Morgunblaðið - 18.03.1993, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 18.03.1993, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1993 TVÆR TRILLUR FORUST VIÐ AKRANES Leitað á ströndinni BjörgTinarsveitarmenn frá Akra- nesi gengu fjörur við Akranes í gær. Tveir menn drukknuðu er Markús, fimm tonna trilla, fórst rétt utan við hafnar- garðinn á Akranesi. Brak af annarri trillu, Akurey, rak upp í víkina Leyni. Eins manns er saknað. Brot kom undir bátinn og velti honum á augabragði „ÞAÐ KOM brotsjór undir bátinn að aftan sem sneri honum við og velti honum heilan hring á augabragði. Við vorum samsíða bátnum þegar þetta gerðist. Ég sneri mínum bát frá. Skömmu síðar sáum við öðrum manninum skjóta upp úr sjónum en hinn, skipstjórinn, hékk í rekkverkinu," sagði Skarphéðinn Árnason, skipstjóri á Ásrúnu AK, sem horfði á tritluna Markús AK farast nokkur hundruð metra frá landi í innsiglingunni til Akraness. Skarphéðinn, sem hélt til_ veiða ásamt félaga sínum, Rúnari Óttars- syni, um áttaleytið í gærmorgun á Asrúnu AK, níu tonna trillu, kvaðst ekki hafa getað lagt net vegna haugasjós. Loftvogin hefði verið niðri og hefði hann strax talið víst að veðrið yrði ekki jafngott og spáð var. Sjómennirnir á Markúsi AK höfðu lagt net í fyrradag og ætluðu að draga í gær. Skarphéðinn var afar sleginn yfir atburðum dagsins, þegar hann lýsti þeim fyrir Morgun- blaðinu í gær. Báturinn valt heilan hring „Við vorum í talstöðvarsambandi við Markús AK og ákváðum að fara saman inn til hafnar þegar veðrið skall á. Við erum á stærri bát og töldum meira öryggi í því að fara saman inn. Við vorum komnir inn fyrir vita og vorum á móts við Har- aldshús. Það var ekki nema um þriggja mínútna stím í land. Þá kom brotsjór undir bátinn [Markús] að aftan sem sneri honum við og velti honum heilan hring á augabragði. Svartur dagur á Akranesi Skarphéðinn Árnason, skipstjóri á Ásrúnu AK, sem var samsíða Markúsi AK þegar hann fórst skammt undan landi í Akraneshöfn. Við vorum samsíða bátnum þegar þetta gerðist. Skömmu síðar sáum við öðrum manninum skjóta upp úr sjónum en hinn, skipstjórinn, hékk í rekkverkinu. Við renndum á milli bátsins og mannsins í sjónum og náðum honum upp með haka. Hann virtist vera látinn. Við gátum ekki sinnt honum því hinn beið,“ sagði Skarphéðinn. Annað brot reið yfir „Þegar við nálguðumst þann sem hékk í rekkverkinu tók sig upp ann- að brot og allt fór í kaf. Það braut langt upp í glugga á brúnni á mínum bát. Þegar brotið gekk yfir lágum við rétt hjá Markúsi. Maðurinn var þá að síga niður úr rekkverkinu og fossblæddi úr vitum hans. Rúnar náði til hans og hélt honum á með- an ég bakkaði frá, því brak lá allt í kringum bátinn. Við náðum manninum inn, en svo virðist sem hann hafi látist af þessu höggi. Ég sneri strax til lands og bað um að sjúkrabíll og læknir yrðu til taks er við kæmum,“ sagði Skarphéðinn. Lóraninn óvirkur Skarphéðinn sagði að enginn hefði verið í flotgalla, hvorki á Ás- rúnu né Markúsi, og taldi hann að það hefði litlu breytt þótt svo hefði verið. Hann kvaðst hafa talið í fyrstu að þeir væru komnir úr allri hættu þegar þeir voru komnir inn fyrir vita. Þeir hefðu farið rólega og fylgst vel með Markúsi AK, þar sem það væri minni bátur. Lóran- tækin hefðu verið óvirk, þau dyttu ævinlega út í svona veðri og þá réði bara hyggjuvitið. Lítið að marka veðurspár Þegar hann var spurður um hin snöggu veðrabrigði sagði Skarphéð- inn: „Hveijum hefur ekki komið þetta á óvart? Það var spáð hæglæt- isgolu. Það er eins og veðurspár dagsins eigi alltaf við veðrið sólar- hringi síðar. Það hefur verið ákaf- lega erfitt að henda reiður á veð- urspám í vetur, hveiju sem það sætir, verra en nokkru sinni áður,“ sagði Skarphéðinn, sem er 68 ára gamall, og hefur verið til sjós í marga áratugi. Skarphéðinn var afar þungorður í garð forsvarsmanna útvarp- stöðvarinnar Bylgjunnar, sem hann sagði hafa sýnt mikinn ruddaskap og tillitsleysi við aðstandendur sjó- mannanna þegar þeir útvörpuðu fyrstu fréttinni af þessum voveiflegu atburðum og nafngreindu bátana sem fórust aðeins einni klukkustund eftir að atburðirnir gerðust. Hröðuðu sér til lands er þeir sáu kólgubakka DAVÍÐ Guðlaugsson yfirhafnsögumaður á Akranesi sagði að fjöldi báta hefði verið að veiðum þegar veðurofsinn gekk yfir í gær. Sumir sjómannanna hefðu strax snúið til hafnar þegar þeir sáu kolsvartan kólgubakka í vestri. Þegar Davíð kom til vinnu um kl. 7.45 var blíðskaparveður, blæjalogn og ekki bærðist hár á höfði. Hann sagði að veðrabrigðin hefðu komið öllum á óvart. í sjálfu sér hefði veðr- ið ekki verið verra en oft áður um hávetur, en afar snögglega hefðu skollið á dimm él og aftakaveður. Sást ekki niður á bryggju „Veðrið hélst afar gott á Akra- nesi fram til kl. 10.30. Þá skal'i á með þessum gríðaréljum og stormi. Það gerði sótsvart á örskammri stundu og myrkur og ekki fór að rofa til fyrr en um kl. 12. Ég sá ekki héðan úr hafnsöguhúsinu niður að bryggju," sagði Davíð. Hann sagði að fyrstu bátarnir hefðu komið inn um kl. 12. Mönnum hefði strax ekki litist á blikuna og var farið í að athuga hvernig stæði á ferðum bátanna. Davíð þurfti að bregða sér niður á bryggju til að aðstoða eiganda Síldarinnar AK, sem lá þar vélarvana við bryggju, og kvaðst hafa heyrt í talstöð að það hefði orðið slys. Síldin sigldi þegar að slysstaðnum en þá hafði áhöfn Ásrúnar náð skipveijum á Markúsi um borð. Brak úr Akureynni Davíð hafði strax samband við Tilkynningaskylduna og björgunar- sveitina Hjálpina á Akranesi. Um svipað leyti fréttist af því að uppblás- inn gúmbjörgunarbát og brak úr Morgunblaðið/Sverrir Yfirhafnsögumaðurinn DAVÍÐ Guðlaugsson, yfirhafnsögumaður, segir það skjóta skökku við að floti Akurnesinga sé eingöngu litlir bátar, allir undir 30 tonn- um af stærð. stýrishúsi hefði rekið á fjörur í Leyni, lítilli vík skammt austan kaupstaðar- ins. Við athugun kom í ljós að brak- ið var úr Akurey AK 134, fímm tonna plastbát. Ekki hafði spurst til hans hjá hafnsögumanni, en Davíð sagði að báturinn hefði átt að vera kominn til hafnar um það leyti sem spurðist um brakið. Um borð í bátn- um var einn maður og er hans sakn- að. Eingöngu litlir bátar á Ákranesi „Þyrla Landhelgisgæslunnar kom skömmu síðar og leitaði hér með- fram fjörum. Upp úr þessu fóru bátarnir að tínast inn til hafnar. Þijú loðnuskip, Höfrungur, Víkingur og Bjarni Ólafsson, sem höfðu verið í loðnuleit, voru þarna fyrir utan og fylgdust með bátunum. Síðasti bát- urinn kom inn um kl. 17,“ sagði Davíð. Hann sagði að það skyti skökku við nú á tímum stórra togara að í flota Akurnesinga væru eingöngu litlir bátar, frá tveimur tonnum upp í 30 tonn. Enginn bátur væri stærri en 30 tonn, en 10-12 bátar væru 2-12 tonn að stærð. Davíð lenti sjálf- ur í erfiðri lífsreynslu þegar hann lokaðist inni í káetu lóðsbátsins Þjóts frá Akranesi er honum hvolfdi og hann sökk á hafnarsvæðinu við Grundartanga fyrir u.þ.b. einu ári. Félagi Davíðs, Árni Erling Sig- mundsson skipstjóri, fórst í því slysi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.