Morgunblaðið - 25.03.1993, Side 18

Morgunblaðið - 25.03.1993, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1993 Hin ómetan- legu tækifæri! eftirBjarna Einarsson í ritstjómargrein Morgnnblaðsins 12. febrúar sl. var íjallað um smá- munina, þessar 20 milljónir, sem okkur verður gert að greiða af hluta Svisslendinga í þróunarsjóð fátækra Evrópuþjóða samkvæmt endurskoð- uðum EES-samningi. Niðurstaða greinarinnar felst í niðurlagi hennar sem hljóðar svo: „Tuttugu milljónir króna eru ekki há upphæð þegar litið er á ríkisútgjöld íslendinga í heild. Og þær eru smápeningar þeg- ar litið er til þeirra gífurlegu tæki- færa, sem EES-samningurinn hefur upp á að bjóða. Við getum ekki beðið öllu lengur eftir þessum samn- ingi, vegna þess að hann er sú leið, sem við eygjum nú helst til meiri hagvaxtar og aukningar útflutn- ingstekna, sem getur skipt hundruð- um eða þúsundum milljóna króna. “ Þetta er að sjálfsögðu kjami máls- ins! Um íslenskan fréttaflutning Morgunblaðið er stærsta, víðlesn- asta og ríkasta blað landsins og það er gott blað. Til slíks blaðs verður að gera strangar kröfur því áhrif þess em mikil, því gera verður ráð fyrir, að mikill hluti þjóðarinnar trúi því, sem í blaðinu stendur. Einnig verður fólk að geta gert ráð fyrir að starfsmenn Morgunblaðsins séu vel upplýstir um það sem er að ger- ast utanlands sem innan, ekki síst um atburði, sem varða mikið hags- munamál okkar Islendinga. Ekki skortir til þess fé né aðstöðu m.v. aðra fjölmiðla. Undanfarna fímm-sex mánuði hafa atburðir skeð í Evrópulöndum og í löndum Norður-Ameríku, sem varða okkur miklu og, sem ættu jafnvel að geta skipt sköpum um utanríkisstefnu okkar. Ég hef furð- að mig á, að um mikið af þeirri atburðarás hefur ríkt því sem næst algjör þögn í íslenskum fjölmiðlum, og er Morgunblaðið ekki undanskil- ið. Þessi mál eru í mikilli umræðu í erlendum útvarpsstöðvum, beggja vegna hafsins, svo ekki sé talað um blöð þau og tímarit, sem hingað berast. En þær fréttir virðast hafa mjög takmarkaða dreifingu hér. Vegna fréttaskorts frá innlendum fjölmiðlum eru menn að taka af- stöðu til Evrópumála byggða á röng- um forsendum, á vanþekkingu. Dæmi um þetta voru umræðumar á fundi Verslúnarráðs þann 18. febr- úar. Ef flutt hefði verið erindi um efnahagsástand og horfur í EB byggt á þeim staðreyndum, sem nú liggja fyrir samkvæmt evrópskum heimildum, er það trú mín, að eng- inn fundarmanna hefði ljáð máls á inngöngu í EB og allir hefðu þeir verið í miklum vafa um afstöðuna til EES. Þama vom samankomnir menn, sem vinna að því að hagnast á viðskiptum. En heimssögulega atburði er ekki hægt að þegja í hel að eilífu. Ríkisútvarpið er aðeins að byrja að segja frá, en aðeins lítið eitt í einu. Stóri sannleikurinn er nefnilega sá, að á tímamótaárinu 1993, þegar Evrópubúum hafði ver- ið lofað gulli og grænum skógum, standa þeir frammi fyrir efnahags- samdrætti sem er að breytast í kreppu og spáð er þar svo hrikalegu atvinnuleysi, að félagsleg grann- gerð Evrópuþjóðanna getur verið í hættu. En forustumenn bæði ein- stakra þjóða og EB era svo ráð- þrota, að það eina sem þeir nú sjá til bjargar er vegagerð. Gjörbreytt hlutföll gengis Á árinu 1985 hófst eyðimerkur- ganga bandaríska dollarans. Þá hafði Ronald Reagan tekist að koma Bandaríkjunum því sem næst á hausinn. Einnig áttu bandarísk fyr- irtæki þá í mikilli baráttu við miklu tæknivæddari og betur skipulögð japönsk fyrirtæki á eigin markaði. Gengi dollarans féll mikið m.v. Evr- ópumyntir og þess vegna minnkaði útflutningur okkar á físki til Banda- ríkjanna jafnt og þétt en jókst að sama skapi til EB-landa. íslensku fiskvinnslufyrirtækin í Bandaríkj- unum og eigendur þeirra hér heima skoraðu á eigendur fisksins að van- rækja ekki bandaríska markaðinn þóft á móti blési um sinn en á það var ekki hlustað. Útflutningurinn til EB óx og óx, fyrst og fremst á ferskum, óunnum eða lítt unnum físki og á afurðum frystitogara, sem fjölgaði mikið. Úr atvinnu dró á Islandi en hún óx að sama skapi í Þýskalandi og Englandi. Eyðimerkurganga dollarans var í þetta sinn í lengra lagi, en henni lauk samt í október sl. Frá 1. sept- ember til 18. febrúar hefur dollar hækkað um 24%, sterlingspund lækkað um 11% og markið hefur hækkað um 6%, sem er jafngildi íslensku gengisfellingarinnar í nóv- ember sl. Mynd eitt sýnir mismun gengis- breytinga annarsvegar dollars og punds en hinsvegar dollars og þýsks marks frá 1. september til 18. febr- úar. Tölurnar á bak við þessa mynd tákna m.a., að 18. febrúar var 34% hagkvæmara að selja físk til Banda- ríkjanna en til Bretlands en það var L september og að sama skapi er orðið 18% hagkvæmara að selja fisk til Bandaríkjanna en til Þýskalands. Þetta þýðir, að þær fiskverðslækk- anir, sem orðið hafa í Bandaríkjun- um, skipta tiltölulega litlu máli og sama máli gegnir um tollalækkanir og niðurfellingar EB samkvæmt EES-samningi. Þó ekki sé tekið til- lit til lækkana síðustu daga og vikur á fískverði í EB era Bandaríkin nú orðin mun hagkvæmara útflutn- ingsland fyrir okkur en EB, eins og þau vora fyrir tæpum áratug. At- vinna getur nú að nýju aukist í frystihúsum eins og hún er að gera. febrúar sl. Á meðan uppsveiflan byggist á framleiðniaukningu veldur hún ekki verðbólgu og þá er hún varanleg. Bandaríkin era að fara upp um þrep í hagþróuninni. Þá verður Evrópa a.m.k. tveimur þrep- um á eftir Bandaríkjunum í fram- leiðni. En það, sem okkur íslendinga varðar mestu er, að í Ijós er komið það sem ég og fleiri höfum lagt áherslu á, að með því að veðja á Evrópu með því að ganga í EES, erum við að veðja á rangan hest. EES-samningurinn gefur okkur engar tekjur, engin ný tækifæri og engan hagvöxt. Innganga í innri markað EB færir okkur ekkert ann- að en valdaafsal, samdrátt, atvinnu- leysi og einangrun frá þeim heims- hlutum þar sem hlutirnir gerast. Framtíð okkar á að byggjast á miklu víðtækara alþjóðlegu samstarfi. Meira um hagþróun í Evrópu og víðar Ekki er langt síðan Evrópa logaði af bjartsýni og tilhlökkun til hins mikla tímamótaárs, 1993. Menn spáðu hagvexti í Evrópu allt fram á sl. haust. Síðan hafa hagspár ver- ið endurskoðaðar niður á við með stuttu millibili. í Bretlandi var þó komin alvarleg kreppa í sumar. I vor vora samdráttareinkenni farin að koma fram í Þýskalandi. Þá var skrifað í Economist, efnislega, að Þýskaland væri að breytast úr afl- vél EB í hemil. Ástæða þessara skrifa voru erfíðleikar Þjóðveija í austur-Þýskalandi. Þýskaland er lang öflugasta land EB og mikil- vægasti markaður flestra hinna EB-landanna. Samdráttur þar þýðir samdrátt í öllum EB-löndum. Nýj- asta talnaröð um hagþróun í Þýska- landi var birt í Newsweek, dags. 15. febrúar, sjá mynd 2. Súlurnar fyrir 1990 og 1991 sýna uppsveifl- una eftir sameiningu Þýskalands, á meðan Austur-Þjóðvetjar voru að nýta nýfengna kaupgetu sína til kaupa á vestur-þýskum vöram. Síð- an hafa hin miklu vandamál samein- ingarinnar náð yfírhöndinni, en þar hafa engar áætlanir staðist. En auk Mynd 1 oc no/ 30,0% i- 25,0%i- 20,0%-- 15,0% 4 - 10,0%^- 5,0% i- n no/ Jj. 34,4% 17,6% u,u /o —* 1 ■ $og £ $ og DEM Mikið hefur verið skrifað um þessar miklu breytingar á hagþróun í EB og Bandaríkjunum þótt þær umræður hafí lítið náð til íslenskra fjölmiðla. M.a. í Evrópu eru menn nú sammála um, að gengi dollarans sé nú álíka traust og gengi EB- gjaldmiðlanna er veikt. Hægt er að setja fram tilvitnanir í blöð og tíma- rit eins og European, Wall Street Joumal, Economist og þýsku og bandarísku fréttatímaritin o.fl. í stóram stíl, en það lengir þessa grein um of. En í krafti upplýsinga þessara fjölmiðla er hægt að full- yrða, að bandaríska hagkerfið er nú í öflugum vexti en í EB-löndum blasir við samdráttur og kreppa. Það sem nú knýr hinn bandaríska hag- vöxt er stóraukin framleiðni, sbr. t.d. greinina „America the super fít“ bls. 67 í The Economist 13. þess að austur-þýska hítin hefur sogað til sín jafnvirði margra tuga trilljóna króna í arðlausri fjárfest- ingu hefur þýskur sem annar EB- iðnaður verið að dragast aftur úr iðnaði Japana og Bandaríkjamanna í framleiðni. EB-ríkin eiga enn eftir að ganga í gegnum það, sem banda- ríski iðnaðurinn gekk í gegnum á síðasta áratug, það að ná japanska iðnaðinum. Auk þess eru Bandaríkin lang fremst allra ríkja í vaxtargrein- um nútímans, upplýsingaiðnaðinum (tölvur o.þ.h.) og fjarskiptaiðnaðin- um. í upplýsingaiðnaði stendur Evr- ópa óravegalengd að baki bæði Bandaríkjunum og Asíuríkjum. Við ríkjandi aðstæður er ómögulegt fyr- ir evrópsk fyrirtæki að loka þessu bili. Því veldur m.a. vaxtastefna Bundesbank, bankans sem ríkir yfír Evrópu. Þessi sjálfstæða stofnun er Bjarni Einarsson „EES-samningurinn gefur okkur engar tekj- ur, engin ný tækifæri og engan hagvöxt. Inn- ganga í innri markað EB færir okkur ekkert annað en valdaafsal, samdrátt, atvinnuleysi og einangrun ...“ einráð og virðist, með þijósku sinni, ætla að stuðla að hruni evrópsks efnahagslífs án þess að ríkisstjómir né kommisarar í Brassel geti rönd við reist. Vonlaust er að Evrópa nái vopnum sínum í samkeppninni við Norður-Ameríku og Asíu með skammtímavexti seðlabanka um 8% þegar samsvarandi vextir keppi- nautanna eru innan við 4% og jafn- vel innan við 3%. Núverandi ríkis- stjórn íslands og Seðlabankinn að- hyllast þýsku vaxtakenninguna. Það er mikilvæg skýring á hinu slæma efnahagsástandi hér. þá skoðun að lækka. verði vexti mjög mikið og fella verði gengi Evrópumynta ef von eigi að verða til þess, að óheillaþróun efnahags- málanna verði snúið við. En eins og Blake og fleiri segja hafast leið- togar Evrópu ekkert að, fljóta sof- andi að feigðarósi og virðast nú í blindni vera að efna til viðskipta- stríðs við Bandaríkin. Það er engin heims efnahags- lægð. Lægðin er yfír Evrópu, Vöxt- ur vergrar landsframleiðslu í Banda- ríkjunum var síðasta ársfjórðung sl. árs 4,8% en -í-5,5% i Þýskalandi. í Newsweek, dags. 22. febrúar, segir í grein sem heitir „The Roaring ’90s?“: „Hin dimmu ský áratugar fjárhagslegrar (economic) endur- skipulagningar era að leysast upp og í staðinn kemur óvænt sólskin." Efnahagsvandi Japana getur ekki kallast stórvægilegur á evrópskan mælikvarða. í iðnríkjum Asíu, öðr- um en Japan, hefur ekkert lát orðið - á hagvexti. Mesta ævintýrið er nú að gerast í fjölmennasta ríki heims- ins, Kína, þar sem hagvöxtur mæl- ist í tveggja stafa tölum. Þar er nú búist við mestu neyslusprengingu heimssögunnar á árunum fram til aldamóta þegar um 800 milljónir manna færast inn á það tekjustig að geta tekið þátt í neyslukapp- hlaupinu. Bæði Economist og Newsweek spá því að hagkerfi Kína verði orðið það stærsta í heimi innan tveggja áratuga. Evrópskir spádómar um atvinnuleysi í The European, dags. 30. des.-3. jan. sl., er sérstaklega fjallað um atvinnuhorfur í EB. Grein á bls. 35 ber fyrirsögnina „Eight million to join the work-less force“, sem út- leggst „Átta milljónir skulu ganga í sveit atvinnulausra". Greinin hefst á því, að draugar kreppuára fjórða áratugarins séu nú að umlykja Evr- ópu, en milljónir starfa muni glatast þar á næstu árum. Könnun Europe- an á ástandi 100 stærstu fyrirtækja Evrópu bendir til að atvinnuleysi þeirra vegna muni aukast mjög verulega fram til 1995. í smærri Glöggt kemur fram í fréttum og blaðaskrifum hve skriffinnamir í Brussel og forastumenn einstakra ríkja EB standa ráðþrota gagnvart þeim mikla samdrætti, sem þjáir efnahagslíf Evrópu, samdrætti sem er að breytast í kreppu. Athyglis- vert er að lesa tvær forsíðugreinar i viðskiptablaði European frá 1.-14. febrúar sl. Þar er birt viðtal við Brassel „commissioner" Henning Christophersen um efnahagsvand- ræði EB undir nafninu „Get us out of this mess, EC plea to Japan and United States“. Þar sárbænir hann Japan og Bandaríkin um að bjarga EB úr samdrættinum og kreppunni. En m.a. kemur einnig eftirfarandi fram um horfur í gengisþróun, í eigin þýðingu: „Dollarinn mun styrkjast gagnvart Evrópumyntun- um. Mikilvægt er að þessi styrking verði hæg og skipuleg, annars munu verðbólgutilhneigingar lifna aftur ef dollarinn hækkar of ört.“ Hin forsíðugreinin er eftir dálkahöfund European, David Blake, og heitir „Nul point for the timid bureaucr- ats“. I þessari grein gagnrýnir hann bæði Brussel-kommisarana og ríkis- stjórnir EB-ríkja fyrir aumingjaskap við að leysa eigin heimatilbúnu vandamál og hann setur m.a. fram fyrirtækjum, sem háð eru stórfyrir- tækjunum, tapa, að sögn European, þrír atvinnu fyrir hvem einn í þeim stóru. Þar með muni atvinnuleys- ingjum fjölga samtals um átta millj- ónir og heildaratvinnuleysi_ verði orðið yfir 23 milljónir 1995. í blað- inu er auk þess haft eftir aðstoðar- framkvæmdastjóra Alþjóða vinnu- málasambandsins, að raunveralegur möguleiki sé, að atvinnuleysingjar Evrópu verði 34 milljónir fyrir alda- mót. Sársaukanum, sem fylgir þessu ástandi, líkir hann við drepsóttir og hungursneyð, sem hijá önnur lönd. Þetta era, fljótt á litið, ótrúlegar upplýsingar. En það, sem fram hef- ur komið hér að framan skýrir þetta að mestu. Það sem þessar spár segja er, að 2-3 milljónir manna í EB muni ár- lega tapa vinnunni allan þennan áratug. Ekkert samfélag getur stað- ist slíka þróun, síst af öllu í ljósi þess, að Evrópubúum var lofað gulli og grænum skógum frá og með 1993. Vonbrigðin verða hrikaleg. Því er hætt við, að þessir atvinnu- leysisspádómar séu um leið spár urh félagslega upplausn og hugsanlega skálmöld í Evrópu og er ekki þar á bætandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.