Morgunblaðið - 17.04.1993, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1993
■ .1 t ■*-7 T -■ - r — ■— T ■T"'
Silung’sveiði er víða byijuð
þótt allur þorri veiðivatna leyfi
ekki veiði fyrr en í maí eða jafn-
vel í júní, allt eftir landshlutum
og árferði. Helst eru það sjóbirt-
ingsstöðvarnar sem opnaðar
hafa verið, en einstaka vatnasil-
ungsstöð er einnig opin.
Sj óbirtingurinn
Sjóbirtingsveiðin hefur oft byij-
að betur en nú. Illa hefur gengið
miðað við oft áður í Varmá í Olf-
usi. Reytingsveiði hefur verið í
helstu veiðistöðunum, Geirlandsá
og Vatnamótum. Á þeim slóðum
hafa menn talið sig verða vara við
talsvert af fiski á stundum, en
þarna hafa verið mikil hvassviðri
svo dögum skiptir og hafa afla-
brögð því orðið minni en ella. Veiði-
maður einn sem var í þriðja „holli"
í Vatnamótum sem lauk veiðum í
byijun páskahátíðar sagði að þeir
féiagarnir hefðu aðeins fengið einn
góðan dag tii veiða, aðra daga
hefði vart verið stætt úti við. Þeir
fengu 6 sjóbirtinga, allt að 5 pund-
um. Voru þá komnir 30 fiskar á
land, allt að 11 pundum. Síðan
hefur ekki fregnast af stórskotum,
en fiskur verið að reytast á land
þegar aðstæður hafa leyft ein-
hveija ástundun. Svipaða sögu er
að segja frá Geirlandsá.
Reytingur hér, reytingur þar
Reytingsveiði hefur verið í Baug-
staðaósi við Stokkseyri, en veiðí
hófst þar 1. apríl. Veitt er á tvær
stangir á neðsta svæðinu, en í júní
hefst veiði á fjórar stangir til við-
bótar ofar í ánni. Guðmundur Sig-
urðsson á Selfossi sagði í samtali
við Morgunblaðið að veiðin nú
væri sjóbleikja og staðbundinn urr-
iði, 2 til 3 punda fiskar, og hefði
Morgunblaðið/G
Sjóbirtingar
GÓÐ sjóbirtingsveiði úr Geir-
landsá á dögunum.
verið reytingur. „Þeir sem eru dug-
legir hafa eitthvað upp úr krafsinu,
en veiðin glæðist jafnan strax í
júní, en þetta svæði gefur nokkuð
árvisst svona 1.000 til 1.200 sil-
unga, bleikjur og sjóbirting, og 20
til 30 laxa,“ sagði Guðmundur.
Af öðrum verstöðvum má nefna,
að veiðimenn hafa verið að næla
sér í nokkra væna urriða í Meðal-
fellsvatni og ekki hefur farið hjá
því að einstaka hoplax hafi runnið
sitt skeið á enda. Þá fréttist af
veiðimanni sem var að skoða sig
um við neðanverða Stóru-Laxá. Sá
fann bleikjutorfu og veiddi úr henni
4 fiska, 2 til 4 punda.
Dorgveiðimenn hafa nokkuð nýtt
sér góðvirðiskafla og víða leitað
fánga. Ekki er spuming að vötn á
Arnarvatnsheiði hafa gefið besta
aflann og fengu menn upp í 7
punda físka þar um páskana. Ein-
stakir veiðimenn náðu allt að 30
til 40 fískum, mörgum af góðri
stærð. Á sunnudag verður dorg-
veiðikeppni á Úlfsvatni á heiðinni
og sagði Gunnar Sigvaldason, einn
skipuleggjenda uppákomunnar að
von væri á góðu, veðurspáin væri
góð og mikill hugur í dorgurum.
Skófarið
kom upp
um piltana
ÞRIR piltar voru handteknir
grunaðir um innbrotstilraun í
Esjuskála á Kjalarnesi í fyrri-
nótt.
Þjófavarnarkerfi söluskálans fór
í gang við innbrotstilraunina og var
lögreglu gert viðvart. Ummerki
báru með sér að þjófarnir hefðu
orðið frá að hverfa en skófar fannst
á staðnum, auk þess sem dyrabún-
aður bar merki um að reynt hefði
verið að þvinga hann upp með
skrúfj'árni.
Skömmu síðar stöðvuðu lög-
reglumenn Saab-bíl sem í vom þrír
piltar. Einn var í skóm sem pössuðu
við farið sem fannst á innbrots-
staðnum, og í bílnum fundust verk-
færi sem talið var að beitt hefði
verið við að þvinga upp dyr sölu-
skálans. Piltamir gistu fanga-
geymslur en tveir þeirra hafa áður
orðið uppvísir að þjófnaði.
♦ » ♦---
Hiólreiðamenn
Ráðherra
geti sett
reglur um
hjálmanot
ALLSHERJARNEFND Alþingis
leggur til, að einni grein verði
bætt við umferðarlög, sem kveði
á um heimild ráðherra til að
setja reglur um notkun hlífðar-
hjálma við hjólreiðar.
í nefndaráliti segir, að land-
læknir, yfirlæknir slysavarðstof-
unnar í Reykjavík og heilaskurð-
læknir hafi komið á fund nefndar-
innar og mælt með því að nefndin
flytti breytingartillögu við frum-
varp um breytingar á umferðarlög-
um um skyldu barna til að nota
hlífðarhjálma á reiðhjólum. í álit-
inu kemur fram, að Umferðarráð
telji ekki tímabært að lögfesta slíka
skyldu, lagasetningin hefði ekki
gildi fyrr en notkun hlifðarhjálma
hefði náð ákveðnu marki, 20-25%.
í álitinu kemur fram, að skiptar
skoðanir komu fram í allsheijar-
nefnd um hvort rétt væri að lög-
festa notkun hlífðarhjálma við hjól-
reiðar, við hvaða aldur ætti að
miða notkunina og um gerð hjál-
manna. Niðurstaða meirihluta
nefndarmanna varð sú, að leggja
til að ráðherra hefði heimild til að
setja reglur um notkun hjálmanna.
„Er litið svo á að með þessu sé
ekki lögfest heimild til þess að
skylda hjólreiðamenn til að nota
hlífðarhjálma,“ segir í nefndarálit-
inu.
WJtfpai
88 Éna m Mgkn
í verslun okkar í Skeifunni 11
Sölusýning á öllum nýju 1993
árgerðunum af fjallahjólum og
hefðbundnum hjólum, fyrir fullorðna
og böm, tvíhjól og þrthjól.
• Nýir litin • Nýp vélbúnaðup • Ný hönnun
Nýjap gepðip • Nýip dempapagafflap • Nýip gípap
Verslunin verður opin:
Laugardaginn kl. 10.00 til kl. 16.00
Sunnudag kl. 13.00 til kl. 17.00
Reiðhjólaverslunini.
ORNINNP'
K"
VISA
&■■■■
SÉRVERSLUNí 68 ÁR
raðgreiðslur PÓSTSENDUM UM LAND ALLT
SKEIFUNNl V V
VERSLUN SÍMI 679890 VERKSTÆÐI SÍMI 679891
TREK ■ JAZZ ■ SPECIALIZED ■ GT ■ WINTHER ■ PEUGEOT