Morgunblaðið - 17.04.1993, Qupperneq 20
20
MORGUNÉLAÐIE) LÁUGARDAGUR 17. APRÍL 1993
Gagnrýni á Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu
Fulltrúa Islands falið að
fylgjast sérstaklega með
ÍSLENSK stjórnvöld hafa ekki
gripið til neinna aðgerða vegna
gagnrýni sem sett hefur verið
fram á. Endurreisnar- og þró-
unarbanka Evrópu en ísland á
aðild að bankanum. Stjórnend-
bankans eru sakaðir
ur
um
taumlaus sérgæði og m.a. er
bent á að rekstrarkostnaður
bankans sé tvöfalt meiri en
útlán. Verkefni bankans er að
stuðla að efnahagslegri upp-
byggingu í Austur-Evrópu.
Finnur Sveinbjörnsson, skrif-
Prófessorar við læknadeild HÍ
Erindi fyrir almeiin-
ing um læknisfræði
NÝSKIPAÐIR prófessorar við
læknadeild Háskóla íslands
munu á næstu mánuðum flytja
erindi fyrir almenning um efni
sem tengjast fræðisviðum
þeirra. Fyrirlestramir verða í
stofu 101 í Odda. Þar verður
jafnframt til sýnis viðeigandi
myndefni og tækjabúnaður, sem
gestir fá í sumum tilvikum að
prófa. Fyrsta erindið í þessari
fyrirlestrarröð verður haldið
sunnudaginn 18. aprfl kl. 15.
Jóhann Ág. Sigurðsson, pró-
fessor í heimilislækningum mun
fjalla um ávinninga og nýjar
áherslur í heilsuvemd. Hugtökin
heilsuvemd og forvamarstarf hafa
mikið verið notuð sem slagorð í
stefnuskrám stjórnmálaflokka og
við skipulag heilbrigðis- og félags-
mála. Þessi hugtök eru sjaldnast
skilgreind nánar og því oft óljóst
hvað átt er við. í hugum margra
tengist heilsuvernd fyrst og fremst
afmörkuðum viðfangsefnum svo
sem mæðravemd, ungbamavemd,
reykingavörnum og heilsugæslu í
skólum. Þessir þættir em vissu-
lega mikilvægir, en nú er orðið
tímabært að líta á heilsuvernd í
mun víðara samhengi. Aðstæður
og atburðir um víða veröld svo sem
stríð, fátækt, kjarnorkuslys, olíu-
mengun eða nýir kynsjúkdómar
skipta nú miklu máli og geta jafn-
vel ógnað tilvist mannkynsins. í
vanþróuðu löndunum deyja nú t.d.
um 1000 börn á hverri klukku-
stund úr sjúkdómum sem hægt
Jóhann Ág. Sigurðsson
er að koma í veg fyrir. Það er því
ekki lengur við hæfi að einblína á
einstaka þætti heilsuvemdar. í
fyrirlestrinum er leitast við að
gefa heildræna mynd af heilsu-
vemd og skýrt er frá erlendum
og innlendum rannsóknum á
árangri fyrirbyggjandi aðgerða.
Mikið hefur áunnist í heilsuvemd
á síðustu áratugum en ný þekking
og nýir áhættuþættir gera kröfur
um stöðugt endurmat og áherslu-
breytingar. Lögð er áhersla á að
sem flestir ástundi heilsuvemd.
(Fréttatilkynning)
Bein útsending RÚV á sunnudag
Polgar teflir við ís-
lenska stórmeistara
STÓRMEISTARAMÓT Mjólkursamsölunnar í atskák verður
haldið nk. sunnudag og verður sýnt beint frá mótinu í Ríkis-
sjónvarpinu. Keppendur verða ungverski stórmeistarinn
Judit Polgar, Jóhann Hjartarson, Margeir Pétursson og
Helgi Ólafsson. Jón L. Arnason stórmeistari skýrir allar
skákirnar fyrir áhorfendum, en umsjónarmaður mótsins
verður Hermann Gunnarsson.
Judit Polgar er 16 ára gömul
og er yngsti stórmeistari skák-
sögunnar. Hún varð stórmeist-
ari 15 ára gömul eftir sigur á
skákþingi Ungverjalands 1991-
1992 og varð hún þá fyrir ofan
alla bestu skákmenn Ungveija,
þ. á m. Portisch, Sax og Adoij-
an.
Sigraði Karpov og Short
Judith Polgar vakti heimsat-
hygli þegar ungverska skák-
sveitin sem skipuð var þeim
Polgar-systrum sigraði á ÓL-
mótinu í Saloniki haustið 1988.
Um síðustu áramót varð hún í
efsta sæti á hinu sterka Hast-
ings-skákmóti í stórmeistara-
flokki og í febrúar sl. sigraði
hún Boris Spasskíj með 5'/2
vinningi gegn 4‘/2 í einvígi í
Búdapest. Fyrir skömmu lagði
hún fyrrum heimsmeistara,
Anatolíj Karpov 2-0 og Nigel
Short 2-0 á sterku móti í Món-
akó.
Umhugsunartími á atskák-
mótinu í sjónvarpssal verður 25
mínútur fyrir hvern keppenda
og tefld verður einföld umferð.
Utsending hefst kl. 12.35 og
lýkur um kl. 15.50. Þetta verður
fyrsta stórmeistaramótið í at-
skák sem er í beinni útsendingu
í Sjónvarpinu.
stofusljóri í viðskiptaráðuneyt-
inu, segir að fulltrúa íslands í
stjóm Evrópubankans verði
falið að fylgjast sérstaklega
með málinu.
Finnur Sveinbjömsson sagði að
ásakanir á Evrópubankann yllu
vissum áhyggjum. Hins vegar
kvaðst hann ekki vilja leggja dóm
á þær ásakanir sem fram hafi
komið og of snemmt væri fyrir
íslensk stjómvöld að ákveða til
hvaða aðgerða yrði gripið vegna
þeirra ásakana sem fram hefðu
verið settar á stjórnun Evrópu-
bankans. Hann sagði að ef ákveð-
ið yrði að grípa í taumana með
einhveijum hætti myndu íslend-
ingar taka þátt í þeim aðgerðum
og vera samstiga öðrum aðildar-
þjóðum. Fulltrúi íslands í stjóm
bankans er Halldór J. Kristjánsson
og verður honum gert að fylgjast
sérstaklega með þessum málum.
íslendingar eiga að greiða 40
milljónir kr. af hlutafé sínu í sjóðn-
um í vor og aðspurður hvort til
greina kæmi að greiða ekki þá
fjárhæð vegna upplýsinga um
rekstur sjóðsins taldi Finnur það
ekki koma til greina, við væmm
skuldbundir af því samkomulagi
sem gert hefði verið um stofnun
bankans. Hann sagði að íslending-
ar hefðu sömu aðstöðu og aðrar
aðildarþjóðir til að vekja athygli á
málum í stjóm Evrópubankans.
Til þess gæti komið að þeir starfs-
menn sem bæm ábyrgð því sem
kynni að þykja athugavert í rekstr-
inum yrðu Iátnir hætta eða þeim
veitt áminning. Þá væri sá mögu-
leiki vissulega einnig fyrir hendi
að hætta þátttöku í þessu sam-
starfi en ekki væri komið að því
að taka slíka ákvörðun.
Telurðu kröfur verka-
lýðsforystunnar raun-
hæfar eða óraunhæfar?
Hefur þútrúáað verk-
föll skiH tHætluðum
á Já \ OQOL \
1 Jei 72°/
Gallup-könmm um samningamál
Meirihluti telur
verkföll ekki lík-
leg til árangurs
í KÖNNUN Gallup sem gerð var dagana 19.-26. febrúar
síðastliðinn kemur í ljós að kröfur verkalýðsforystunnar
um 5-7% kaupmáttaraukningu njóta stuðnings tæplega
54% aðspurðra, en hins vegar telja tæplega 46% kröfurn-
ar vera óraunhæfar. Þá kemur fram í könnuninni að rúm-
lega 72% aðspurðra tejja verkföll ekki skila tilætluðum
árangri.
í Þjóðarpúlsi Gallup sem ný-
lega kom út kemur fram að
sterk marktæk tengsl fundust
milli viðhorfs fólks til kröfu
verkalýðsforystunnar og stuðn-
ings við stjómmálaflokka.
Þannig telja 34,1% fylgismanna
Sjálfstæðisflokksins kröfur
verkalýðsforystunnar raunhæf-
ar, en um 60-70% fylgjenda
annarra flokka telja þær raun-
hæfar.
Verkföll þýðingarlítil
Jafnvel þótt meirihluti al-
mennings telji 5% kaupmáttar-
aukningu raunhæfa kröfu, þá
kom í ljós í könnuninni að ein-
ungis tæplega 28% telja að
verkföll skili tilætluðum
árangri, og rúmlega 72% að-
spurðra telja að þau geri það
ekki. Viðhorf til verkfalla end-
urspeglast einnig í stjórnmála-
skoðunum fólks, og þannig hef-
ur rúmlega helmingur stuðn-
ingsmanna Alþýðubandalags-
ins trú á því að verkföll skili
tilætluðum árangri, en mikill
minnihluti stuðningsmanna
annarra þingflokka telur að svo
sé.
Kvartað vegna mengunar frá verksmiðjunni að Kletti
Starfsskilyrði óuppfyllt
MINNISPUNKTAR vegna kvartana um lykt frá Faxamjölsverk-
smiðjunum í Orfirisey og Kletti, frá verksmiðjum Lýsis hf. við
Grandaveg og Köllunarklett hafa verið Iagðir fram í borgarráði.
Oddur Rúnar Hjartarsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Reylg'avíkur, segir að Faxamjöl hf. hafi fengið tímabundið starfs-
leyfí við Klett, sem gildi til 30. apríl næstkomandi með ákveðnum
skilyrðum sem ekki hafi verið uppfyllt.
í minnispunktunum kemur fram hráefnisgeymslum, hver aldur
að 19 kvartanir hafa borist Heil-
brigðiseftirliti Reykjavíkur frá árs-
byijun 1990 til apríl 1993. Af
þeim má rekja 10 beint til verk-
smiðjunnar Kletts, 7 eru tengdar
Lýsi hf. auk tveggja sem sennilegt
er talið að séu einnig vegna meng-
unar þaðan. Á tímabilinu 23. mars
1993 til 1. apríl sama ár bárust
tíu kvartanir og var helmingur
þeirra vegna lyktar frá Kletti.
Tíu kvartanir á níu dögum
I lok mars og byijun apríl þegar
flestar kvartanir bárust Heil-
brigðiseftirliti Reykjavíkur, var
norðan-, austan- og austnorðaust-
anátt ríkjandi [ Reykjavík og mik-
il loftmengun. í minnispunktunum
segir ennfremur, að samkvæmt
upplýsingum frá Hollustuvernd
ríkisins hafí borist margar kvart-
anir vegna „gúanólyktar" í
Reykjavík. „Hringt hefur verið
annað slagið frá áramótum, en í
síðustu viku keyrði um þverbak,
en Hollustuvernd ríkisins skráir
ekki kvartanir. Hollustuvernd rík-
isins hefur sent Kletti ítrekaðar
óskir um skriflegt svar um
geymslu hráefnis í óyfirbyggðum
geymslum, hve mikið hráefni og
hve mikið magn væri í einstökum
þess væri og hvort það hafí verið
rotvarið. Einnig hvenær áætlað sé
að vinnslu þessa hráefnis Ijúki.“
í bókun borgarráðs er minnt á
þá skilmála um mengunarvamir,
sem settir voru með tímabundnu
leyfi fyrir loðnubræðslu í verk-
smiðjunni á Kletti og jafnframt
brýnt fyrir forráðamönnum verk-
smiðjunnar að staðið verði við
setta skilmála.
Verzlunarráð andvígl
hærra gjaldi á sælgæti
VERZLUNARRÁÐ íslands mótmælir hækkun vörugjalds á sælgæti
og gosdrykki, sem nú er rætt um í tengslum við kjarasamninga.
Þetta kemur fram í bréfi, sem ráðið hefur sent Friðrik Sophussyni
fjármálaráðherra. Jafnframt mótmælir ráðið því að heildsöluálagn-
ing á innflutt sælgæti í tolli eigi að hækka úr 25% í 40% vegna
álagningar vörugjalds.
væri unnt að lækka gjaldtökuna
vegna bágrar stöðu ríkissjóðs.“
Spurning um mismunun
Verzlunarráð vekur síðan at-
hygli á því að samkvæmt EES-
samningnum megi eki mismuna
innlendri framleiðslu og innfluttri
vöru með gjaldi á borð við vöru-
gjaldið. „Hækkun á 25% álaginu í
tolli upp í 40% vekur tvímælalaust
upp spumingár um mismunun,“
segir í bréfinu. „Eðlilegra er að
innlend framleiðsla og innflutning-
ur sitji við sama borð að þessu leyti
þannig að vörugjald af innfluttri
vöru sé tekið á heildsölustigi en
ekki í tolli.“
Rætt hefur verið um að hækka
vörugjald á gosi og sælgæti í tekju-
öflunarskyni þannig að þessar vör-
ur haldi óbreyttu verði, komi til
þess að virðisaukaskattur á mat-
vælum verði lækkaður í 14%. I
bréfi Verzlunarráðs segir: „Verzl-
unarráð íslands telur að álagning
vörugjalds á sælgæti og gosdrykki
feli þegar í sér svo freklega mis-
munun á milli vörutegunda að
ótækt sé að auka þá mismunun enn
frekar. Bendir ráðið á að í nýsam-
þykktum lögum um vörugjald felst
viss viðurkenning á því að þessi
skattlagning sé úr hófi fram með
því að gjaldfrestur vegna uppgjörs
vörugjaldsins var lengdur, þótt ekki