Morgunblaðið - 30.04.1993, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 30.04.1993, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30- APRÍL 1993 45 Svar menntamálaráðherra við opnu bréfi Gunnars Markóssonar í bréfi þínu í Morgunblaðinu 27. þ.m. hefur þú eftirfarandi eftir mér frá umræðum á Alþingi: „Hafi Hrafn Gunnlaugsson haft fé af Rík- isútvarpinu með lagalega eða sið- ferðilega vafasömum hætti, þá er það að sjálfsögðu sök útvarpsins.“ Þetta sagði ég ekki en kem að því síðar. Þessi ummæli segir þú hafa glatt þig mjög, þar sem ykkur hjón- in langar til Vancouver en skortir farareyri. Því megi kippa í liðinn með því að þú „skryppir eitthvert föstudagskvöldið hérna niður í Kaupfélagið og næðir þar „með lagalega eða siðferðilega vafasöm- um hætti“ í það fé sem á vantar“. Og hvort ég myndi þá ekki hringja fyrir þig í kaupfélagsstjórann og sannfæra hann um að sökin væri hans. Við þessari beiðni þinni get ég ekki orðið. Ástæðan er sú að hér væri um þjófnað af þinni hálfu að ræða og sökin þín en ekki kaupfé- lagsstjórans. Orð þau, sem þú hefur eftir mér innan tilvitnunarmerkja, hef ég ekki viðhaft. Ég sagði þetta: „í allri þeirri dæmalausu umræðu, sem orðið hef- ur undanfarnar vikur er látið líta svo út sem Hrafn Gunnlaugsson hafi haft fé af Ríkisútvarpinu með annaðhvort ólögmætum eða þá ósiðlegum hætti. Fyrir fram trúi ég því ekki, en ef svo verður talið, þá hljóta yfirmenn Ríkisútvarpsins að bera ábyrgð.“ Út úr þessum orðum mínum verður ekkert snúið. Komið hefur fram að gerður hafi verið samning- ur milli Hrafns Gunnlaugssonar og Ríkisútvarpsins um sýningarrétt á kvikmynd hans, „Hin helgu vé“, en það jafngildir ekki að fjármunir hafi verið teknir ófrjálsri hendi. Komist Ríkisendurskoðun að þeirri niðurstöðu að Hrafni hafi verið greiddar of háar fjárhæðir sam- kvæmt þessum samningi, þá hlýtur Ríkisútvarpið að bera á því ábyrgð. Þessi voru mín orð. Áf þeim má ekki ráða að ég sé líklegur til að hringja fyrir þig í kaupfélagsstjór- ann og koma sök á hann, ef þú tekur fé úr kaupfélagskassanum. Ef kaupfélagsstjórinn lætur þig hins vegar fá farareyri, sem þú átt ekki skilið, er líklegt að hann þurfi að standa kaupfélagsstjórninni reikningsskil gerða sinna. Hann ber með öðrum ábyrgðina. ÓLAFUR G. EINARSSON Opið bréf til Þorgeirs Þorgeirsonar rithöfundar Frá Jens í Kaldalóni: ÞAR SEM ég álít þig nú einn af þeim úrvalsmeisturum í sögufræð- um öllum, skáldskap og göfgi, þá langar mig nú, þótt tæpum sendi- bréfseiginleikum ég hafi úr að spila, á við þína andagift og hæfileika, að senda þér línu. Ég las þarna um daginn eftir þig ágætan kafla í Morgunblaðinu í þættinum „Bréf til blaðsins", bréf til Birgis Sigurðs- sonar rithöfundar: j þættinum segir þú „vöflulaust". Ég hef heyrt að vöfflur væru bakkelsi, og þyki, með HEILRÆÐI ÞEGAR FARJÐ ER YFIR GÖTU ER ÖRUGGAST AÐ DRAGA BARNA- VAGN EÐA KERRU EFTJR SÉR. SLYSAVARNAFÉLAG ÍSLANDS RAUÐI KROSS ÍSLANDS YELVAKANDI ITILEFNI REYKLAUSS DAGS Ef þú tóbak alveg látið ósnert getur, lifirðu bæði lengur og betur Auðunn Bragi Sveinsson TAPAÐ/FUNDIÐ Myndavél tapaðist MYNDAVÉL, Olympus AS-1 Super, verksm.nr. 1198854 (34), tapaðist frá Hávallagötu 36 í febrúar. María Ingvars- dóttir tekur við upplýsingum um myndavélina í síma 94-4947. Fundarlaun. Hjól töpuðust TVÖ hjól, annað er hvítt Trek- hjól, en hitt rautt og svart af gerðinni Pro Style, töpuðust frá Bústaðavegi 49 fýrir röskum hálfum mánuði. Finnandi vin- samlega hafi samband í síma 32676. GÆLUDYR Týnd kisa SVÖRT læða með hvítan blett á bringu týndist sl. miðvikudag frá Bárugötu. Svarar nafninu Stjarna. Hún er ómerkt. Upp- lýsingar í síma 626764. Týndur köttur GULUR fressköttur, geltur, hvarf miðvikudaginn 21. þ.m. fráNjálsgötu 102. Svararnafn- inu Paco. Hann var með svarta ól með merki í og eyrnamerkt- ur. Upplýsingar í síma 19091. AlúÖarþakkir flyt égfjölda einstaklinga víðsveg- ar um land og félagasamtökum, sem sýndu mér vináttu og hlýju viÖ 80 ára aldursmörkin þann 18. mars sl. með góðum gjöfum, heilla- skeytum, bréfum og ýmsum öörum hœtti. MeÖ kœrri kveöju og bestu sumaróskum. Akranesi, 22. apríl 1993. Daníel Agústínusson. þeyttum rjóma, sælgætismeðlæti með kaffí. Aftur á móti, þar sem þú talar um þessar vöfflur í .sambandi við hið fræga Gunnlaugssonar-mál, hefði að mínum smekk átt að koma „að hann hefði sagt þetta vöblu- laust“, þ.e.a.s. að hann hefði ekki verið að væblast neitt yfir því, en ekki að vöfflast yfír því. Ég er lengi búin að sjá þetta „vöfflast" á prenti nú undanfarin ár, en kann illa við það, því hitt situr svo í minni mínu að átt sé við orðið vöblulaust, því það var í mínu ungdæmi kallað að væblast, þegar maður var óákveðinn, og var að væblast í einu og öðru. En ég er líka löngu búinn að sjá það leiðin- lega orðbrengl, að vöfflast yfir ein- hveiju og eiga blessaðar vöfflumar ekkert skilið að vera blandað í það vöblustúss. En svo er annað ekki síður óvið- kunnanlegt þegar sagt er dróst áfram. Finnst mönnum virkilega smekklegt að segja: að draa sleð- ann, þá sleppt er orðinu að draga sleðann, og segja bara að draa hann. Eða þetta dróst hjá honum eða henni, en því ekki að segja þetta drógst. Ég hélt að þetta væri dregið af orðinu að draga, og g-ið ætti því að fylgja með í þessu orði í flestum föllum. Ég er því ekkert hissa á því, þótt Gunnlaugssonurinn kæmi vöfflulaus til skjalanna og hefði sízt farið að stássast með slíkt bakkelsi í farteski sínu. Með bestu kveðju, JENS í KALDALÓNI LEIÐRETTING Nafn misritaðist í gagnrýni eftir Braga Ásgeirs- son í Morgunblaðinu síðastliðinn þriðjudag misritaðist nafn listmál- arans, sem um var (jallað. Hann heitir Höskuldur Harri Gylfason og var með sýningu í Listhúsi Úmbru. Beðist er velvirðingar. Misritun á bæjar- nöfnum í frétt í Morgunblaðinu í gær um heimsókn sunnlenskra sauðfjár- bænda í Snæfellsnes misrituðust tvö bæjarnöfn en þau eru réttilega Hjarðarfell í Miklaholtshreppi og Berserkseyri í Eyrarsveit. Morgun- blaðið biðst velvirðingar á þessum mistökum. Tvær gerðir af pizzum í helgartilboðunum á neytendaopn- unni í gær var frá því greint að Ömmupizzur væru á tilboðsverði í tveimur verslunum, og á mun lægra verði í Bónus en í Nóatúni. Hið rétta er að hér er um tvær ólíkar pizzugerðir að ræða sem þó eru framleiddar af sama aðilanum. Hlutaðeigandi eru beðnir velvirð- ingar. Veiðifélag Elliðavatns Stangveiði á vatnasvæði Elliðavatns hefst 1. maí. Veiðileyfi eru seld á Vatnsenda og Elliðavatni. Á sömu stöðum geta félagar úr Sjálfsbjörgu, unglingar (12-16 ára) og elli- lífeyrisþegar úr Reykjavík og Kópavogi feng- ið afhent veiðileyfi án greiðslu. Veiðfélag Elliðavatns. Ltrra Vinn ngstölur ,------------- miðvikudaginn:! 28- aPrfl 1993 j VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING m63,6 0 17.363.000.- [178 5 af 6 ICÆ+bónus 0 366.512,- 0 5af6 8 35.996,- |0 4af6 262 1.748,- |r« 3 af 6 ItAH+bónus 902 218,- Heildarupphæð þessa viku 18.672.092,- áisi.: 1.309.092, UPPLÝSINGAR, SÍMSVARI91- 68 15 11 LUKKULÍNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451 BIRT MEO FTRIRVARA O'J PREHTVILLUR Kjuklingar á kostabobi Velkomin í kjúklingakrœsingarnar okkar Fjölskyldupakki fyrir 5. 10 kjúklingabitar, franskar,sósa og salat Verö 1990 kr Athugið aðeins 398 kr á mann Fjölskyldupakki fyrir 3. 6 kjúklingabitar,franskar,sósa og salat Verb 1290 kr. Pakki fyrir 1 2 kjúklingabitar,franskar,sósa og salat Verb 490 kr BL Hraórétta veitingastaóur í hjarta borgarinnai W Sími 16480 Þú getur bæöi tekiö matinn meö þér heim eöa boröaö hann á staðnum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.