Morgunblaðið - 25.04.1993, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
MAIMNLIFSSTRAUIWIAR BUNNUOAGÍJR
.25. APRIL 1'993:
B 9
UIVIH VERFISMÁL/Verbur ísland hreinasta land hins
vestrcena heims um aldamótf
Stefnumótiin
ogfmmkvæmdir
NÝLEGA hefur verið lögð fram ýtarleg skýrsla um stefnu og
framkvæmdir ríkissljórnarinnar í umhverfismálum sem ber heit-
ið: Á leið til sjálfbærrar þróunar. Þar er um að ræða fyrstu al-
hliða stefnumótun sem íslensk stjórnvöld hafa látið vinna i um-
hverfismálum. Umhverfisráðherra skipaði nefnd fulltrúa ríkis-
stjórnarflokkanna 22. maí síðastl. til að undirbúa mótun langtíma-
stefnu í umhverfismálum og skilaði hún af sér verkinu nú í febr-
úar. Stefnt er að því að framkvæmdaáætlunin nái fram til alda-
móta og að lokið verði gerð einstakra þátta hennar fyrir mitt
ár 1994. Þetta er yfirgripsmikið rit, ætlað til að varða veginn til
framtíðar í umhverfismálum þar sem settar eru grundvallarregl-
ur um umgengni okkar við umhverfið. Hér verður aðeins gripið
niður á víð og dreif í þessu ágæta plaggi, sem ætti í raun að
kynna ýtarlegar fyrir öllum almenningi en tækifæri er til í stutt-
um pistli sem þessum.
^.skýrslunni er lögð rík áhersla
I á að virkja almenning, fé-
lagasamtök, fyrirtæki og op-
inberar stofnanir til að vinna að
umhverfisvernd og stuðla að
framgangi sjálfbærrar þróunar.
í kafla með fyr-
irsögninni Nýjar
forsendur, segir
að til skamms
tíma hafi verið
gengið út frá því
að umhverfis-
eftir Huldu vernd og hag-
Valtýsdóttur vöxtur væru ós-
ættanlegar andstæður. Efna-
hagsþróunin frá iðnbyltingunni
hefur ýtt undir það viðhorf. En
síðustu áratugi hefur nýtt við-
horf rutt sér til rúms og fylgi
þess fer sívaxandi meðal almenn-
ings, stjórnvalda og fræðimanna.
Hagþróun þarf ekki að vera í
andstöðu við umhverfisvernd
auk þess sem hagvöxtur og bætt
lífsskilyrði eru að jafnaði nauð-
synlegar forsendur umhverfis-
verndar. Við mat á hagvexti ber
að taka tillit til áhrifa þróunar á
náttúrugæði. Þetta hugtak hefur
verið kennt við sjálfbæra þróun.
Hugmyndafræði sjálfbærrar
þróunar staðfestir þau sjálfsögðu
mannréttindi að sérhver ein-
staklingur eigi rétt á umhverfi
sem stuðlar að heilbrigði og far-
sæld. Þessum rétti fylgir skýlaus
skylda einstaklingsins til að
leggja sitt af mörkum til verndar
umhverfinu. En framfarir í tækni
og vísindum auka skiining okkar
á því náttúrulega samhengi sem
allt líf á jörðinni byggist á.
Stefna sem hefur sjálfbæra þró-
un að leiðarljósi tryggir að vax-
andi hagkerfi hafi traustar vist-
fræðilegar rætur. Nýr og breytt-
ur hagvöxtur er þannig forsenda
þessa nýja viðhorfs.
Á einum stað segir að mark-
mið ríkisstjórnarinnar sé að ís-
land verði um næstu aldamót
hreinasta land hins vestræna
heims og ímynd hreinleika og
sjálfbærrar þróunar tengist allri
starfsemi í landinu. Þá er víða í
skýrslunni ítrekað að alhliða
umhverfisvernd verði ekki komið
á með boðum og bönnum frá
stjórnvöldum. Hér þurfi að koma
til vilji og athafnir almennings.
Stjórnvöld eigi fyrst og fremst
að hafa eftirlit með ástandi um-
hverfis, setja reglur um um-
gengni og skapa almenn skilyrði
sjálfbærrar þróunar. Bent er á
það lykilhlutverk sem fræðslu-
og menntastofnanir, fjölmiðlar
og félagasamtök gegna í þessu
sambandi.
í tengslum við þessa skýrslu
má geta þess að nú liggur fyrir
Álþingi frumvarp til laga um
umhverfismat og samþykkt voru
19. mars síðastl. lög um upplýs-
ingamiðlun og aðgang almenn-
ings að upplýsingum um um-
hverfismál.
í kafla sem ber heitið Ný-
breytni í framkvæmd er lögð
áhersla á mikilvægi þess að end-
urskoða gildandi lög um þessi
málefni með það að markmiði
að staðfesta vernd sem megin-
reglu á sviði umhverfísmála.
Hafin verði einnig gagnger end-
urskoðun skattalaga og opin-
berra gjalda til að laga neyslu,
atvinnulíf og hagkerfi að kröfum
sjálfbærrar þróunar. Verið er að
þróa nýjar aðferðir við skipulags-
gerð til að stuðla að bættum
landnotum og nýtingu. Þar er
um að ræða víðtækt landfræði-
legt upplýsingakerfi byggt á
stafrænum grunni. Þar undir
heyrir gerð landsskipulags,
svæðisskipulags og landnýt-
ingaráætlana, sem taka jafnt til-
lit til umhverfís og hagkvæmni-
sjónarmiða. Þar er og sagt að
stefnan sé að stöðva eyðingu
gróðurs og jarðvegs fyrir alda-
mót og endurnýja eftir megni
það sem tapast hefur og gerð
er grein fyrir hvernig að því skuli
standa, bæði á vegum hins opin-
bera og annarra aðila. Gerð gróð-
urkorta fyrir allt landið á að
vera lokið fyrir árslok 1995,
þannig að hægt verði að vakta
gróður og meta árangur og að-
ferðir í landgræðslu og gróður-
vernd.
Vatn er auðlind og unnið er
að gerð frumvarps til laga um
vatnsvernd sem nær til nytja-
vatns, yfirborðs- og grunnvatns.
Einnig er verið að endurskoða
reglur um fiskeldi til að koma
því máli í skilvirkari farveg. Vik-
ið er að sjávarauðlindinni þar
sem segir að vísindaleg vitneskja
um hafið kringum landið, lífríki
þess og vistkerfi sé ónóg, enda
þótt íslenskt efnahagsiíf byggi
að mestu á sjávarútvégi. Því
þarf nú að meta og treysta vís-
indalegan grunn veiðistjórnunar
og hraða fjölstofnarannsóknum
á heildarsamhengi lífríkis sjávar.
Þá er verndun hafsins gegn
mengun meðal mikilvægustu
forgangsverkefna í umhverfis-
málum okkar.
Þetta rit um stefnu og fram-
kvæmdir í umhverfísmálum á
íslandi er hið vandaðasta plagg.
Nefndin sem það samdi hefur
lagt í það mikla vinnu, enda er
hér um að ræða gleggri úttekt
á stöðu umhverfismála hér á
landi en áður hefur sést. Engin
ástæða er til að efast um að
þessi mikilvægu áform komi til
framkvæmda - enda ekki til
setunnar boðið ef ísland á að
verða hreinasta land hins vest-
ræna heims um næstu aldamót.
Þau hafa sigrað hjörtu Íslenskra
KVENNA OG KARLA.
NÚ VERÐUR ALLT VITLAUST OG AF HVERJU?
JÚ VIÐ VITUM ÞAÐ.
Erum að taka upp
á morgun,
mánudag,
stórglæsilega
sendingu frá
J. Rosenthal.
Allt ný mynstur
með gyllingu.
Br. 122 cm verð
kr. 360,- pr. mtr.
Br. 173 cm verð
kr. 490,- pr. mtr.
Samkvæmispáfinn, Egilsstöðum.
Kaupf. Fram, Neskaupstað.
Kaupf. Vopnfirðinga, Vopnafirði.
Kaupf. Dýrfirðinga, Þingeyri.
Paloma, Grindavík.
Kaupf. V-Húnvetninga, Hvammstanga.
Kaupf. Húnvetninga, Blönduósi.
Sporið, Ólafsvík.
Kaupf. A-Skaftfellinga, Höfn, Hornafirði.
Póstsendum
Z-Brautir og Gluggatjöld, Reykjavík.
Amaró hf, Akureyri.
Draumaland, Keflavik.
Hannyrðaverslunin íris, Selfossi.
Nýja línan, Akranesi.
Kaupf. Skagfirðinga, Sauðárkróki.
Mozart, Vestmannaeyjum.
Kaupf. Þingeyinga, Húsavík.
GlyHSlU:IKI A GOÐRl
STUND
vero
kr.17.
BACKMAN.