenn- araskólann að Laugarvatni hafa skil- að sér til þeirra. Það eru þeir Her- mundur Sigmundsson, sem reynd- ar er kennari þar, Davíð Ketílsson og Páll Gíslason. ■ EINAR Guðmundsson, sem einnig stundar nám í íþróttakenn- araskólanum, hefur tvisvar verið skorinn upp fyrir meiðslum í báðum hnjám en ekkert látið það á sig fá. ■ FJÓRIR kunnir handknattleiks- menn þjálfuðu á Selfossi áður en Einar Þorvarðarson kom þangað. Steindór Gunnarsson, Val, Helgi Ragnarsson, FH, Guðmundur Magnússon, FH og Björgvin Björgvinsson, Fram/Víkingi, en hann kom Selfossi í 1. deild. ■ SELFYSSINGAR voru með danska vinstrihandarskyttu undir smásjánni áður en Sigurður Sveins- son ákvað að leika með þeim.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.