Morgunblaðið - 30.04.1993, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1993
• •
Onnur umræða um frumvarp til breytinga á lögum um EES
Ekkí merkjanleg afstöðu-
breyting gagnvart EES
AFSTAÐA.þingmanna til frum-
varps um nauðsynlegar breyt-
ingar á lögum um Evrópska
efnahagssvæðið, EES, virðist
sú sama og þingmenn höfðu
þegar þeir samþykktu EES-
samninginn 12. janúar síðastlið-
inn. Fulltrúar sljórnarflokk-
anna í utanríkismálanefnd
mæla með samþykkt frum-
varpsins. Ingbjörg Sólrún
Gísladóttir fulltrúi Kvennalist-
ans í utanríkismálanefnd sagði
sína afstöðu ekki hafa breyst
og hyggst sitja hjá. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins eru
skoðanir þingmanna Fram-
sóknarflokksins óbreyttar en í
janúar sátu sex framsóknar-
menn hjá í atkvæðagreiðslu um
staðfestingarfrumvarp EES.
Aðrir þingmenn stjórnarand-
stöðu verða væntanlega líkt og
í janúar andvígir. Ráð er fyrir
því gert að greiða atkvæði um
breytingarfrumvarpið í dag.
Mi PSffeg
PSfÍ: pft
Með frumvarpi því sem var til
annarrar umræðu í gær er leitað
eftir heimild Alþingis til að full-
gilda þær bókanir sem aðilar að
EES urðu ásáttir um að gera á
EES- samningnum og fylgisamn-
ingum vegna þeirrar ákvörðunar
Svisslendinga að gerast ekki aðilar
að EES. Að lokinni 1. umræðu var
málinu vísað til utanríkismála-
nefndar. Meirihluti nefndarinnar
skilaði áliti síðasta mánudag en
1., 2. og 3. minnihluti í gær.
Meðmæli meirihluta
Bjöm Bjarnason formaður ut-
anríkismálanefndar mælti fyrir
áliti meirihluta nefndarinnar sem
fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Al-
þýðuflokks skipa. Hann benti á
að með frumvarpinu væri verið
að gera breytingar á þeim lögum
sem Aþingi hefði samþykkt 12.
janúar síðastliðinn. Þessar breyt-
ingar væru tæknilegar fremur en
efnislegar. Bjöm sagði að við
meðferð málsins í nefndinni hefði
verið fjallað um 3. bókun við EES-
samninginn en sú bókun varðaði
landbúnaðarmál en samningavið-
ræðum um endanlegan frágang
hennar væri enn ólokið. Bjöm
sagði að talsmenn landbúnaðarins
hefðu komið á fund nefndarinnar
og ekkert hefði fram komið sem
ætti að hafa áhrif á afgreiðslu
þessa framvarps. En meirihluti
utanríkismálanefndar hefði þó tal-
ið rétt að árétta að Alþingi fengi
nákvæmar upplýsingar um fram-
vindu mála í samingaviðræðum
um landbúnaðarmálin. Hann var
þess fullviss að utanríkismála-
nefnd og landbúnaðamefnd fengju
þess kost að fylgast með gangi
þeirra viðræðna. Það var afstaða
meirihlutans að mæla með sam-
þykkt þessa framvarps.
„Ótrúleg mistök“
1. minnihluti í utanríkismála-
nefnd era fulltrúar framsóknar-
manna í utanríkismálanefnd, Páll
Pétursson (F-Nv) og Steingrímur
Hermannsson (F-Rn) sem hafði
framsögu fyrir áliti 1. minnihluta.
Steingrímur sagði að menn yrðu
að gera ráð fyrir því að EES-samn-
ingurinn væri loks kominn í endan-
legt form og afstaða fulltrúa fram-
sóknarmanna í utanríkismála-
nefnd væri enn sú sama. Það
valdaafsal sem fælist í þeim laga-
gjörningi fengi ekki staðist gagn-
vart stjórnarskrá. Framsögumað-
ur var og þeirrar skoðunar að nú
undanfarið hefðu komið í ljós
„ótrúleg mistök“ í meðferð land-
búnarmála í samningaviðræðum
um innflutning landbúnaðarmála
samkvæmt bókun 3. Úr því yrði
að leysa áður enn EES-samning-
urinn yrði endanlega afgreiddur.
Steingrímur vildi og benda á að
afdrif EES-samningsins væri enn
mjög óviss og það væri ljóst að
fullgilding EES-samningsins fre-
staðist. Því gæfst nægur tími til
að leita álits þjóðarinnar á samn-
ingnum.
Steingrímur Hermannsson
sagði 1. minnihluta styðja tillögu
sem formenn þingflokka stjómar-
andstöðu myndu leggja fram.
Þingflokksformenn legðu til að
þessu máli yrði vísað til ríkisstjórn-
arinnar. Steingrímur vænti þess
að tillaga þessa efnis kæmi fram
fljótlega.
MMlKSI
„Veik von“
Hjörleifur Guttormsson var
talsmaður 2. minnihluta í utanrík-
ismálanefnd, þ.e. Alþýðubanda-
lagsins. Hjörleifur ítrekaði með
nokkram orðum andstöðu sína við
aðild að EES. Hann sagði nú veika
von til þess að hnekkja þeim „ólög-
um“ sem samþykkt hefðu verið í
janúar. Hann minnti þingmenn á
ábyrgð sína og þungan dóm sög-
unnar ef þeir samþykktu þetta
framvarp. Með afgreiðslu þessa
framvarps réðist afstaða Alþingis
til samningsins um Evrópska
efnahagssvæðið. Samningurinn
bryti gegn ákvæðum íslensku
stjómarskrárinnar og skerti raun-
veralegt löggjafarvald Alþingis.
Hjörleifur varaði við að aðild að
EES myndi mjög styrkja þau öfl
sem knýðu leynt og ljóst á um
aðild íslands að EB.
Það var afstaða Hjörleifs Gutt-
ormssonar og Alþýðubandalagsins
að Alþingi ætti að hafna þessum
samningi og hefja undirbúning að
bættum samskiptum við umheim-
inn út frá íslenskum forsendum.
Það yrði best gert með því að land-
ið skipaði sér utan stórra efna-
hagsheilda þar sem hagsmunir
stórvelda og fjölþjóðafyrirtækja
réðu ferðinni.
Óbreytt afstaða og
frávísunartillaga
3. minnihluti utanríkismála-
nefndar var Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir (SK-Rv). Hún sagði
að þau rök og forsendur sem lágu
til grundvallar umræðunni um
EES í janúar ættu enn við. Á sömu
forsendum og þá teldi hún að
ríkisstjómin og stjórnarflokkarnir
yrðu að bera hina pólitísku ábyrgð
á þeirri samningsniðurstöðu sem
fyrir lægi. Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir kvaðst því myndu sitja hjá
við afgreiðslu þessa frumvarps.
Kristín Einarsdóttir (SK-Rv)
lýsti yfir stuðning við tillögu þing-
flokksformanna stjórnarandstöðu
um að vísa málinu til ríkisstjómar.
Páll Pétursson (F-Nv) gerði
grein fyrir tillögu sem hann flutti
ásamt Ragnari Amalds (Ab-Nv)
þingflokksformanni Alþýðu-
bandalags og Kristínu Ástgeirs-
dóttur (SK-Rv) þingflokksform-
anni Samtaka um kvennalista:
„Mikil óvissa ríkir nú um afdrif
samningsins um Evrópska efna-
hagssvæðið og hefur utanríkisráð-
herra m.a. viðurkennt að ólíklegt
sé að hann taki gildi á þessu ári.
Samningurinn hefur enn ekki ver-
ið tekinn til afgreiðslu nema á
fáum þingum EB-Ianda. Jaframt
er talið að verði Maastricht-samn-
ingurinn ekki staðfestur af Dönum
eða Englendingum muni EES-
samningurinn ekki ná fram að
ganga á öllum þjóðþingum EB-
ríkjanna. í sumar kann því að
vera komin upp allt önnur staða
en nú er uppi í þessu máli. Þegar
af þeirri ástæðu telur Alþingi ekki
rétt að afgreiða þetta framvarp
og samþykkir að vísa því til ríkis-
stjómarinnar. Jafnframt sam-
þykkir Alþingi að samningurinn
verði ekki lagður fram á ný á
Alþingi til staðfestingar nema að
undangenginni þjóðaratkvæða-
greiðslu."
Svavar Gestsson (Ab-Rv)
sagði að þótt nú lyki formlegri
meðferð EES-samningsins á Al-
þingi, þá ætti það mál eftir að
koma aftur og aftur fyrir þingið.
Svavar taldi ekki undan því vikist
að nefna ýmis atriði sem hann
taldi enn óljós. Hann minnti á
fylgiframvörp EES sem ekki hafa
verið lögð fram og spurði utanrík-
isráðherra m.a. eftir framvarpi um
virkjunarrétt fallvatna og fram-
varpi um eignarrétt auðlinda í
jörðu.
Kl. 18.30 bað þingforseti,
Sturla Böðvarsson, ræðumann um
að fresta sinni ræðu því samkomu-
lag væri um að gera tveggja
stunda hlé á þingfundi vegna
nefndarstarfa. Svavar Gestsson
varð við þessari bón.
Ráðgert var að ljúka umræðu
á kvöldfundi og greiða atkvæði
um framvarpið í dag.
í
i
I
4
4
4
4
4
Eitt atriði úr myndinni.
Gengið um gömul mann- <
virki og mannvirkjastæði <
Bíóhöllin sýn-
irmyndina
Handagang-
ur í Japan
BÍÓHÖLLIN hefur hafið sýn-
ingar á myndinni Handagangur
í Japan eða „Mr. Baseball".
Framleiðendur eru Fred Schep-
isi, Doug Claybourne og Robert
Newmyer, leikstjóri er Fred
Schepisi og aðalhlutverk í hönd-
um Tom Selleck, Ken Takakura
og Aya Takanashi.
Tom Selleck leikur Jack Elliot,
ærslafullan og óhlýðinn hafna-
boltaleikmann sem þarf að ná sér
á strik í íþrótt sinni þegar hann
er seldur til Japan. Þar hittir hann
fyrir þjálfarann Uchiyama sem
stjómar liði sínu af hörku og á
allt annan hátt en Jack hefur van-
ist hingað til.
Þegar Jack lék í Bandaríkjunum
hafði hann sinn hátt á. Svo lengi
sem hann sló boltann út yfir enda-
mörkin stóð yfírmönnum hans á
sama um hvað hann gerði af sér
nóttina áður. Jack átti margar vin-
konur, gerði nýliðum í liðinu grikk
og tók ekki eftir á æfingum. Nú
á hann við eitt vandamál að stríða,
hann hefur ekki slegið boltann að
undanförnu og þrátt fyrir mikil
mótmæli er hann sendur til Japan.
Þama er allt annar heimur,
áhorfendur borða smokkfísk á
leikjum, æfingarnar era allt öðru-
vísi en Jack á að venjast og menn
gleðjast mikið ef leikimir enda með
jafntefli. Jack þarf því að finna sér
eitthvert séreinkenni, eitthvað sem
aðgreinir hann endanlega frá
heimamönnum.
Nú er spurningin sú hvort Jack
geti spilað þennan bandaríska leik
eftir japönskum leikreglum. Getur
hann lært að vinna með liðinu eða
fella sig að landi þar sem Twin
Peaks eru í fyrsta sæti vinsældar-
lista í sjónvarpi. (Fréttatnkynning)
Hafnargönguhópurinn stendur
fyrir stuttri gönguferð um hafn-
arsvæði gömlu hafnarinnar laug-
ardaginn 1. maí. Gangan hefst kl.
16 við Hafnarhúsið að vestan-
verðu.
Eftir að hafa skoðað tveggja
manna far, léttbát, sem þar er, verð-
ur gengið upp í Grófina. „Á sjávar-
kambinum“ spjallar Vilhjálmur Hall-
dórsson sjómaður um róðra til fi-
skjar á árabáti. Síðan verður farið
í gegnum Bryggjuhúsið (Álafossbúð-
ina) niður á bólvirkið þar á bak við.
Þar lýsir Guðný Ámadóttir verka-
kona vaski á saltfiski. Frá bólvirkinu
verður gengið „Með ströndinni“ eftir
Hafnarstrætinu út á Steinabryggju.
Ólafur Kristjánsson verkamaður
segir þar frá uppskipunarvinnu á
fyrri hluta þessarar aldar. Að þessu
loknu verður gengið til baka um
nýja Miðbakkann sem er í byggingu.
Gömlu fánamir verða dregnir að
húni fyrir framan Borgarhúsið og
konur í íslenskum búningum taka á
móti hópnum í Bryggjuhúsinu. Allir
er velkomnir í gönguna.
(Fréttatilkynning)
------ ♦ ♦ ♦------
Kaffisala
hjá Kristni-
boði kvenna
KAFFISALA Kristniboðsfélags
kvenna í Reykjavík verður á
morgun, 1. maí, í Kristniboðssaln-
um á Háaleitisbraut 58, 3. hæð, -
frá kl. 14 til 18 síðdegis.
I fréttatilkynningu segir meðal
annars: „Verkefnin eru óþrjótandi
og þörfin brýn. Allt þetta starf er
borið uppi af kristniboðsvinum og
velunnurum. Kaffihlaðborð kristni- {
boðsfélagsins veitir gestum og gang-
andi tækifæri til að njóta um leið
og þeir leggja sitt af mörkum til
styrktar umfangsmiklu verki.“