Morgunblaðið - 18.03.1993, Síða 50
50
Fimmtudag • föstudag • laugardag
VEGIHA BREYTINGM
Á BÚBINNIVERBUR
MEIRIHÁTTAR
RÝMINGARSAIA
IIM HELGINA!
Einstakt tækifæri til að
gera reyfarakaup!
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1993
ÚRSLIT
Handknattleikur
Víkingur - Ármann 31:18
Víkin, Islandsmótið í handknattleik kvenna,
úrslitakeppnin, miðvikud. 17. mars 1993.
Mörk Víkings: Svava Sigurðardóttir 8,
^T'HÍalla María Helgadóttir 7, Hanna Einars-
dóttir 4, Valdís Birgisdóttir 4, Inga Lára
Þórisdóttir 3, Matthildur Hannesdóttir 3,
íris Sæmundsdóttir 1, Elísabet Sveinsdóttir
1.
Mörk Ármanns: Vesna Tomajak 10, Elísa-
bet Albertsdóttir 2, Ellen Einarsdóttir 2,
Ásta Stefánsdóttir 1, Margrét Hafsteins-
dóttir 1, María Ingimundardóttir 1, Svan-
hildur Þorgilsdóttir 1.
■ Ármann veitt Víkingi keppni til að byija
með og komst reyndar í 6:4 en síðan tóku
Víkingsstúlkumar við sér og þá var ekki
aftur snúið. Staðan ( hálfleik var 16:11
fyrir Víking, sem jók muninn jafnt og þétt
til leiksloka. Svava átti stórleik fyrir Víking
og naut sín vel þv! Halla María var tekin
- úr umferð allan leikinn. Vesna Tomajak var
allt í öllu hjá Ármanni.
Stjarnan - Selfoss 16:25
Garðabær:
Mörk Stjörnunnar: Una Steinsdóttir 5,
Guðnú Gunnsteinsdóttir 3, Stefanla Guð-
jónsdóttir 3, Ragnheiður Steffensen 3,
Margrét Vilhjálmsdóttir 1, Sigrún Másdótt-
ir 1.
Mörk Selfoss: Auður Hermannsdóttir 11,
Heiða Erlingsdóttir 3, Hulda Bjamadóttir
3, Inga Tryggvadóttir 3, Guðrún H. Her-
geirsdóttir 2, Drífa Gunnarsdóttir 2.
IBV - Grótta 25:22
Vestmannaeyjar:
Mörk ÍBV: Andrea Atladóttir 8/1, Sara
Ólafsdóttir 7, Judith Estergal 7/2, Lovísa
Ágústsdóttir 2, Katrín Harðardóttir 1.
Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 2, Þórunn
Jörgensdóttir 14/1.
Utan vallar: 10 mín.
. ~^Mörk Gróttu: Brynhildur Þorgeirsdóttir 5,
Laufey Sigvaidadóttir 5/2, Elísabet Þor-
geirsdóttir 4, Vala Pálsdóttir 3, Sigríður
Snorradóttir 2, Björk Brynjólfsdóttir 2,
Þuríður Reynisdóttir 1.
Varin skot: Fanney Rúnarsdóttir 10/1.
Utan vallar: 6 mín. (Laufey Sigvaldadóttir
rautt spjald fyrir þijár brottvísanir á 47.
mín.)
Dómarar: Einar Sveinsson og Gunnlaugur
Hjálmarsson.
Áhorfendur: 80.
S.G.G., Eyjum
2. DEILD KARLA
UBK-ÍH......................25:21
HKN - Grótta................24:29
Gautaborg kemur enn á óvart
Marseille burstaði CSKA Moskvu 6:0 og AC Milan eráfram með fullt hús stiga
108 Reykjavík • (91) 68 74 99
AC Milan hélt áfram sigur-
göngu sinni í Evrópukeppni
meistaraliða ígær, vann Porto
1:0 og á góða möguleika á að
vinna Evrópumeistaratitilinn í
þriðja sinn á fimm árum. IFK
Gautaborg er eina liðið sem
veitir Evrópumeisturunum ein-
hverja keppni í B-riðli eftir 3:0
sigur á PSV Eindhoven. Mar-
seille burstaði CSKA Moskvu
6:0 og tók við það efsta sæti
A-riðils. Glasgow Rangers
vann Brugge 2:1 og er með
jafn mörg stig og Marseille.
AC Milan, sem lék án Hollending-
anna Gullits, Van Bastens og
Rijkaards og einnig Króatans Zvon-
imir Boban, sem allir eru meiddir,
hefur unnið alla fjóra leiki sína í riðl-
inum. Stefano Eranio gerði sigur-
mark AC Milan á 31. mínútu með
skoti rétt innan vítateigs eftir sam-
leik við Marco Simone. Frakkinn
Jean-Pierre Papin misnotaði tvö
marktækifæri áður en Eranio náði
forystunni.
IFK Gautaborg heldur áfram að
koma á óvart. Liðið vann PSV Eind-
hoven í Hollandi í fyrri leik liðanna
fyrir hálfum mánuði 3:1 og gerði
enn betur í Gautaborg í gær, 3:0.
Mikael Nilsson færði sænska liðinu
óskabyijun er hann skoraði á 2.
mínútu. Johnny Ekström, sem skor-
aði tvö mörk gegn PSV í fyrri leikn-
um, gerði endanlega út um vonir
PSV er hann bætti öðru marki við
fyrir leikhlé. Mikael Martinsson setti
þriðja markið í upphafí síðari hálf-
leiks. IFK er nú tveimur stigum á
eftir AC Milan í B-riðli, en liðin
mætast í næsta mánuði.
Reuter
Lelkmenn CSKA Moskva fengu rétt að þefa af knettinum í Marseille í
gærkvöldi. Hér spymir Abedi Pele knettinum - fyrir framan nefið á einum
rússnesku vamarmannanna.
Miðvallarleikmaðurinn Franck
Sauzee var í sviðsljósinu hjá Mar-
seille í gær — skoraði þrennu í 6:0
sigri gegn CSKA frá Moskvu. Hann
gerði fyrsta markið úr vítaspyrnu á
4. mínútu og bætti tveimur við á
34. og 48. mínútu. Ghanamaðurinn
Abedi Pele gerði þriðja mark liðsins
eftir frábæran einleik í gegnum
rússnesku vörnina. Varamaðurinn
Jean-Marc Ferreri, sem kom inná
fyrir Rudi Völler, og varnarmaðurinn
Marcel Desailly bættu tveimur
mörkum við áður enj yfír lauk.
Franska liðið er fyrst allra liða til
að gera sex mörk í riðlakeppni Evr-
ópukeppninnar síðan hún var tekin
upp.
Glasgow Rangers vann Club
Brugge, 2:1, í Glasgow og heldur
enn í vonina um að leika til úrslita
í keppninni. Scott Nisbet gerði sig-
urmarkið með skoti af 35 metra
færi á 71. mínútu. Mark Hateley var
rekinn útaf undir lok fyrri hálfleiks
fyrir að ráðast að varnarmanninum
Rudy Cossey og gefa honum oln-
bogaskot. En sá síðarnefndi hafði
áður brotið á Hateley.
Leikmenn Juventus færðu þjálf-
ara sínum, Giovanni Trapattoni sem
var 54 ára í gær, góða afmælisgjöf
með því að vinna Benfica, 3:0 í síð-
ari leik liðanna í UEFA-keppninni.
Juventus vann samanlagt 4:2 og er
komið í undanúrslit keppninnar.
Júrgen Kohler gerði fyrsta markið
eftir hornspyrnu og Dino Baggio
bætti öðru við einnig eftir horn-
spyrnu í fyrri hálfleik. Fabrizio Ra-
vanelli, sem kom inná sem varamað-
ur, gerði þriðja markið. Roberto
Baggio og Andy Möller fóru báðir
útaf meiddir í síðari hálfleik.
Einnig fjöldi annarra
tilboða.
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNIN