Morgunblaðið - 25.03.1993, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1993
Heimsókn til kristniboð- f
anna í Pokoot í Kenya I
eftir Margréti
Hjálmtýsdóttur
Stundum finnst manni sumar
klukkustundir vera lengur að líða
en aðrar. Þannig var í mínum huga
þegar ég sat í breiðþotu KLM, flug
frá London/Amsterdam til Nairobi
í Kenya. Engin smáflugferð. Þar
á Nairobi flugvellinum tók á móti
mér og ferðafélaga mínum, ís-
lenski kristniboðspresturinn séra
Kjartan Jónsson og norski kristni-
boðinn Arvid Myra. Þeir keyrðu
okkur á hótel og var ég hvíldinni
fegin. Næsta dag fór ég í skoðun-
arferð um borgina. Nairobi er mik-
il borg með stórum byggingum,
fallegum blóma- og tjágörðum,
kirkjum, moskum, skólum, margs
konar söfnum, fyrsta flokks hótel-
um og veitingastöðum og fólkið
sem ég sá snyrtilega klætt og
prútt. Þó var hvítu fólki ráðið frá
að ganga einu um götur borgarinn-
ar að næturlagi.
Þegar ég og ferðafélagi minn
vorum á gangi heyrðum við óp og
hávær hljóð frá húsi einu miklu.
„Nú eru þeir að flengja" sagði fé-
lagi minn. „Flengja" spurði ég al-
veg undrandi. „Já þetta hús er lög-
reglustöðin og þar eru flengdir
óknyttastrákar, og sagt er að það
gefi góðan árangur til betri hegð-
unar“. En úr öðru húsi við sömu
götu heyrðist annars konar há-
vaði. Það var verið að messa og
fólk hrópaði, söng og dansaði af
miklu fjöri guði sínum til dýrðar.
Já, í Kenya kunna þeir að dansa.
í Bomas útileikhúsinu sýndu dans-
arar mikla leikni í dansi og akró-
batik. Dansarnir voru táknrænir
dansar frá ýmsum þjóðflokkum,
við mikla hávaðatónlist og trumbu-
slátt og með viðeigandi búningum.
Ógleymanlegt var að keyra um
í National Nairobi Park þar sem
Qöldi dýrategunda lifir fijálsu lífi.
Hópur gíraffa teygði langa hálsa
sína og starði á okkur forvitnislega
eins og þeir væru að hugsa hvað
þessir skrítnu litlu menn væru
ágætt rannsóknarefni. En örugg-
ara var að vera inni í bílnum þeg-
ar ljónafjölskylda gekk framhjá.
Pabbinn með spekinglegan tignar-
svip, vel vitandi af veldi sínu. Fal-
legu antillópurnar voru þarna í
hópum, svo liprar og þokkafullar
á hlaupum að mér komu í hug list-
dansarar, en einhver af þessum
yndislegu dýrum verða sjálfsagt
bráðlega á veisluborði ljónapabba.
Betra var að keyra greitt framhjá
nashyrningunum sem virtust reið-
ir, en strútamir gengu um stoltir
af sjálfum sér. Dýrategundimar
þarna era fjöldamargar og
skemmtilegt að sjá þær þarna
sjálfstæðar í þessum fallega þjóð-
garði.
Þvínæst var ferðinni heitið til
Pokoot en þar er aðalstarfsvið ís-
lensku kristniboðanna í Kenya.
Pokoot er eitt af afskekktustu og
fátækustu héraðum Kenya en
þangað er löng dagsleið I bíl frá
Nairobi. Sr. Kjartan keyrði okkur
í jeppa sínum og fræddi okkur um
það sem fyrir augu bar. Landið
fagurt, fjöll í ijarska, hæðir, dalir
og miklir vel hirtir akrar, snotur
hús og unglingar að gæta dýra.
En þegar lengra er haldið fer að
sjást fátæklegra umhverfi, íbúðir
fólks litlir moldar- og strákofar,
oft sofa dýr og menn saman á
kofagólfinu, engir gluggar eða
loftræsting. í kofunum er eldstó
og þegar reykjarsvæla og lykt af
dýraúrgangi blandast saman er
loftið ekki beint hressandi fyrir
ókunnuga. Þarna vora nokkrar
þokkalegar byggingar, svo sem
skólar og sjúkrahús, einig stórir
komgeymslutumar og fleira sem
sr. Kjartan sagði okkur að væru
gjafir frá mannúðarsamtökum eða
þróunarhjálp frá ýmsum löndum.
Eftir því sem lengra dró versn-
aði vegurinn og varð að moldargöt-
um með skorningum, djúpum gjót-
um og snarbröttum brekkum. Ég
varð hrædd og hélt að jeppinn
væri að velta þá og þegar, en sr.
Kjartan sem sjálfsagt hefur heyrt
óp og skræki úr aftursætinu, lét
það ekki á sig fá, en stýrði jeppan-
um af mikilli snilld um þessar veg-
leysur. Þegar við svo fórum niður
fjall eitt í svörtu þykku myrkri þar
Þessi glæsilegi ungi maður á
fimmtíu bi-æður. Faðir þeirra
sendi þá alla í skóla. Hann á fimm
konur.
sem enga ljósglætu var að sjá
nema geislana frá ljósum jeppans,
léttist hugur minn er birtist hús
með ljósum í gluggum. Það var
bústaður kristniboðshjónanna, sr.
Kjartans og frú Valdísar. Húsið
er snoturt, þægindin takmörkuð,
t.d. rafmagn frá sólarljósinu, vatn
oft af skomum skammti. Vörð
þurfa þau að hafa sem gengur um
með langt spjót og bægir frá óvel-
komnum gestum, fjórfættum og
tvífættum. En húsráðendur era
mörgu vön. Snyrtilegt heimili
þeirra, gestrisni, alúðlegt og glað-
legt viðmót ásamt hjálpsemi er
mér sérlega hugstæð.
Næsta dag fóram við á hátíð
sem. haldin var í tilefni opnunar
nýs grannskóla. Skólinn er mynd-
arlegasta skólabygging þar í hér-
aði. Islenskir og norskir kristniboð-
ar stjórnuðu byggingunni en ís-
lensk kona kostaði bygginguna
sem gefin var héraðinu. Margar
þakkarræður vora fluttar og
bamakór söng og að lokum matar-
veisla, allt til heiðurs gefandanum.
Næstu daga naut ég gestrisni
norskra kristniboðshjóna sem
bjuggu í ágætu húsi á svo fallegum
stað að þegar ég virti fyrir mér
útsýnið hugsaði ég að tæplega
hefði verið fegurra í paradís.
Skemmtilegt var að vakna á
morgnana við hanagal og baul í
kúm nágrannanna sem röltu
ófeimnar um tún kristniboðshjón-
anna með smala sínum, og horfa
á ljósu börnin hjónanna og dökku
börnin haldast í hendur og hlaupa
um í leik. Skammt frá var kirkja.
Ekki var þar altari eða prédikunar-
stóll, aðeins gráir veggir og reftað
yfir. En trúarhiti og einlægni
kirkjúgesta leyndi sér ekki. Mikil
tónlist og söngur, nokkrir héldu
tölur og þökkuðu kristna trú. Mér
fannst guðsþjónustan falleg og
áhrifarík þótt húsakynnin væru
fátækleg.
Sr. Kjaran og frú fóra með mig
í heimsókn til fleiri norskra kristni-
boða. Alls staðar sama alúðlega
gestrisnin. Við skoðuðum heima-
vistarskóla fyrir stúlkur sem Norð-
menn byggðu og mikil þörf er fyrir.
A einum stað var húsmóðirin
hjúkranarfræðingur og rak
hjálparstöð fyrir sjúka. Þegar okk-
Elite fyrirsæt-
an valin í kvöld
Tólf Nstúlkur keppa til úrslita á Ömmu Lú
Elite fyrirsætukeppnin fer fram í kvöld í veitingahúsinu Ömmu
Lú. Að þessu sinni taka 12 stúlkur þátt í keppninni. Húsið opnar
fyrir matargesti kl. 19 en dagskráin hefst kl. 21. Stúlkurnar
koma fram í tískusýningu, sýndur verður dans og loks tilkynnir
fulltrúi Elite í París sigurvegarann.
Kristján Rafn Heiðarsson og
Auðun Gísli Arnason.
Hafnarfjörður
Eigendaskipti
að Kænunni
EIGENDASKIPTI hafa orðið á
veitingahúsinu Kænunni við smá-
bátahöfnina í Hafnarfirði og hafa
þeir Auðun Gísli Árnason og Krist-
ján Rafn Heiðarsson tekið við
rekstrinum. Auðun Gísli er fram-
reiðslumeistari og starfaði við
veitinga- og hótelstörf í Skandin-
avíu í 9 ár. Síðustu 5 árin hefur
hann verið veitingastjóri á
Holiday Inn.
Kristján Rafn er matreiðslumeist-
ari og hefur starfað sem slíkur bæði
á íslandi og í Svíþjóð. Síðastliðin 2
ár hefur hann stundað framhaldsnám
fyrir matreiðslumenn við háskólann
í Lundi í Svíþjóð.
Kynnir kvöldsins verður Sig-
mundur Ernir Rúnarsson. Tíma-
ritið Nýtt Líf og Icelandic Models
eru umboðsaðilar fyrir Elite á ís-
landi.
Elite fyrirsætukeppnin hefur
farið fram árlega nokkur undan-
farin ár og hefur þáttaka ætíð
verið mikil. Sigurvegarinn hveiju
sinni tekur þátt í mikilli keppni
sigurvegara í hveiju landi.
Stúlkurnar 12 sem taka þátt í
keppninni era:
Magga Sigríður Gísladðtt-
ir, 18 ára.
Nína Björk Gunnarsdótt-
ir, 16 ára.
Lára Sif Jónsdóttir,
18 ára.
Sigríður Pétursdóttir,
18 ára.
Margrét Ólafsdóttir,
19 ára.
Sólveig Einarsdóttir,
17 ára.