Morgunblaðið - 18.03.1993, Síða 31

Morgunblaðið - 18.03.1993, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1993 31* Hamborgari ásamt litlum skammti af frönskum og kokkteilsósu f r\ða °9 ★ Pítur ★ Steikur ★ Samlokur o.tl. sérréttir Ráðstafanir til að efla eiginfiárstöðu ínnlánsstofnana Ríkisstjórnin vill skjóta afgreiðslu RÍKISSTJÓRN íslands vill að frumvarp til laga um ráðstafanir til að efla eiginfjárstöðu innlánsstofnana fái skjóta afgreiðslu. Helst hefði þurft að afgreiða málið í gær. Það tókst að ljúka 1. umræðu en sljórnarandstæðingar telja sig þurfa nokkurn tíma til að skoða frumvarpið það orki sumt tvímælis og þurfi að breyta ef sátt á að takast um málið. í ræðu viðskiptaráðherra var ítrekað og endurtekið það sem fram hefur komið í fjölmiðlum um forsögu málsins, aðstæður og ákvæði frum- varpsins. Jón Sigurðsson viðskipta- ráðherra sagði þær ráðstafanir sem frumvarpið gerði ráð fyrir væru tví- þættar: Annars vegar að eiginfjár- staða Landsbankans yrði bætt sér- staklega og hins vegar að sett yrðu í lög ákvæði um almennan viðbúnað til að bæta eiginfjárstöðu banka og sparisjóða fyrir milligöngu trygging- arsjóða innlánastofnana ef þörf krefði. En langvinnir efnahagserfíð- leikar hér á landi og stöðugar fréttir af erfiðleikum innlánsstofnana í ná- grannalöndum gerðu það að verkum að mikilvægt væri að grípa til ráð- stafana til að auka traust á banka- kerfi landsins. Viðskiptaráðherra sagði sína skoð- un að með þeim aðgerðum sem hér væri gerð tillaga um væri tekið á vandamálunum með aimennari og raunsærri hætti heldur en gert hefði verið annars staðar. Hann nefndi að í sumum tilvikum í bankakreppu Norðurlanda hefði auk framlags og víkjandi láns, verið gripið til þess ráðs að ríkið hefði keypt „slæmar eignir“ bankanna svo sem vonlítil útlán eða fasteignir. Ríkið hefði ver- ið að stofna „úrgangssjóði". Við- skiptaráðherra taldi viðskiptastofn- anir betur hæfa til sinna slíku og losa slíkar eignir þegar færi gæfist. Og hann taldi ekki vera neinn vafa að þegar um ríkisbanka væri að ræða væri eðlilegast að eigandinn legði fram aukið fé til bankans frem- ur en að yfírtaka eignir af þessu tagi. Hagur ríkissjóðs Friðrik Sophusson fjármáiaráð- herra lýsti yfir eindregnum stuðningi Sjálfstæðisflokksins við þetta frum- varp og hvatti til þess að það fengi skjóta og örugga málsmeðferð á þinginu. Ræðumaður fór nokkrum orðum um frumvarpið og nauðsyn þess. En fjármálaráðherrann taldi sér skylt að benda á þau augljósu stað- reynd að þetta frumvarp hefði áhrif á fjárhag ríkissjóðs. Þeim milljörðum sem færðir yrðu til bankans þýddu það auðvitað að staða ríkissjóðs rýrn- aði að sama skapi. Fjármálaráðherra sagði á þessari stundu lægi ekki fyrir í hvaða formi þessar ráðstafanir yrðu gerðar en gera mætti ráð fyrir að það yrði gert með framlagi, t.d. skuldabréfa sem ríkið myndi þá greiða í tímans rás. Aðalatriðið væri að hér væri verið að styrkja eiginfjárstöðu bank- ans en ekki lausafjárstöðu. Það hefði þýðingu hvort verið væri að tala um greiðsluhalla eða reikningshalla í þessu sambandi. Ef ekki væri greitt með peningum yrði ekki um aukinn greiðsluhalla á þessu ári. En hins vegar breyti það ekki því að reikn- ingshallinn; niðurstaðan i ríkisreikn- ingi yrði a.m.k. 2 milljörðum króna lakari en ella. Gera mætti því ráð fyrir að reikningslegur halli yrði tals- verður og meiri en á síðastliðnu ári, eða a.m.k. 10 milljarðar ef ekki hærri tala. Fjármálaráðherra varð að benda á að fyrrgreint skerti möguleika ríkis- sjóðs til þess að nota útgjaldastefnu, t.a.m. fara af stað með framkvæmd- ir. Fjármálaráðherra sagði að nú um þessar mundir væri nokkuð sótt á ríkissjóðinn um að auka framkvæmd- ir en draga úr tekjum hans. Fjár- málaráðherra bað menn um að hafa í huga að þetta frumvarp væri að- gerð sem þjónaði þeim tilgangi að styrkja atvinnulifíð. Steingrímur Hermannsson (F-Rn) formaður Framsóknarflokks- ins sagði að framsóknarmenn myndu styðja það að eiginfjárstaða Lands- bankans yrði styrkt. En hann vildi taka það skýrt fram að þeir teldu að skoða yrði einstakar greinar mjög vandlega í efnahags- og viðskipta- nefnd. Steingrímur gagnrýndi harð- lega hvemig staðið hefði verið að þessu máli. Hann taldi að þyrlað hefði verið um „moldviðri" sem gæti skaðað bankann. Það hefði ekki ver- ið þörf á þessum flýti, Landsbankinn væri mjög öflug stofnun. Arðsemi af rekstri bankans hefði verið á síð- asta ári, 1,8 milljarðar króna, eða 30%, áður en hann hefði lagt í af- skriftarsjóð og greitt opinber gjöld. Þetta væri sannarlega ekki illa rekin stofnun. Steingrímur benti á að svo- nefndar alþjóðlegar BlS-reglur um eiginfjárstöðu væm afar óhagkvæm- ar Landsbankanum. Landsbankinn væri með um 70% af sjávarútvegin- um í viðskiptum. Öll veð í atvinnu- rekstri landsmanna væm talin 100%. Steingrímur taldi að við ættum að hafa nokkurt svigrúm um túlkun þessara reglna. íslandsbanki Ólafur Ragnar Grímsson (Ab- Rn) formaður Alþýðubandalagsins sagði fátt mikilvægara í atvinnu- og efnahagslífi þjóða en peningastofn- anir þess. Þess vegna ættu menn að vanda sig þegar þeir fjölluðu um málefni þessara stofnana. Orðstír þeirra réði um láns- og greiðslukjör þau sem íslendingum byðust á al- þjóðlegum peningamörkuðum. Á ein- um sólarhring hefði ríkisstjómin unnið þann skaða sem mörg ár tæki að vinna upp. Hann sagði að enga brýna nauðsyn hefði borið til að standa að málinu með þessum hætti. Ólafur Ragnar sagði að það hefði komið fram opinberlega á fundi efna- hags- og viðskiptanefndar að við- skiptaráðherra hefði tilkynnt banka- stjómm Landsbankans kl. 11. á þriðjudagsmorgni að ekki stæði til að grípa til neinna aðgerða næstu daga. Menn hefðu nokkra daga til að ræða málið. Ólafur Ragnar taldi því ástæðu til að spyija hvort við- skiptaráðherrann hefði ekki vitað hvað stæði til eftir hádegið eða hvort hann hefði greint frá með ósönnum hætti? Hvað hefði gerst í hádeginu? Ólafur Ragnar taldi að ríkisstjórn- in yrði að svara fleiri spumingum heldur en þeim sem vörðuðu aðdrag- anda og atburðarás. Ýmislegt í þessu frumvarpi vekti upp spurningar sem ekki yrði svarað á einum sólarhring. Viðskiptaráðherra hefði sagt fmm- varpið tvíþætt. Fyrsta og önnur grein frumvarpsins vörðuðu 2.000 milljóna króna framlag til Landsbanks. Ánn- að fjallaði um Tryggingarsjóð við- skiptabanka. Hæsta talan í fmm- varpinu væri ekki tveggja milljarða framlag til Landsbankans. Hæsta talan væri 3.000 milljóna króna ábyrgð á láni Tryggingarsjóðs við- skiptabanka. Af þessum þremur milljörðum ætti einn milljarður að fara í Landsbankann. Ólafur Ragnar taldi öll líkindi til að hinir tveir ættu að fara til íslandsbanka. Fmmvarpið gerði ráð fyrir að viðskiptaráðherra gæti á 5 mínútum fært inn í íslands- banka 2 milljarða af almannafé án þess að spyija Alþingi. Viðskiptaráðherra, Jón Sigurðsson, vildi vekja á því athygli að af 7 efnis- greinum snertu 5 málefni Lands- bankans. Og af 5 milljarða fjárheim- ildum í fmmvarpinu væm þrír millj- arðar beinlínis merktir Landsbank- anum. Málflutningur Ólafs Ragnars Grímssonar væri gjörsamlega út í hött. Hvað varðaði það hvemig að þessu máli hefði verið staðið og um ásakanir Ólafs Ragnars Grímssonar um ósannindi sagði Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra, að þar biti sök sekan. Fáir fæm með ósannara mál úr ræðustól heldur en háttvirtur átt- undi þingmaður Reykjaness, þ.e. Ólafur Ragnar Grímsson. Á fundi sínum með bankastjórum Lands- bankans hefði ekki verið fjallað ná- kvæmlega um tímasetningar í þessu máli. Viðskiptaráðherra sagði flest orka tvímælis þá gert væri en hafi einhveijir efast um nauðsyn þess að ljúka þessu máli skjótt, hafí sá efí allur horfði eftir að hafa heyrt og séð framgöngu Steingríms Her- mannssonar í fjölmiðlum kvöldið áð- ur og Ólafs Ragnars Grímssonar á þessum degi. Vaxtalækkun Kristín Ástgeirsdóttir (SK-Rv) formaður þingflokks Samtaka um kvennalista sagði að öllum mætti vera ljóst að efnahags- og viðskipta- nefnd þyrfti nokkurn tíma til að fara í gegnum þetta frumvarp. Hún sagði að ekki þyrfti að koma á óvart að gripið væri til aðgerða til að rétta hag Landsbankans sem hefðu at- vinnulífið á sínum herðum og ríkinu væri skylt að koma til hjálpar þegar erfíðleikar steðjuðu að. Kristín taldi mörg spumingarefni leynast í þessu frumvarpi, m.a. um hvernig staðið yrði að margræddri aðstoð og hvort þessi fyrirgreiðsla gæfí ekki bankan- um tilefni til að lækka vexti. Friðrik Sophusson fjármálaráðherra sagði bankaráð ákveða vexti bæði inn- og útlána. Og til þess teldi hann vera MMÍMil fullar forsendur óháð þeim aðgerðum sem fælust í þessu frumvarpi. Fjár- málaráðherra lagði áherslu á að Landsbankinn ætti ekki að nýta sér þessa fjármuni til að styrkja sam- keppnisaðstöðu sina óeðlilega um- fram aðra viðskiptabanka. Þarf að breyta Jóhannes Geir Signrgeirsson (F-Ne) nefndarmaður í efnahags- og viðskiptanefnd gagnrýndi þann flýti sem verið hefði á þessu máli. Svona vinnubrögð flýttu ekki framgangi mála. Hann staðfesti orð Ólafs Ragn- ars Grímssonar um að bankastjórum Landsbankans hefði ekki verið sagt á morgunfundi frá því hvað til stæði síðdegis. Kannski hefði ríkisstjómin misst tökin á atburðarrásinni í „pan- ik“. Jóhannes Geir taldi að gera yrði nokkrar breytingar á frumvarpinu til þess að ná sátt um þetta frum- varp. Jóhannes taldi eðlilegt að Tryggingarsjóður viðskiptabanka fengi heimild til lántöku til að endur- lána viðskiptabönkunum en ef menn væm að fást við vanda Landsbank- ans með þessu fmmvarpi þá væri það grundvallaratriði að lántöku- heimildin væri ekki upp á annað en það sem ætti að fara til Landsbank- ans. Jóhannes taldi einnig að 6. gr. fmmvarpsins væri algjör óþarfí, en þar er kveðið á um að skilyrði fyrir ráðstöfunum tiPað efla eiginfjárstöðu samkvæmt greinum fmmvarpsins væm að gerður yrði samningur milli viðskiptaráðherra og fjármálaráð- herra og hlutaðeigandi stofnunar. Jóhannes Geir sagði að Landsbank- inn hefði bankaráð sem starfaði í umboði Alþingis og Bankaeftirlitið væri eftirlitsaðili. Það væri mgl að setja viðbótareftirlitsaðila. Steingrímur J. Sigfússon (Ab- Ne) hélt ræðu og gagnrýndi harðlega „þetta vanhugsaða og illa undirbúna fmmvarp". Hann gagniýndi líka „taugaveiklun" ríkisstjómarinnar. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagðist þurfa sterkar taugar til að hlusta á ræðu Steingríms. Ekki hlutafélag Eggert Haukdal (S-Sl) taldi óm- aklega hafa verið vegið að Lands- bankanum, fleiri bankar ættu í erfíð- leikum vegna tapaðra lána. En Landsbankinn hefði sérstöðu. Stjórn- völd hefðu ætlast til þess að hann kæmi til hjálpar þegar á móti blæsi - í atvinnulífínu. Landsbankinn væri ekki verr rekinn en aðrir bankar. Það væri ekki sanngjarnt né heiðarlegt að meðhöndla hann eins og peninga- stofnun í greiðsluþrotum. En það væri í reynd gert með þessu frum- varpi. En það fæli í sér nokkurs konar neyðarhjálp með skilyrðum. Orsaka vandans væri að finna í láns- kjaravísitölunni. Eggert Haukdal sagðist ekki geta varist þeirri hugsun að viðskiptaráðherra sem vildi breyta ríkisbönkum í hlutafélög hyggðist með fmmvarpinu veikja stöðu Lands- ” bankans. Það væri illt verk. Eggert Haukdal sagði vegna þessara at- burða væri rétt að menn hættu við áform um að selja eða breyta ríkis- bönkunum í hlutafélög. Þess í stað mætti skoða það að sameina Lands- banka og Búnaðarbankann í einn sterkan ríkisbanka. Páll Pétursson (F-Nv) þakkaði guði fyrir að Lands- bankinn væri ríkisbanki. Fyrstu umræðu varð lokið og á áttunda tímanum í gærkvöldi var fmmvarpinu vísað til efnahags- og viðskiptanefndar með 40 samhljóða atkvæðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.