Morgunblaðið - 18.04.1993, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.04.1993, Blaðsíða 6
& FRÉTTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. ABRÍL 1993 Reykjavíkurborg’ býður út endurbætur á Arnarhóli í næsta mánuði Hóllinn er skoðaður með jarðsjá ÁKVEÐIÐ hefur verið að bjóða út annan áfanga endurbóta á Arnarhóli í byrjun maí og er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í lok mánaðarins að lokinni jarð- vegsrannsókn með jarðsjá. Að sögn Stefáns Hermannssonar borgarverkfræðings er það gert til að kanna hvort fornleifar sé að finna í og við hólinn. Gert er ráð fyrir að veita 20 millj- ónir til verksins í sumar og þar af greiðir Seðlabankinn 10 milljónir. „Fyrsti áfangi var unninn fyrir nokkrum árum og nú verður lokið við breytingamar milli Ingólfsstræt- is og Lækjargötu og Seðlabanka- lóðarinnar og Hverfísgötu," sagði Stefán. Grassvörður verður sléttaður, hiti lagður í bratta gangstíga og gengið snyrtilega frá umhverfi styttunnar af Ingólfi Amarsyni. Framtíðarskipulag Arnarhóls ENDANLEG útfærsla á verðlaunatillögu Birnu Björnsdóttur innanhússarkitekts og Hihnars Þórs Björnsson- ar arkitekts að breytingum á Arnarhóli. Þar er gert ráð fyrir að gamla tröðin yfir hólinn, sem stefndi beint á Traðarkot, verði gerð sýnilegri, en það var gömul leið um bæinn. Afkoma Tryggingar hf. góð á síðasta ári að sögn forstjóra fyrirtækisins Hagnaður nam 13 milljónum HAGNAÐUR Tryggingar hf. nam alls um 13 milljónum króna á sl. ári samanborið við tæplega 10 milljóna hagnað árið 1991. Iðgjöld ársins voru alls um 807 milljónir og höfðu þau aukist um 16,7% frá árinu á undan. Af heildariðgjöldum runnu 258 milljónir til endur- tryggjenda þannig að eigin iðgjöld nema 549 milljónum sem er um 20% hækkun frá fyrra ári. Tónlistarskólinn í Reykjavík ------------------------• /r——i Fyrirlestur/tónleikar um bandaríska píanótónlist WESTLEY True, píanóleikari og prófessor við Central Missouri State University í Bandaríkjunum, heldur fyrirlestur/tónleika um bandaríska píanótónlist í sal Tónlistarskólans í Reykjavík, Skipholti 33, mánudag- mn 19. apnl. kl. 17. Prófessor True, sem er íslenskur í móðurætt, er hér í heimsókn ásamt systur sinni, prófessor Nelita True, sem heldur hér námskeið og píanó- tónleika á vegum Tónlistarskólans í Reykjavík, Tónlistarskóla Garðabæj- ar og Tónlistarskóla Kópavogs. Að- gangur að fyrirlestri prófessors True er ókeypis og öllum heimill. Tjón ársins námu hins vegar 704 milljónum eftir að tekið hefur verið tillit til breytinga á bótasjóði og jukust um 17,3%. Þar af námu eig- in tjón 539 milljónum. Skrifstofu- og stjómunarkostn- aður nam alls 136 milljónum á sl. ári sem er um 13% hækkun milli ára. Alls nam tryggingasjóður 1.188 milljónum í árslok og var hluti endurtryggjenda um 235 millj- ónir. Eigið fé í árslok nam alls um 163 milljónum. Ágúst Karlsson, forstjóri Trygg- ingar hf., sagðist í samtali við Morgunblaðið telja afkomuna góða og vísaði hann þar tii þess að trygg- ingasjóður hefði hækkað úr 905 milljónum í 1.188 milljónir. Enn- fremur væri hlutfall eigin trygg- ingasjóðs af eigin iðgjöldum 174% sem teldist sterk staða. Ágúst sagði að afkoma einstakra greina væri viðunandi að frátöldum ökutækja- tryggingum sem voru reknar með tapi. Hefði afkoman af þeim lítið batnað á sl. ári. „Við lækkuðum iðgjöld í bflatryggingum til að mæta samkeppninni en einnig erum við viðkvæmari fyrir stórtjónum vegna þess hversu hlutur okkar er lítill af markaðnum." Markaðshlutdeild Tryggingar hf. er um 7% á tryggingamarkaðnum og er það svipuð hlutdeild og verið hefur undanfarin ár. Aðspurður um afkomuna á þessu ári sagði Ágúst að hún væri í jafnvægi á fyrsta ársfjórðungi en bílatjónin hefðu hins vegar aukist frá sama tíma í fyrra vegna tíðarfarins. Á aðalfundi Tryggingar hf. í gær var samþykkt að greiða 10% arð af hlutafé. í stjórn voru endurkjöm- ir Geir Zoega, Stefán Pálsson, Ámi Jónsson, Árni Þorvaldsson og Oskar Sveinbjömsson. Húnavaka að hefjast Blönduósi. HÚNAVAKA, hin árlega menning- arvaka Ungmennasambands Aust- ur-Húnvetninga, hefst i dag með yfírlitssýningu á málverkum Guð- ráðs Jóhannssonar frá Beinakeldu og lýkur laugardaginn 24. apríl með dansleik í félagsheimilinu Guðráður Jóhannsson mun sýna verk sín á Hótel Blönduós og lýkur sýningunni 25. apríl. Húsbændavak- an verður á sínum stað síðasta vetr- ardag og verður aðalræðumaður kvöldsins Bryndís Schram. Auk Bryndísar mun fjöldi annarra lista- manna koma fram á Húsbændavök- unni. Gmnnskólinn verður með sína árlegu sumarskemmtun sumardag- inn fyrsta og kórakvöld verður í fé- lagsheimilinu á föstudagskvöldið. Auk þess mun leikfélag Blönduóss sýna Leikritið Indíánaleik tvisvar á Húnavökunni. Dansleikir á Húna- vöku verða þrír þ.e. unglingadans- leikur á miðvikudag og tveir almenn- ir dansleikir á föstudags- og laugar- dagskvöldið. Jón Sig. Bridslands- liðið valið LANDSLIÐ íslands í bríds, fyrir Evrópumót í sumar, hef- ur verið valið. Það skipa Aðal- steinn Jörgensen, Björn Ey- steinsson, Guðmundur Páll Arnarson, Jón Baldursson, Sævar Þorbjörnsson og Þor- lákur Jónsson. Fyrirliði og þjálfari er Karl Sigurhjartar- son. Á Evrópumótinu, sem haldið verður í Frakklandi í júní, ræðst hvort ísland fær tækifæri til að veija heimsmeistararatitil sinn í brids. Heimsmeistaratitillinn gefur ekki þátttökurétt á heims- meistaramótinu í haust, heldur komast fjórar efstu þjóðirnar af Evrópumótinu á heimsmeist- aramótið. í íslenska landsliðinu nú eru fjórir af spilurunum sem unnu heimsmeistaratitilinn í Japan fyrir tveimur árum, auk landsl- iðsfyrirliðans þá, Björns Ey- steinssonar, sem nú hefur feng- ið annað hlutverk. ÍSAL er skuldbundið til raforkukaupa þrátt fyrir að álverinu í Straumsvík verði lokað Greiðslur gætu fallið niður í verkfaUi ÞEGAR kjarasamningar voru undirrit- aðir af fulltrúum verkalýðsfélaga starfs- manna álversins í Straumsvík og samn- inganefndar VSÍ og ÍSAL aðfaranótt fimmtudags höfðu álversstarfsmenn verið með lausa samninga í um 19 mán- uði. Mikil stífni einkenndi þessa löngu kjaradeilu, sem var orðin forsenda þess að samningar tækjust á almenna vinnu- markaðinum. Starfsmenn álversins kröfðust afturvirkrar launahækkunar í samræmi við miðlunartillögu ríkissátta- semjara en sljórnendur ISAL stóðu fastir gegn því. Yfir baksviði átakanna vofðu viðvaranir um að AIusuisse-Lonza (A-L) samsteypan, hið erlenda móður- fyrirtæki álversins, kynni að grípa til samdráttar eða jafnvel Iokunar álversins ef starfsemi verksmiðjunnar lamaðist vegna verkfalls starfsmanna. í raforku- samningi Alusuisse við Landsvirkjun frá árinu 1966 eru ákvæði sem skuldbinda eigendur álversins til að greiða fyrir raforku ef þeir ákveða að loka verk- smiðjunni eða alls 90% af allri forgangs- orku. Slíkar skyldur falla þó niður ef óviðráðanleg öfl valda lokuninni (force major-reglan). Verkföll eru talin til óviðráðanlegra orsaka sem leitt gætu til þess að álverið losnaði undan kvöðum um raforkukaup á meðan lokun verk- smiðjunnar stæði en þó ekki í öllum til- vikum. AF INNLENDUM VETTVANGI ÓMAR FRIÐRIKSSON Skuldbindingar um raforkugreiðslur falla niður ef óviðráðanleg öfl valda því að verk- smiðjunni er lokað. Lokun vegna allsheijar- verkfalls í landinu er talin falia hér ótví- rætt undir en hins vegar er talið álitamál hvort eigendum álsversins yrði stætt á því að standa gegn kjarasamningum, sem kynni að leiða til staðbundins verkfalls og lokunar og komast þannig undan raforku- greiðslum. Af hálfu ÍSAL hafa þau sjónar- mið komið fram að verkfallslokun afnemi kaupskylduna en Landsvirkjun er hins veg- ar á öðru máli og af máli viðmælenda Morgunblaðsins má ráða að þetta yrði lög- fræðiiegt túlkunaratriði og álitamál sem gæti orðið að deilumáli milli íslenskra stjórnvalda og ÍSAL ef slíkar aðstæður sköpuðust. Orkugreiðslur um 1,2 miHjarðar Sem kunnugt er hefur Alusuisse-Lonza samsteypan dregið úr framleiðslu eða ákveðið að loka álverum í Sviss, Þýska- landi og Austurríki. Alusuisse var rekið með 5,2 milljarða króna hagnaði á síðasta ári en ýmis dótturfyrirtæki voru hins vegar rekin með tapi og þ. á m. ÍSAL, en halli þess nam 645 millj. kr. Hins vegar hefur komið fram af hálfu stjómenda Alusuisse að álverið í Straumsvík sé meðal samkeppn- isfærustu álvera þess og orkuverð hér hag- stætt en það er bundið heimsmarkaðsverði aðfanga. Tekjur Landsvirkjunar vegna raforkusölu til stóriðju á síðasta ári námu um 1,5 millj- örðum kr. og þar af nam raforkusala til ÍSAL í kringum 1,2 milljarða en orkunotk- un álversins hefur verið óvenju mikil að undanfömu vegna sérsamninga sem gerðir hafa verið um afhendingu á svokallaðri ótryggri orku á sérkjömm. Morgunblaðið bar þessi mál undir Jóhann- es Nordal, stjómarformann Landsvirkjunar, sem sagði engan vafa leika á að álverið yrði að greiða áfram fyrir raforkuafhendingu ef eigendur ákvæðu sjálfir lokun verksmiðj- unnar en hitt gæti orðið álitamál ef lokunin stafaði af verkfallsátökum. Óviðráðanleg öfl í samningunum segir að óviðráðanleg öfl, sem geti valdið lokun verksmiðjunnar o g sem felli niður raforkukaupskylduna, séu m.a. ófriður, bylting, uppreisn ög uppþot, fjöldauppnám, múgæsing, sprengingar, eld- gos, stormar, eldsvoðar, flóð, eldingar, flutningsbönn, almenn stöðvun á flutning- um eða siglingum eða hverskyns ámóta atvik sem ekki er unnt að koma í veg fyr- ir eða hafa stjórn á með eðlilegum ráðum af hálfu samningsaðila. Tekið er fram að í þessu tilfelli skuli óviðráðanleg öfl einnig taka til allsheijarverkfalla, staðbundinna verkfalla eða ámóta vinnutruflana á ís- landi, sem aðili sá er fyrir slíku verður hefur ekki getað komið í veg fyrir eða haft stjóm á enda þótt hann hafi beitt öllum eðlilegum ráðum sem honum voru tiltæk. Kaupskyldan Samningsákvæði um kaupskyldu ÍSAL á lágmarksmagni raforku segja að fyrirtækið skuli greiða fyrir lágmarksorkumagn samn- ingsbundins rafmagns á samningsbundnu verði, sem við eigi, enda þótt orkuneysla ÍSAL á því ári kunni að hafa verið minni, eða alls 1.110 gígavattstundir á ári. Skuld- bindingar ÍSAL til greiðslu á lágmarksorku- magni lækka þó ef álverið getur ekki fært sér í nyt samningsbundið rafmagn af völd- um óviðráðanlegra afla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.