Morgunblaðið - 30.04.1993, Síða 13

Morgunblaðið - 30.04.1993, Síða 13
SgGJ aui'iA..Of Er Björn Th. ótrúverðugur - eða þarf hann að fá sér ný gleraugu? eftir Þorstein Thorarensen Fyrir nokkru gerði Björn Th. Björnsson mér þann „heiður" að geta mín og Stóru Listasögu Fjölva i erindi sem hann flutti á opinberum vettvangi að mér skilst á vegum Reykjavíkurborgar. Nokkuð er um liðið, en mér bárust spurnir af orð- um hans og er það ekki fyrr en nú, sem mér hefur tekist að útvega afrit af ræðunni. Þar sem Björn Th. veitist þar ódrengilega að mér, vildi ég mega svara fyrir mig. Björn Th. hóf ræðu sína með beinni tilvitnun í upphaf kafla míns um Endurreisnina á Ítalíu: „Árið 1401 efndi Flórensborg til samkeppni um lágmyndir í Skím- húsdyr, og þar með hófst Endur- reisnaröld." Hitt er einkennilegt að Bjöm Th. sleppti alveg næstu setningu, sem er svona: „Verðlaunamyndin fól þó ekki í sér stílbyltingu." (En þessi setning er auðvitað beinlínis sett þarna til að undirstrika það, að sjálf Endurreisnin var ekki hafin með þessu íhaldssama verðlaunaverki). í stað þess að láta þessa setningu fylgja með fór Björn Th. að leggja út af orðum mínum, eins og klerkur út af guðspjalli, en því miður á mjög svo villandi hátt, þegar hann segir: „Svona einfalt er það, svona guð- dómlega einfalt. — Verði ljós og það varð ljós. — En því miður fyrir þau Ginu Pischel ög Þorstein Thor- arensen, sem skrifaði þessi barns- legu orð í Listasögu Fjölva — og sem betur fer fyrir okkur hin, þá er framvinda mannlegrar hugsunar ekki alveg svona einföld, — hún er ögn flóknari.“ Misskilningur eða blekking? Þessi ásökun Björns Th. að ég einfaldi upphaf Endurreisnarinnar á Ítalíu í Listasögu minni er „ein- faldlega“ fráleit. Það getur hver maður séð með því að lesa bók mína. Á sama tíma verður það næsta óskiljanlegt, hvernig fræð- ingurinn getur komist að svo kolr- angri niðurstöðu. Það hlýtur að stafa annaðhvort af „misskilningi“ eða „vísvitandi blekkingu“. 1401 — upphaf nýrrar aldar Það sem ég var einfaldlega að segja í þessari upphafsklausu minni var, að 15. öldin hefði byijað árið 1401, sem er almanaks-staðreynd, alveg eins og 20. öldin byijaði auð- vitað aldamótaárið 1901. En saman við það blandaðist sú skemmtilega tilviljun að borgarstjórnin í Flórens fagnaði nýrri öld með listasam- keppni. Eg segi hvergi „Verði ljós og það varð ljós.“ Ég er hræddur um að Björn Th. sé þarna að rugla saman bókum. Hann hlýtur að hafa lesið þetta í Biblíunni (sem ég skrifaði að vísu líkal). Maður hlýtur að undrast það, hvernig jafn fróður maður og Bjöm Th. getur komist að svo vitlausri niðurstöðu. Skýringin á því er þó kannski einföld. Hann virðist túlka setningu mína þannig, eða ganga út frá því að ég segi að sjálf „Endurreisnin“ hafi byijað árið 1401, — en það gerði ég aldrei, ég sagði ekkert annað en að „Endurreisnaröld" hefði byij- að á aldamótaári sínu, og á því er auðvitað mikill munur. Hitt er svo víst að á þessum eina rangskilningi hvílir öll rangtúlkun Björns Th. Greining (Analysa) Næst hlýt ég þá að koma að því og velta því fyrir mér, hvort þessi rangtúlkun Björns Th. byggist á misskilningi eða vísvitandi blekk- ingu. Það getur verið afar flókið mál (eins og sjálf Endurreisnin). Þá þyrfti helst, ef vel á að vera að taka sálarlíf Björns Th. til rann- sóknar, svo sem hvort hann sé sann- sögull og réttsýnn eða öfgafullur og einsýnn, en hér er ekki rúm til þess, heldur skulum við halda okkur við bókstafinn. Ég mun þá reyna að greina (ana- lysera), hvort hér var um að ræða heiðarlegan misskilning eða vísvit- andi blekkingu hjá Birni Th. 1. Þegar hann las upp setningu mína, sagði hann enn rétt „Endur- reisnaröld", en þegar hann lagði út af henni gekk hann greinilega út frá því að ég hefði verið að tala um upphaf sjálfrar „Endurreisnar- innar“. Þarna skolast þetta til hjá honum á svo stuttri leið (eitthvað 5 millímetrum á vélrituðu blaði) að það bendir fremur til að um sé að ræða blekkingu. Auk þess ætti maðurinn að gera sér grein fyrir, hvað tunga hans sjálfs segir. 2. Hann sleppir viðbótarsetning- unni: „Verðlaunamyndin fól þó ekki í sér stílbyltingu." Þetta er einmitt dæmigerð blekkingaraðferð, sem kallast „að slíta úr samhengi orð og setningar.“ Nokkrar málsbætur Ekki lítur það vel út fyrir Björn Th. eftir fyrstu lotu. Hvað ef hann væri nú dreginn fyrir dóm Erlings Gíslasonar, sem nú les svo snilldar- lega hina frægu skáldsögu Kafka? Komin eru strax fram tvö sönnun- argögn um að hann beiti blekking- um og slíkt hugsa ég að sé ekki reglulega vænlegt fýrir trúverðug- leika hans sem listfræðings, þar þyrfti réttsýni og heiðarleiki að gilda. En kannski hefur Björn Th. eitt- hvað sér til málsbóta. Hann er víst nokkuð sjóndapur og því er honum vorkunn að hafa kannski ekki séð orðið Endurreisnar„öld“, þó hann læsi það að vísu rétt upp. Sé það rétt, er ég auðvitað reiðubúinn í mannkærleika að fyrirgefa honum þennan misskilning. En því miður kemur það fram í mörgu öðru, hvað Björn Th. er sorg- lega sjóndapur. Hann sakar mig um að lýsa uppkomu Endurreisnar- innar barnslega sem einföldu atviki (svona álíka og sköpun heimsins!). Ekkert er fjær lagi, enda kemur þessi staðhæfing algjörlega þvers- um við grundvallarsjónarmið mín í listfræði. í Stóru Listasögu minni er þvert á móti leitast við meira en nokkru sinni áður að rekja allar rætur listastrauma og stefna og síðan er farið nánara út í alla þætti í Nútíma-Listasögu Fjölva, Bygg- ingarlistasögu Fjölva og Líf og list- flokki Fjölva um nokkra stærstu meistarana. Víst geta orðið tímamótaviðburð- ir í listasögunni, eins og Óargasýn- ingin fræga í París eða September- sýningin hér heima. En bak við allt býr sterkur straumur, merkileg og langvarandi þróun, sem stöðugt heldur áfram. Særandi ásökun Ásakanir Björns Th. um að ég einfaldi upphaf ítölsku Endurreisnar í einhveiju voðalegu „Biggbangi" eru sérstaklega óviðeigandi og særandi fyrir mig, því að sjaldan hef ég farið jafn ýtarlega í saumana. Eg gerði mér vissulega far um að lýsa Endurreisninni frá öllum hliðum og í öllum blæbrigðum. í það fara um 120 blaðsíður í stóru broti með um 150 skýringarmyndum, sem allar eru auðvitað í fegurstu litprentun. En svo er að sjá sem Björn Th. hafi alls ekki séð þetta, eða a.m.k. ekki lesið það. Og má segja um það að mikið er maðurinn sjóndapur. Ótal tilvitnanir Hvað viðvíkur aðeins upphafi Endurreisnarinnar get ég vitnað í ótal setningar úr bók minni, sem sýna þetta: 1. „Endurreisnin stóð í stórum dráttum í tvær aldir.“ 2. „Endurreisnin var andleg hreyfing í allri Evrópu." 3. „Endurreisnin var uppreisn gegn flúri og hirðtískusýningu Síð- gotneskrar listar, menn þyrsti í hreinni form.“ 4? „Samt var Gotneska öldin í þekkingarleit og vísindarannsókn alger forsenda þessarar nýfæðing- ar.“ 5. „Því var Endurreisnin um leið framhald Gotneska stíls.“ 6. „Sérstaklega eru þessi tengsl sterk í málaralistinni, þar sem lit- gleði og nákvæmnisteiknun Gotn- eska stíls endurómar stöðugt í End- urreisninni." (Hvar talaði ég um Big Bang?) 7. „I Endurreisninni vaknaði gíf- urlegur áhugi á fornbókmenntum.“ 8. • „Mikilvægasta kennimerki Endurreisnar var leit hennar og þrá eftir manngildi." 9. „Nú vaknaði krafan um nýjan skilning á guðdóminum og á mann- inum sem meðtakanda trúarinnar, að lokum snerist allt um manninn sjálfan, sál hans, tilfinningar, gleði og sorg, sigur hans og niðurlæg- ingu.“ 10. „Sálræn og fagurfræðileg rannsókn, sem reynt var að um- segja í stærðfræðigildum, einkenndi listsköpun Endurreisnar." 11. „Nú fyrst má með fullum rétti fara að ræða myndgerðina út frá öllum hugsanlegum hliðum, af því að höfundar og samtíðarmenn voru sér þeirra meðvitandi." Víðfeðm og fjölbreytileg áhrif Þannig gæti ég haldið áfram endalaust að vitna í Listasögu mína, til að undirstrika það sjónarmið mitt að líta beri á hinn breiða marg- þætta straum sem framhald af því sem á undan var komið og lýsa þróuninni frá öllum mögulegum hliðum. Hér er hreint ekkert einfalt né barnalegt, heldur verulega djúp- skyggn lýsing á listaþróun. Sama endurtekur sig í umfjöllun hvers einasta listamanns sem um er get- ið. Hvemig byggingarlistin var í fararbroddi, en Endurreisnarstíls gætti ekki í höggmyndalistinni fyrr en um 1420, þegar þeir þremenn- ingarnir sem áður tóku þátt í sam- keppninni um Skímhúsdyrnar sam- einuðust um mótun nýrra hug- mynda og enn síðar í málaralist- inni, sennilega af því að menn höfðu engar fornar fyrirmyndir þar til að styðjast við, en þegar að því kom kringum 1425 gef ég þessa lýsingu: 12. „Áhrif Endu'rreisnar í mál- aralist voru (þá) snögg og bylting- arkennd og knúðu listamenn til endurmats. En þau voru svo víð- feðm, að menn gátu tæpast numið þau í öll í einu. Þau verkuðu á mis- jafnan hátt og úr varð ýmiskonar Þorsteinn Thorarensen „Mér virðist að málið liggi hér svo beint fyr- ir, að það geti verið öll- um augljóst, að köpur- yrði hans voru ekki réttmæt og það var ósanngjarnt af honum að reyna að niðurlægja mig með því áhrifavaldi sem hann sjálfur hefur og yfir fullum sal áheyrenda, án þess að ég gæti varið mig.“ blendingur, þar sem þættir eldri stílgerða voru sífellt að gægjast í gegn. Margir málarar Snemm-Endur- reisnar voru þannig beggja blands. Allir heilluðust þeir af töfrabrögð- um íjarhvarfs (perspektífs) og margir af hinum rómversku byggi- einingum í bakgrunni og dauflitun umhverfis. Og hugsjónastefnan gerði almenna kröfu um holdgun og hugsæi mannsins, sem væri færður inn í raunveru-umhverfí. En til að ná því mátti fara ýmsar leiðir, vísindalegar mæliaðferðir eða láta stjórnast af sálrænum kennd- um og hugblæ. Mjög varð misjafnt, hvernig menn beittu ljós- og lit- hvörfum og byggðu upp myndskip- un, sumir fastskorðuðu stíf form, aðrir mögnuðu þau til hreyfikennd- ar og til að þóknast höfðingjum gætti tilhneigingar til viðhafnar- forma. Þó menn slepptu (gotnesku) rósa- görðunum, voru margir tregir að segja skilið við skæra litun, og þó 6 I z 3 J □flug garðsláttu- vél þar sem gæði, ending og þægindi tnyggja þér mun fallegri flöt en nágrannans ! * ÞU SIÆRÐ ENW BETUR MEÐ LAWN-BOY "M' * eöa þer til hann feer llka LAWN-BOY "M" K> H ÁRMLJLA 11 F— SÍMI 681500 menn leituðu að innsæju persónu- gildi, þótti sumum óþarfi að fleygja fyrir róða fögrum tískubúningum. Síð-gotnesk dulúð Paólós Uccelló (1397-1475), sem var Flórensbúi eins og hinir, en hafði farið til Fen- eyja og gengið á hönd litríkri heill- un og dimmri dulúð Pisanellós og Gentiles de Fabrianó. Þó hann yrði gagntekinn af fjarhvarfanýjung- inni, hélt hann áfram að lifa í síð- gotneskum undraheimi og magnaði hann með nýjum áherslum ljósvæg- isins.“ Vesalings Dunganon Ég vona að þessi síðasti kafli geti gefíð nokkuð til kynna hve óréttmætar ásakanir Björns Th. eru um að ég hafí einfaldað ítölsku endurreisnina eins og kveikt hafi verið á peru. Mér virðist að málið liggi hér svo beint fyrir, að það geti verið öllum augljóst, að köpuryrði hans voru ekki réttmæt og það var ósanngjarnt af honum að reyna að niðurlægja mig með því áhrifavaldi sem hann sjálfur hefur og yfir fullum sal áheyrenda, án þess að ég gæti varið mig. Mig langar ekkert til að elta ólar eða illdeilur við nokkurn mann, ég er fremur friðsamur, en kannski eins og Dunganon dálítið ófélagslyndur og sérvitur einfari, en mér fínnst að það mætti þó meta það við mig, að ég hafi unnið þjóð minni sæmilegt gagn með útgáfu stóru Listasögunnar minnar, án þess að hafa notið nokkurra styrkja eða fyrirgreiðslu frá einum eða neinum. Og ég get ekki að því gert, að mér finnst líka þær tilvitnanir sem ég hér hef birt úr Listasögunni, sérstaklega sú síðasta (Nr. 12), sýna svart á hvítu, að þú, Björn Th., ættir bæði að biðja mig afsökunar og kaupa þér ný gleraugu. Höfundur er ritliöfundur og bókaútgefandi. Bílamarkadurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraur Kopavogi, sími S71800 ^ Opið sunnudaga kl. 13 - 18. Renault Express '92, hvítur, 5 g., ek. 15 þ. V. 790 þús. (VSK bíll). M. Benz 190E '88, hvítur, sjálfsk., ek. 85 þ., sóllúga, driflœsingar o.fl. V. 1890 þús. Subaru 1800 GL station 4x4 '86, blá- sans, mjög gott eintak. V. 580 þús. MMC Colt GLX '89, rauður, 5 g., ek. 72 þ., rafm. í rúðum o.fl. V. 630 þús. Toyota Corolla XL Liftback '88, stein- grár, 5 g., ný uppt. vél. Gott eintak. V. 670 þús. Daihatsu Charade TS '92, hvítur, 3ja dyra, ek. 10 þ. V. 660 þús. stgr. Suzuki Swift GL '90, 5 dyra, 5 g., ek. 28 þ. V. 580 þús. Nissan Patrol langur diesel '86, 5 g., ek. 170 þ., spil o.fl. V. 1550 þús. MMC Lancer GLX Hlaðb. '90, sjálfsk., ek. 44 þ. V. 890 þús., sk. á 4 x 4 fólksbil + pen. MMC Galant GLSI 4x4 '90, ek. 61 þ., rafm. í öllu o.fl. V. 1200 þús. Toyota Hi-Lux Extra Cab '91, ek. 54 þ., 35“ dekk, álfelgur, 5.71 hlutf. o.fl. V. 1790 þús. Mazda E-2000 '89, m/skjólborðum, ek. 83 þ., ber 2 tonn, „VSK-bíll*4. V. 640 þús.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.