Morgunblaðið - 25.04.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.04.1993, Blaðsíða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. APRÍL 1993 Guðrún Margrét er ein þeirra sem fer eigin leiðir. Allt frá því að hún var krakki hefur hún ekki hikað við að vera á ólíkum nótum og samferðamenn hennar. Þegar hún var unglingur lét hún skírast og gekk í söfnuð hvíta- sunnumanna, ein skólafélaganna. Þá hefur hún ferðast mikið innan- lands og utan, og hvorki farið troðnar slóðir við val á löndum né ferðamáta. Hnattferðin var eitt dæmi um það. Guðrún Margrét hélt til Banda- ríkjanna árið 1985 og ferðaðist vítt og breitt um landið, allt til Alaska og Kanada. Hún hafði lítið lesið sér til um áfangastaðina, ætlaði sér að kynnast þeim af eigin raun, án þess að hafa myndað sér skoðun á því sem fyrir augu bæri. Áður en halda skyldi yfir Kyrrahafið til Tahiti, ákvað hún að bregða sér yfir landamærin til Mexíkó. Sá skottúr varð afdrifaríkari en Guð- rún hugði. „Ég var ekki fyrr komin að landamærunum en mér var boð- ið á kristniboðssamkomu. Ég sló til og kynntist á þessari samkomu fólki sem vann að hjálparstarfi í Mexíkóborg, en mikill jarðskjálfti hafði riðið yfir borgina þremur mánuðum áður. Fjölmargir bjuggu enn í tjöldum, jafnvel á umferðar- eyjum þrátt fyrir næturfrost, enda komið fram í desember. Hópurinn sem ég vann með, ferðaðist um með stórt tjald, þar sem haldnar voru kristilegar samkomur og fólki gefinn matur. Sjálf sváfum við í tjöldum í afar vafasömu hverfi. Mýs og rottur voru um allt og stundum varla svefnsamt fyrir óaldaflokkum. Næturnar voru ískaldar og eymdin mikil, svo að jólin þetta árið stóðu tæpast undir nafni.“ Ertu íslensk? Eftir tæpa tvo mánuði hélt Guð- rún svo suður á bóginn, til Belize, Guatemala, E1 Salvador, Ník- aragúa og Hondúras. „Það var» tvennt sem sló mig og varð til þess að ferðaáætlunin breyttist. Það voru börnin sem ég sá sofa á götum úti, en það var sjón sem stakk mig í hjartastað, og sú staðreynd hversu margir-voru ólæsir. Ég komst að því þegar ég ætlaði að gefa fólkinu biblíurpg nýja testamenti sem ég keypti á staðnum. Þá greip mig löngun- til að hjálpa enn frekar, ljúka ferðinni, fara heim og vinna mér inn smá pening og koma svo aftur til Mið-Ameríku.“ Þegar þarna var komið var langt liðið á ferðina og farareyririnn af skornum skammti. Auraleysið setti svip sinn á ferðina, þar sem Guðrún þurfti sífellt að velja á milli þess að fara á puttanum og sofa úti eða vera matarlaus, þar sem aðeins var hægt að nota greiðslukort í höfuð- borgunum. „Þessi ferð var mikið ævintýri, aðstæður erfiðar og ekki alltaf ljóst hvert næsta skref yrði. Ég var í því að koma mér í vand- ræði en Guð bjargaði mér ævinlega úr þeim. Frá Belize fór ég til dæm- is sjóleiðis til Guatemala og lenti í litlu þorpi inni í miðjum frum- skógi. Næsta dag voru allir pening- ar búnir og enginn vegur frá þorp- inu svo puttaleiðin var ófær. Þar sem ég sat og sá enga leið úr úr ógöngunum, gekk stúlka til mín og spurði hvort ég væri íslensk. Ég rak upp stór augu, enda var hún eini Islendingurinn sem ég rakst á alla hnattferðina. Hún lán- aði mér fyrir farinu til höfuðborgar- innar, þar sem ég gat endurgreitt henni. Ég hafði lagt upp með tak- markaðan farareyri, sem dugði þó býsna lengi í Mið-Ameríku vegna þess hversu allt er ódýrt þar. í Níkaragúa keypti ég til dæmis 128 nýja testamenti og biblíur, 200 barnabækur, ferðir og uppihald í 17 daga fyrir 50 dollara, eða um 3.000 kr.“ Níkaragúa var á þessum tíma í viðskiptabanni vegna stríðsins milli stjórnarhers sandínista og kontra- skæruliða sem höfðu bækistöðvar í Hondúras. Af þessum sökum gat ég ekki notað greiðslukortið þar. Fjölskyldan Guðrún Margrét og Hannes ásamt börnunum Kristínu og Kristófer Páli. Morgunblaðið/Árni Sæberg færi ég út, annars yrði ég um kyrrt hér heima. Ég lokaði augunum og henti peningunum sex upp eftir að hafa hrist þá vandlega. Ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum þegar ég sá að enginn fiskur hafði komið upp. Mér var ekki ætlað að fara. Ég opnaði biblíuna mína og fyrsta versið sem ég las studdi þetta enn frekar.“ Brennandi hugsjón á íslandi „Skömmu eftir heimkomuna gift- um við okkur. Ári seinna fæddist dóttir okkar, Kristína, og tveimur árum síðar sonurinn Kristófer Páll. Þrátt fyrir það að ég væri ánægð með að hafa eignast yndislega fjöl- skyldu var ég ekki tilbúin að gefa það upp á bátinn að hjálpa fólki í þessum fátæku löndum. En hvað átti ég að gera með þessa brenn- andi hugsjón hér á íslandi? Ég ræddi þetta fram og aftur við mína nánustu og að endingu datt bróður mínum í hug að koma á fót starf- semi, sem fékk heitið ABC-hjálpar- starf. Það hófst formlega árið 1988, einu og hálfu ári eftir að ég kom úr _hnattferðinni.“ í stjórn ABC-hjálparstarfs eru nú sex manns; auk Guðrúnar Mar- Síðasta daginn lenti ég í algjörum hremmingum þar sem ég þurfti að ferðast mörg hundruð kílómetra á puttanum að landamærum Hondúr- as í steikjandi hita og gat hvorki keypt mér mat né drykk, að undan- skildum fjórum appeisínum sem kostuðu sama og ekkert. Þegar ég náði loks að landamærunum var búið að loka þeim, en einnig í þetta skiptið varð ég vitni að því hvernig Guð greiddi götu mína.“ Bakpokafylli af biblíum Flugmiðinn sem gilti í eitt ár var nærri útrunninn og því ekki um annað að ræða en gerast venjuleg- ur ferðamaður á ný. „Ég veit nú ekki hvort hægt'er að tala um að ég hafi nokkurn tíma verið venju- legur ferðamaður. En ég hélt áfram ferðinni eins og ekkert hefði í skor- ist. Ég flaug til Tahítí, Ástralíu, Hong Kong, Kóreu og Kína. í Hong Kong náði ég mér í bakpokafylli af biblíum sem ég fór með inn í Kína, en þar sem biblíur eru bann- aðar í landinu er geysilegur skortur á þeim. Ég ferðaðist í 32 tíma með biblíurnar með lest og þar sem ég átti nær engan pening eftir keypti ég „hart sæti“, sem var ódýrast. Fæturnir dofnuðu upp til skiptis og ekki var hægt að ganga um þar sem fólk lá um alla ganga. Biblíurn- ar skildi ég svo eftir í tösku í af- greiðslu hótels samkvæmt beiðni þeirra sem afhentu þær og sá því aldrei viðtakendurna í þessari leyni- Iegu aðgerð. Frá Kína hélt ég svo heim.“ Áætlanir raskast Áður en Guðrún Margrét kom heim hafði hún skrifað fólkinu sínu að hún kæmi til þess eins að und- irbúa brottför að nýju og að vonum var ættingjunum brugðið, enda hafði Guðrún Margrét ekki áður látið áhuga á hjálparstarfi í ljós. „Þegar ég kom heim, losaði ég mig við mínar veraldlegu eigur. Þær voru hvorki margar né verðmætar, stærst var orgelið mitt. Ég fór að vinna til að eiga fyrir farareyri aftur út og sköttunum mínum. En ég hafði ekki verið hér á lándi nema í fimm daga þegar ég kynntist manninum mínum, Hannesi Lentz. Fyrst í stað fannst mér fjarstæða að setjast hér að, ég ætlaði mér aftur út. En ég varð smám saman efins um að utanferðin væri hið eina rétta. Ég áttaði mig á því að ég hafði aldrei spurt Guð neitt sér- staklega um hvort ég ætti að fara ti! Mið-Ameríku, mér fannst það bara svo sjálfsagt. Nú tók við erfið- ur tími, þar sem ég reyndi að gera mér grein fyrir því hvort ég ætti að gera; fara til Mið-Ameríku og vinna við hjálparstörf, eða giftast Hannesi. Á endanum fannst mér ég verða að fá ákveðið svar, kast- aði 3 tíköllum og 3 krónum upp í loft og bað Guð með því að gefa mér svar. Ef fiskarnir kæmu upp, Uganda Fimmtíu manna kennslustund í Úganda, en ABC-hjálparstarf styrkir skólagöngu barna þar. Mexíkó Þessi litli drengur var meðal þeirra fjölmörgu sem þáðu matargjafir í kjölfar jarðskjálftanna í Mexíkó 1985 en Guðrún Margrét tók þátt í hjálparstarfinu er hún var á ferð þar um. grétar þau Sigurður S. Wium, Nils Gíslason, Sigurlín Þ. Siguijónsdótt- ir, sem er í Úganda, Jón Gunnar Sigurðsson og Kristín Magnúsdótt- ir. Ákveðið var að um kristilegt og samkirkjulegt hjálparstarf yrði að ræða. Ekki neyðarhjálp, heldur var lögð áhersla á hjálp sem kæmi að varanlegu gagni. I nafninu ABC- hjálparstarf endurspeglast hvers konar starf er um að ræða. „Okkar litla framlag hefði haft lítið að segja í hið gríðarlega umfangsmikla starfi sem neyðarhjálp er. Þar þarf stærri og öflugri samtök til. Við viljum gefa fólki tækifæri til að læra að lesa og börnum að ganga í skóla. Lestrarkennsla er einföld og ódýr en áhrifarík aðgerð. Hún breytir stöðu fólks í þjóðfélaginu og er því leið til sjálfsbjargar." ABC-hjálparstarf Fyrsta verkefni ABC-hjálpar- starfs var unnið í samvinnu við Wycliffe-stofnunina, en hún vinnur að því að þýða biblíuna yfir á öll tungumál. Þar starfa um 6.000 starfsmenn, m.a. við að læra talmál ýmissa þjóðflokka svo búa megi til ritmál í þeim tilfellum sem það er ekki til og þýða biblíuna yfir á málið „Þess er einnig gætt að halda þjóðsögum þessara þjóðflokka til haga, það er mjög mikilvægt, þar sem hætta er á að mörg málanna muni ella deyja út. Við kostuðum prentun á lestrarkennslubókum á þremur málum, tveimur indíána- málum í Mexíkó og einu máli á Fílabeinsströndinni. Síðar hófum við samstarf við Norrænu barna- hjálpina á Filippseyjum. Þau börn sem fá aðstoð eiga sér stuðnings-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.