Morgunblaðið - 25.03.1993, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 25.03.1993, Qupperneq 48
48 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1993 IÞROTTIR UNGLINGA / BADMINTON TBR-helgi í Kaplakrika Badmintonspilararfélagsins fóru heim með átján gull af tuttugu BADMINTONSPILARAR frá Tennis og badmintonfélagi Reykjavíkur hrepptu átján af tuttugu gullverðlaunum á ís- landsmóti unglinga sem fram fór í Kaplakrika um síðustu helgi. Mótið varfjölmennt, 188 keppendur mættu til leiks frá tíu féiögum en Ijóst er að þrátt fyrir góða uppbyggingu víða er TBR enn stórveldið í íþróttinni, sérstaklega í eldri unglinga- flokkunum. Fjórir spilarar frá félaginu fengu „fullt hús“ á mótinu, og hrepptu gullverðlaunin í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik en það voru þau Katrín Atladóttir í hnátuflokki, Erla Haf- steinsdóttir í meyjaflokki, Vigdís Ásgeirsdóttir í telpuflokki og Njörð- ur Ludvigsson í piltaflokki. Vigdís Ásgeirsdóttir TBR. Átti ekki von á keppni „Eg hef aldrei spilað svona spenn- andi leik en fyrir leikinn átti ég ekki von á að þær mundu veita okkur keppni," sagði Katrín Atladóttir TBR, þrefaldur íslandsmeistari í hnátuflokki eftir sigur hennar og Aldísar Pálsdóttir á þeim Elísu Við- arsdóttir og Þóru Helgadóttir úr Badmintonfélagi Hafnarijarðar í úr- slitum tvíliðaleiksins. Oddalotu þurfti til að knýja fram úrslit og leikurinn stóð á aðra klukkustund sem gerði það að verkum að áætlun mótsstjórnarinnar riðlaðist á sunnu- deginum. Katrín og Aldís höfðu bet- ur í hörkuspennandi oddalotu 17:14 þar sem lengi vel var jafnt á tölum. Unnum á keppnisskapinu „Ég held að við höfum unnið þær á keppnisskapinu, við vorum seinar í gang og gerðum svolítið af mistök- um í fyrstu lotunni en spiluðum mun betur í þeim tveimur seipni,“ sagði Vigdís Ásgeirsdóttir sem ásamt Margréti D. Þórisdóttur lagði Skaga- stúlkurnar Brynju Pétursdóttir og Birnu Guðbjartsdóttir að velli í tví- liðaleik telpuflokksins. Brynja og Birna mættu ákveðnar til leiks og sigruðu í fyrstu lotunni 15:12. „Við vorum ákveðnar í að vinna leikinn og byijuðum vel en við vorum full ákafar í síðari lotunum. Við höfum oft spiiað við þær áður og oftast tapað og stundum með miklum mun,“ sagði Brynja. Þess má geta að Brynja lék til úrslita í öllum þremur greinunum í telpna- flokki en varð ætíð að lúta í lægra haldi fyrir Vigdísi. Erfitt að spila úrslitaleiki „Það er alltaf erfítt að spila úr- slitaleiki og þá sérstaklega á Islands- Morgunblaðið/Fro8ti Björn Jónsson úr TBR varð sveinameistari í einliðaleik. ÚRSLIT Úrslitaleikir á íslandsmóti unglinga í badminton sem haldið var í íþróttahúsinu i Kaplakrika um síðustu helgi. Keppt var í einliða-, tvfliða- og tvenndarleik í fjórum aldursfiokkum. HNOKKAR OG HNÁTUR (U-12) Emil Sigurðsson UMSB - Friðrik Christ- iansen TBR 11:1 og 11:2. Katrín Atiadóttir TBR - Aldís Pálsdóttir TBR 12:11 og 11:2. Emii Sigurðsson UMSB/Bjami Hannes- son ÍA - Friðrik Christiansen/Helgi Jóhann- esson TBR 15:5 og 15:2. Katrín Atladóttir/Aidís Pálsdóttir TBR - Elísa Viðarsdóttir/Þóra Helgadóttir BH 15:7, 12:15 og 17:14. Friðrik Christiansen/Katrín Atladóttir TBR - Helgi Jóhannesson/Aldís Pálsdóttir TBR 15:0 og 15:12. SVEINAR OG MEYJAR (U-14) Bjöm Jónsson TBR - Ingvi Sveinsson TBR 11:1 og 11:4. Erla Hafsteinsdóttir TBR - Ingibjörg Þorvaldsdáttir TBR 11:4 og 11:2. Haraldur Haraldsson/Ingvi Sveinsson TBR - Magnús Helgason/Pálmi Sigurðsson Víkingi 15:11 og 15:6. Erla Hafsteinsdóttir/Hildur Ottesen TBR - Anna Sigurðardóttir/Hrund Atladóttir TBR 15:9 og 15:3. Björn Jónsson/Erla Hafsteinsdóttir TBR - Ingvi Sveinsson/Hildur Ottesen TBR 15:4 og 15:2 DRENGIR OG TELPUR (U-16) Tryggvi Nielsen TBR - Haraldur Guð- mundsson TBR 15:8 og 15:1. Vigdís Ásgeirsdóttir TBR - Brynja Pét- ursdóttir ÍA 11:3 og 11:2. Haraldur Guðmundsson/Orri Árnason TBR - Sigurður H. Þórisson/Sveinn Sölva- son TBR 15:12 og 17:14. Vigdís Ásgeirsdóttir/Margrét D. Þóris- dóttir TBR - Brynja Pétursdóttir/Birna Guðbjartsdóttir ÍA 13:15, 15:11 og 15:9. Haraldur Guðmundsson/Vigdís Ásgeirs- dóttir TBR - Orri Ámason/Magnea Magn- úsdóttir TBR 15:9 og 15:11. Ýmislegt var gert sér til gamans í frítímum. Til að mynda var haldin kvöldvaka á laugardagskvöldið þar Til Svíþjóðar í æfingabúðir Fjórir unglingalandsliðsmenn í badminton, þau Hjalti Harðars- son TBR, Birna Guðbjartsdóttir ÍA og tvíburarnir Jón Einar og Ásgeir Símon Halldórssynir úr TBR héldu til Svíþjóðar á mánudag í æfingabúð- ir hjá sænska félaginu Lugi. Jafn- framt munu þau stunda nám við menntaskóla í Málmey sem bíður upp á bóklega fræðslu um badmin- ton. Einn íslendingur, Tómas Garð- arsson stundar nám við skólann. BSÍ sendir sex keppendur á Evr- ópumót unglinga sem fram fer í Búlgaríu um páskana en endanlegt lið hefur ekki verið valið. Morgunblaðið/Frosii Tryggvi Nielsen TBR sigraði örugglega í einliðaleiknum í drengjaflokki og varð Islandsmeistari í piltaflokki í tvíliðaleiknum. Morgunblaðið/Frosti Það var mikið hvíslast á í úrslitum tvíliðaleiksins í tátuflokki. Hér eru það þær Elísa Viðarsdóttir og Þóra Helgadóttir úr Badmintonfélagi Hafnarfjarðar sem leggja á ráðin. PILTAR OG STULKUR (U-18) Njörður Ludvigsson TBR - Ásgeir S. Halldórsson TBR 15:6 og 15:3. Brynja Steinsen TBR - Aðalheiður Páls- dóttir TBR 11:8 og 11:5. Njörður Ludvigsson/Tryggvi Nielsen - Ásgeir S. Halldórsson/Jón E. Halldórsson TBR 14:17, 15:4 og 15:7. Brynja Steinsen/Valdís Jónsdóttir TBR - Aðalheiður Pálsdóttir’/Elísabet Júlíusdóttir TBR 15:6 og 15:10. Njörður Ludvigsson/Aðalheiður Pálsdótt- ir TBR - Ásgeir S. Halldórsson/Brynju Pét- ursdóttir ÍA 15:9 og 18:15. mótum. Þetta er fyrsti íslandsmeist- aratitilinn minn í einliðaleik en ég er einu ári eldri en flestir í flokknum og held að ég hagnist á því,“ sagði Björn Jónsson eftir sigur sinn á Ingva Sveinssyni í úrslitum einliða- leiks í sveinaflokki. Björn hreppti tvenn gullverðlaun á mótinu en varð af þeim þriðju þegar hann féll út í undanúrslitaleik í tvíliðaleiknum. sem íslandsmeistarinn Broddi Kristj- ánsson sýndi á sér nýja hlið og skemmti mönnum með söng. Þá bpídduðu félagar í BH upp á leikjum við góðar undirtektir og Ákurnesing- ar buðu upp á nýstárlega tískusýn- ingu. Aldís Pálsdóttir og Katrín Atladóttir urðu Tátumeistarar í tvíliðaleiknum eftir hörkuspennandi viðureign. Brynja Pétursdóttir ÍA varð að sætta sig við þrjú silfurverðlaun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.