Morgunblaðið - 25.04.1993, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. APRIL 1993
B 3
fjölskyldur sem greiða mánaðarlega
upphæð fyrir skólagönguna og
halda sambandi við börnin. Kostn-
aður fjölskyldna hér nemur frá 400
krónum og upp í 1.200 kr. á mán-
uði. Börnin og íslensku stuðnings-
fjölskyldurnar geta skipst á mynd-
um og bréfum, auk þess sem hing-
að berast upplýsingar um skóla-
gönguna. Á Filippseyjum hefur
ABC-hjálparstarf tekið að sér að
kpsta 422 börn í skóla en enn vant-
ar stuðningsfjölskyldur fyrir um 50
börn úr þeim hópi.
ABC-hjálparstarf hefur einnig
tekið upp samstarf við Mission of
Mercy-samtökin, en þau hafa lengi
starfað í Kalkútta á Indlandi, svo
og í Kampútseu, Laos og Bangla-
desh. Við styrkjum 152 börn til
skólagöngu í þessum löndum og í
Kampútseu er verið að byggja
nokkur hús fyrir munaðarlaus börn.
Þar af kostum við eitt hús sem er
fyrir 32 munaðarlaus börn og á það
að vera tilbúið í lok maí. Því til
viðbótar er íslensk stúlka á okkar
vegum í Úganda. Þar vinnum við í
samstarfi við ágæta aðila, Uganda-
Australia Foundation, styrkjum um
100 börn í Norður-Úganda. Þar er
ætlunin að taka þátt í byggingu
húsa fyrir ekkjur með ung börn,
svo og byggingu forskóla, barna-
skóla og sjúkrahúss. Ekkjurnar
munu þá taka að sér umönnun
nokkurra munaðarlausra barna til
viðbótar. Þeim verður í staðinn séð
fyrir húsaskjóli, menntun og starfs-
þjálfun, en börnin ganga í skóla og
verða styrkt til áframhaldandi
náms. í Úganda er mjög mikið um
munaðarlaus börn, þar hefur verið
barist frá árinu 1979 og margir
hafa einnig látist af völdum eyðnij
sem heijar á um 20% íbúanna. I
öllum þessum löndum er verðlagið
svo lágt að fjármunir okkar nýtast
margfalt á við það sem þeir myndu
gera á íslandi."
Styrkjum yfir 700 börn
til náms
Hjálparstarfið, sem byggt er á
hugsjón sem kviknaði í hnattferð,
hefur vaxið jafnt og þétt á síðustu
fimm árum. Lengi vel var allt unn-
ið í sjálfboðavinnu, en í fyrra var
umfang starfseminnar orðið svo
mikið að ráðinn var starfsmaður í
hálft starf og nú sinnir hann fullu
starfi. Verkefni hans er meðal ann-
ars fólgið í því að sjá um upplýs-
ingaflæði milli stuðningsaðila og
barna, þýða upplýsingar um ný
börn, halda utan um fjármál, bók-
hald og vinna við mánaðarlegar
útsendingar gíróseðla og frétta-
bréfs. Þegar verkefnið í Úganda
verður komið af stað eru börnin sem
ABC-hjálparstarf styrkir komin á
áttunda hundrað. Um 500 manns
styrkja nú börn til skólagöngu, en
framlögin renna óskipt til þeirra.
Til að afla rekstrarfjár eru seldir
pennar ofl. „Við höfum lítið aug-
lýst, flestir þeir sem styrkja börnin
hafa frétt af okkur í gegnum aðra.
Þetta er oft mikil barátta, það tek-
ur á að afla fjár. Við verðum að
reyna að hafa augu og eyru opin
til að missa ekki af möguleika á
fjárstuðningi, við þyrftum að fá
fyrirtæki sem vildu standa að þessu
starfi með okkur. Það verður ekki
aftur snúið héðan af, við höfum
skuldbundið okkur til að sjá þessum
börnum fyrir menntun, hvað svo
sem stuðningsfjölskyldurnar gera.“
Guðrún Margrét hefur aldrei
ferðast á vegum hjálparstarfsins
og ekki komið á þá staði sem ABC-
hjálparstarf styrkir. Þeir sem farið
hafa á vegum hjálparstarfsins
greiða ferðirnar sjálfir. Það er ekk-
ert bruðlað á þessum bæ. „Mér
hefur margoft verið boðið að koma
og skoða það sem verið er að gera
og ég bíð spennt eftir því að geta
komist. Þyrfti að gera það til að
fylgjast betur með.“
Trúin
En hvernig var unga konan sem
lagði upp í heimsreisu fyrir tæpum
átta árum? „Trúuð. Foreldrar mínir
voru í hvítasunnusöfnuðinum, en
framan af aldri hafði ég ekki áhuga
á því. Þegar ég var þrettán ára var
mér boðið á samkomu í Fíladelfíu,
sem breytti þeirri skoðun minni, ég
Filippseyjar
Á Filippseyjum hefur ABC-hjálparstarf tekið að sér að kosta 422
börn í skóla.
lét skíra mig og gekk í söfnuðinn.
Síðar gekk ég i Veginn, trúfélag
mannsins míns.
Ég hef líka alltaf haft mjög gam-
an af því að ferðast, og það á frem-
ur óhefðbundinn hátt. Þegar jafn-
aldrar mínir fóru í bíó og á böll,
langaði mig miklu frekar að ganga
á fjöll. Ég fór snemma að hjóla um
landið og ferðast á puttanum. Ég
átti yndislegt heimili en samt sem
áður leið mér aldrei betur en á
ferðalögum og því_ lengra sem ég
komst, því betra. Ég hef komið til
um 35 landa og aldrei fundið fyrir
af heimþrá."
— Hefur þú haft löngun til að
skera þig úr hópnum?
„Þó ég hafi kannski skorið mig
nokkuð úr hópnum á mínum yngri
árum, er ég bara venjuleg húsmóð-
ir í dag.“
Engar tilviljanir
Guðrún Margrét er hjúkrunar-
fræðingur að mennt, segir valið
hafa staðið um spænsku eða hjúkr-
unarfræði. „Ef til vill blundaði löng-
unin að hjálpa öðrum undir niðri
þegar ég valdi síðarnefnda fagið.
Ég gef allt sem ég kemst upp með
að gefa,“ segir hún.
Guðrún vinnur í Hlaðgerðarkoti,
heimili fyrir alkóhólista, tvisvar í
viku en ABC-hjálparstarf er engu
að síður lífsstarfíð hennar. Hún
segist vera svo lánsöm að geta
unnið mikið S sjálfboðavinnu. Líf
sitt sé vissulega flókið fyrir vikið
en hún hafi aldrei efast um að hún
sé að gera rétt. „Það hafa oft orðið
straumhvörf í lífi mínu, fyrir tilvilj-
un að mörgum finnst. Én ég sé þau
ekki sem tilviljanir, ég trúi því að
Guð hafi áætlun fyrir líf allra
manna og þetta sé hans leið til að
benda mér á hvaða veg ég á að
fara. Allar þessar „tilviljanir" eru
mér staðfesting á því að Guð stend-
ur á bak við þetta allt saman."
VORTILBOO VORTILBOÐVORTilBOB VORTIIBOO VORTIUBOO VORTUBOÖ VORTlLBOB VORTILBOÐ VORTiLBOO
Gleðilegt sumar I
SYNiNO UM HCÍO/NA
ÞVOTTAVEL
ÖKO LAVAMAT
VERÐ ÁÐUR 99.381,-
79.900, ■ STGR.
AEG
ORB YLGJUOFN
MICROMAT
VERÐ ÁÐUR 34.180,-
Samlokugrill, brauöristar og pönnur
15% afsláttur af pottum og pönnum frá TEFAL
og leirvöru frá EMILE HENRY
AEG
Vortilboð á handverkfærum
Góður afsláttur
Heimilistæki
AEG
KÆLISKAPUR
SANTO
VERÐ ÁÐUR 73.303,-
6 7.900,- STGR.
Heitt kaffi
á könnunni j Opi&: iaugardag kl. 10-17 sunnudag kl. 13-17
og konfekt með
O
VORTitBOÖ VORTIIBOÐ VORTILBOÐ VORTILBOÐ VORTILBOÖ VORTILBOÖ VORTILBOÖ VORTILBOÖ VORTiLBOÖ
Heimilistæki og handverkfæri
BRÆÐURNIR
m ÖRMSSONHF
Lágmúla 8, Slmi 38820