Morgunblaðið - 25.03.1993, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 25.03.1993, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1993 Stríðástandi aflétt NORÐUR-Kóreustjórn lýsti í gær yfir, að lokið væri „stríðs- ástandinu", sem verið hefði um tveggja vikna skeið, en sagði ekkert um hvort hún ætlaði að leyfa alþjóðlegt eftirlit með kjarnaverum í landinu. 12. mars sl. ákvað stjómin í Pyongyang að hætta aðild að samningnum um bann við útbreiðslu kjarna- vopna en grunur leikur á, að verið sé að vinna að smíði þeirra í Norður-Kóreu. Áhyggjur í EB af Belgum ÁÆTLANIR um einn sameigin- legan gjaldmiðil Evrópubanda- lagsríkja frá 1997 hafa orðið fyrir nokkrum hnekki með stjómarkreppunni í Belgíu. Fjögurra fiokka ríkisstjórnin bauðst í gær til að segja af sér en þá hafði henni mistekist að ná samkomulagi um fjárlögin, skattahækkanir og afnám vísi- tölubindingar. Ef ekki fínnst lausn á þessum málum fljótlega eru horfur á, að Belgía verði undanskilin í áætlunum um sam- eiginlega gjaldmiðilinn. Þá gæti einnig farið svo, að Belgar tækju við forsetaembættinu innan Evr- ópubadalagsins í júlí án þess nokkur starfhæf ríkisstjóm væri í landinu. Það, sem gerir málin erfíðari, er skipting landsins milli tiltölulega velstæðra Flæm- ingja eða hollenskumælandi fólks og Vallóna, sem eru fátæk- ari og tala frönsku. Sony fær lóð við Potzdamer SONY-fyrirtækið japanska hef- ur fengið leyfi framkvæmda- stjómar Evrópubandalagsins til að kaupa eftirsótta lóð við Potzdamer-torg í Berlín undir höfuðstöðvar sínar í Evrópu. í heilt ár hefur staðið yfir rann- sókn á því hvort yfirvöld í Berl- ín, sem er umhugað um að laða til sín stórfyrirtæki, hafi boðið Sony óeðlilega hagstæð kjör við kaupin en í fyrra var þýska stór- fyrirtækinu Daimler gert að greiða 30 milljón mörkum meira en það hafði upphaflega greitt fyrir lóð við Potzdamer-torg. Sony greiddi um 3,7 milljarða ísl. kr. fyrir lóðina og mun greiða 1,7 milljarða að auki vegna sér- stakra skipulagsákvæða. Vilja hand- taka Fiat- forsljóra DÓMARAR í Mílanó á Ítalíu hafa fyrirskipað handtöku for- stjóra eins af dótturfyrirtækjum Fiat-fýrirtækisins og er hann sakaður um spillingu og mútur til stjómmálaflokka. Forstjórinn, Riccardo Ruggeri, er fjórði for- stjórinn hjá Fiat, stærsta einka- fyrirtæki á Ítalíu, sem er sakað- ur um spillingu, en hann er nú staddur í Bretlandi. Kviðristu- Kobbi af- hjúpaður EINHVER kunnasti morðingi allra tíma, Kviðristu-Kobbi, sem eltist við vændiskonur í þokufull- um öngstrætum Lundúna á Viktoríutímanum, verður af- hjúpaður í nýrri bók. Til hans náðist aldrei en í gegnum tíðina hafa ýmsir verið nefndir til, jafn- vel sumir háttsettir menn. Ut- gefandinn Smith Gryphon segir, að nú verði allt upplýst með bókinni „Dagbók Kviðristu- Kobba“, sem hann segir vera byggða á 64 blaðsíðna handriti, sem fundist hafi fyrir tveimur árum. Lögreglan sagði að mafíuforingj- amir tveir, Antonio Imerti, 47 ára, og mágur hans Pasquale Condello, 30 ára, hefðu verið vopnaðir þegar þeir voni handteknir á þriðjudags- morgun. Þeir hefðu þó gefist upp án þess að til skotbardaga kæmi. Imerti hefur verið nefndur „Nano Feroce", eða Grimmi dvergurinn, og mafíuflokkur hans hefur átt í harðri baráttu um völdin innan mafíunnar í Calabriu, héraði syðst á meginlandi Ítalíu. Vissi um smygl Gaspare Mutolo, fyrrverandi mafíósi, hefur nú skýrt rannsóknar- dómara frá afdrifum rannsóknar- blaðamannsins Mauro de Mauro sem hvarf sporlaust af heimili sínu í Pal- ermo 16. september árið 1970. Eng- ar vísbendingar fundust um afdrif hans en orðrómur var þó á kreiki um að augu blaðamannsins hefðu verið send í böggli til blaðsins sem hann starfaði fyrir. Þetta var þó aldrei staðfest. Mutolo skýrði frá því að Mauro de Mauro hefði verið rænt og hann Höfuðpaur fyrir rétt Kairó. Reuter. YFIRVÖLD í Egyptalandi afhentu í gær bandarískum alríkislögreglu- mönnum mann sem grunaður er um að hafa skipulagt hryðjuverkið í World Trade Center. Verður hann leiddur fyrir rétt við komuna til Bandaríkjanna. Haft er eftir heim- ildum, að hann heiti Mahmud Abu Halima, 34 ára gamall, og er talið, að hann hafí haft náin tengsl við Omar Abdel-Rahman, öfgafullan, egypskan prest. Meðan valdaránstilraunin mis- heppnaða reið yfír í ágúst 1991 reyndu flestir skynsamir embættis- menn að láta sem minnst á sér bera. Sumir voru í sumarleyfi, aðrir beittu gamalþekktri aðferð og urðu skyndi- lega „veikir". Rétt svipbrigði Þeir snjöllustu fóru fljótt á kreik er horfur virtust á að valdaránið væri að fara út um þúfur og lýstu yfir fullum stuðningi við Jeltsín. Þeir hlutu sín laun. Hinir, sem stutt höfðu valdaræningjana, höfnuðu úti í kuld- anum en á því voru þó undantekning- ar. Nokkrum tókst að halda sínum hlut með því að lýsa með nógu fögr- um og sannfærandi orðum ást sinni á lýðræðinu og gamla Rússlandi, einnig skipti miklu að fleygja flokks- skírteininu í öskutunnuna eða á eld- inn með eins miklum viðbjóðssvip og leikhæfileikamir gáfu kost á. Nú er vandinn meiri. Reiptogið milli Jeltsíns og þingsins er búið að standa svo lengi yfir og ekki er hægt að treysta því að úrslit náist alveg á næstunni. Þess vegna er ekki hægt að fela sig á meðan. Jelts- ín hefur auk þess látið í það skína að í þetta sinn verði engum fyrirgefíð / kirkjugarðinum Reuter EMBÆTTISMENN Sameinuðu þjóðanna sögðu í gær að hætt hefði verið að flytja særða múslima frá umsetna bænum Srbrenica í austurhluta Bosníu vegna harðra stórskotaárása Serba. Þijár franskar þyrlur höfðu flutt 21 særðan mann frá bænum nokkrum klukkustundum áður en hætt var við frekari flutninga eftir að tveir kanadískir hermenn á vegum Sam- einuðu þjóðanna særðust, annar lífshættulega, í stórskotaárás Serba á bæinn. Tvær breskar þyrlur sóttu hermennina. Embættismenn Sameinuðu þjóðanna mótmæltu árásunum harðlega, en Serbar höfðu lofað að hætta árásunum á meðan fólkið væri flutt á brott. „Lengra er ekki hægt að ganga í fyrirlitlegri framkomu," sagði breski stórdeildarforinginn Roddy Cordy-Simpson. A myndinni er öldruð, múslimsk kona að leggja blóm á leiði eiginmanns síns í Sarajevo. Mafíuforingjar frá Calabríu handteknir Róm. Reuter, The Daily Telegraph. TVEIR af helstu foringjum Calabríu-mafíunnar á Ítalíu hafa verið handteknir eftir að hafa verið á flótta undan lögreglunni í sjö ár. Þá hefur vitnisburður fyrrverandi mafíósa í Palermo leyst ráðgátuna um eitt þekktasta morðið í undirheimum Sikil- eyjar frá síðari heimsstyrjöldinni. síðan kyrktur að undirlagi Stefanos Bontades, sem þá var foringi maf- íunnar í Palermo. „Þeir sögðu að hann hefði valdið þeim of miklum vandræðum," er haft eftir Mutolo. Mauro de Mauro var á sínum tíma þekktasti blaðamaðurinn sem sér- hæfði sig í starfsemi mafíunnar. Fram hefur komið sú kenning að hann hafi komist yfír upplýsingar um hvernig mafían smyglaði eitur- lyfjum milli Kanada, Bandaríkjanna og Sikileyjar. „Ég hef nú undir hönd- um allar nauðsynlegustu upplýs- ingamar um smyglleiðina milli Sikil- eyjar, Frakklands og Kanada,“ sagði hann við starfsbróður sinn áður en hann var myrtur. Skömmu síðar komst upp um smygl á heróíni um Marseille í Frakklandi til Ameríku sem kvikmyndin „The French Connection" er byggð á. 1.000 drepnir Mafíósinn fyrrverandi upplýsti einnig að mafían í Palermo hefði ennfremur myrt fréttaritara dag- blaðsins II Giornale di Sicilia í Pal- ermo, Mario Francese, sem var skot- inn til bana við heimili sitt árið 1979. Það morð var upphafið að blóðug- asta, mafíustríðinu á Sikiley eftir síð- ari heimsstyijöldina; hartnær 1.000 manns voru drepnir, limlestir eða hurfu sporlaust á aðeins fimm árum. Lögreglumenn og lögfræðingar voru á meðal fórnarlambanna og 470 meintir mafíósar voru dregnir fyrir rétt vegna morðanna árið 1986. Einn af þeim sem töpuðu í stríð- inu var maðurinn sem talinn er hafa fyrirskipað morðin á blaðamönnun- um, Stefano Bontade. Hann flúði til Bandaríkjanna en var myrtur skömmu síðar. Banamenn hans voru sigurvegararnir í stríðinu, Corleone- mafían sem var undir stjórn Totos Riina, „foringja allra mafíuforingj- anna,“ sem var handtekinn á Sikiley fyrr á árinu. Togstreitan milli Jeltsíns forseta og afturhaldsins Þjonanur reyna aö veðja á réttan hest Moskvu. The Daily Telegraph. HÁ EMBÆTTI í Rússlandi hafa ávallt fært mönnum hvers kyns hlunn- indi auk launanna. Sovétkerfið endurgalt þægum, jakkafataklæddum þjónum sínum trygglyndið með því að sjá þeim fyrir einkabíl og bíl- stjóra, íbúð, sumarbústað, niðurgreiddum ferðum á sólarströnd við Svartahafið að ógleymdum aðgangi að sérstökum verslunum þar sem hægt var að fá erlendan munaðarvaming. Sumt af þessu hefur verið afnumið eftir hrun Sovétríkjanna, enn er þó eftir miklu að slægjast. Nú reyna margir að tryggja sér framtíðarstöðu með því að veðja á réttan hest í baráttunni milli Borísar Jeltsíns forseta og afturhaldsaf- lanna á þingi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.