Morgunblaðið - 25.03.1993, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 25.03.1993, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1993 33 HELGAR- OG VIKU- TILBOÐ VERSLANA STÓRMARKAÐIRNIR halda áfram að bjóða kjötvörur á tilboðs- verði en ekki er um jafn hagstætt verð að ræða og undanfarnar vikur. Þijár verslanir eru með nautalundir á tilboðsverði. Verðið er þó ekki það sama hjá öllum því í Hagkaup í Skeifunni og Kringl- unni og hjá Nóatúni er kilóið á 1.699 kr. en hjá Fjarðarkaupum 1.798 kr. Afslátturinn er engu að síður umtalsverður því venju- lega er kílóið á 2.300-2.500 krónur. Hjá Kaupstað er Bayonne- skinka á 895 krónur kílóið. Ilagkaup býður viðskiptavinum avokadó á hálfvirði eða 199 kr. kílóið og bananar eru á 99 kr. kílóið hjá Fjarðarkaupum. Þá má líka gera góð kaup á tómatsósu og sinnepi hjá Fjarðarkaupum. Bónus Tveir stðrborgarar keyptir og þá eru næstu tveir ókeypis. Stórborg- aramir eru úr nautakjöti og 140 g hver borgari. Brauð fylgir. Rækjur................469 kr. kg Niðursoðnar perur 850 g..87 kr. Bónus-kóla, endurbætt 21 ....89 kr. Maekintosh 2 kg.........1.799 kr. Kötlu-kakó 400 g..........149 kr. Fjarðarkaup Tómatsósa, 400 g...........29 kr. Sinnep, 400 g........... 29 kr. Castlefr. kart., 750 g..169 kr. Bananar................99 kr. kg Nautalundir.........1.798 kr. kg Þá flytur Fjarðarkaup inn Fixi- ex-bleiur frá Hartmann í Þýska- landi og kostar pakki með 36 Midi Girl-bleium 695 kr. Hagkaup Goða-Londonlamb.........698 kr. kg Avokadó................199 kr. kg Merrild Sp.-kaffí, 500 g.189 kr. Ren & Mild-sápuk., 2stk 259 kr. Olof-formkökur, 250 g...69 kr. Aukatilboð í Hagkaup í Skeifu og Kringlu frá K. Jónsson em: ítölsk og frönsk grænmetisblanda, 3 mism. stærðir ..59, 49 og 39 kr. Nautafíle.............1.399 kr. kg Nautalundir..........1.699 kr. kg Kaupstaðarbúóírnar Opal suðusúkkul. 200 g...119 kr. Pizzaland-pítsur,... 269 kr. stk. Danskt rauðkál, 720 g.....89 kr. Niðurs. gulrætur, 425 g...45 kr. Cirkel bran, hálft kg....179 kr. Bakaðarbaunir, 425 g.....39 kr. Ennfremur bjóða Kaupstaðar- búðirnar upp á Bayonne-skinku á 895 kr. kg á meðan birgðir endast. Nóatún í öllum verslunum Nóatúns standa nú yfír nautakjötsdagar. Áhersla er iögð á að kynna fyrir neytendum meyrt fyrsta flokks nautakjöt frá SS. Nautalundir..........1.699 kr. kg Nautafíle............1.399 kr. kg Nautagúllas............899 kr. kg Nautasnitsel...........999 kr. kg T-beinsteik..........1.299 kr. kg 4 hamborgararm/brauði....399 kr. Stroganoff 1944 m/Uncle Bens hrísgr...................394 kr. Bambolino-bleiur, 26 stk. ...299 kr. Fanta, 21.................99 kr. Verðmunurinn á kransakökum var jafnvel meiri en 80% milli bakaría NÝLEGA var á vegum Neyt- endasamtakanna gerð verð- könnun á kransakökum þar sem fram kom að verðmunur er óhemju mikill. Dæmi eru um ríflega 80% mismun á verði og enn meiri mun ef neytendur kaupa hráefni í kransakökur og baka sjálfir. Sem dæmi um verðmun má taka 14 hringja kransaköku sem kostaði 3.934 krónur hjá Breiðholtsbakaríi við Völvufell en var á 7.116 krón- ur hjá Nýja kökuhúsinu, Auð- brekku 2. Verðmunurinn nemur 81%. í þessari könnun komu Breið- holtsbakarí og Björnsbakarí við Klapparstíg best út en Nýja Köku- húsið var yfírleitt með hæsta verðið og Bakarameistarinn við Stigahlíð. LITLU G-mjólkurfernurnar eni kannski ekki jafn hagkvæm lausn og menn gætu haldið. Einn lítri af G-mjólk í kvartlítra- umbúðum kostar 128 krónur en sama magn í lítrafernu kostar 83 krónur. Lítri í litlum fernum er því rúmlega 54% dýrari en í 1 lítra umbúðum. Hér er miðað við leið- beinandi smásöluverð frá Mjólkurs- amsölunni. Hlutfallslega er sami verðmunur í heildsölu. 50 kaffibollar Litlu fernurnar era mikið notaðar á kaffístofum fyrirtækja og mjólkin aðallega notuð út í kaffí. Fernurnar eru oft illa útleiknar eftir að hafa verið kreistar og auk þess mjólkur- slettur allt í kring. Margir hafa nefnilega tekið upp þann leiða sið að setja rör í femumar í stað þess að klippa af einu horni þeirra og hella. Með því móti mætti nýta bet- ur innihaldið. Reikna má með að einn lítri af mjólk nægi í 50 kaffíbolla. Að sögn Sigurðar Haukssonar mjólkurfræð- ings hjá Mjólkursamsölunni er geymsluþol G-mjólkur í opinni femu um helmingi meira en nýmjólkur. Sé opin G-mjólk geymd í venjuleg- um ísskáp geymist hún í 10-12 daga. Opin nýmjólkurferna geymist hins vegar í 6-8 daga við sömu skilyrði. Munurinn felst í því að engir gerlar eru í G-mjólk þegar fernan er opnuð. Sé mjólk notuð í 5 kaffíbolla eða fleiri á dag er hag- kvæmara að kaupa G-mjólk í lítra- femu ef hægt er að geyma hana í ísskáp. Verðmunur á litlum og stórum femum felst í framleiðslukostnaði á umbúðum að sögn Adólfs Ólason- ar söiustjóra Mjólkursamsölunnar. Að hans sögn er jafndýrt að fram- leiða eina stóra fernu og eina litla. Áberandi meiri sala er á litlum fem- um en stórum og era kaffístofur og lítil mötuneyti helstu kaupendur. Adolf kvað Mjólkur-samsöluna vinna eftir umhverfísvænum mark- miðum en staðfesti að plasthúð inn- an á G-mjólkurfernum gerði endur- vinnslu illframkvæmanlega. ■ Þá má geta þess að í sumum tilvikum er akstur með kökuna að heimili kaupanda innifalinn og stundum era kransakökubitar inni- faldir. I sumum tilvikum er verð gefíð upp án styttu auk þess sem skreytingar era mismunandi eftir bakaríum. í ljós kom í könnuninni að erfítt reyndist að bera saman verð miðað við stærð því fæst bak- aríanna gátu tilgreint þyngd kakanna. Mismunandi var fyrir hvaða fjölda tertumar vora sagð- ar. Dæmi vora um að 20 hringja kaka væri fyrir 30 hjá einu bak- aríi og allt að 55 manns hjá öðru. Þá neituðu fjögur bakarí að veita Neytendasamtökunum verðupplýs- ingar; Árbæjarbakarí, Borgarbak- arí, Kökubankinn og Myllan. g Morgunblaðið/Sverrir Þær eru oft illa útleiknar þegar rör eru notuð. Skömminni skárra er að klippa af einu homi og hella úr Oþarfa kostnaður getur falist í mjólkurkaupum TTLBOÐ VIKIINNAR HAGKAUP - altí í einni feró

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.