Morgunblaðið - 25.03.1993, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1993
35
Norræn kvikmyndahátíð
Ung og ófullnægð. Úr finnsku myndinni Ástir Söru.
Ástir Söru
Brunnurinn
Sofie
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Sofie. Sýnd í Háskólabiói. Leik-
stjóri: Liv Ullmann. Handrit:
Ullmann og Peter Poulsen. Að-
alhlutverk: Karen-Lyse Mynst-
er, Ghita Nörby, Erland Josep-
hson, Torben Zeller, Jesper
Christensen. Danmörk.
Sofie er fyrsta bíómyndin sem
hin dáða leikkona Liv Ullmann
leikstýrir og skrifar hún einnig
handrit myndarinnar ásamt Peter
Poulsen. Hún hefur fengið frábæra
leikara eins og Erland Josephson
og Githu Nörby í lið með sér til
að segja sögu ungrar gyðingakonu,
Sofie, á ofanverðri nítjándu öld en
það er Karen-Lyse Mynster sem
fer með titilhlutverkið.
Ullmann gerir margt gott í leik-
stjórn myndarinnar en hefði mátt
beita skærunum frekar til að draga
söguna saman. Sýningartími henn-
ar er tæpur tveir og hálfur tími
og er frásögnin ofurhæg og róleg
í mjúkri og hlýlegri kvikmyndatöku
Jörgens Perssons. Lengdin er bæði
veikleiki hennar og styrkur. Það
eru ekki síst lítt áberandi smáatrið-
in bæði í umhverfi nítjándu aldar-
innar og aðallega persónulýsingum
og samskiptum persónanna sem
gera myndina í senn viðkunnan-
lega, skemmtilega og kímna
(minnir stundum á Merchant/I-
vory-myndirnar) en hún vill verða
svolítið langdregin fyrir bragðið
og kraftlaus í framsetningu.
Sofie segir frá gyðingafjölskyldu
í Danmörku en titilpersónan er ung
dóttir þeirra Josephson, er fer á
kostum sem góðhjartaður líf-
snautnamaður, og Nörby. Hún er
hálfvegis í tygjum við frægan list-
málara þegar ungur og óhijálegur
maður úr ijölskyldunni biður henn-
ar og fjölskyldan tekur af skarið
fyrir hana enda á stúlkan á hættu
að pipra eins og margar, sérstak-
lega kátar frænkur hennar. Við
tekur hjónalíf með fullkomlega
geðlausu manngreyi sem deyr á
endanum og Sofie snýr heim aftur
með syni sínum en veit að aldrei
verður neitt eins og áður.
Ullmann gefur sér nægan tíma
í frásögnina; myndar róleg hendur
sem stijúkast og hversdagslíf fjöl-
skyldunnar sem samanstendur af
óteljandi heimsóknum til pipruðu
frænknanna. En leikurinn er góður
og aldarfarslýsingin líka og eftir
stendur ljúf úttekt á lífi í föstum
skorðum, tíma sem líður í kyrrð
en er þó aldrei óbreytanlegur og
bældar þrár sem aldrei fæst svalað.
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Háskólabíó: Ást Söru („ Akvaaria-
rakkaus"). Leikstjóri Claes Ols-
son. Handrit Tove Idström.
Aðalleikendur Tiina Lymi,
Nicke Lignell, Minna Pirila,
Sartu Silvo, Antti Virmavirta.
Finnland.
Sara (Lymi) er ung og falleg
stúlka, kannski eilítið kynórafyllri
en aðrar. En grillurnar koma henni
í koll. Hún kynnist Joni, (Lignell),
ungum manni sem virðist hafa
alla burði til að fullnægja þörfum
hennar og ríku hugmyndaflugi.
En þótt hraustur sé og skilnings-
ríkur gengur dæmið ekki upp og
þau skilja um sinn.
Söru virðist skorta sjálfstraust
og hún leggur lag sitt við giftan
mann en unaðurinn, lætur á sér
standa og hún snýr til baka til Joni.
Hér er tekið fyrir kunnuglegt
vandamál, erfiðleikar einstaklinga
að ná saman kynferðislega. Eng-
inn má skilja það svo að á ferð-
inni sé einhver metnaðarlaus ljós-
blámi, öðru nær, það er reynt að
nálgast þetta viðkvæma efni á sem
eðlilegastan og raunsannastan
hátt.
Þetta gengur eftir — lengst af.
Persónusköpunin er skýr og auð-
velt að setja sig inní vandamál
unga fólksins. Lymi leikur Söru
ágætlega og fellur vel að myndar-
persónunni, falleg, hress og kát
en dulítið inní sér. Lignell fer engu
síður með erfítt hlutverk öllu opn-
ari manngerðar sem veit þó ekki
sitt ijúkandi ráð er honum reynist
um megn að fullnægja hjásvæf-
unni.
Það er ekki fyrr en langt er lið-
ið á myndina að hún fer að gefa
eftir og því miður gefst hún upp
við að leita svara við vandamálun-
um sem hún fjallar um, skilur við
persónurnar í sama hjakkinu, í
orðsins fyllstu merkingu. Þetta er
ergilegt því maður kann vel við
þessar persónur. Þær eru hrein-
skilnar og mannlegar, bæði fá
hendi handritshöfundar, leikstjóra
og ekki síst ágætra leikaranna.
Og það er hvergi verið að velta
sér uppúr ódýrri nekt né sölu-
mannslegum hvílubrögðum þó efn-
ið bjóði svo sannarlega uppá það.
En botninn er bersýnilega einhvers
staðar í Botníska flóanum.
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Háskólabíó: Svartir hlébarðar
(„Svarte pantere"). Leikstjóri
og handritshöfundur Thomas
Robsahm Tognazzi. Noregur.
Ungar og reiðar manneskjur eru
aðalpersónur fyrstu myndar hins
norska Thomasar Tognazzi — son-
ar Úgno, ítalska leikarans góð-
kunna. Þetta eru tveir piltar og
þijár stúlkur sem gerist undir-
heimafólk og leggst út á eyðibýli
einhvers staðar norður í landi.
Þaðan leggja þessir sjálfskipuðu
útlagar og mótmælendur uppí her-
ferðir til borganna þar sem þau
ræna og eyðileggja en megintil-
gangur neðanjarðarstarfseminnar
er að opna augu almennings fyrir
slæmri meðferð manna á dýrum.
Þau bijótast því gjaman inn í til-
raunadýrageymslur og hafa þau á
brott með sér.
Það er ýmislegt vel gert.í þess-
ari fyrstu mynd Tognazzis þó hún
beri það líka með sér að vera byij-
andaverk. Þetta unga fólk hefur
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Brunnurinn (,,Kaivo“). Sýnd í
Háskólabíói. Leikstjóri: Pekka
Lehto. Handrit: Outi Nyytaja.
Aðalhlutverk: Maria Larivaara,
Auvo Vihro, Liisamaija Laak-
sonen. Finnland.
Brunnurinn er hrollvekjandi
mynd úr finnsku sveitinni í ískaldri
og yfírvegaðri leikstjórn Pekka
Lehto eftir handriti Outi Nyytaja
um móður sem missir tökin á lífí
sínu og fínnur óskiljanlega hvöt
hjá sér til að myrða tvö yngstu
bömin sín.
Þessi óþægilega mynd hefst
þegar verknaðinum er lokið og
lögregla og leitarlið safnast á
bóndabæinn þar sem atburðirnir
eiga sér stað og leita móðurinnar,
sem er týnd ásamt tveimur börn-
um sínum. í endurliti er svo rakin
sagan sem leiðir til þess að móðir-
in grípur til voðaverkanna. Hvar
er skýringanna að leita á hegðun
móðurinnar? Engin einhlít svör eru
veitt við spurningunni og því situr
áhorfandinn eftir með gátuna. En
nokkrar vísbendingar eru gefnar
samvisku yfír hlutum sem almenn-
ingur er löngu hættur að sjá eða
heyra. Ein persónan segir sem svo
að „ef menn drepa kött stendur
öllum á sama en ef þeirra skemma
bíl þá þýðir það fangelsi". Og yfír-
völdin líta á hinar lengst af frið-
samlegu og áfallalitlu mótmælaað-
gerðir sem glæp og reyna að gera
hann sem mestan. Búa til einræð-
isherraímynd og þjóðfélagsóvin úr
leiðtoganum og sá eitri meðal
meðlimanna. Þannig verður góð
meining og þörf að glæp í augum
fólksins.
Leikstjóminni er vissulega
ábótavant á köflum, myndin er
brokkgeng en á marga góða kafla
og umhugsunarverða. Ungu leik-
ararnir fimm skila hlutverkum sín-
um vel þó að þeir séu að öllum
líkindum lítt reyndir að undan-
skildum þeim sem fer með aðal-
hlutverkið (því miður er engar
upplýsingar að hafa um nöfn
þeirra í annars vönduðu og vel
útlítandi dagskrárblaði hátíðarinn-
ar). Handritið er eftirtektai-vert
eins og myndin sem á alla athygli
skilda. Já, það er varasamt að
reyna að breyta heiminum.
sem þó reynast sára haldlitlar þeg-
ar litið er til hins hryllilega atburð-
ar.
Móðirín býr með eiginmanni sín-
um og þremur börnum á sveita-
býli ásamt móður sinni sem er í
því að eitra út frá sér og sá óvild
á milli hjónanna. Þannig einkenn-
ast samskiptin af illsku og hatri
og óbilgirni.
Brunnurinn er áhrifamikil og
átakanleg mynd um örvæntingu,
sjálfseyðingu og geðtruflun sem
leiðir til voðaverka. Leikstjórnin
er fullkomlega án málamiðlunar
en myndin lýsir verknaðinum í öll-
um sínum hræðilegum smáatrið-
um. Þrátt fyrir allt myndast samúð
með móðurinni, sem virðist á eng-
an hátt gera sér grein fyrir verkn-
aði sínum eða geta skýrt hann,
en kvelst ósegjanlega með hann á
samviskunni.
Myndin er frábærlega vel leikin
af Mariu Larivaara, Auvo Vihro
og öðrum sem fram koma og
myndatakan er frískleg; einkenn-
ist talsvert af hreyfanlegum
kranatökum og loftmyndum.
Pekka hefur gert eftirminnilega
mynd sem situr í manni.
Eríídnkkjur
Glsesileg iviiiii-
lilaðborð fidlegir
Síilir og mjög
g(K> þjónustiL
TJpplýsingar
í sínia 2 23 22
FLUGLEIÐIR
HÖTEL LOFTLEIÐIR
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
Svartir hlébarðar
Innrömmun
Listinn, Síðumúla 32
Kappkostum mikifi úrval ramma-
lista, hagstæð verð og stuttan
biðtíma. Sími 679025.
KENNSLA
Kynningarnámskeið
í hómópatíu veröur haldið 27.
og 28. mars. Fyrirlesari verður
Ðavid Howell, skólastjóri
Midlands skólans í Bretlandi.
Upplýsingar í síma 674991.
VÉLRITUNARSKÓLINN
ÁNANAUSTUM 15
101 REYKJAVÍK
SÍMI 2 80 40
Kanntu að vélrita?
Vélritun er undirstaöa tölvu-
vinnslu. Kennum blindskrift og
almennar uppsetningar á nýjar,
fullkomnar rafeindavélar.
Morgun- og kvöldnámskeið
byrja 29. mars.
Innritun í s. 28040 og 36112.
I.O.O.F. 5 = 17403258V2 = Br.
I.O.O.F. 11 = 1740325872=
□ HELGAFELL 5993032519 2
Fri.
St.St. 5993032519 VII
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Allir hjartanlega velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Almenn samkoma f kvöld
kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
ífÍæfyiAðaldeild KFUM,
\/ Holtavegi
Aðaldeildarfundur kl. 20.30 í
kvöld. Efni: Gamalt og nýtt. Nýja
húsið til sýnis kl. 20.00.
Allir karlmenn velkomnir.
Seltjarnarneskirkja
Samkoma í kvöld kl. 20.30 á
vegum Seltjarnarneskirkju og
sönghópsins „Án skilyrða".
Þorvaldur Halldórsson stjórnar
söngnum. Prédikun og fyrirbænir.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
Ferðir Ferðafélagsins:
Helgina 27.-28. mars
verður skíðaferð í Bláfjöllum
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjuitræti 2
Gist f skála. Brottför laugardag
kl. 09. M.a. gengið frá Bláfjöllum
að Kleifarvatni. Góð æfing fyrir
skíðaferöir um páskana.
Dagsferðir sunnudag
28. mars:
1. Kl. 10.30. Skíöaganga, Blá-
fjöll - Kleifarvatn.
2. Kl. 13.00. Fjallið eina - Sand-
fellsklofi - Sveifluháls.
3. Kl. 13.00. Skíðaganga: Undir-
hlíðar - Vatnsskarð.
Lengri ferðir um páskana:
8.-10. apríl: Snæfellsnes - Snæ-
fellsjökull.
8.-10. apríl: Landmannalaugar-
skíðagönguferð.
8.-12. april: Landmannalaugar-
skíðagönguferð.
8.-12. apríl: Skíðagönguferð frá
Landmannalaugum um Laufa-
fell, að Skjólkvíum.
10.-12. apríl: Þórsmörk. Spenn-
andi skíðagönguferöir - gisting
í húsum.
Ferðafélag íslands.
Söng- og lofgjörðarsamkoma í
kvöld kl. 20.30. Mæjorarnir Anna
og Daniel Óskarsson stjórna og
tala. Herkaffi.
Flóamarkaðsbúðin, Garðastræti
2, er opin í dag fró kl. 13-18.
Flóamarka&ur í Herkastalanum
föstudag 10-18 og laugardag
10-14.
Spiritistafélag íslands
Miðlarnir Pamela Killogg og June
Harris verða með stóran
skyggnilýsingafund i kvöld 25.
mars kl. 20.00 í Ármúla 40,
2.hæö.
Húsið opnar kl. 19.00.
Ókeypis aðgangur
Kaffi selt á staðnum.
Engar tímapantanir.
Stjórnin.
( kvöld kl. 20.30 er almenn sam-
koma í Þríbúðum. Fjölbreyttur
söngur. Ræðumenn Stefán
Baldvinsson, Ragnheiður Páls-
dóttir og Jón Sævar Jóhanns-
son.
Kaffi að lokinni samkomu.
Allir velkomnir.
Samhjálp.
Frá Sálarrannsóknafélagi
íslands
Breski miðillinn Gladys Fieldhouse
kemur og starfar hjá Sálarrann-
sóknafélagi (slands frá og með
29. mars til 7. apríl nk. Bókanir
í einkatíma hjá henni eru hafnar
í símum skrifstofunnar 18130
og 618130 og á skrifstofunni á
skrifstofutíma.
Stjórnin.
4