Morgunblaðið - 30.04.1993, Side 11
,MORGfUNj3L4Ðffl Fft^XUDApVfi 30,, ARRÍþ ,49.93
UM HELGINA
Leikarar Skagaleikflokksins
Gunnar Örn
Myndlist
• •
Gunnar Orn í
Portinu
í Portinu, Hafnarfirði, verður opnuð
sýning á myndverkum á pappír eftir
Gunnar Örn, laugardaginn 1. maí
klukkan 15.
Gunnar Örn hélt sína fyrstu einka-
sýningu 1970 og hefur síðan haldið
24 einkasýningar. Hann hefur tekið
þátt í samsýningum víða um heim og
eru verk hans á söfnum á íslandi og
erlendis.
Sýningin er opin alla daga nema
þriðjudaga og lýkur 16. maí.
Brúðu og grímugerð
Katrín Þorvaldsóttir og Marisa N.
Arason opna sýningu í Portinu, laugar-
daginn 1. maí klukkan 15. Katrín hef-
ur haldið námskeið i brúðu- og grímu-
gerð hér heima og erlendis og tekið
þátt í gjörningum og götuleikhúsum
víða um Evrópu. Hún vann einnig við
gerð brúða og stjómun með nokkrum
brúðuleikhúshópum á Spáni, þar af í
tvö ár hjá Centre de Titelles í Lleida
á Spáni. Hér heima starfrækir hún
Emblu leikhúsið. Verk Katrínar á sýn-
ingunni em brúður og brúðuskúlptúr-
ar, sem hún hefur unnið á undanförn-
um tveimur ámm.
Marisa stundaði ljósmyndanám sitt
við Institut d’Estudis Fotografics de
Catalunya í Barcelona 1983-86. Hún
hefur starfað hjá ýmsum ljósmyndur-
um hér á landi og einnig sem “free-
lance" ljósmyndari, en sl. fjögur ár
hefur hún verið starfsmaður Ljós-
myndasafns Reykjavíkurborgar. Mar-
isa hefur tekið þátt í samsýningum hér
heima og í Barcelona.
Verk Marisu á sýningunni em list-
rænar ljósmyndir teknar hérlendis.
Henni lýkur 16. maí.
Grétar sýnir í Eden
Grétar Þ. Hjaltason heldur um þess-
Katrín Þorvaldsdóttir og Marisa N. Arason.
ar mundir sína fjórðu sýningu í Eden
Hveragerði. Á sýningunni era 40
myndir þar af 20 vatnslitamyndir af
landslagi og 20 myndir með blandaðri
tækni, og stendur. hún 9. maí nk.
N emendasýning
Myndlistaskólinn í Hafnarfipði
gengst fyrir nemendasýningu í skólan-
um að Strandgötu 50, laugardaginn
1. og sunnudaginn 2. mai frá klukkan
14-18. Á sýningunni verður sýnt úrval
af verkum nemenda skólans, unnum á
vorönninni. Alls hafa um 110 nemepd-
ur stundað nám við skólann í vetur.
Auk hefðbundins skólastarfs hefur í
tengslum við Myndlistarskólann vefið
rekinn sýningarsalurinn Portið.
Vorsýning FB
Sýning á verkum 16 útskriftarnema
á listasviði Fjölbrautaskólans í Breið-
holti, opnar í dag, föstudaginn 30.
apríl klukkan 17 í menningarmiðstöð-
inni Gerðubergi. Hér er um lokaverk-
efni að ræða, verkefni sem unnin voru
í þremur síðustu lotum námsins, en
þá lögðu útskriftarnemarnir stund á
módel- og umhverfisteikningu, málun
og gerð þrívíðra verk. Sýningunni lýk-
ur 8. maí.
Leiklist
“Alltaf má fá annað
skip“
Skagaleikflokkurinn hefur undan-
farnar vikur sýnt leikritið “Alltaf má
fá annað skip“ eftir Kristján Kristjáns-
son í Bíóhöllinni á Akranesi. Aðstand-
endur sýningarinnar sækja nú um þess-
ar mundir á fjarlægari mið - sýnt verð-
ur í Félagsheimili Kópavogs, laugar-
daginn 1. maí og hefst sýningin klukk-
an 20.30. Ekki er vitað með vissu hvar
ankeram verður kastað þegar haldið
verður frá Kópavogi en útgerðin hefur
hug á að komast fyrir Garðskagann
og sigla upp Ölfusá í áttina að Selfossi.
Sigrún Eldjárn
til nýjar áherslur á vettvangi
hvunndagsins. Þetta er eins og
þegar sumir tala í síma og nota
þá spariröddina eða þegar kenni-
faðirinn talar í líkingum úr prédik-
unarstólnum og bregður fyrir sig
biblíumáli, sem engir nema furðu-
fuglar nota dags daglega.
Kannski mætti skilgreina at-
hafnir Sigrúnar í listinni á þann
i veg, að hún sé að skemmta lífs-
glöðum börnum á öllum aldri,
a.m.k. vill hún koma fólki í gott
skap og tekst það vafalaust. Og
hvernig sem á málin er litið er það
meira hlutverk, en að skemmta
gömlu og lúnu fólki á öllum aldri,
sem alltof margir virðast vera að
rembast við í myndlistinni!
Heimur. Sigrúnar, uppábúnir
kallar og kellingar í peysufötum
með fjöllin og náttúruna í bak-
grunninum, og sumarheiðríkjuna
er leikur blítt um gróin tún og elsk-
ar allt og alla, er um sumt ekki
ólíkur því sem Karólína Lárusdótt-
ir og raunar fleiri í útlandinu hafa
verið að fást við. En Sigrún fer
að hlutunum með sínu lagi og fjöll-
in eru alíslenskur skáldskapur og
gætu verið hvaðan sem er af land-
inu.
Hér áður fyrr málaði Sigrún
ógnarmikla kletta og pínulitlar
manneskjur, sem voru rétt svo í
fókus, en nú eru þær komnar nær
og fókusinn orðinn skýrari að segja
má.
Og um leið er þetta skrítna fólk
komið með sparistólana sína, sem
það hefur lakkað hárauða, út í
guðsgræna náttúruna, og ræðir
þar saman undir háu fjalli um
heimsins gagn og nauðsynjar á
stundum yfir kaffibolla. Hvítt
postulínsstell á borði með öðruvísi
þyngdarlögmál en yfirleitt gerist í
mannheimi. Og stundum stillir
fólkið sér upp fyrir framan málar-
ann, t.d. hinum megin á árbakkan-
um, eins og nýkomið frá sunnu-
dagsprédikun í sveitakirkjunni og
það merlar í endui-varp þeirra á
Ijósbláum logntærum vatnsfletin-
um
Andstæðurnar rautt og grænt
spila hér saman með bláum áhersl-
um í bakgrunninum eins og vera
ber. Heilmikið af grænu, sem
oddmjóar rauðar línur og rákir
skera líkt og leiftur og kann að
eiga að tákna funheitt blóðið og
hjartsláttinn, jafnt í mannfólkinu
sem móður jörð, en þjóna um leið
lit- og byggingarlögmáli myndflat-
arins.
Litirnir eru sjaldnast hvellir,
frekar varfærnislegir og þunnt
borið á flötinn, pensilstrokurnar
eilítið viðkvæmar, því að hér má
engan meiða. Og þó er vikið út
af reglunni í þremur myndum á
endavegg er allar nefnast „Roði“
og slær hér á nýja strengi sem
kann að boða kröftugri átök við
myndflötinn í framtíðinni.
Rýnirinn staðnæmdist oftast við
þessar myndir ásamt öðrum, vel
upp byggðum, eins og „Fjallabak"
(24), „Jarðvist" (25), „Jarðsam-
band“ (28) og loks „Fjallasýn"
(32), þar sem hvítar doppur í for-
grunninum,\ kannski bifukollur, ljá
honum sérstæðan þokka.
Nýtt Ský komið út
NÍUNDA hefti ljóðatímaritsins Skýs er komið út. Gestarit-
stjórar þessa heftis eru Bragi Ólafsson og Þór Eldon og hafa
þeir séð um efnisval.
í tímaritinu er að finna Ijóð eft-
ir Atla Jósefsson, Valgarð Braga-
son, Aðalstein Svan Sigfússon,
Óttarr Proppé, Harald Jónsson,
Ara Gísla Bragason, Kelly Ann
Smith, Jón Marinó Sævarsson og
Sjón.
Þá birta þeir Bragi og Þór þýð-
ingar sínar á ljóðum eftir hið
kunna franska skáld Guillaume
Apollinaire og á ljóðum síleska
framúrstefnuskáldsins Vicente
Huidobro (1893-1948).
Einnig eru í heftinu teikningar
eftir Hallgrím Helgason og ljós-
myndir af alíslenskum svið-
akjömmum sem Spánveijinn Edu-
ardo Pérez Baca tók.
Ský kostar 400 krónur og fæst
í Bókabúð Máls og menningar og
Bókaverslun Sigfúsar Eymunds-
sonar í Austurstræti. Áskriftar-
beiðnir og bréf berist í pósthólf
1686, 121 Reykjavík.
/ kvöld á Hótel í.ilandi kl. 18.30
Dagskrá:
Ljúfir tónar vuf kontu gc.ita á.*amt forórykk í boói Seagram.*
KeppenÓur koma fram í loðfeldum frá Eggerti felóokera
Tilbrigði við fegurð
Stúlkurnar 18 eru kynntar í Belcor .lunófatnaði
Daníel og Hrefna Ró.*a frá Dan.u*kóla Hermann.* Ragnar.* ,*tíga
nokkur létt ,*por
Sigrún Hjálmtýddóttir .lyngur nokkur lög
Feguróardrottningar fyrri ára eru kynntar ífatnaði frá CM
Þátttakendur konta frarn í vamkvœmufatnaði meðMonet vkartgripi
Krýning fegurðarðrottningar I.tlanð.* 1993 um miðnœtti
Hljónuveit Geirmunðar Vltý.*.*onar leikur fyrir ðan.*i til kl. 3.00
ý •—«—
Mat.ieðill:
Sjávargull Poveiðon,*
Á*tr(ðu.*orbet
Lambahryggovöðvi að hiztti Diony,*u.*ar nteðpertulauk*.nk*u
Ootaterta Afróðítu
Verð kr. 6.900 með mat. Kr. 2.000 án matar
Krýning kr. 1.000
Kynnir: Sigursteinn Másson.
Borðapantanir í síma 687111.
vikan
CLARINS chanel
u újfmstk
©Jjj
IAUGAVEGI97
CTL
-^4
cniaáÉfeani
ÍEGGERT
UÍtLn
FLUGLEIDIR j
WEUA
Bdcorl
Conny
OROBLU
^DELSEY
Lajobíca
World Class;
m
SKÆÐl
STKitÁNSBÍQjvi
l