Morgunblaðið - 18.03.1993, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1993
41
Morgunblaðið/Sverrir
Þórunn Einarsdóttir barþjónn, Ingvar Stefánsson
og Sigurður Hjaltested, eiginmenn eigendanna
Sigríðar Guðsteinsdóttur og Asdísar Bjarnadóttur,
afgreiddu á barnum opnunarkvöldið.
Þær Dagný og Elín Bjarnadóttir mættu á staðinn
til að sjá hvaða breytingum staðurinn hefði tekið.
Morgunblaðið/Róbert Schmidt
Stúlkurnar hressar og kátar í hippaklæðnaði í grunnskólanum.
BÍLDUDALUR
A hippadiskóteki
SKEMMTUN
Sögðu
Grand og
opnuðu
Nýr bar, Grand, var opnaður
síðastliðinn föstudag á
Klapparstíg 30, þar sem áður var
skemmtistaðurinn N 1. Staðurinn
hefur tekið gagngerum breyting-
um undir stjórn eigendanna Sig-
ríðar Guðsteinsdóttur og Ásdísar
Bjarnadóttur. Húsnæðið er nú á
tveimur hæðum og hefur risið ver-
ið tekið undir setustofu. Alls kom-
ast nú 80 manns í sæti á Grand.
Til að byija með verður einung-
is opið um helgar, en að sögn eig-
endanna tilheyrir húsnæðinu stór
garður, sem reiknað er með að
verði tekinn í notkun í sumar fyr-
ir kaffiveitingar. Aldurstakmark á
Grand er 23 ár og verður aðallega
spiluð rokktónlist. Með vorinu
stendur til að hafa lifandi tónlist
og ýmsar uppákomur.
ær eru hippalegar þessar stúlk-
ur úr grunnskólanum á Bíldu-
dal. Skemmtinefnd skólans hélt fyr-
ir nokkru hippadiskótek og klædd-
ust margir eins og hipparnir á bló-
matímabilinu hér á árum áður.
Stúlkurnar sýndu meiri kjark en
drengirnir og mættu allar í hippa-
klæðnaði sem þær gerðu sjálfar
með hjálp foreldra og vina. En
drengirnir þorðu ekki í slíkan
klæðnað og voru hálf utan gátta á
diskótekinu. Stúlkurnar skemmtu
sér vel og nutu sín greinilega að
hverfa aftur um nokkra áratugi.
H'E^AINl^URENT
KYNNINO
á nýju vor- og sumarlitunum í dag og á morgun frá kl. 12-18.
Fimmtudag
Austurstræti
Föstudag
Laugavegi 80
Þórunn Jónsdóttir, förðunarfræðingur og Kristín Einarsdóttir
YSL leiðbeinandi veita ráðgjöf um förðun og litaval.
VERIP VELKOMIN.
AÐEINS
DAGAR
EFTIR AF HINUM EINA SANNA
STÓRÚTSÖLUMARKAÐI
FIMMTUDAGUR
FÖSTUDAGUR
1111
LAUGARDAGUR
VIÐSKIPTAVINIR ATHUGIÐ aö meðan
verslað er geta börnin horft á
skemmtilegar barnamyndir í sérstöku
barnaherbergi og fullorðnum er boðið
uppá FRÍTT kaffi.
HUSI FRAMTIÐAR
OPNUNARTÍMI:
FIMMTUDAG
13-18
FÖSTUDAG
13:00 TIL 19:00
LAUGARDAG
11:00 TIL 17:00
HINN EINI SANNI STÓRÚTSÖLUMARKAÐUR
FAXAFENI 10, HÚSI FRAMTÍÐAR
Xo^'