Morgunblaðið - 18.03.1993, Side 36

Morgunblaðið - 18.03.1993, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1993 Minning Egill Bjarnason . Okkur langar að minnast í örfá- um orðum elskulegs afa okkar sem lést sunnudaginn 7. mars síðastlið- inn. Hann afi sem alltaf var svo kát- ur og glaður er nú horfinn á braut. Við minnumst hans með söknuð í huga. Afi var mjög bamgóður og til hans var gott að leita. Ætíð gaf hann sér tíma til að ræða málin og hafði gaman af að fylgjast með áhugamálum yngri kynslóðarinn- ar. Afi rak fombókasölu í áratugi. Þær voru ófáar heimsóknimar til afa í búðina. Alltaf gaukaði hann einhvetju að ungum sálum, en ör- læti var hans aðalsmerki. Hann var ungur í anda og hélt lífsgleði sinni og skopskyni óskertu, þótt árin færðust yfír. Stundum var hann svolítið stríðinn og þær vora ófáar glósumar sem flugu, en allt yar þetta meint í góðu og var sem krydd í tilverana. Afí hafði mikið dálæti á kökum, var sannkallaður kökukarl eins og langafabamið hans, Bryndís Dögg, kallaði hann oftast. Minningamar hrannast upp nú þegar hann er farinn frá okkur. Jólin hjá afa og 'ríimmu í Lundarbrekku vora sannarlega tilhlökkunarefni. Afí var hrókus alls fagnaðar og sló alltaf á létta strengi og af honum geislaði svo sannarlega lífgleðin. Afí söng með Kirkjukór Kópa- vogs í mörg ár og var söngur hans líf og yndi. Hann þýddi ýmsar þekktar óper- ettur og óperar. Einnig samdi hann og þýddi fjölda texta við kór- og einsöngslög. Hann var mjög hag- mæltur og var ekki mikið mál fyr- ' it hann að snara fram einni stöku eða svo. Afi Egill var félagslyndur og blíður maður sem talaði ekki illa um nokkurn mann. Sárt er til þess að hugsa að samverastundimar verði ekki fleiri því að afí hafði svo margt að gefa. Minning hans mun lifa í hjörtum okkar þótt dauðinn skilji að. Við kveðjum hann með nokkrum ljóðlínum eftir hann sjálfan. Nú sest ég niður og stilli strengi Þeir hljóma viðkvæmt svo hlýtt og lengi. Þeir tónar þýðir > og blævarblíðir um loftin dansa en deyja um siðir. Þótt fátt ég hafi af heimsins yndi þig siðast frá mér eg selja myndi. Um sæ og hauður þú ert minn auður og sá sem á þig er aldrei snauður. Ef sorgin mæðir þú með mér grætur og tárað tónaflóð titra lætur. X Tökum að okkur erfidrykkjur í ný uppgerðum Gyllta salnum. Hlaðborð og nýlagað kaffi kr. 790,- Hótel Borg sími 11440. Svo þungan stynur þinn strengjahvinur en undir hljómar ég er þér vinur. (Egill Bjamason) Egill, Hrefna, Gyða og Friðjón. Kveðja frá Kópavogsbraut la. Hvergi er betra að vera’ en á vinafundum og víst væri best að dvelja þar öllum stundum. En einn verður jafnan endir sérhverra funda: Áður en varir dregur til_ kveðjustunda. (ívar frá Steðja.) Ekki uggði mig að svo stutt yrði til kveðjustundar 6. mars, er við Egill settumst niður og ræddum um næsta fund í félaginu okkar hér í húsinu, en hann átti að halda viku seinna. Ágætur maður ætlaði að koma og flytja okkur sitthvað skemmtilegt. Egill sagðist hlakka til þessa fundar. Ef hann fær ein- hvetju um það ráðið verður hann áreiðanlega ekki langt frá okkur er við höfum næsta fund. Skömmu eftir að við fluttum í þetta hús (þar sem era 40 íbúðir), eða í árslok 1988, stofnuðum við félagið Dægradvöl. Síðan hafa ver- ið haldnir 63 skemmtifundir. Egill var að sjálfsögðu strax kosinn í stjóm félagsins og bar þar titilinn skemmtanastjóri. Þegar við, að honum gengnum, föram að hugsa um starfsemi félagsins fínnum við hve stór þáttur Egils var. Fjöldi sjálfboðaliða hefur skemmt á fund- um okkar, sumir komið oft og flest- ir fyrir milligöngu Egils. Þá kom berlega í ljós hve vel kynntur og vinamargur hann var. Hann stjóm- aði flestum fundum félagsins, hélt uppi þeirri léttu glaðværð sem honum var svo eiginleg, að ógleymdum söngnum sem hann stjórnaði, en söngur hefur verið stór þáttur í starfsemi félagsins, eins og hann hefur verið á öllum lífsferli Egils sjálfs. Helgakviðu (H. Tryggvasonar) orti Egill árið 1976. Mig langar að hér verði birtar nokkrar ljóðlín- ur úr Helgakviðu, og leyfí ég mér að breyta um nöfn, — Helgi í Egill: Mörgum greiða gerði hann Góðra manna hylli vann. Biðja Agli blessunar bókamenn og safnarar. Og síðar í kviðunni, þegar komið er að hinu gullna hliði og Pétur ávarpar komumann: Gjörðu svo vel að ganga inn um Guilna hliðið, Egill minn. Margir taka á móti þér... Kjartan Halldórsson frá Bæjum á Snæfjallaströnd við ísafjarðar- djúp lézt sunnudaginn 7. marz 1993, 75 ára að aldri. Kjartan fæddist í Bæjum 17. júní 1917. Foreldrar hans vora Halldór Halldórsson bóndi í Neðri-Bæ og Þorbjörg Brynjólfsdóttir húsfreyja. Kjartan ólst upp hjá foreldrum sín- um í Bæjum og var þar heimilisfast- ur til 1947. Kjartan varð snemma mikill at- gerfismaður. Hann varð búfræðing- ur frá Hvanneyri og vann að jarða- bótum í Djúpi og á Hornströndum. Hann var vegaverkstjóri í Snæ- fjallahreppi og smíðaði bryggjurnar í Bæjum og á Amgerðareyri. Það fór orð af Kjartani fyrir dugnað og atfylgi við þessi verk. Til þess var tekið, þegar hann 23 ára gamall gekk inn í kaupin á bryggjutimbri, sem ætlað hafði ver- ið annað. Það gerði hann til að knýja á um bryggjusmíðina á Bæj- um. Aðstandendum hans öllum send- um við einlægar samúðarkveðjur héðan úr húsinu. Blessuð sé minn- ing Egils Bjamasonar. Kristján Guðmundsson. í dag verður gerð útför vinar okkar og söngbróður Egils Bjama- sonar og langar okkur að minnast hans nokkram orðum. Egill kom til starfa í kirkjukóm- um hér í Kópavogi þegar hann var stofnaður árið 1952 og söng með honum óslitið síðan, þar til nú í vetur að fótaveiki meinaði honum kirkjugöngu. Á þessum langa starfsferli gefur augaleið að náin kynni hafa skapast meðal þeirra félaga, sem lengst hafa starfað saman, engin leið er betri en söng- gleðin til að sameina hugi og hjörtu einstaklinga. Já, hann Egill átti sönggleði í ríkum mæli. Segja má að söngurinn hafí verið stór þáttur í hans lífshlaupi. 16 ára gamall byijaði hann að syngja í kirkjukór á Dalvík og síðan hefur sönglistin verið hans tómstundaiðja allt frá því að syngja glaða gluntasöngva og til þess að syngja helstu kór- verk tónbókmenntanna með stærstu kóram þessa lands. Egill var hagmæltur vel og ósjaldan flugu hnyttnir kviðlingar við ýmis tækifæri sem félagarnir kunnu vel að meta. Einnig þýddi hann marga ópera- og óperettu- texta af mikilli vandvirkni, og vantaði texta við lög sem kórinn ætlaði að æfa var Egill ekki lengi að bæta úr því. Egill var fyrirmannlegur í fasi og snyrtimenni svo að eftir var tekið. Þar sat prúðmennskan í fyrirrúmi og aldrei hrutu styggðar- yrði af vöram hans, enda vinsæll af öllum sem honum kynntust. Honum fylgdi alltaf ljúfur andblær græskulausrar gleði og hans glettnislega bros kom öllum í gott skap. Kjartan kvæntist 11. júlí 1947 Kristínu Þorsteinsdóttur frá Áreyj- um í Reyðarfírði. Sama ár gerðist hann bæjarverkstjóri á ísafírði. Síð- ar tók hann að sér rekstur Upp- sala, húss sjálfstæðismanna á ísafírði, og þar hóf hann veitinga- rekstur ásamt Kristínu húsfreyju sinni. Á ísafjarðaráram sínufh tók hann sveinspróf í húsasmíði og stóð fyrir húsbyggingum. Árið 1958 fluttust þau hjón til Reykjavíkur og stofnuðu smur- brauðsstofuna Brauðborg, síðar keyptu þau ísborg í Austurstræti og enn síðar stofnuðu þau veitinga- staðinn Ingólfsbrann við Aðalstræti og ráku til starfsloka. Kjartan var mikill að vallarsýn og sópaði að honum hvar sem hann fór. Hann var rammur að afli og þó köttur liðugur. Með aldrinum safnaði hann holdum. Hann gerði það oft til skemmtunar vinum sín- um að tvista af hjartans list. Þá sveiflaði hann sínum mikla líkama Eyru okkar nema ekki lengur hans þróttmiklu bassarödd frá öft- ustu röðinni í kórnum en góð minn- ing um genginn hal geymist meðan við lifum. Við þökkum fyrir að hafa notið samfylgdar hans. Gyðu konu hans og allri fjöl- skyldunni sendum við innilegar samúðarkveðjur og biðjum þeim guðs blessunar. Kór Kópavogskirkju. Við Egjll Bjarnason vorum sveit- ungar og æskuvinir, hvor frá sín- um bæ í Svarfaðardal. Ekki kynnt- umst við þó að ráði fyrr en leiðir okkar lágu saman á Dalvík, þar sem Egill var snemma hrókur afis fagnaðar í hópi æskumanna. Komu þá strax í ljós helstu eiginleikar hans, hversu léttur hann var í skapi, vel máli farinn, laglega hag- orður og allra manna glaðastur í söng. Eftir að við Egill fluttumst báð- ir til Reykjavíkur urðu samskipti okkar brátt mikil. Auk sameigin- legra æskustöðva kom það til að tengsl mynduðust milli fjölskyldna okkar; Ingunn kona mín og Gyða kona Egils era náskyldar, og fylgdi þar vinátta frændsemi. Oft voru þau hjón kærkomnir gestir á heim- ili okkar, enda var samfara komu þeirra glaðværð og notalegt and- rúmsloft. Margsinnis gerðumst við Ingunn ferðafélagar þeirra hjóna, bæði innan lands og utan. Ekki var hægt að kjósa sér skemmti- legri ferðafélaga en Egil Bjama- son. Olli því létt lund hans, víðfeðm þekking og góð skaphöfn. Eigum við hjónin margar og ljúfar minn- ingar frá þessum ferðum, og hið sama má segja um öll kynni við Egil. Egill Bjamason fluttist tvítugur til Reykjavíkur og var þar búsettur til ársins 1953, en átti heima í Kópavogi alla tíð síðan. Fornbóka- verslun rak hann áratugum saman, enda var hún gildasti þáttur í lífs- starfí hans. Mörgum varð tíðföralt í búðina til Egils. Hann var ákaf- lega hjálpsamur og lagði oft á sig ómælt erfiði til að leysa vanda bókamanna. Hitt laðaði menn þó ekki síður að fombókasölu hans, hve viðræðugóður hann var, gamansamur og léttur í lund. Eitt sterkasta einkenni Egils Bjamasonar var tónlistaráhugi hans og hversu lifandi söngmaður hann var. Hann naut þess af alhug að syngja með öðra fólki. Allt frá 16 ára aldri heima á Dalvík og fram til síðustu stundar söng hann í kirkjukórum, mörg síðari árin í Kirkjukór Kópavogs. Hann söng í mörgum kórum öðrum, sumum landskunum og naut þess að taka virkan þátt í félagslífí þeirra. Þá þýddi hann og óperar, óperettur og marga sönglagatexta. Naut þar sín vel hagmælska hans og söng- og beygði fætur svo hann kom nið- ur undir gólf og reis upp aftur fjað- urmagnaður sem ungur hjörtur. Kjartan var mikill félagsmála- maður og gleðimaður, hrókur alls fagnaðar á mannamótum, höfðingi í sjón og raun. Hann hóf þátttöku í félagsmálastarfí í heimasveit sinni ungur að árum og hélt alla tíð tryggð við heimabyggð sína. Hann og félagar hans úr sveitinni endur- reistu fyrir nokkram árum félags- heimilið Dalbæ milli Bæja og Lyng- holts. Kjartan var virkur í Félagi Djúp- manna í Reykjavík og lengi gjald- keri félagsins. Hann verður okkur minnisstæður fyrir allra hluta sakir. Ég veit að ég mæli fyrir hönd allra Djúpmanna; við sendum Krist- ínu húsfreyju Kjartans samúðar- kveðjur. Helgi G. Þórðarson. Látinn er vinur minn og velgjörð- armaður, Kjartan Halldórsson frá Bæjum á Snæfjallaströnd. Það var af tilviljun að ég kynntist þeim mæta Vestfirðingi sem ásamt sinni góðu konu Kristínu Þorsteinsdóttur, átti eftir að halda í hönd mína og sona minna um langan tíma og styðja okkur á alla lund. Kjartan Halldórsson frá Bæjum - Minning hæfni. Egill Bjarnason var vænn maður og mikill gleðigjafí. Við Ingunn minnumst með þakklæti allra ánægjustundanna sem við áttum með þessum ljúfa vini okkar. Gyðu og börnum þeirra Egils sendum við hlýjar kveðjur. Valdimar Jóhannsson. Genginn er á vit feðra sinna Egill Bjamason eftir afkastamikla og viðburðaríka ævi. Mér er ljúft að minnast Egils, en þau hjón Egill og Gyða era ásamt foreldram mínum ein af frambyggjum í vesturbæ Kópa- vogs. Heimili þeirra hjóna var mik- ið menningarheimili þar sem tón- list og bóklestur var í hávegum hafður. Þá var garðurinn þeirra í Hófgerðinu sérstaklega fallegur og áttu þau hjónin ófá handtökin þar. Þá var hátíðleg stund að fá að líta inn í skúrinn hans Egils, þar var sem ævintýraheimur, allt fullt af bókum, og fylltist ég hátíðleik innan um þennan fjársjóð. Það þótti því alveg við hæfí þegar við Soffía sátum tímunum saman sitt í hvora homi og lásum bækur, á meðan önnur böm voru úti að leika sér. Egill var listamaður af guðsnáð, mikill íslenskumaður og talaði fal- legt og gott mál, og mikill áhuga- maður um tónlist, þýddi margar óperur og óperettur, svo sem Don Pasquale, Sígaunabaróninn, My fair lady og Fiðlarinn á þakinu, svo að fátt eitt sé upp talið, og samdi fjölda texta. Hann rak fornbókaverslun á Hverfísgötunni til margra ára og var það hans aðalstarf seinni árin. Þangað hafa margir lagt leið sína í gegnum árin. Þá nýtti hann sitt eigið hljóðfæri, röddina, til hinstu stundar, en hann hafði djúpa og fallega bassarödd og söng í mörg- um kórum. Hafa Kópavogsbúar notið krafta Egils í þijátíu ár í Kirkjukór Kópavogs. Trygglyndi er mér efst í huga þegar ég hugsa um fjölskylduna sem fyrram bjó í Hófgerðinu. Af því hafa þau hjón miðlað ríkulega til barna sinna þriggja, Hrafnkels, Ólafíu og Soffíu. Sem dæmi um trygglyndi Egils má geta, að ekki era nema þijú ár síðan ég fékk sendingu ásamt frumsömdu ljóði frá honum er ég hélt upp á stóran áfanga í lífí mínu. Ég þakka Agli samfylgdina, minn er heiðurinn, og bið góðan Guð að gefa Gyðu þrek og styrk. Soffía mín og Gunnar, Óla og Gunnar, Keli og Anna og barna- börnin, þið eigið minninguna um góðan dreng. Kveðjur eru sendar frá fyrram nágrönnum í Holtagerði 1, Gylfa Gunnarssyni og fjölskyldu. Þorgerður Gylfadóttir. Þau Brauðborgarhjón áttu út- réttar hendur. Þau leiddu okkur sem yngri vorum og efldu á alla lund. Það var oft glatt á hjalla, bæði í starfí og á heimili þeirra, sem svo sannarlega glæddi líf okkar starfs- fólksins. Ég hitti Kjartan því miður of sjaldan hin síðustu ár, en þegar hann var sjötugur, 17. júní 1987, hélt hann sem fyrr veglega veislu í Oddfellow-húsinu í Reykjavík, en í þeirri reglu var hann mæætur félagi. Kjartan'fyar smiður góður og ákaflega afkastamikill. Hann var ætíð glaður og reifur og lét aldrei deigan síga í þeim verkum sem hann tók að sér. Kjartan hafði mikla ánægju af félagsmálum. Hann var mikill sjálfstæðismaður og lét sitt aldrei eftir liggja í stjórnmálabar- áttunni. Það var sama hvað Kjartan tók sér fyrir hendur, hann var gaman- samur með afbrigðum, sterkur per- sónuleiki og járnvilji einkenndi öll hans störf. Genginn er góður drengur en minningin lifir. Bið ég góðan guð að blessa eiginkonu hans og ástvini þeirra og gefa þeim styrk. í guðs friði. . Salóme Herdís.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.