Morgunblaðið - 25.03.1993, Page 13

Morgunblaðið - 25.03.1993, Page 13
_________________ MORGUNBLAÐLÐ FlMMTUPAGURfgS. MARZ ']'e93 Nýtt umhverfi fyrirtækja á Evrópska efnahagssvæðinu Samkeppnisreglur í hnotskurn eftir Jóhannes Karl Sveinsson Nú dregur nær gildistöku samn- ingsins um Evrópska efnahags- svæðið. Samningnum fylgja réttindi og einnig skyldur sem við verðum að laga okkur að og uppfylla. Einn af fylgifiskum EES eru samkeppn- isreglur sem verða að mestu þær sömu og gilt hafa hjá EB. Þar hef- ur verið lögð töluverð áhersla á að reglurnar séu meira en orðin tóm og þeim framfylgt af nokkurri hörku. Það er því fyllsta ástæða til að reyna að gera sér grein fyrir því hvernig samkeppnisreglur birtast og að hverju þeim er ætlað að stefna. í þessari grein er í stuttu máli drepið á helstu reglurnar og nokkur dæmi tekin en smáatriðin látin liggja á milli hluta. Nýr og stærri markaður - aukin samvinna Ekki þarf að fjölyrða um að nán- ari samvinna Evrópuríkja á við- skiptasviðinu, með þróun Evrópu- bandalagsins og nú tilkomu Evr- ópska efnahagssvæðisins gefur fyr- irtækjum mörg ný tækifæri og að- gangur að stærri mörkuðum verður nú mun auðveldari en áður. Búast má við því að mörg fyrirtæki sjái sér hag í samvinnu sín á milli við að sinna hinum nýja og fjölbreytta markaði. Samvinnan getur átt sér stað með sameiningu fyrirtækja, stofnun nýrra fyrirtækja og margs konar samstarfssamningum. Allt getur þetta verið til góðs og leitt af sér meiri framteiðni sem ætti að skila sér í lægra vöruverði og bættri afkomu fyrirtækja. Hvers vegna þarf reglur um samkeppni? Það má segja að grundvallar- hugsunin að baki samkeppnisregl- um, í hvaða formi sem þær birtast, sé að virk samkeppni í viðskiptum leiði til mestrar hugsanlegrar hag- kvæmni í nýtingu auðlinda og rekstri fýrirtækja. Jafnframt hafa hagsmunir neytenda áhrif á mótun reglnanna og einnig má segja að það sé réttlætanlegt markmið í sjálfu sér að fýrirtæki sitji sem mest við sama borð, þ.e. að jafnræð- issjónarmið séu líka röksemdir fyrir samkeppnisreglum. Þá verður að taka fram að reglum um sam- keppni er ekki sérstaklega ætlað að vernda fyrirtæki sem eru illa stödd, eða ósamkeppnisfær, gegn sterkari fyrirtækjum. Alla jafna má ganga út frá því að fyrirtæki keppist um viðskipta- vini og að ekki þurfi neinar reglur til að tryggja að svo sé. Því kynni einhver að segja að samkeppnis- reglur væru óþarfar; í fijálsu mark- aðshagkerfí sjái markaðurinn sjálf- ur um að þeir hæfustu og best reknu komist af. Reynslan sýnir hins veg- ar að bæði fyrirtækin sjálf og hið opinbera hafa tilhneigingu til að raska hinum almennu samkeppnis- skilyrðum þannig að ekki verði við unað. Hvaða aðferðum er beitt til að tryggja virka samkeppni? Bann við samráði: í meginatrið- um bannar EES-samningurinn (og Rómarsáttmálinn) alla samninga, ákvarðanir og samstilltar aðgerðir fyrirtækja sem hafa að markmiði að koma í veg fýrir samkeppni eða takmarka hana, þ. á m. ákvarðanir um fast verð vöru, skiptingu mark- aða o.fl. Einfalt dæmi um brot gegn reglunni er samningnr Alþjóða knattspyrnusambandsins (FIFA) og ítalska knattspyrnusambandsins við ítalska ferðaskrifstofu um einka- sölurétt á sölu og skipulagningu á pakkaferðum á heimsmeistara- keppnina í knattspyrnu á Ítalíu sumarið 1990. Undanþágur eru gerðar frá reglunni í sérstökum til- vikum ef neytendum er veitt „sann- gjörn hlutdeild“ í þeim ávinningi sem af samráðinu fæst. Misnotkun á yfirburðaaðstöðu: Þær raddir hafa heyrst hér á landi að með tilkomu samkeppnisreglna EES þurfí að skipta upp stórum fyrirtækjum vegna þess að þau hafí yfirburðastöðu á markaði. Hið rétta er að markaðshlutdeild fyrir- tækis er ekki takmörkuð af reglun- um - það gæti þess vegna ráðið öllum markaðinum - en það er ein- ungis misbeiting yfirráðanna sem er bönnuð. Skilyrði þess að hægt sé að tala um brot gegn þessari reglu eru því að viðkomandi fyrir- tæki ráði svo stórum hluta markað- arins að það geti tekið ákvarðanir um óhæfilega hátt verð, ósann- gjarna samningsskilmála, takmark- anir á framleiðslu o.fl. án þess að þurfa að hafa áhyggjur af sam- keppnisaðilum, viðskiptamönnum eða neytendum. Ekki eru gefin upp nein fastákveðin viðmið um það hvenær fyrirtæki sé orðið markaðs- ráðandi í þessum skilningi en talið hefur verið að almennt mætti miða við helmingshlutdeild eða þaðan af meira. Það er þó athyglisvert að ráð er fyrir því gert að 20-40% hlut- deild á markaði geti talist ráðandi við sérstakar aðstæður. Eftirlit með samfylkingu fyrir- tækja: Árið 1989 tók EB upp regl- ur um eftirlit með samruna fyrir- tækja. Sambærileg ákvæði eru í EES-samningnum, en taka má fram strax að ekki er líklegt að samruni íslenskra fyrirtækja komi til álita vegna skilyrða um lág- marksveltu. í meginatriðum ganga samfylkingarreglurnar út á það að ef tvö eða fleiri fyrirtæki ætla að sameinast, eða maður sem þegar ræður yfír einu fyrirtæki nær yfír- ráðum í öðru fyrirtæki með kaupum eigna eða hlutabréfa, þurfi að til- kynna um þá samfylkingu til viðeig- andi eftirlitsaðila. Hann metur svo hvort samfylkingin komi í veg fyrir virka samkeppni á hinum sameigin- lega markaði. Dæmi um afgreiðslu samfylkingarmáls hjá EB eru ný- lega kaup PepsiCo á spænsku gos- drykkjafyrirtæki þar sem sagði í niðurstöðu framkvæmdastjórnar- innar að markaðshlutdeild PepsiCo á Spáni og í Portúgal færi ekki yfír 25% með kaupunum, kaupin hækkuðu hlutdeildina einungis um 1% og að sterkur samkeppnisaðili á borð við Coca-Cola væri fyrir á markaðinum. Grænt ljós var því gefíð þar sem ekki þótti vera hætta á að virk samkeppni minnkaði. Ríkisstuðningur: Meginreglan er að ríkisaðstoð og ívilnanir gagn- vart fyrirtækjum séu óheimilar ef ætia má að samkeppni á efnahags- svæðinu raskist þeirra vegna. Það eru ekki einungis bein fjárframlög sem kunna að vera óheimil, hag- stæð lánskjör og skattahagræði koma einnig til greina, og ekki breytir neinu þótt aðstoðin komi úr sjóðum sem ríkið hefur stofnað og fjármagnar. Frá meginreglunni um bann við ríkisaðstoð eru ýmsar undantekningar þar sem fram kem- ur að aðstoð vegna sérstakra að- stæðna, s.s. vegna tjóns af völdum náttúruhamfara, svæðisbundinna erfiðleika, sérstakra erfiðleika til- tekinna atvinnugreina o.þ.h., sé samrýmanleg eða geti samrýmst samkeppnisreglum efnahagssvæð- isins. Framkvæmdastjórn EB hefur í fjölmörgum tilvikum heimilað rík- isaðstoð á þeim grundvelli, t.d. til verksmiðja í austurhluta Þýska- lands, skipasmíðastöðva í Dan- mörku og einnig hefur ríkisaðstoð við fyrirtæki á Spáni og í Portúgal verið daglegt brauð hjá bandalag- inu. Á Islandi þurfa sennilega að verða veruleg umskipti hvað snertir framkvæmd ríkisstyrkja, vegna ákvæða samningsins um eftirlit með þeim, og fyrir þurfa að liggja fyrirframgerðar áætlanir um að- stoðina og nákvæmar upplýsingar um styrki sem veittir eru. Einnig hafa menn velt því fyrir sér hvort sjómannaafslátturinn svokallaði geti talist brot gegn þessari reglu vegna þess að þar sé um að ræða óbeinan styrk til útgerðar. Sú niður- staða yrði þó að teljast afar lang- sótt nema e.t.v. þegar um er að ræða afslátt smábátaeigenda, sem bæði sækja sjó og eru sjálfir í út- gerð. Opinber fyrirtæki: Sérstaklega er tekið fram í EES-samningnum að samkeppnisreglurnar gildi um opinber fyrirtæki og fyrirtæki sem hafa sérstök réttindi eða einkarétt. Eru því ríkisstyrkir til opinberra fyrirtækja að meginstefnu til bann- aðir. Einnig eru ákvæði í samningn- um um að hvað ríkiseinkasölur varðar megi ekki gera greinarmun milli ríkisborgara aðildarríkja samningsins við markaðssetningu eða aðdrætti til einkasölunnar. Opinber innkaup: Reglur EES- samningsins tryggja að öll opinber innkaup og verksamningar, sem eru yfir tiltekinni lágmarksfjárhæð skuli boðin út og samningar gerðir án tillits til þjóðernis fyrirtækja á efnahagssvæðinu. Útboðin þarf að auglýsa í stjórnartíðindum EB og fylgja þarf Evrópustöðlum. Ætla má að töluverður fjöldi útboða hér á landi sé yfír þeim viðmiðunar- Þorskurinn og Krafla eftir Jakob Jakobsson Föstudaginn 5. mars síðastliðinn birtist í Morgunblaðinu grein eftir Guðmund E. Sigvaldason jarðfræð- ing sem hann nefndi: Um vísindi og stjórnmál. í greininni rekur Guð- mundur það að á ráðstefnu jarðfræð- inga, sem nýlega var haldin í Kól- umbíu, hafi hann verið fenginn til að tala um framangreint efni og kosið að segja tvær sögur um sam- skipti vísindamanna og stjórnvalda. Önnur sagan greinir frá því að stjórnvöld tóku mið af umsögn vís- indamanna en það leiddi til gífur- legra mistaka og fjárhagslegs tjóns. Hin sagan segir frá Kröflu og stjórn- völdum sem hlustuðu ekki á um- sagnir vísindamanna og niðurstaðan varð einnig gífurleg mistök og fjár- hagslegt tjón. Fyrri sagan fjallar um franska vísindamenn sem voru ósammála um hættu af gosvirkni í eldíjalli á eyjunni Guadeloupe í Karíbahafi. Þegar stjórnvöld óskuðu umsagna um ástandið skiptust vís- indamennirnir í tvo andstæða hópa, annar hópurinn taldi öllu óhætt hinn spáði miklum hamförum. Stjórnvöld í Frakklandi gripu þá til þess ráðs að kalla eftir aðstoð alþjóðlegrar matsnefndar til að skera úr deilum franskra vísindamanna. Guðmundur telur í grein sinni að hér sé nokkuð nákvæm hliðstæða þess sem virðist eiga sér stað í skeytasendingum milli vísindamanna sem fást við sjáv- arlíffræði á íslandi og afstöðu stjórn- valda sem verða að velja á milli misvísandi umsagna og bendir á að í báðum tilvikum hafí verið kallað á óhlutdræga erlenda ráðgjafa til að meta innlendar rannsóknir. Það er misskilningur hjá Guð- mundi að þeir íslenskir vísindamenn, sem fást við rannsóknir í sjávarlíf- fræði, hafí gefið stjórnvöldum mis- vísandi umsagnir um ástand fisk- stofna. Þvert á móti hefur ráðgjöf þeirra verið einróma og það á ekki einungis við um sérfræðinga Haf- rannsóknastofnunar heldur einnig þá erlendu vísindamenn sem starfa á vegum Alþjóðhahafrannsóknar- áðsins en þeir skipta hundruðum. Misvísandi umsagnir um ástand fisk- stofna hafa því ekki komið frá þeim, sem vinna rannsóknarstörfin, heldur hinum sem hvergi hafa komið nærri þeim umfangsmiklu rannsóknum sem stundaðar eru á lífríki sjávar við ísland. Þá getur Guðmundur „Nær hefði verið að taka Kröflusöguna sem hliðstæðu þess hvað gerist þegar ekki er far- ið að vísindalegri ráð- gjöf. Það er einmitt það sem hefur gerst í stjóm á veiðum á íslenska þorskstofninum.“ þess að athugun alþjóðlegu mats- nefndarinnar á niðurstöðum fran- skra jarðvísindamanna hafi leitt í ljós að nánast allt sem þeir höfðu fram að færa var vitlaust mælt og niðurstöðurnar einskis virði. Hann getur þess hins vegar ekki að er- lendu ráðgjafarnir staðfestu niður- stöður Hafrannsóknastofnunar um ástand þorskstofnsins á síðastliðinu ári. Nær hefði verið að taka Kröflu- söguna sem hliðstæðu þess hvað gerist þegar ekki er farið að vísinda- legri ráðgjöf. Það er einmitt það sem hefur gerst í stjórn á veiðum á ís- lenska þorskstofninum. Árum saman hefur þorskaflinn farið langt fram úr því sem sérfræðingar Hafrann- sóknastofnunar hafa lagt til. Þetta á þó ekki við um alla fiskstofna. Til dæmis hefur oftast verið farið eftir ráðgjöf íslenskra vísindamanna sem stunda sjávarrannsóknir um nýtingu síldarstofnsins, loðnu, rækju og humars. Enda þótt á ýmsu hafi gengið í veiðum á þessum tegundum hafa ekki verið skrifaðar neinar „svartar skýrslur" um þær eins og þorskinn og skilur þar milli feigs og ófeigs. Hitt verða menn svo að skilja að stjórn fiskveiða er aðeins einn þáttur í mjög flóknu samspili manns og náttúru. Vöxtur og viðgangur sjáv- ardýra er ekki einungis háður skyn- samlegri nýtingu þeirra heldur einn- ig náttúrulegum aðstæðum í hafínu hveiju sinni. Aðalatriðið er það að nýtja þessar lifandi auðlindir sjávar- ins svo hófsamlega að jafnvægi vist- kerfisins raskist ekki. Þess vegna er mikilvægt að nýta sem flesta hlékki fæðukeðjunnar, veiða hval og sel, þorsk, síld og loðnu en gæta þess að ofbjóða engri einstakri teg- und, forðast að einn hlekkur keðj- unnar bresti. Auðvitað verður engin keðja sterkari en veikasti hlekkur hennar. Við skulum ekki gleyma því 13 Jóhannes Karl Sveinsson „Reynslan sýnir hins vegar að bæði fyrirtæk- in sjálf og hið opinbera hafa tilhneigingu til að raska hinum almennu samkeppnisskilyrðum þannig að ekki verði við unað.“ mörkum sem sett eru í EES-samn- ingnum og verði því að auglýsa í stjórnartíðindum EB. Niðurstaða Samkeppnismálum hefur til skamms tíma verið fremur lítill gaumur gefinn á íslandi. Síðustu misseri hefur þó nokkur umræða spunnist um þessi mál vegna sam- einingar fyrirtækja og fækkunar og stækkunar þeirra af öðrum or- sökum. Innan Evrópubandalagsins hefur verið lögð veruleg áhersla á að tryggja virka samkeppni og er komin nokkuð löng reynsla á fram- kvæmd samkeppnisreglna. Með til- komu EES-samningsins, þar sem mestur hluti samkeppnisreglna EB fylgir með, og nýjum íslenskum samkeppnislögum sem eru í sam- ræmi við EES-samninginn hefur skapast nýr umræðugrundvöllur um þessi mál og raunhæf úrræði fengist til að sporna við samkeppn- ishömlum. Ég vona að þessi grein hafí vakið áhuga einhverra á því að kynna sér þetta mál nánar og gefí nokkurt yfirlit yfír bakgrunn samkeppnisreglnanna og með hvaða hætti þeim er framfylgt. Höfundur er starfsmaður Landsnefndar Alþjóða verslunarráðsins á íslandi. Jakob Jakobsson. að á árunum frá 1920 til 1965 var góðæri á íslandsmiðum, þá var þar mikill þorskur og mikil síld en allt frá árinu 1965 hafa skipst á góð og vond ár til sjávarins og þetta hefur sett mark sitt á nytjastofnana og það er einmitt þess vegna sem svo nauðsynlegt er að stilla fískveiðun- um í hóf og hafa þær innan þeirra marka sem náttúran skammtar hveiju sinni. Þetta hefur mörgum reynst erfitt á þeirri miklu tækniöld sem við lifum nú á. Höfundur er forstöðumaður Hafrannsóknastofnunar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.