Morgunblaðið - 30.04.1993, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 30.04.1993, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1993 Guðmundur sagði að þetta væri fimmta vertíð sín í röð í Sandgerði og hefði útkoman verið ágæt. Þó hefði hann fært sig til Ólafsvíkur í fimm vikur í vetur þegar suðvest- anáttimar voru sem þrálátastar og það hefði raunar bjargað vertíðinni hjá sér því á þeim tíma hefðu þeir fengið 90 tonn í netin. Rofar til Guðmundur sagði að hann hefði flutt suður frá Eyjafírði þegar við hrefnuveiðum hefði verið ákveðið en hann hefði stundað hrefnuveiðar í áraraðir. Nú virtist vera að rofa eitthvað til í þessum málum og því væri ekki að leyna að sig væri aðeins farið að klæja í lófana. Guðmundur sagðist hafa orðið var við að mikið væri af hrefnu út af suðvesturströndinni og trúlega mun meira en fyrir norð- an land. BB iuuiguiiuiauiu/Djuni oiunuai Þremur tonnum landað Haraldsson skipstjóri á Nirði EA við löndun í Sandgerðishöfn, en þriggja manna áhöfn er á 17 tonna bátnum. Mikill fjöidi báta hefur verið í Sandgerðishöfn að undanförnu Ysukropp hjá Suðumesjabátum Keflavík. „VIÐ HÖFUM aðallega einbeitt okkur að ýsunni að und- anförnu og aflinn hefur verið þokkalegur. En að öðru leyti sýnist mér að þetta sé ákaflega svipað og fyrir páskastoppið,“ sagði Guðmundur Haraldsson skipstjóri á Nirði EA 17 sem var að landa tæplega 3 tonnum af ýsu í Sandgerðishöfn. Afl- inn hjá Suðurnesjabátunum hefur verið þokkalegur að undan- förnu en talsverð hreyfing er á bátunum vegna frétta um fiski- gengd austan við Reykjanes og í fyrradag voru um 88 bátar í höfninni í Sandgerði en þeir hafa verið allt að 120 að undan- förnu. Bíll valt 100 m nið- ur í fjöru UNGT par slasaðist nokkuð er fólksbíll þess fór út af veginum í sunnanverðum Gilsfirði í fyrri- nótt og valt 100 metra vega- lengd niður bratta brekku. Bíll- inn hafnaði að lokum á hjólunum í flæðarmálinu en bæði voru þau í bílbeltum og bjargaði það miklu að sögn lögreglu. Piltur- inn slapp með mar undan beltun- um en stúlkan marðist og fót- brotnaði. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Búðardal var tilkynnt um slysið um klukkan 2.30 um nóttina. Sökum aðstæðna á slys- stað var björgunarsveit kölluð út til aðstoðar og fór hún ásamt lög- reglu og sjúkrabíl á slysstað. Bíll- inn fór út af veginum við Gijótá í Kleifahlíð. Á leiðinni niður í flæð- armálið lenti bíllinn í snjóskafli og er talið að það hafi dregið úr hraða fallsins. VEÐURHORFUR í DAG, 30. APRÍL YFIRLIT: Milli íslands og Grænlands er 100 mb lægð sem þokast hægt austur. SPÁ: Norðaustan- og austankaldi á Vestfjörðum en suðlæg átt, víðast kaldi í öðrum landshlutum. Slydduél verða sunnan og vestanlands en léttskýjað norðaustan og austan til. Hiti verður á bilinu 2-7 stig að deginum en víða næturfrost. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Norðanátt með snjókomu eða éljum um norðanvert landið, en sunnanlands verður úrkomulítið. Frostlaust að deginum sunnanlands, en annars 0-5 stiga frost. HORFUR Á MÁNUDAG: Hæg breytileg eða norðlæg átt. Skýjað með köflum og sums staðar dálítil él. Svalt. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22. 30.Svarsími Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600. Heiðskírt / / / / / r r r Rigning Léttskýjað * / * * r r * r Slydda Hálfskýjað * * * * * * * * Snjókoma Skýjað Alskýjað V ^ V Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjööur er 2 vindstig.^ 10° Hitastig y súid = Þoka rtig.. FÆRÐÁ VEGUM: (Kl. 17.30 ígær) Víðast á landinu er nú ágæt færð og er greiðfært um Suðurland til Austfjarða og þar eru flestir vegir færir. Vel fært er um Vesturland og í Reykhólasveit. Kieifarheiði og Hálfdán eru ófær. Þá er fært norður um Holtavörðuheiði til Hólmavíkur og áfram til ísafjarðar. Fært er um Norð- ur- og Norðausturland og Möðrudalsöræfi og Vopnafjarðarheiði eru fær. Víða hefur öxulþungi verið takmarkaður vegna aurbleytu og það merkt við viðkomandi vegi. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í s(ma 91-631500 og ígrænnilínu 99-6315. Vegagerðin. •mmr* 9 t VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að fsl. tíma hiti veöur Akureyri 5 léttskýjað Reykjavík 3 léttskýjaö Bergen vantar Helslnkl 13 skýjað Kaupmannahöfn 18 léttskýjað Narssarssuaq +6 skýjað Nuuk *8 snjókoma Osló vantar Stokkhólmur 16 léttskýjað Þórshöfn vantar Algarve 16 skýjað Amsterdam 26 heiðskírt Barcelona 17 mistur Berltn 26 léttskýjað Chicago 14 rigning Feneyjar 23 skýjað Frankfurt 25 léttskýjað Glasgow 17 heiskirt Hamborg 18 heiðskírt London 16 mistur Los Angeles 14 þokumóða Lúxemborg vantar Madríd 13 skýjað Malaga 17 skýjað Mallorca 17 alskýjað Montreal 10 skýjað NewYork 11 heiðskírt Orlando 16 léttskýjað París 20 léttskýjað Madelra 19 hálfskjýað Róm 14 rigning Vín 23 léttskýjað Washington 10 heiðskírt Winnipeg 3 súld Reykjavík og slökkviliðsmenn Agreiningi vís- að til Félagsdóms BORGARRÁÐ hefur samþykkt, í samráði við Landssam- band slökkviliðsmanna, samhljóða tillögu þess efnis að leggDa fyrir Félagsdóm ágreining um greiðslu félagsgjalda slökkviliðsmanna í Reykjavík. Jafnframt er borgarráð til- búið til að greiða allan kostnað því samfara. í greinargerð borgarritara til borgarráðs kemur fram, að Lands- sambandið hafi ekki verið talið full- nægja þeim lagaskyldum, sem til þarf til að þeim verði staðin skil á félagsgjöldunum. Félagsgjöldin hafi réttilega verið greidd til Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar til síðustu mánaðamóta, en með bréfi í mars hafi Starfsmannafélagið ósk- að eftir að hætt yrði að innheimta gjöld þeirra brunavarða sem höfðu sagt sig úr félaginu. Félagsgjöld innheimt Þá segir: „Eftir að tilmæli hafa nú borist frá Landssambandinu um innheimtu félagsgjalda þykir rétt að fallast á þau, þannig að frá og með næstu mánaðarmótum verði innheimt félagsgjöld af þeim slökkviliðsmönnum, sem sagt hafa sig úr Starfsmannafélagi Reykja- víkurborgar, jafnhá og þeir áður greiddu til Starfsmannafélagsins, og þeim skilað til Landssambands slökkviliðsmanna, enda andmæli viðkomandi slökkviliðsmaður ekki innheimtunni. Áréttað er, að hér er ekki um innheimtu að ræða, sem byggist á laga- eða samnings- skyldu." Morgunblaðið/Júlíus Isbúð flytur vegna framkvæmda ÍSBÚÐIN Skalli sem staðið hefur á Ingólfstorgi undanfarin ár, var flutt yfir á Lækjartorg í fyrrakvöld. Að sögn eigandans, Jóns Magnús- sonar, er allnokkur vinna framundan við að gera ísbúðina tilbúna til rekstrar á ný. Hann kvaðst þó gera ráð fyrir að Skalli verði opnaður á nýja staðnum nú eftir helgina. Þá hefur borgarráð samþykkt að taka 41,2 milljón króna tilboði lægstbjóðanda Suðurverks hf. í jarð- vinnu og lagnir vegna framkvæmda við Ingólfstorg í sumar. Tilboðið er 94,95% af kostnaðaráætlun sem er 43,4 milljónir króna. Tvö önnur tilboð bárust í lokuðu útboði og átti Istak hf. næst lægsta boð tæpar 44 milljónir kr. eða 101,21% af kostnaðaráætlun. Þá bauð Loftorka hf., rúmar 46,6 milijónir, eða 107,43% af kostnaðaráætlun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.