Morgunblaðið - 18.03.1993, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ IlMMTUDAGUR 18. MÁRZ 1993
S JÚK í ÁST
__________Leiklist_____________
Hávar Sigurjónsson
Leikhópur Fjölbrautaskólans við
Armúla sýnir Sjúk í ást eftir Sam
Shepard i leikstjórn Guðmundar
Haraldssonar. Þýðandi ónefnd-
ur.
Leikendur: Sigurður Líndal Þór-
isson, Sara Dögg Eriesdóttir,
Sigurjón Starri Hauksson og
Þórður Guðmundsson.
Sýnt í Rósenbergkjallaranum.
Leikritið Sjúk í ást var sýnt hér
af hópi atvinnuleikara fyrir fáeinum
árum við góðar undirtektir. Það er
djarft af ungum og óreyndum leik-
endum að takast á við verk af þessu
tagi, enda kennileitin fá á snúnu
einstiginu að hjarta persóna Shep-
ards. Það er fjarri því að þessum
hópi takist að fóta sig fullkomlega
allt til enda, en þeim tekst engu
að síður að standa sig furðanlega
og eftir situr einkennilega áleitin
minning um þessa litlu sýningu.
Verkið gerist á móteli í einhveiju
eyðimerkurríkja Bandaríkjanna.
Eddie nokkur leitar þar uppi vin-
stúlku sína, May, sem hefur hálf-
partinn falið sig þar fyrir honum.
Á milli þeirra liggja ótal þræðir,
ástarsamband með meiru. Nýr
kunningi May, gæðablóðið Martin,
kemur til að fara með henni í bíó
en Eddie sleppir þeim ekki svo auð-
veldlega. í bakgrunni er gamall
maður sem rifjar upp sögu sína og
hvernig hann, Eddie og May tengj-
ast í fortíðinni. Einn veikleiki þess-
arar sýningar er hversu illa er unn-
ið úr persónu gamla mannsins og
er þar ekki við leikarann að sak-
ast, heldur er engu líkara en leik-
stjórinn hafi ekki áttað sig á því
hversu mikilvæguni tilgangi sá
gamli þjónar í verkinu. Staðsetning
hans utan við sviðið og tengslaleysi
við hina leikendurna bendir a.m.k.
til þess.
Sigurður Líndal og Sara Dögg
áttu mörg falleg augnablik og sér-
staklega þótti mér til um góðan
flutning Sigurðar á sögu þeirra
beggja; þar tókst honum að halda
athygli áhorfenda óskiptri og draga
upp sterka mynd af innihaldinu.
Sara Dögg hafði einnig góðan skiln-
ing á May, viðbrögð og svipbrigði
voru sannfærandi en veiki hlekkur-
inn var framsögnin sem hún veit
sjálfsagt meira en nógu vel af sjálf.
Hún ætti samt ekki að láta það
draga úr sér kjarkinn.
Siguijón Starri kom skemmtilega
á skjön inn í þessa mynd og gerði
Martin einna líkastan saklausum
pilti að norðan. „Piltar að norðan“
finnast sjálfsagt líka í Ameríkunni
og mér þótti vænt um að Siguijón
Starri og leikstjórinn höfðu staðist
þá freistingu að gera Martin að
kjánalegum trúð. Leikendur standa
sig vel í þessari sýningu og leikstjór-
inn á vafalaust sinn þátt í því að
greinileg alúð hefur verið lögð við
hljóðvinnslu og lýsingu. Bakljósið
fyrir gamla manninn er samt algjör
óþarfi og beinlínis truflandi fyrir
áhorfendur. í sem stystu máli, þetta
er sýning með stóra kosti og áber-
andi galla en vel þess virði að sjá
hana.
Sara Dögg Ericsdóttir og Sigurður Lindal Þórisson eru Sjúk í ást
í Rósenbergkjallaranum þessa dagana.
Einsöngvai’ar og stjórnandi með Kammersveit Reykjavíkur,
Kammersveit Reykjavíkur
_________Tónlist____________
Jón Ásgeirsson
Kammersveit Reykjavíkur
hélt tónleika í íslensku óperunni
sl. þriðjudag. Fyrri hluti tónleik-
anna var helgaður Grieg en í
júni nk. eru liðin 150 ár frá fæð-
ingu hans. Auk laga Griegs voru
flutt söngverk eftir Leif Þórar-
insson og Arne/ Nordheim og eitt
kammerverk eftir Sveinbjörn
Sveinbjörnsson. Einsöngvarar
voru Þórunn Guðmundsdóttir og
Njál Sparbo. Konsertmeistari var
Rut Ingólfsdóttir en stjórnandi
Ingar Berby.
Flutt voru nokkur píanólög og
sönglög er Grieg umskrifaði fyr-
ir strengjasveit. Þessi smáverk
voru leikin af þokka, þó nokkuð
væru þau bæld á köflum og þar
af leiðandi tíðum nokkuð hljóm-
dauf. í þessum rómantísku verk-
um þarf stærri strengjasveit og
að því þarf að gæta, að það sem
hljómar sterkt upp á sviði, hefur
allt annan hljómstyrk út í sal.
Njáll Sparbo söng fimm lög Gri-
egs við ljóð eftir Vinje og söngv-
erkið Den Bergtekne, op. 32.
Sönglög Griegs njóta sín best í
samleik píanós, auk þess sem
umritun þeirra fyrir strengja-
sveit var heldur klén. Af Vinje-
lögunum eru Vorið og Móðir mín
gamla þekktust en öll lögin voru
vel sungin. Sparbo er mjög góður
söngvari og í söngverkinu, sem
Grieg samdi við þjóðkvæðið Den
Bergtekne, var flutningur söngv-
arans sérstaklega góður.
Reverie heitir kammerverk
eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson
og er það samið fyrir flautu,
selló og hörpu. Reverie er fallega
samið verk, og var ágætlega leik-
ið af Martial Nardeau, Elísabet
Waage og Sigurði Halldórssyni.
Angelus Domini er gamalt
verk eftir Leif Þórarinsson og
skemmtilegt að heyra hversu
nýstárleiki þess heldur sér vel,
en svo er um alla góða tónlist,
að þar fær tíminn engu um
breytt. Verkið var sérlega vel
flutt og átti söngkonan stóran
þátt í ánægjulegum endurfundi
við þessa faliegu og innilegu bæn
í þýðingu Halldórs Laxness.
Lokaverk tónleikanna var
Magic Island eftir Arne Nord-
heim. Verkið er að gerð eins
konar hljóðtjöid, enda samið við
texta úr Storminum eftir Shake-
speare. Hljóðumhverfi þess er
búið tii með kammersveit og raf-
hijóðum en tveir söngvarar flytja
textann, sem í fyrstu er nokkuð
slitróttur í framsetningu. Er líður
á verkið nálgast höfundurinn eða
réttara sagt sættist hann við
textann og tónverkið kyrrist
undir lokin. Hljóðskipan verksins
er víða áhrifamikil og hljómsveit-
arleik og rafhijóðum víða mjög
skemmtilega raðað saman. Þór-
unn og Sparbo fluttu verkið af
öryggi en oft reyndi á og er
ýmislegt í verkinu, sem er erfitt
að komast frá með góðu móti.
Þessa „fingurbijóta" yfirstigu
söngvararnir með glæsibrag.
Flutningur Kammersveitar
Reykjavíkur var í heild góður en
þó bestur í verkum Leifs og
Nordheim og auðheyrt að gesta-
stjórnandinn Ingar Berby er
ágætur stjórnandi, sem kom
hvað best fram í nútímaverkun-
um.
Við bjóðum þér: 10 fðiM sjónvarp & myndbandstski
SAMAN í PAKKA
AÐEINS KR. 49.900
Rétt verö kr. 65.335
Elta
Mini-
hljómtækja-
stæda
Tíu myndbandsspólur
á aðeins kr. 1*990
TILBODSVERÐ; mim
Réttverð kr. 34^900
■ CD-SPILARI ' •
> KASSETTUIÆKI
> tónjafnari ' '•
>■ ÚTVARP MW/Fm’- VÍPÓMa'
Víð hjá Tónver bjóðum besta verðið!
Á tímum harðandi samkeppni dugar ekkert annað en að bjóða betur en aðrir...
ENNFREMUR:
Utvíarpsk Iul« í< ir trá kr.
>oo
Hljómtacíi<i frá 9.900 VctSPidísko t: á kr 900
Ferðatæk: irá kr 1 .900 Biítæk: -r tíátöiíarcar kr.
Útvcarpjstoek( frá kr. 900
BYÐUR NOKKUR BETUR?
Nýtt símanúmer:
68 49 77
Sendum hvert á land sem er
MUNALÁN • ÞÝSK GÆÐAMERKI • ÁBYRGÐ
Erum fluttir að Suðurlandsbraut 12
Næg bílastæöi
Einleikur á selló á
sinfóníutónleikum
VERK eftir Haydn, Lutoslawski og Brahms verða leikin á
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Islands í Háskólabíói í
kvöld. Hljómsveitinni stjórnar Pólverjinn Wojciech Michni-
ewski og ungur sellóleikari frá Bandaríkjunum, Wendy
Warner, leikur einleik. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.
Wojciech Michniewski stundaði
tónlistarnám í Varsjá. Hann út-
skrifaðist með láði í tónsmíðum
og hljómfræðum
frá Chopin-aka-
demíunni þar og
stjórnaði Þjóðarf-
ílharmóníuhl-
jómsveit landsins
frá 1973. Síðan
hefur hann
stjórnað öllum
helstu hljómsveit-
um Póilands, var
meðal annars til
skamms tíma listrænn stjórnandi
Fílharmóníusveitarinnar í Poznan,
og sópað að sér verðlaunum í al-
þjóðiegum keppnum.
Wendy Warner var undrabarn
á selló, hún hóf tónlistarnám íjög-
urra ára og hefur síðustu ár notið
leiðsagnar sellósniliingsins
Mstislav Rostropovits. Hún er 21
árs gömul og hefur haft atvinnu
af tónlistinni síðan hún var átján
ára. Warner hefur unnið til fjölda
verðlauna og hróður hennar fer
sífellt vaxandi. Hún er orðin eftir-
sóttur einleikari víða um þeim.
Á tónleikunum verður ieikin 49.
sinfónía Haydns, Píslarsinfóníana,
sem hann samdi árið 1768. Selló-
konsert Lutoslawskis er tileinkað-
ur kennara Warner, Rostropovits,
og hefur verið lýst sem átökum
pólsku þjóðarinnar og kerfisins.
Loks flytur hljómsveitin þriðju
sinfóníu Brahms. Tónleikarnir í
kvöld eru hinir fimmtu í svokall-
aðri rauðri tónleikaröð.