Morgunblaðið - 18.03.1993, Blaðsíða 17
17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1993
Til aðstandenda
Lestrarkeppninnar
miklu 8.-18. mars
í tilefni af Lestrarkeppninni
miklu viljum við kennarar við Snæ-
landsskóla í Kópavogi koma nokkr-
um athugasemdum á framfæri við
skipuleggjendur keppninnar.
1. Hugmyndin að baki þessarar
keppni er góðra gjalda verð og
kennarar að sjálfsögðu hlynntir því
að allt sé gert til að hvetja börn til
lesturs. En ýmis atriði varðandi
skipulag keppninnar teljum við
ámælisverð.
2. Við teljum að æskilegt hefði
verið að Kennarasamband íslands
hefði einnig verið aðstandandi að
keppninni, þar sem kennurum er
falið að sjá um framkvæmdina af
hálfu skólanna.
3. Fyrirvarinn á keppninni er allt
of stuttur. Kennarar skipuleggja
starf sitt langt fram í tímann og
því ekki víst að allir sjái sér fært
að aðstoða nemendur sína við að
taka þátt í keppninni núna. Ef fyrir-
varinn hefði verið meiri hefðum við
getað gert meira úr þesu og tengt
þetta betur skólastarfinu. Æskilegt
hefði verið að fá að vita af keppn-
inni núna og framkvæmdin yrði síð-
an næsta haust.
4. Að okkar mati eru 10 dagar
allt of stuttur tími fyrir svona
keppni/átak með tilliti til nemenda
með mismunandi lestrargetu og
hætta á að þetta verði ekki sú
hvatning sem til er ætlast.
Að lokum viljum við geta þess
til fróðleiks að í Snælandsskóla eru
mjög oft í gangi sérstakar aðgerðir
fyrir utan hina sjálfsögðu lestrar-
kennslu til þess að auka lestrar-
færni nemendanna. Þær ganga
undir ýmsum nöfnum, má þar nefna
Lestrarspretti, Kortér á dag, Lestr-
arormur, Lestrarhestur, Bókalistinn
þinn, Bókagerð o.fl.
Árlega er staðið fyrir bók-
menntakynningum og rithöfunda-
heimsóknum. I nóvember tók allur
skólinn þátt í Lestrarviku í sam-
vinnu við heimilin, síðan hefur það
verið mismunandi eftir árgöngum
hvað gert hefur verið í vetur. Snæ-
landsskóli ásamt Kópavogsskóla
fékk styrk frá Menntamálaráðu-
neytinu tl að gera átak í að efla
lestrarkennslu á unglingastiginu.
Fyrri hluta þessa átaks er að ljúka
fimmtudaginn 12. mars með sér-
stakri athöfn i skólanum. Á miðstig-
inu hafa nemendur unnið verkefnið,
„Bókalistann minn“ í allan vetur
og fá nemendur viðurkenningar-
skjal eftir að hafa lesið ákveðinn
fjölda af bókum. Á yngsta stiginu
hefur ýmislegt verið gert fyrir utan
það hefðbundna t.d. Lesum saman
korter á dag — samvinna heimilis
og skóla, Lesum korter á dag inn
í bekk, Bókagerð o.fl.
F.h. kennarafundar í
Snælandsskóla miðvikudaginn
4. mars 1993
Kristrún Hjaltadóttir,
Guðbjörg Emilsdóttir, Krist-
ín Björk Guðmundsdóttir,
Valborg E. Baldvinsdóttir.
HARÐVtÐARVAL
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010
ROSSIGNOl PóskcitHboó ó skíðum og skíóaskóm
20-60% AFSLATTUR
Barnaskíði.kr. 4.490 - áður kr. 6.450 Barnaskór.kr. 3.990 - áður kr. 5.485
Unglingaskíði. kr. 5.490 - áður kr. 7.960 Unglingaskór. kr. 3.990 - áður kr. 8.990
Fullorðinsskíði....frá kr. 6.990 Kvenskór kr. 7.990 - áður kr. 14.990
Gönguskíði.... kr. 4.990 - áður kr. 6.990 Stærðir 36-47 kr. 6.990 - áður kr. 9.390
BOSSIGNOl
SKÍÐASKÓR
»hummel^P
SPORTBÚÐIN
ÁRMÚLA 40,
SÍMAR 813555, 813655.